Morgunblaðið - 17.04.1984, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 17.04.1984, Blaðsíða 10
»Pt.rr9f<JAv vr qTriAfTTTTrnflrf íilöa mniirjaoM MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 1984 Dagatal fylgiblaðaima ALLTAP Á ÞRIÐJUDÖGUM fflRQTEA. ALLTAFA FIMMTUDÖGUM Alltaf á fostudögum ALLTAF Á LAUGARDÖGUM ALLTAF A SUNNUDÖGUM OG EFNISMEIRA BLAÐ! Fimm sinnum í viku fylgir auka fróóleikur og skemmtun Mogganum þínum! íslendingar eru stórkostlegir áheyrendur segir bandaríski píanóleikarinn Nancy Weems FYRIR stuttu var píanóleikarinn Nancy Weems frá Bandaríkjunum stödd hér á landi. Hún hélt hér tónleika og námskeið fyrir upp- rennandi píanista og kcnnara þeirra, við fádæma undirtektir. Ég bað hana að segja mér dálítið frá sjálfri sér. „Ég fór í keppni sem hafði það að markmiði að velja svonefnda „listasendiherra" (artistic am- bassadors). Fyrst var haldin for- keppni, sem fram fór víðs vegar um Bandaríkin. Þar voru valdir fjórtán þátttakendur í loka- keppnina. Þeir fóru allir til Washington D.C. Þar fór loka- keppnin fram, í formi tónleika í Librarj' of Congress. í dóm- nefndinni voru Martin Cannon frá The Julliard School of Music, Anne Shayne frá Peabody Con- servatory og Grant Johannessen frá Cleveland Institute of Music. Auk tónleikanna fylgdu viðtöl við starfsfólk utanríkisþjónust- unnar. Fjögur af okkur, sem í úrslit komumst, voru útnefnd sem sigurvegarar í keppninni og fengum þar með áðurnefnda sendiherranafnbót. Við verðum öll að fara í fimm til sex vikna tónleikaferðalög til útlanda. Þetta er ekki eingöngu fólgið í tónleikum, því auk þeirra held ég námskeið (master classes) fyrir kennara og nemendur í tónlist- arskólum á þeim stöðum, þar sem ég held tónleika. Einnig er reynt að sinna alhliða menning- arsamskiptum. Við reynum að kynnast sem best þeim löndum og þjóðum sem við heimsækjum. Þess vegna dveljum við á einka- heimilum á hverjum stað.“ Til hvaða landa ferð þú? „í síðustu viku var ég í Noregi. Hér verð ég í hálfan mánuð og fer síðan til Sovétríkjanna. Þar leik ég í Moskvu og Leningrad. Frá Sovétríkjunum fer ég svo til Danmerkur. Þetta er mjög spennandi fyrir mig, því ég hef aldrei stigið fæti mínum út fyrir Bandaríkin. Ég hlakka mikið til að kynnast þessum þjóðum, hvernig þær búa, hvernig fólkið hugsar, hvernig veðrið er, og svo framvegis. Ég er ekki enn farin að kynnast veðrinu hér,“ bætir Nancy við og hlær. „Ég var í gær að spila í Tónlistarskólanum í Reykjavík. Um leið og ég settist við flygilinn, leit ég út um glugg- ann og sá þetta yndislega veður, sólskin og logn. Þegar ég var bú- in að spila, nokkrum mínútum seinna, leit ég aftur út um glugg- ann og þá var komin stórhríð. Ég hlakka mjög til að koma til Sovétríkjanna. Það er nokkuð langt síðan bandarískur lista- maður hefur farið þangað á veg- um hins opinbera. Það er mér mikill heiður að fá að taka þar upp þráðinn aftur." Hvaða verk leikurðu í þessari ferð? „Ég spila ensku svítuna í A- moll, BWV 807 eftir Bach, C-dúr-sónötuna opus 1 eftir Brahms, Sonetto del Petrarca eftir Franz Liszt, sónötu opus 26 eftir Samuel Barber og Dream Sigurvegarar í spurningakepni UMSB. Sveinn Jóhannsson, Oddur Kristjánsson og Brynjólfur Gíslason ásamt Þóri Jónssyni, formanni UMSB. Spurningakeppni Ungmennasambands Borgarfjarðar: Stafholtstungnamenn sigruðu BorgarfirAi, 9. aprfL Karlakórinn „Vegfarendur" söng undir stjórn Ingibjargar Þorsteinsdóttur. A röstudagskvöldið síóasta fóru fram úrslit í spurningakeppni Ung- mennasambands Borgarfjarðar í Logalandi í Reykholtsdal. Attust þar við hreppsnefndir Andakíls, Lundar- reykjadals, Hvalfjarðarstrandar- hrepps og Stafholtstungna. Stóðu eftir lið Andakíls og Stafholts- tungna, sem kepptu til úrslita, og lauk með því að Stafholtstungur sigruðu. Fengu sigurvegararnir borðfána með merki Ungmennasambands- ins og plötu á fótstallinn með nöfnum sínum á. Félagar úr Ungmennafélagi Reykdæla sýndu í hléi nokkra þætti úr „Saumastofunni" eftir Kjartan Ragnarsson, sem verið er að sýna um þessar mundir í Loga- landi, og karlakórinn „Vegfarend- ur“ úr Borgarfirði söng undir stjórn Ingibjargar Þorsteinsdótt- ur. Ungmennasambandið hefur gengist fyrir spurningakeppni á milli sveitarstjórnamanna í vetur. Hafa þessar samkomur verið vin- sælar og vel sóttar. Á úrslitunum í Logalandi voru á milli 250—300 manns, svo sitja varð uppi á borð- um og standa meðfram veggjum. Vegir í Borgarfirði voru óvenju góðir á föstudaginn var, miðað við árstíma, þótt eflaust vaðist þeir fljótlega upp, þegar frost leysir úr jörðu og blotnar um í rigningatíð. — PÞ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.