Morgunblaðið - 17.04.1984, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 17.04.1984, Blaðsíða 17
48 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 1984 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 1984 49 Vandlega fylgst með lausfrystingunni. Morgunblaðið/Friðþjófur. Framleiðsla Sigló hf. hafin: Höföum endaskipti á verksmiðjunni - segir Sæmundur Rækjuvinnsla er nú hafin hjá Sigló hf. í Siglufirði eftir eigenda- skipti á verksmiðjunni og miklar endurbætur. Fyrirhugað er að hin hefðbundna gaffalbitaframleiðsla verksmiðjunnar hefjist um miðjan þennan mánuð. Að sögn Sæmundar Arelíussonar, framkvæmdastjóra Sigló hf., hafa verið höfð endaskipti á verksmiðjunni og um 18 milljónum króna varið til breytinganna, en kaupverð verksmiðjunnar var 18 milljónir króna. Eins og fram hefur komið í fréttum var Siglósíld fyrsta ríkis- fyrirtækið, sem selt var, en kaup- samningar voru undirritaðir skömmu eftir áramótin með þeim fyrirvara að samþykki Alþingis fengist, en það vantar raunar enn. Helmingur hinna nýju hluthafa er í Siglufirði en hinn helmingurinn í Kópavogi og á ísafirði. Er Morgunblaðsmenn voru á ferðinni í Siglufirði fyrir skömmu ræddu þeir við Sæmund Árelíus- son og sagði hann, að verulegar breytingar hefðu verið gerðar á verksmiðjunni. Rækjuvinnslan hefði verið færð upp á efstu hæð og gaffalbitaframleiðslan niður. Keyptar hefðu verið tvær pillun- Árelíusson arvélar til viðbótar þeirri einu, sem fyrir var og sett hefði verið upp nýtt lausfrystitæki af mjög fullkominni gerð auk þess sem nær allur búnaður hefði verið endurnýjaður. Þá hefði húsið verið mjög illa farið og þvi verið nauð- synlegt að verja verulegu fé í endurnýjun þess. Nú væri til- raunavinnsla á rækju hafin og vinnsla með fullum afköstum hæf- ist væntanlega á næstu dögum. Hann sagði, að með þessum breyt- ingum væri þess vænzt að verk- smiðjan afkastaði um einni lest af rækju á klukkutíma og væri það um þreföldun afkasta frá því, sem áður hefði verið. Þá væru einnig möguleikar á þvi að sjóða rækjuna niður. Álls yrði því vinna fyrir 60 til 70 manns í verksmiðjunni auk sjómanna, en gerðir hefðu verið samningar við 8 báta um löndun afla. „Það vantar mikið upp á að menn séu bjartsýnir á reksturinn um þessar mundir, þar sem veru- legt verðfall hefur orðið á mörkuð- um erlendis undanfarna mánuði. Það virðist sem fólk vilji ekki borða rækju lengur eftir óhappið í Hollandi í vetur, en það þýðir ekk- Sæmundur Árelíusson, fram- kvæmdastjóri Sigló hf. ert að gefast upp. Menn hefðu heldur ekki farið út í þetta nema af því að þeir hafa trú á framtíð- ina, þó útlitið sé ekki gott nú. Það er ljóst að rækjan er stór þáttur í endurreisn atvinnulífs hér og þann möguleika verður að reyna að nýta til hins ýtrasta," sagði Sæmundur Árelíusson. — HG Sæmundur Árelíusson, framkvæmdastjóri og Guðmundur Skarphéóinsson, verksmiðjustjóri, ræða málin í suðu- og pillunarsalnum. MorgunblaSið/Friðþjófur. Strandir — Grásleppuvertíöin Ljós m y n d i r F r ið þj» fu r 'IVxti IK. Þýðir ekkert annað en að vera vongóður - segja grásleppukarlar á Drangsnesi „ÞAÐ þýðir ekkert annað en að vera vongóður nú, þó síðasta ár hafi verið það versta í manna minnum í grásleppuveiðinni. Það mátti byrja að leggja 1. apríl svo við erum varla byrjaðir, erum að byrja að leggja núna þessi 160 30 faðma net, sem við megum vera með. Sjórinn er miklu hlýrri nú en í fyrra og þeir frá Bakkagerði hafa verið að fá upp í 800 rauðmaga í netin, svo þetta lítur allt miklu betur út nú,“ sögðu þeir Henrí Guðmundur Nielsen, Erling Ingimundarson og Hermann Ingimundarson, er Morgunblaðið ræddi við þá á bryggjunni á Drangsnesi fyrir skömmu. Löndun af Bæjarbátunum og Brekkugerðisbátnum lokið. Bjarni Guðmundsson, Bæ 2, Friðsteinn Björgvinsson, Bæ 1, Guðjón Guðmundsson, Bakkagerði, Haraldur Ingólfsson, Bæ 1, og Ingólfur Andrésson, Bæ 1, oddviti og hreppstjóri ganga upp bryggjuna ásamt tveimur verðandi fiskimönnum. Sævar Guðjónsson frá Bakkagerði landar grásleppunni. Ingólfur And- résson, Bæ 1, fylgist með. Bær 1 og 2 og Brekkugerði í Kaldrananeshreppi: Útgerð frá öllum FRÁ Bæ 1 og 2 og Brekkugerði i Kaldrananeshreppi á Ströndum eru gerðir út þrír litlir bátar á grásleppu og rauðmaga. Þar er því róið út frá hverjum bæ. Feðgarnir Guðjón Guö- mundsson og Sævar Guðjónsson í Brekkugerði hafa veiðina að aðalat- vinnu, en frá hinum bæjunum er veiðin fremur stunduð sem aukabú- grein. Guðjón Guðmundsson í Brekku- gerði sagði í samtali við Morgun- blaðið, að síðustu tvö ár hefði ver- bæjimum ið algjör dauði á þessum slóðum, varla fengizt bein úr sjó. í fyrra hefði aðeins fengizt 21 tunna af hrognum, en 1981 hefðu það orðið 112 tunnur og 96 1980. Að þessu sinni hefðu þeir byrjað á rauð- magaveiðum 15. marz en grá- sleppuveiðin væri bara að hefjast, þetta væri fyrsti dagurinn. Tregt hefði verið framan af, síðan komið smá kippur en nú væri þetta orðið lakara aftur. Um framhaldið væri erfitt að spá, en þeir vonuðust eft- ir betri vertíð nú en síðustu tvö ár, enda væri annað varla hægt. Sjór- inn væri líka eitthvað hlýrri nú, svo nú væri bara að vona hið bezta. „Við höfum þetta að aðal- starfi svo mikið er undir þessu komið," sagði Guðjón Guðmunds- son. Furðulegir viðskiptahættir - eftir Guðmund Guðmundsson Olíufélagið hf. sendir skipið Blá- fell frá Reykjavík til þess að dæla olíu í bv. Hafþór í stað þess að taka olíuna úr tönkum Olíusamlags út- vegsmanna í gegnum leiðslur á hafn- arbakkanum. Nokkrar rækjuverksmiðjur á ísafirði hafa sem kunnugt er tekið hafrannsóknaskipið Hafþór á leigu til rækjuveiða um nokkurn tíma. Leigutakar vildu hefja viðskipti við Olíufélagið hf., varðandi olíu- kaup fyrir skipið. í framhaldi af þessu óskaði Olíufélagið eftir því að fá að setja upp svartolíugeymi á athafnasvæði sínu hér til þess að geta fullnægt þessum viðskiptum og sendi um það erindi til bæjar- stjórnar ísafjarðar. Þar sem það er áformað að flytja allar olíubirgðir af núver- andi stað út á svokallaðan „Máva- garð" var að áliti bæjarstjórnar „talið óæskilegt að heimila upp- setningu nýrra geyma við „Suður- götu“. Með þetta sjónarmið í huga skrifaði bæjarstjón Olíusamlagi útvegsmanna bréf þar sem segir: „Áður en afstaða verður tekin til framangreinds erindis (Olíufé- lagsins) vill undirritaður athuga hvort Olíufélagið hf. geti fengið afnot af geymi Olíusamlagsins, sem nú er staðsettur í birgðastöð við Suðurgötu, þannig að ekki þurfi að reisa nýjan olíugeymi við Suðurgötu." Þessu erindi bæjarstjórnar svaraði stjórn Olíusamlags út- vegsm. á eftirfarandi hátt: „Olíusamlag útvegsmanna er reiðubúið til að annast afgreiðslu á svartolíu til viðskiptamanna Olíufélagsins hf. frá geymi sínum við Suðurgötu. Telur Olíusamlagið æskilegast að þessi viðskipti verði gerð upp á sama hátt og áður hefir tíðkast í samskiptum þessara aðila." Til frekari skýringa skal það tekið fram að um slík viðskipti hefir gilt sú regla að olíuúttekt viðkomandi hefir verið millifærð milli olíufélaganna í Reykjavík og hefir þetta margsinnis verið svo um viðskipti við Olíufélagið hf. Svar Olíufélagsins hf. við þess- um málalyktum er að ofan greinir var það að sent var skipið Bláfell frá Reykjavík til þess að dæla olíu um borð í bv. Hafþór þegar hann kom næst í höfn og í dag, 10. apríl, endurtekur sig sama sagan, Blá- fellið liggur utan á Hafþór kom- andi beint frá Reykjavík til þess að dæla olíu Olíufélagsins þar um Guðmundur Guðmundsson „Það varðar alla, sem þurfa á olíu að halda til heimilisnota og atvinnu- rekstrar að gætt sé hófs í skefjalausri sam- keppni olíufélag- anna borð, olíu sem er raunar af sömu gerð og er á geymum olíusamlags- ins við hafnarbakkann. Það hefir mikið verið rætt um það á hvern hátt unnt væri að draga úr dreifingarkostnaði á olíu hér á landi og hefir í því sambandi verið með réttu gagnrýnt hið þre- falda dreifikerfi olíufélaganna. Þau vinnubrögð Olíufélagsins hf. sem hér hafa verið tekin til umræðu bera þess ekki vott að það fyrirtæki hafi hug á að haga starf- semi sinni á þann hátt er verða mætti til lækkunar dreifingar- kostnaðar á olíuvörum. Hinsvegar gefur þetta tilefni til þess að ætla að álagning á olíuvör- ur sé það rífleg að seljendur geti leyft sér að bruðla með fjármuni að eigin geðþótta gagnstætt hags- munum þeirra, sem verða að kaupa þessa nauðsynjavöru. Það varðar alla, sem þurfa á olíu að halda til heimilisnota og atvinnu- rekstrar að gætt sé hófs í skefja- lausri samkeppni olíufélaganna, því það eru kaupendurnir í land- inu, sem greiða fyrir óráðsíuna hjá innflutningsfyrirtækjunum. (iuðmundur (luðmundsson er (or- niaður Útyegsmannafélags Vest- fjarða. Skólaritvélar Léttbyggð og áreiðanleg ritvél sem þolir mikið vinnuálag og ferðalög. Verð kr. 11.500.-stgr. Olympia Reporter skóla-, ferða og heimilisritvél með leiðréttingarbúnaði. Leitið nánari upplýsinga um aðrar gerðir KJARAIM ARMULI 22 - REYKJAVÍK - SlMI 83022 SO°'° 0 se^ 00 \Á°

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.