Morgunblaðið - 17.04.1984, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 17.04.1984, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 1984 51 Egílsstaðir: Vor í lofti Egilsstöðum, 11. aprfl. ÞÓTT veörabrigði hafi verið nokkur á Héraði undanfarna daga eru flestir á einu máli um það að vorið sé nú komið. Veðursældin hefur verið slík suma daga að menn og mál- leysingjar hafa látið blekkj- ast; fuglar sungið sem á há- sumardegi væri og menn hafið glaðir í bragði störf í görðum sínum. Jafnvel gróðurinn hef- ur fengið lit — og hafa menn af því nokkrar áhyggjur því að kaldrani í lofti hefur annað veifið minnt menn á að enn getur sól brugðið sumri. Börnin hafa hins vegar óhikað tekið fram strigaskóna og bera leikir þeirra vott um trú þeirra á vorkomuna; parís- ar og önnur slík „leikjaforrit" hafa verið teiknuð og máluð á skólahlaðið. Þar er hoppað og farið í snú-snú í frímínútum. Það er eitt enn sem minnir verulega á vorkomuna; þunga- takmarkanir hafa verið settar á vegi á Héraði. — Ólafur. Vorleikirnir eru orðnir allsráðandi í frímínútum í Egilsstaðaskóla. Ljósm.: Mbl./ólafur. FLUGLEIDIR AUGLÝSA FLUG OG HÚSBÍLL SPARAÐU HOTELKOSTNAÐINN OG LEIGÐU mran MEÐ SVEFNHERBERGL ELDHUSIOG BAÐI Flugleiðir gera þér fært að komast I ódýrt en þægilegt sumarleyfi. Leigðu husþil og aktu landa á milli. Pað fer vel um alla fjölskylduna. Húsþillinn er rúmgóður: góö svefnaðstaða, eldhús og snyrting. Flug og husbíll miðast við þrjá viðkomustaði Flugleiða i Evrópu Luxemborg, Frankfurt og Kaupmanna- höfn. Flug og húsbíll er ódýr ferðakostur! Qæmi: 4ra manna fjölskylda (hjón og 2 börn á aldrinum 2-11 ára) flýgur til Luxemborgar með Flugleiðum og leigir þar húsbíl (Hymercar Ford Transit) í 2 vikur. Verðdæmi þessarar 4ra manna fjölskyldu lítur þannig út: kr. 16.386 x 4 = kr. 65.544 - kr. 9.400 (afsláttur v/barna) = 56.144,- Innifalið: Flug + húsbíll + km-gjald + söluskattur + kaskótrygging Ekki innifalið: Bensín + flugvallarskattur. í húsbilnum er gott svefnrými fyrir alla meðlimi fjöl- skyldunnar (1-5 manns), einnig fyrirtaks eldunarað- staða og snyrting. Húsbillinn lækkar ferðakostnað fjölskyldunnar: Enginn hótelkostnaður og lægri matar- kostnaður' Farðu með alla fjölskylduna í sumarleyfisferð um Evrópu í rúmgóðum og þægilegum húsbill Frekari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða, umboðsmenn og ferðaskrifstofur. Dæmi um verð fyrir ara m.fjölskyldu: FLUG OG HÚSBÍLL FRA kr. 56.144-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.