Morgunblaðið - 11.04.1984, Síða 43

Morgunblaðið - 11.04.1984, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1984 43 Blúskompaníið er raknað úr rotinu „Blúskompaníið er vaknað af dvalanum," segir í fréttatilkynn- ingu, sem Járnsíðunni hefur bor- ist frá aðstandendum þess. Ef einhver er búinn að gleyma því um hvað þessi sveit snýst er rétt að geta þess, aö margir af kunn- ustu hljóðfæraleikurum landsins hafa gist hana á undanförnum ár- um. Þeir, sem nuna skipa Blúskomp- aniið, eru þeir Guðmundur Ing- ólfsson, pianó- og harmonikkuleik- ari, Magnús Eiríksson, gítar- og munnhörpuleikari, Pálmi Gunn- arsson, bassaleikari, og Sigurður Karlsson, trommuleikari. Fyrstu tónleikar kompanísins eft- ir endurlífgunina voru haldnir á Höfn i Hornafiröi í boöi jassklúbbs- ins þar í bæ. Segir í tilkynningunni, að allar móttökur þar hafi verið frábærar. Kompaniið hyggst koma fram á nokkrum stööum á næst- unni og byggist efnisskráin upp á blús í ýmsum myndum og jassi. Blúskompanííð nýþvegiö og strokið. INSÆLDA- LISTARNIR Vínsældalisti Járnsíðunnar og H-100 1 (4) SHAME/Astaire 2 (-) LET THE MUSIC PLAY/Shannon 3 (1) SOMEBODY’S WATCHING ME/Rockwell 4 (-) TO BE OR NOT TO BE/Mel Brooks 5 (-) BORN TO DANCE/Astaire 6 (3) STREET DANCE/Break Machine 7 (2) HOLIDAY/Madonna 8 (-) JEALOUS/Hazel O’Connor 9 (7) NEW DIMENSION/lmagination 10 (9) BREAK DANCE/lrene Cara Bretland — Litlar plötur 1 (1) HELLO/Lionel Richie (4) 2 (7) A LOVE WORTH WAITING FOR/Shakin’ Stevens (2) 3 (3) ROBERT DE NIRO’S WAITING/Bananarama (3) 4 (13) YOU TAKE ME UP/Thompson Twins (2) 5 (9) PEOPLE ARE PEOPLE/Depeche Mode (2) 6 (2) IT’S RAINING MEN/The Weather Girls (4) 7 (4) IT’S A MIRACLE/Culture Club (3) 8 (5) WHAT DO I DO/Galaxy (4) 9 (14) BOLERO/Michael Reed Orchestra (5) 10 (6) YOUR LOVE IS KING/Sade (4) 11 (20) PRETTY YOUNG THING/Michael Jackson (2) 12 (15) CHERRY OH BABY/UB 40 (2) 13 (8) STREET DANCE/Break Machine (7) 14 (-) NELSON MANDELA/Special AKA (1) 15 (-) GLAD IT’S ALL OVER/Captain Sensible (1) 16 (-) LUCKY STAR/Madonna (1) 17 (10) JOANNA/Kool and the Gang (7) 18 (-) AIN’T NOBODY/Rufus and Chaka Khan (1) 19 (17) AN INNOCENT MAN/Billy Joel (7) 20 (11) 99 RED BALLOONS/Nena (8) ★ Eitt og annaö hefur gengiö á í birtingu vinsældalista Járnsíöunnar. Baeöi Tónabæjar- og bandaríska listann vantar aö þessu sinni og listinn frá H-100 birtist full seint. Var valinn á föstudag í fyrri viku. Þetta kemst þó vonandi allt í réttar skoröur næst. * The Weather Girls hafa vakiö mikla athygli fyrir lag sitt It’s Raining Men. Þá hefur útlit dúettsins ekki síöur vakiö athygli. Þær vega nefnilega hvor um sig vel á annaö hundraö kíló og kölluöu sig reyndar áður... Two tons of fun! Fri vinstri á myndinni eru JUrgen von Heymann sendikennari, Heinz Pallasch sendiráðunautur, Guðmundur Magnússon háskólarektor og Einar Sigurðsson háskóiabókavörður. Háskóla Islands gefn- ar 600 v-þýskar bækur í NÓVEMBER sl. var haldin á Kjarvalsstöðum þýsk bókasýning, sem sýningarsamtök þýskra bóksala og bókaforlaga stóðu að. Alls voru sýnd um 1600 bindi frá samtals 150 bókaforlögum. Að sýningunni lokinni voru öll ritin gefin menningarstofnunum hér á landi. I hlut Háskólabóka- safns, og safna tengdum Háskóla íslands komu um 700 bindi. Sam- kvæmt upplýsingum vestur-þýska sendiráðsins gengu sýningarritin að öðru leyti til Þýska bókasafns- ins, Myndlista- og handíðaskólans, Tónlistarskólans í Reykjavík og Landsbókasafns íslands. Heinz Pallasch afhenti gjöfina fyrir hönd hinna þýsku bókaútgef- enda við athöfn í Háskóla Islands. f ræðu hans kom meðal annars fram að þær bækur sem féllu í hlut Háskóla íslands voru einkum á sviði læknisfræði, jarðfræði og orkumála. Hann lét í ljós þá ósk sína að íslendingar sýndu þessum bókum áhuga og ennfremur að bókasýning eins og sú sem fram fór á Kjarvalsstöðum yrði endur- tekin í náinni framtíð. Háskólabókasafninu þykir mik- ill fengur í þessari bókagjöf en eins og kunnugt er standa Vest- ur-Þjóðverjar mjög framarlega á sviði útgáfu vísindarita. Bækurnar verða til sýnis í nokkra daga í handbókasal Há- skólabókasafns. vegna elds 30 útköll Vogum, 6. aprfl. í ársskýrslu Brunavarna Suðurnesja fyrir 1983 greinir Ingiþór Geirsson slökkviliðsstjóri frá því að útköll slökkviliðs hafi verið 30 á árinu, þar sem um cld var að ræða, þrisvar vegna dælingar úr bátum, og sautján æfingar, auk þess sem varðstöður vegna eldsneytislosunar í Keflavíkurhöfn voru 32, eða 718 vinnustundir. Algengustu orsakir eldsvoða eru sagðar í skýrslunni, óvarlega farið með eld, í átta tilfellum, og leikur barna með eld, í sex tilfellum. Eldsupptök eru oftast á tímabili frá kl. 18 til kl. 21, í 12 tilfellum, en á tímabilinu frá miðnætti til sex að morgni varð enginn elds- voði. Flest útköll voru í skip og ökutæki, sex sinnum, síðan í rusl, sinu og mosa, fimm sinnum. Tjón í eldsvoða varð mest þann 17. maí er eldur varð laus i Hraðfrystihúsinu Keflavík hf. I öðrum tilfellum varð lítið tjón, í 18 tilfellum varð tjón minna en ein milljón, og i 11 tilfellum varð tjón ekkert, segir í skýrslunni. í ársskýrslu BS segir Ingiþór m.a. um brunann í Keflavík hf.: „í þessu útkalli kom vel í ljós hvað samstarf siökkviliða á Suðurnesj- um er mikilvægt og þýðingarmik- ið, þegar um svona stórelda er að ræða, en til aðstoðar slökkviliði BS komu slökkvilið Keflavíkur- flugvallar og slökkvilið Miðnes- hrepps." Síðar segir Ingiþór: „Það sem réð mestu um að ekki fór verr en skyldi var að slökkviliðin gátu skipt með sér verkum. Þannig var slökkviliði Keflavíkurflugvallar fengið það verkefni að verja næstu byggingar auk þess að vinna að slökkvistarfi, meðan slökkvilið BS og slökkvilið Miðneshrepps unnu að slökkvistarfi og að verja frysti- geymslur, vélasal og umbúðaloft. Þrátt fyrir mikið tjón á húsinu tókst þó að bjarga frystiklefa sem hafði að geyma fullunnar fisk- birgðir, einnig frystitæki og véla- sal. Vinnslusalur sem var undir umbúðaloftinu brann og þau tæki sem í honum voru.“ Eldsupptök voru á umbúðalofti, en þar voru ýmis eldfim efni, og frystihúsið með elstu frystihúsum landsins og mikið byggt úr timbri. E.G.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.