Morgunblaðið - 17.04.1984, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 17.04.1984, Blaðsíða 20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 1984 52 ffÆ Mælitæki Höfum í boöstólum ýmsar geröir af mœlitækjum. Sveiflusjár frá Hitachi. Fjölsviðsmæla frá Hitachi. Spennugjafa. Ýmsar geröir. Spennujafnara fyrir viðkvæman búnað. Töflumæla (Volt/Amper/KWh og fleira). Teljara. Ýmsar geröir. Tíönigjafa. EPROM-brennara fyrir flestar tegundir. Þróunarkerfi. Data logger. Auk þess fjöldan allan af sérhæföum mælitækjum. Allar frekari upplysingar i síma 91-81665. Tæknival — iönaöarvörur, Síöumúla 27, sími 91-81665. Bifreiðaeigendur Eigum á lager margar stæröir af Atlas sumardekkjum á hag- stæöu veröi. Heitto Scholl fótaba HRESSANDI ENDIR Á ERILSÖMUM DEGI Allir vita hve notalegt það er aó fara í fótabað eftir erilsaman dag. Scholl-fótasaltið örvar blóórásina, mýkir haróa húð, linar þreytuverki og heldur fótraka í skefjum. Fáanlegt í tveimur stærðum: 175g og 600g ÞOftA oai. AuaivsiNGAsrot a sf FÆST I APOTEKINU Baðker fullt af skít Michael Caine (Charley Fortnum) og Richard Gere (dr. Plarr) horfast í augu. Kvikmyndír Ólafur M. Jóhannesson Nafn á frummáli: The Honorary Consul. Stjórn: John Mackenzie. Handrit: Christopher Hampton byggt á samnefndri sögu Graham Greene. Tónlist: Paul McCartney og John Williams. Taka myndar: Phil Meheux B.S.C. Djöfulleg er þessi veröld vor og svo stútfull af mannvonsku og viðbjóði að maður hlýtur að spyrja sig þeirrar spurningar við og við — til hvers er manneskjan að strita þetta. Samt er það svo að sjálfsvíg eru tiltölulega al- gengust í löndum þar sem íbú- arnir búa við réttaröryggi. í Mið-Ameríku þar sem nýjasta mynd Bíóhallarinnar „The Hon- orary Consul" gerist hafa menn hins vegar lítinn tíma til að hugsa til slíkra hluta, enda æða þar sveitir manna um götur og rista íbúana á háls — stundum sarga hnífarnir alveg að beini. Og svo situr á æðsta valdastóli karlfauskur sem lyftir ekki hendi til að stöðva þessar dauða- sveitir. Ætli fauskarnir í Kreml brosi ekki stundum í kampinn þá þeir fylgjast með framferði dauðasveitanna og sjá hversu þær fylgja upplýstum borgurum vesturlanda að baki skæruliða. Því þótt skæruliðar séu vafa- laust margir haldnir morðæði þeirra sem lengi hafa búið við kúgun blóðugra harðstjóra, þá ganga dauðasveitirnar svo langt í hálsaskurði að siðmenntaður maður hlýtur að æla af tilhugs- uninni einni saman og óska bakhjarli þeirra — er skýlir sér bak við marmaraveggi landsetra — vistar í heitasta helvíti. Svona getur hatur af sér hatur og blóð leitar blóðs — ekki síður nú en á tímum Macbeths. Nær væri að hinn voldugi her Bandaríkjanna færi inn í þessi lönd og svældi út meindýrin og frelsaði þar með hina fátæku sakleysingja undan blóðvörgunum og ríkin undan marxísku oki, sem hæglega get- ur leitt af núverandi stefnuleysi. Það er óbærilegt fyrir vestur- landabúa að horfa öllu lengur uppá kúgun þessa fólks, sem fer fram í skjóli átaka risaveldanna. Bandaríkin verða að hreinsa til þarna og koma á virku lýðræði, slíku sem nú ríkir góðu heilli á vesturlöndum. En þetta gerist náttúrulega ekki nema menn með ferskar hugmyndir setjist í valdastólana vestanhafs. Menn sem eru óhræddir við að beita fullum herstyrk til að hreinsa út viðbjóðinn. Rússar munu ekki lyfta litla fingri gegn frelsis- sveitunum, þeir hafa nóg að gera við að skera Afgani á háls — og allur heimurinn þegir. Ég tala um að hreinsa til, í Suður- og Mið-Ameríku. Ég held að menn skilji orð mín ef þeir manna sig upp í að fara uppí Bíóhöllina að sjá: The Honorary Consul sem heitir víst á þjóð- tungu vorri: Heiðurskonsúllinn. í þessari mynd er nefnilega sýnd vinsæl pyntingaraðferð þar- lendra lögreglumanna. Hún er fólgin í því að dýfa mönnum í kaf í baðker fylltu mannaskít þar til þeim liggur við köfnun. Ég ætla ekki frekar að fjalla um pyntingaraðferðir þessara lög- regluhunda sem ekki njóta neins réttarfarslegs aðhalds, en ég ráðlegg viðkvæmu fólki endilega að sjá myndina, þó ekki væri nema til að skynja þá neyð sem hinn almenni borgari býr við í löndum þessum. Hins vegar álít ég að mynd þessa ætti ekki að festa á myndbönd og setja í al- menna dreifingu, því sum pynt- ingaratriðin geta vafalaust skað- að barnssálina. En við hér hugs- um víst ekki um þær andlegu pyntingar sem óvarleg dreifing myndbanda getur haft í för með sér. Við ættum kannski að sparka af okkur sauðskinnsskón- um áður en við stökkvum einsog fávitar inní tækniöldina með börn vor óvarin. Annars ætla ég ekkert frekar að fjalla um þessa nýjustu mynd Bíóhallarinnar, hvorki um frammistöðu Michael Caine í hlutverki heiðurskonsúlsins né Richard Gere sem dr. Plarr. Ég ætla ekki einu sinni að minnast frekar á seiðmagnaða músík Paul McCartney eða handrit Christopher Hampton sem byggt er á samnefndri sögu Graham Greene. Ekkert af þessu skiptir minnsta máli, heldur sögusviðið sem fær hjarta vesturlandabúa til að slá hraðar og blóðið til að flæða út í kinnarnar af skömm.^ Getum við talist menn ef við berjumst ekki gegn þeim við- bjóði sem þarna er lýst? Að lok- um vil ég geta þess að allar upp- lýsingar í prógrammi um að- standendur myndar eru á ensku. Lexikon Siglaugur Brynleifsson Hermes Ilandlexikon: Die Staaten der Erde. Band I—II. Information úber alle unabháng- igen Staaten der Erde, ihri Ge- schichte u. potitische Entwicklung von den Anfángen bis zur Gegen- wart. Hermes Handlexikon: Geschichte der Technik. Eine Synchronopse von den An- fángen bis zur Gegenwart. Her- ausgegeben von Michael Matthes. Hermes Handlexikon: Martin Luther u. die Reformation. Gestalten — Ereignisse — Glau- bensinhalte — Kontroversen. Von Hubert Stadler. — Econ Tasch- enbuch Verlag 1983. Econ-forlagið í Dússeldorf hóf útgáfu uppsláttarrita á sl. ári und- ir heitinu „Hermes Handlexikon". Hvert bindi fjallar um afmarkað efni eða efnisflokk og er efninu raðað eftir stafrófsröð, þegar það á við, eða í tímaröð. Myndir og töflur eru í hverju bindi svo og landabréf. „Die Staaten der Erde" er ríkja- tal, fjallað er um öll sjálfstæð ríki, rakin saga þeirra og efnahags- þróun, efnahagsleg og pólitísk saga og lýst atvinnuvegum og framleiðslu. Mikill fjöldi mynda fylgir í texta, svart/hvítar og í lit- um. Þróun tækninnar frá upphafi er umfjölluð í þessu skemmtilega uppsetta uppsláttarriti. Sagan hefst á steinöld, fyrstu bareflin sem menn vita til að notuð hafi verið voru steinar, sem mönnum tókst að gera handhæga með því að berja í þá með öðrum steinum. Ekki er ólíklegt að menn hafi þó í fyrstu notað timbur í barefli eða bein, en þau tækniundur eru löngu fúin. Steinarnir eru fyrstu verk- færin sem menn notuðust við, síð- 'an kemur eirinn, járnið og eftir það rekur hver uppfyndingin aðra og skömmu fyrir aldamótin 1800 verður stökkbreyting, iðnbyltingin sem lýkur með því að mönnum tekst að beisla orku atómsins á 20. öld. Þar með hefst nýtt tækni- tímabil, sem menn bundu miklar vonir við lengi vel, en margt bend- ir nú til þess að sú ódýra orka sem menn töldu sér vísa í atóminu, verði erfið viðfangs. Þetta er fróðlegt kver um vin- sælt efni. Lúther var maður ársins 1983. Fjöldi bóka var gefinn út um Lút- er og siðskiptin og er þessi ein þeirra. Þetta er handhægt upplýs- ingarit um siðskiptin, siðskipta- menn og Lúter, einnig um þá valdsmenn sem koma við sögu og páfana og helstu áhrifamenn inn- an kaþólsku kirkjunnar. Fjallað er um helstu ágreiningsatriði og deilumál siðskiptamanna og kaþ- ólsku kirkjunnar og um deilur sið- skiptamannanna innbyrðis. Höf- uðkenningar mótmælendakirkn- anna eru raktar og lýst inntaki helstu rita Lúthers og annarra siðskiptamanna. Uppsláttarorð eru 160 og um 220 myndir, svart/hvítar og í litum. í bókarlok er annáll siðskiptatímans og bóka- skrár. Landabréf eru í texta. Höf- undurinn, Hubert Stadler, er lærður í heimspeki og miðalda- guðfræði, hann er fyrirlesari I menningarsögu miðalda endur- reisnartímans við háskólann í Múnchen.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.