Morgunblaðið - 17.04.1984, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 17.04.1984, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 1984 39 NYR ISLENSKUR MYNDHÖGGVARI Það verður ekki annað sagt en að sýning Ragnhildar Stefánsdótt- ur að Kjarvalsstöðum komi á óvart. Um ágæta hæfileika efuðust menn ekki, en hins vegar hefur víst fáa órað fyrir því, að hin korn- unga listakona kæmi jafn sterkt frá frumraun sinni og nú er raun- in. Það er skemmst frá að segja, að ég minnist þess ekki að hafa séð jafn sannfærandi frumraun á vettvangi rúmtakslistar hér í borg á öllum mínum 18 ára ferli sem listrýnir. Og satt að segja átti ég ekki von á því að slíkur frumkraftur kæirti frá kvenþjóð- inni. Þetta er sagt í ljósi þess, að höggmyndalist hefur til skamms tíma verið dæmigert karlafag vegna þess hve mjög hún reynir á krafta og úthald. Þá má og einnig tala um nokkra hefð á sama hátt og myndvefnaður hef- ur aðallega verið iðkaður af kon- um. — Það sem öðru fremur vekur athygli á sýningu Ragnhildar er myndhugsun hennar — það skín í gegn, að hún hugsar sem myndhöggvari, uppgötvar, upp- lifir og finnur til í rúmtaki. Það eru einkum teikningarnar sem afhjúpa myndhugsun Ragnhild- ar en þær eru dæmigerðar fyrir vinnubrögð ýmissa myndhöggv- ara í gegnum aldirnar. Skýrar, formfastar, en einnig mjúkar og efniskenndar. Eftir teikningun- um að dæma mun Ragnhildur ekki afmarka sér þröngan bás á sviði höggmyndalistar heldur hefur hún alla möguleika til þess að verða meistari í blæbrigða- rikdómi formsins eins og t.d. Giacometti eða Manzú. En til þess að það geti orðið er mikil- vægt að Ragnhildur fái að reyna sem flest á næstu árum, óbundin fjárhagsáhyggjum og hjáleitu brauðstriti. Hún þarf að geta sökkt sér niður í hvers konar form- og efnisrannsóknir við hinar bestu aðstæður um leið og hún vinnur að eigin listsköpun. Á þessu er vakin athygli hér, í ljósi þeirrar staðreyndar, að sýning Ragnhildar hefði ekki orðið að veruleika án hagstæðra ytri skilyrða. Fyrir hið fyrsta fékk hún afnot af gestaverkstæði leirmunafyrirtækisins Glits og svo fékk hún þriggja mánaða starfslaun Brunabótafélagsins. Ekk má heldur gleyma því að hún var með þeim fyrstu er naut nýstofnaðrar myndhöggvara- deildar við Myndlista- og hand- iðaskóla íslands. Má segja að árangurinn skili sér fljótt hvað þá deild áhrærir! Sýningin er þannig f og með sterk rök fyrir því að flytja myndlistarrann- sóknir inn í landið með því að koma skólanum á háskólastig. Lægi þá beinast við að stofna einnig húsameistaradeild ... — Lífið sjálft og vaxtarmögn þess virðast vaka mjög fyrir Ragnhildi Stefánsdóttur í mynd- gerð hennar „að fara vel með líf- ið“ svo sem hún sjálf segir í blaðaviðtali. Fólk kann þá að undra það, að hún byggir myndheim sinn á mannabeinum og hugleiðingum um lífið og dauðann. En svo er, að hvorugt getur án hins verið, líf sprettur upp af dauða og dauði af lífi. Við getum ekki skilgreint hvað líf er án dauðans né hvað fegurð eig- inlega er án ljótleikans og þann- ig séð er lífið afstætt. Það er ris, vöxtur og bjartsýni í beinunum hennar Ragnhildar, hún er að höndla kjarna mannlífsins. Beinin eru hygg ég tákn lífsins og heiðríkjunnar og þess að burt skal sortans svið. Að öllum heimspekilegum hugleiðingum slepptum þá er það og staðreynd að fátt er væn- legra til formrænna rannsókna en einmitt hvers konar bein af mönnum og dýrum. Þetta hafa myndhöggvarar vitað í aldir og notað óspart og í ljósi þess er myndefnið ekki frumlegt. Þrátt fyrir allt þá er það eitthvað sem gengur líkt og rauður þráður i gegnum alla sýninguna og sem verður að heimfærast á gerand- ann sjálfan og persónu hans. Ég hafði punktað við nokkrar myndir á sýningunni en er ég rita þetta þá skynja ég sýning- una sem heild og það væri nán- ast að raska þeirri heild að nefna einstakar myndir. Þess ber að gæta, vel að merkja, að slík frumraun og slík velgengni er erfiður biti að kyngja — listin gerir skefjalaus- ar kröfur til iðkenda sinna i meðlæti sem mótlæti og það má aldrei gleymast. Ragnhildur Stefánsdóttir er ung að árum, ískyggilega ung, miðað við þann áfanga er hún hefur þegar náð og ég vona að hún skilji og skynji að að þarf sterk bein til að standa upprétt- ur í listinni lífið í gegn. En und- irstaðan er hér réttleg fundin. Bragi Asgeirsson lönaöarbankinn hefur stigiö nýtt skref til hagsbóta fyrir sparendur. Viö breytum nú bundnum reikningum sem hér segir-. 1 í staö gömlu 12 mánaða reikninganna koma nýir • reikningar til 6 mánaöa. 2 Sex mánaða, bundnir reikningar Iðnaðarbankans veröa • því tvenns konar: VERÐTRYCCÐIR með 1,5% p.a. vöxtum sem nú veröa reiknaðir tvisvaráári. ÓVERÐTRYGGÐIR (áöurtil 12 mánaöa) meö 19% p.a. vöxtum sem einnig eru reiknaðir tvisvar á ári. Reikningseigendum veröur nú frjálst aö færa fyrirvara- « laust og án lengingar binditímans milli þessara tveggja reikningsforma. Slíktgeturskiptverulegu máli, breytist aöstæöur manna eöa aöstæöur i þjóöfélaginu._______ Viö greiöum sérstakan vaxtabónus sem viö köllum IB-BÓNUSofan á „venjulega" vexti. 3 er 1,5% p.a. vaxtabónus lönaöarbankans, sem leggst sjálfkrafa, auk venjulegra vaxta, ofan á innstæðu ndnum 6 mánaöa reikningi tvisvar á ári, ef ekki er tekið út af honum. Hann er reiknaöur í júlí og janúar ár hvert. IB -BÓNUS greiðist fyrst íjúlí n.k. Athugiö, aö þá greiðist hann á alla nýja 6 mánaöa reikninga, sem stofnaðir veröa frá 15. apríl til 1. júlí n.k. Upplýsingasími: 29630 Hafðu samband viö næsta útibú okkar eöa hringdu beint í IB-símaþjónustuna í Reykjavík, síminn er (91)29630. Viö veitum fúslega frekari upplýsingar og sendum gjarnan bækling. Idnaðarbankinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.