Morgunblaðið - 11.04.1984, Side 47

Morgunblaðið - 11.04.1984, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1984 47 Einar í 17. sæti á lista yfir beztu spjótkastara allra tíma • Einar Vilhjálmsson spjótkastari á núna 17. besta afrek í greininni frá upphafi. Einar æfir núna mjög markvisst fyrir Ólympíuleikana í Los Angeles. Sjá viötal við Einar á bls. 63. Einar Vilhjálmsson er í 17. sæti á lista yfir beztu spjótkastara heims frá upphafi. Einar var í 28. sæti listans eftir sigurkast sitt í keppni Noröurlandanna og Bandaríkjanna í Stokkhólmi í fyrra, þar sem hann lagði heims- metshafann, Tom Petranoff, aö velli. Einar kastaði þá 90,66 metra. Metkast hans á frjáls- íþróttamótinu í Austin á föstu- dag, Texas Relays, færir hann hins vegar upp um níu sæti. Alls hafa 35 menn kastað spjóti yfir 90 metra frá upphafi. Einn þeirra er þó ekki talinn með á listanum, sem hér fer á eftir, þar sem heimaland hans á ekki aðild aö Alþjóðafrjálsíþróttasambandinu: 1. Tom Petranoff Bandaríkjunum 99.72 Los Angeles 15 5/1983 2. Ferenc Paragi Ungverjalandi 96.72 Tata 23/4/1980 3. Detlef Michel A-Þýzkalandi 96,72 A-Berlín 8/6/1983 4. Bob Roggy Bandaríkjunum 95.80 Stuttgart 29/8/1982 ó. Miklos Nemeth Ungverjalandi 94,58 Montreal 26/7/1976 8. Michael Wessing V-Þýzkalandi 94,22-OslÓ 3/8/1978 7. Heino Puuste Sovétríkjunum 94,20 Birmingham 5/6/1983 d. Klaus Wolfermann V-Þýzkal. 94,08 Leverkusen 5/5/1973 9. Hannu Siitonen Finnlandi 93,90 Helsinki 6/6/1973 10. Pentti Sinersaari Finnlandi 93,84 Auckland 27/1/1979 11. Janis Lusis Sovétríkjunum 93.80 Stokkhólmi 6/7/1972 12. Seppo Hovinen Finnlandi 93,54 Helsinki 23/6/1976 13. Antero Puranen Finnlandi 93,74 Saarijarvi 24/6/1979 14. Helmut Schreiber V-Þýzkal. 92,72 Ulm 27/7/1979 15. Jorma Kinnunen Finnlandi 92,70 Tampere 18/6/1969 16. Pauli Nevala Finnlandi 92,64 Helsinki 6/9/1970 17. Einar Vilhjálmsson 92,40 Aust- in 6/4/1984 18. Dainis Kula Sovétríkjunum 92,06 Moskvu 21/6/1980 19. Terje Pedersen Noregi 91,72 Osló 2/9/1964 20. Mark Murro Bandaríkiunum 91,44 Tempe 27/3/1970 21. Klaus Tafelmeier V-Þýzkal. 91,44 Kevelear 23/5/1983 22. Uwe Hohn A-Þýzkalandi 91,34 Aþenu 7/9/1982 23. Wolfgang Hanisch A-Þýzkal. 91,14 Helsinki 28/6/1978 24. Kent Eldenbrink Svíþjóð 91,14 Stokkhólmi 4/9/1Ö83 25. Arto Harkonen Finnlandi 91,04 Helsinki 28/5/1981 26. Esa Utriainen Finnlandi 90,94 Helsinki 13/8/1979 27. Cary Feldmann Bandaríkjunum 90,92 Bakersfield 19/5/1973 28. Jorma Jaakola Finnlandi 90,86 Kaarlela 8/8/1976 29. Piotr Bielczyk Póllandi 90,78 Bydgoszcz 22/6/1976 30. Manfred Stolle A-Þýzkalandi 90,68 Erfurt 4/7/1970 31. Mike O'Rourke Nýja Sjálandi 90,58 Auckland 22/1/1983 32. Mike Barnett Bandaríkjunumm 90,34 Walnut 24/4/1983 33. Per Erling Olsen Noregi 90,30 Osló 28/6/1983 34. Jorma Markus Finnlandi 90,18 Tyrnává 6/6/1982 35. Leif Lundmark Svíþjóð 89,92 Karlskrona 20/6/1979 Ekki er taliu með afrek suður- afríska spjótkastarans Koos van der Merwe, sem kastaði 91,24 í Middleburg í S-Afriku 5. febrúar í fyrra, þar sem S-Afríkumönnum hefur verið úthýst úr Alþjóðafrjáls- íþróttasambandinu vegna kyn- þáttastefnu stjórnarinnar í Höfða- borg. — ágás. íslandsvinur býður frjálsíþróttafólki frítt húsnæði í Kaliforníu — ÞAD er alveg endanlega ákveöið aö ef við veröum valdir til keppni á Ólympíuleikunum í Los Angeles í sumar, þá kom- um við ekkert heima fyrr en eft- ir leikana. Ég, Óskar, Oddur og sjálfsagt fleira frjálsíþróttafólk mun halda til Kaliforníu og æfa þar og undirbúa okkur í mánað- artíma. Við höfum veriö svo heppin aö þaö er búiö aö útvega okkur hús- næöi í Los Angeles okkur aö kostnaðarlausu, sagöi Einar Vilhjálmsson spjótkastari í spjalli við Mbl. Að sögn Einars er það mikill islandsvinur, Bud Nelson aö nafni, sem lætur frjálsíþróttafólk- inu húsnæöi í té því aö kostnað- arlausu. Frjálsíþróttafólkiö ætlar aö æfa og og mjög líklega að keppa í tveimur til þremur mót- um í Kaliforníu fyrir leikana. Bud Nelson á ættir sínar aö rekja til islands og hefur haft samband við frjálsíþróttafólkið sem æfir í Texas. Vegna þess kunningsskapar bauð hann is- lendingunum húsnæðið í Kali- forniu. — ÞR. 20. sigur Niki Lauda Austurríkismaöurinn Niki Lauda sigraði í S-Afríku „Grand Prix“-kappaksturskeppninni um síðustu helgi. Var þetta tuttugasti sigur Lauda í „Formula 1“-kapp- akstrinum. En alls hefur hann tekiö þátt í 143 Grand Prix- keppnum. Hann varð heims- meistari árin 1975 og ’77. Tími Lauda var 1:29 mín 23,430 sek. Meðalhraöi Lauda á þeim 75 hringjum sem eknir voru var 206,587 km á klst. Lauda kom i mark 1:05,950 mín. á undan Prost sem varö í öðru sæti. Bretinn Derek Warwick varö í þriöja sæti, og ftalinn Patrese í fjórða. Röð efstu manna í stiga- keppninni er þessi eftir tvær keppnir: stig Alain Prost Frakkl. 15 Niki Lauda Austurríki 9 Keke Rosberg Finnl. 6 Elio de Angelis Ítalíu 4 • Niki Lauda er enn í fremstu víglínu. Hann sigraöi { Kyalami „Grand Prix '-kappakstrinum um síðustu helgi. • islenska badmintonlandsliöið tekur um þessar mundir þátt í Evr- ópumeistaramótinu sem fram fer í Preston á Englandi. Liöinu hefur gengið vel, sigraði Noreg, Frakkland og Ítalíu en tapaði naumt fyrir Belgíu. í efri röð má sjá Guömund, Þorstein og Brodda, og í neðri röð þær Kristínu, Þórdísi og Elísabetu. Fararstjóri er Sigríður M. Jónsdótt- ir. 5—0 sigrqr gegn Noregi, Italíu og Frakklandi ÍSLENSKA landsliðið í badmin- ton tapaöi í fyrrakvöld naumlega fyrir Belgíu 2—3. Heföi landslið- inu tekist aö sigra í þeirri viöur- eign þá hefði landsliðiö færst uppúr 3. deildinni og leikiö í .2. deild á næsta Evrópumóti. Landsliðið sigraöi mjög örugg- lega i fyrstu þremur leikjum sínum. Keppt var gegn Frakklandi, Noregi og ftalíu og lyktaöi öllum viður- eignunum með 5—0-sigri fslend- inga. Lék badmintonfólkiö mjög vel í öllum landsleikjunum fjórum og mjög litlu munaöi í síöustu viö- ureigninni sem var gegn Belgíu. Nú tekur einstaklingskeppni viö og má búast viö góðri frammi- stöðu þar. Landsleikur í kvöld ÞRIDJI og síðasti landsleikur ís- lenska kvennalandsliösins gegn því franska verður í kvöld kl. 19.30 í íþróttahúsinu í Vest- mannaeyjum. Forleikur hefst kl. 18.15 á milli Þórs og Týs í 2. fl. karla. Má búast viö fjörugum og spennandi landsleik í kvöld í Eyj- um.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.