Morgunblaðið - 11.04.1984, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1984
Neytendamál fyrir
héraðsdómstólum
„Jómfrúrræöa44
Jóns Magnús-
sonar á Alþingi
HÉR FER á eftir fyrsta þingræða,
„jómfrúrræða“, Jóns Magnússonar
(S), þriðja varaþingmanns Sjálfstæð-
isflokks í Reykjavíkurkjördæmi, er
hann mælti fyrir fyrirspurn til Jóns
Helgasonar, dómsmálaráðherra, um
„minniháttar einkamál fyrir hér-
aðsdómi", eða svokölluð neytenda-
mál.
„Ég hef leyft mér að bera fram
eftirfarandi fyrirspurn til hæst-
virts dómsmálaráðherra:
Hvað líður undirbúningi að setn-
ingu laga um meðferð minniháttar
einkamála fyrir héraðsdómi?
Á Alþingi 1976—1977 var lögð
fram og samþykkt þingsályktun-
artillaga um fljótvirkari og ódýr-
ari meðferð minniháttar mála
fyrir héraðsdómstólum. Flutn-
ingsmenn voru Bragi Sigurjóns-
son o.fl. Tillagan var á þessa leið,
með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að leggja fyrir
ríkisstjórnina að hún láti nú þegar
semja frumvarp til breytinga á
lögum og geri aðrar ráðstafanir til
undirbúnings því, að komið verði á
fljótvirkari og ódýrari meðferð
minniháttar mála fyrir héraðs-
dómstólunum. M.a. geti dómari
ákveðið, að mál sem höfðuð eru af
viðskiptavini verslunar eða þjón-
ustufyrirtækis vegna viðskipta við
fyrirtækið, hljóti skjótari og ódýr-
ari afgreiðslu en nú tíðkast. Með-
ferð þessari megi beita við minni-
háttar mál, sem varða allt að kr.
100.000,-. Við þessar lagabreyt-
ingar verði meðferð líkra minni-
háttar mála í öðrum löndum höfð
til hliðsjónar, en reglur færðar til
íslenskra aðstæðna."
Hér ber að geta, að sú fjárhæð
sem nefnd var í þingsál.till. var
gamlar krónur.
í ýmsum löndum hafa verið
lögfestar reglur, sem heimila ein-
faldari og ódýrari meðferð einka-
mála en almennt gildir. í þessu
sambandi má benda á Bandaríkin,
Bretland og Svíþjóð. í Bandaríkj-
unum hefur þessi skipun mála
verið við lýði í sumum ríkjum allt
frá árinu 1912, en lög um þessi
efni voru sett í Bretlandi árið 1973
og í Svíþjóð árið 1974. Einkenni
þessara svokölluðu minniháttar
einkamála eru þau að einungis er
heimiluð einfaldari málsmeðferð
fyrir dómstólum þegar kröfufjár-
hæð er undir ákveðinni há-
marksfjárhæð. í Bandaríkjunum
er miðað við 1000 dollara, í Bret-
landi 2.000 pund og í Svíþjóð
sænskar krónur 10.400.00. Mark-
mið slíkrar lagasetningar í um-
ræddum löndum er að tryggja það,
að fólk geti náð rétti sínum án
þess að þurfa að leggja í meiri-
háttar kostnað eða bíða eftir úr-
slitum máls óhæfilega langan
tíma. Þá er og annað einkenni
þessara mála í umræddum lönd-
um, að ekki er dæmdur annar
málskostnaður, en sem nemur
ferðakostnaði viðkomandi og
kostnaði við endurrit og birtingu
dóms.
Á undanförnum árum hefur víð-
ast hvar á Vesturlöndum verið
leitast við að auðvelda og hraða
meðferð einfaldra innheimtumála.
Má í því sambandi m.a. benda á
lögfestingu svonefndra áskorun-
armála nú lög nr. 97 frá 1978. Sú
lagasetning og önnur svipaðs eðlis
koma aðallega þeim til góða, sem
stunda einhverja atvinnustarf-
semi.
I kjölfar aukins neytendastarfs
og ríkari neytendavitundar á síð-
ari árum hefur athyglin beinst í
auknum mæli að því hvernig ein-
staklingar geti á sem auðveldast-
an hátt náð rétti sínum.
Hefur mönnum fundist að
venjuleg dómstólameðferð væri of
seinfarin og kostnaðarsöm, sér-
staklega varðandi mál um lágar
fjárhæðir. Þessi mál eru þó iðu-
lega ekki jafnauðveld úrlausnar og
þau innheimtumál, sem ég gerði
að umræðuefni áðan. Einstakling-
inn getur hins vegar skipt miklu
máli að eiga möguleika á því að fá
úrlausn slíkra mála án allt of mik-
ils kostnaðar. Það skiptir líka máli
í þessu efni, að seljendur vöru og
þjónustu viti af því, að neytendur
eiga þess kost, að fá úrtausn mála
Jón Magnússon
með ódýrum og skjótvirkum
hætti. Slíkt veitir nauðsynlegt að-
hald, skapar aukið jafnræði á
markaðnum og getur skapað for-
dæmi um það hvað séu góðir versl-
unarhættir eða þjónusta. •
í greinargerð með þingsálykt-
unartillögunni um fljótvirkari og
ódýrari meðferð minniháttar
mála fyrir héraösdómstólum frá
1976—1977 segir svo með leyfi for-
seta:
„í neysluþjóðfélagi eins og því
íslenska fer ekki hjá því að upp
komi fleiri eða færri deilumál,
m.a. milli neytenda og þeirra sem
selja þeim vörur og þjónustu.
Mörg þessara mála varða hvert
um sig ekki mikla upphæð og
verður það óhjákvæmilega til
þess, að neytandanum þyki ekki
borga sig að eyða tíma og fé fyrir
dómstólum. Á þennan hátt fer for-
görðum heilbrigt aðhald, sem
verslunarstéttunum er nauðsyn-
legt. Þá segir einnig með leyfi for-
seta: Þessa meðferð mála mætti
einnig nýta í öðrum skyldum smá-
málum og létta þannig vinnuálag
á dómstólum, en það hlýtur þá
einnig að leiða til hraðari með-
ferðar umfangsmeiri rnála."
Þann 6. nóvember 1979 fól þá-
verandi dómsmálaráðherra, Vil-
mundur Gylfason, borgardómur-
unum Friðgeiri Björnssyni og
Hrafni Bragasyni að vinna að
undirbúningi löggjafar um fljót-
virkari og ódýrari meðferð minni-
háttar mála fyrir héraðsdómstól-
unum, svonefndra neytendamála.
Eftir því sem ég best veit skiluðu
þeir Friðgeir og Hrafn verki sínu í
apríl árið 1980. Þannig að drög að
frumvarpi og greinargerð lá þá
fyrir.
Þar sem mér er ekki kunnugt
um að nokkuð hafi gerst í málinu
síðan, en fullbúin frumvarpsdrög
hafi legið fyrir um árabil, leyfi ég
mér að bera fram framangreinda
fyrirspurn til hæstvirts dóms-
málaráðherra."
Jón Helgason, dómsmálaráð-
herra, sagði téð frumvarp hafa
verið sent til réttarfarsnefndar,
þá tiltækt var, en hún hafi ekki
enn sent umsögn um það. Þess
væri hinsvegar að vænta að hreyf-
ing kæmist á málið innan tíðar.
Jón Magnússon (S) kvað 8 ár frá
því Alþingi hafi með þingsályktun
gefið fyrirmæli um, að frumvarp
skyldi „nú þegar" samið — og 4 ár
frá því frumvarpsdrög vóru til.
Það væri því meira en tímabært
að lífsmark sæist með fram-
kvæmdinni.
Tekjuskattur sérskattur á almenn laun:
Óréttlátur skattur í
hripleku skattakerfi
- sagði Jóhanna Sigurðardóttir
Innheimtur tekjuskattur einstakl-
inga 1983 nam 2.100 m.kr. en 470
m.kr. hjá lögaðilum. Samtals nam inn-
heimtur tckjuskattur 2.500 m.kr.
1983. Ekki liggur fyrir í tekjubók-
haldskerfi ríkisins, hvern veg greidd-
ur tekjuskattur skiptist milli einstakl-
inga, sem eingöngu hafa launatekjur,
og einstaklinga, sem jafnframt hafa
rekstur. Þessar upplýsingar komu
fram í máli Alberts Guðmundssonar,
fjármálaráðherra, er hann svaraði
fyrirspurn frá Jóhönnu Sigurðardóttur
(A) á Alþingi í gær.
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR
(A) hélt því fram í máli sínu að
tekjuskattur væri að meginhluta
skattur á almenn laun og gegndi
ekki lengur sama hlutverki til
tekjujöfnunar í þjóðfélaginu og áð-
ur. Fram væru komnar tvær tillög-
Jóhanna
Sigurðardóttir
Albert
Guðmundsson
ur til þingsályktunar um niðurfell-
ingu tekjuskatts sem bentu til að
þingvilji stæði til þeirrar þróunar.
Hinsvegar bæri að harma það að
ekki fengist upplýst, hve stór hluti
launaskatts kæmi eingöngu af laun-
um, en það væri trúa sín, að það
væri unginn úr tekjuskattsheimt-
unni. Tekjuskatturinn væri eins-
konar sérskattur á launatekjur og
óréttlátur sem slíkur í hripleku
ósanngjörnu skattakerfi okkar.
ALBERT GUÐMUNDSSON, fjár-
málaráðherra, sagði að fjöldi
skattskyldra einstaklinga 1983 á
gjaldaárinu 1983 hefði verið um
168.000. Tekjuskattur hafi verið
lagður á 88.350 einstaklinga. Þar af
hafi rúmlega 21.000 verið með
reiknað endurgjald, skv. álagn-
ingarskrá. Fjöldi einstaklinga með
álagt aðstöðugjald hafi verið sam-
tals 15.688. Tekjuskattur var hins-
vegar lagður á 2.435 lögaðila 1983.
Fjármálaráðherra sagði það yfir-
lýsta stefnu Sjálfstæðisflokksins að
stefna að afnámi tekjuskatta, þó
aðstæður á líðandi stund leyfðu
ekki að það spor væri stigið lengra
en gert hafi verið með tekjuskatts-
lækkun á sl. ári.
I.jóxm. Mbl friðþjófur.
Nílardansararnir
Egypskir dagar á
Hótel Loftleiðum
EGYPSKIK dagar standa nú yfir á
Hótel Ijoftleiðum og eru þeir haldnir á
vegum egypska flugfélagsins EgyptAir,
ferðaskrifstofunnar Útsýnar, Flugleiða
og Hótels Loftleiða.
Egypsku dagarnir hófust þann 10.
apríl sl. og standa fram til sunnu-
dagsins 15. apríl nk. í tveimur sölum
hótelsins, Blómasal og Vikingasal. Á
dagskrá skemmtikvöldanna eru m.a.
Nílardansarar, egypskur dansflokk-
ur með aðsetur í Svíþjóð, sem hingað
er kominn í tilefni Egypsku dag-
anna. Dansflokkurinn hefur á að
skipa sjö dansara og stjórnanda
þeirra, Bahi Barakt, sem semur
dansana, æfir og leikur undir að
hluta til. Þá er á Egypsku dögunum í
boði egypskur matseðill sem sam-
anstendur af svokölluðum Alex-
andría-rækjum, glóðarsteiktu
lambakjöti, Tehina í salati, vínberj-
alaufum í hrísgrjónum, grænmetis-
salati og „eftirlætisréttinum hans
Pasha“, ferskum ávöxtum í ávaxta-
líkjör.
Sem fyrr segir standa fjórir aðilar
að Egypsku dögunum, þar á meðal
ferðaskrifstofan Otsýn sem hyggur á
heimsreisu til Egyptalands í október
nk. Dvalið verður i 21 dag og allar
helstu fornminjar egypskrar menn-
ingar skoðaðar.
Fréttir l'rá
bæjarstjórn
Akureyrar
Akureyri, 10. aprfl.
Kynnisferð
til Noregs
Bæjarráð hefur lagt til að
veittur verði 30 þús. kr. styrkur
sex einstaklingum, sem mynda
„þverfaglegan samstarfshóp um
fyrirbyggjandi starf varðandi
fíkniefnaneyslu unglinga," en
þeir hyggjast fara til Noregs f
náms- og kynnisferð. Hópurinn
mun samanstanda af læknum,
sálfræöingum og félagsfræðing-
um, sem starfa við Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri.
Dvalarheimilið Hlíð
Bæjarráð hefur heimilað að
boðinn verði út 2. áfangi bygg-
ingar við Dvalarheimilið Hlíð,
það er að gera áfangann fok-
heldan. En bæjarráð bendir
jafnframt á að verulega vantar
upp á að fjármagn til fram-
kvæmdanna sé fyrir hendi og
leggur áherslu á að stjórn dval-
arheimilanna leggi fram ítar-
lega fjármögnunar- og kostnað-
aráætlun áður en verklok verða
ákveðin og samningar undirrit-
aðir um verkið.
Aldraðir vilja byggja
Félag aldraðra á Akureyri
hefur óskað eftir því við bæjar-
ráð að félaginu verði úthlutað
lóðum við Þórunnarstræti, þar
sem risið gætu hús fyrir aldraða,
sem reist yrðu á vegum félags-
ins. Gerir félagið tillögu um að
byggð verði þétt við Þórunn-
arstræti svo að koma megi þess-
um húsum fyrir. Fulltrúar fé-
lagsins hafa rætt þetta erindi
við bæjarráð, sem samþykkti að
vísa því til skipulagsnefndar.
Þyrluflugvöllur við
Fjórðungssjúkrahúsið
Bæjarráð hefur samþykkt
með fyrirvara um samþykki
Flugmálastjórnar ríkisins, að
byggður verði þyrluflugvöllur
við Fjórðungssjúkrahúsið.
Fulltrúar á
vinabæjamót
Æskulýðsráð Akureyrar hefur
tilnefnt eftirtalda til að vera
fulltrúa bæjarins á æskulýðs-
leiðtogaviku í Lahti í Finnlandi
9. til 15. júní nk: Séra Pálma
Matthíasson frá Æskulýðsfélag-
inu Glerbroti, Sigrúnu Aðal-
steinsdóttur, Þór, Sigurbjörn
Arngrímsson, Svifflugfélagi Ak-
ureyrar, Stefán Gunnlaugsson,
KA, Jakob Tryggvason, Iþrótta-
félagi fatlaðra, Jón Knutsen,
Flugbjörgunarsveit Akureyrar,
Elínu Antonsdóttur, Æskulýðs-
ráði Akureyrar, Viðar Björgvin
Tómasson, Skátafélagi Akureyr-
ar, Davíð Stefánsson, Dynheim-
um, Hólmgeir Valdimarsson,
Hestamannafélaginu Létti.
Laxdalshús
Stjórn húsfriðunarsjóðs telur
nauðsynlegt að varið verði kr.
769.600.- til Laxdalshúss, þannig
að unnt sé að halda áfram fram-
kvæmdum við neðri hæð hússins
og unnt verði að taka hana í
notkun í byrjun júní með það í
huga að veitingasala geti farið
þar fram. í framhaldi af þessari
ákvörðun hefur stjórnin falið
fulltrúum sínum að hefja við-
ræður við Guðbjörgu Tryggva-
dóttur um hugmyndir hennar
varðandi veitingarekstur í Lax-
dalshúsi.
Listaverkagjöf
hafnað
Fram kemur í bókun stjórnar
Menningarsjóðs Akureyrar, að
Akureyrarbæ hafi verið boðin
listaverk Elísabetar heitinnar
Geirmundsdóttur að gjöf en því
hafi verið hafnað. Formanni
menningarsjóðs hefur verið falið
að kanna þetta mál nánar, m.a.
hver hafi hafnað gjöfinni. For-
maður stjórnar Menningarsjóðs
J er Valgerður Bjarnadóttir, for-
seti bæjarstjórnar og bæjar-
ráðsmaður. GBerg.