Morgunblaðið - 19.04.1984, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.04.1984, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 19. apríl Svo kvað Tómas Molar frá einni næturstund Tómas Guðmundsson kom heim til mín hér um kvöldið, aldrei þessu vant. Við sát- um og röbbuðum um Helgafell, stjórnmálin og heims- pólitíkina, og töluðum bæði vel og illa um náungann, þ.e.a.s. Tómas talaði um alla heima og geima, en ég skaut inn orði og orði á stangli, eins og blaðamanni ber. Ekki svo aö skilja að ég ætlaði að skrifa neitt af því, sem hann sagði. En þegar hann var farinn, rifjaði ég eitt og annað upp fyrir mér og skellti á blað að gamni mínu til aö gleyma því ekki. Og hér er það: Heimastjórnarmaður — Heyrðu, Tómas, í hvaða flokki ertu annars? segi ég við hann, mitt í hinum hápólitísku samræðum. — Ég hefi alltaf verið heima- stjórnarmaður, segir Tómas og verður mjög alvarlegur á svipinn. Ég hefi að vísu aldrei formlega gengið í flokkinn, vegna þess að enginn fundur hefir verið haldinn síðan einhvern tíma á árinu 1918. En ég mæti á næsta fundi, hvenær sem hann verður. Sjáðu til. Ein fyrsta bernsku- minning min er þessi: Ég hefi víst verið á fjórða árinu. Hannes Haf- stein og fru hans gistu heima á- Efri-Brú. Þá var verið að vígja Sogsbrúna eða eitthvað þess hátt- ar. Morguninn eftir var ég að álp- ast úti á hlaði, kunni ekki fótum mínum forráð, frekar en stundum seinna í lífinu, stakkst á höfuðið, fékk blóðnasir, en frú Hafstein hjáipaði mér á fætur og maður hennar gaf mér skínandi pening. Síðan hefi ég verið heimastjórnar- maður. Þrjár ákvarÓanir Auk þess ákvað ég snemma þetta þrennt: Ég ætlaði að verða skáld, að eiga hús við Sogið, þar sem ég lék mér sem barn, og verða ríkur. Ég hefi ort, að vísu ekki eins vel og ég hefði viljað, og húsið við Sogið er komið upp, að vísu miklu minna, en ég ætlaðist til, en ég á alveg eftir að verða ríkur, og það er raunar mjög bagalegt, að minnsta kosti fyrir skáld, því að ég hefi alltaf haldið því fram, að andagift væri m.a. peninga- spursmál. — Ég á reyndar dálítið af bókum, en tími ekki að selja þær fyrir peninga, því að flestar eru þetta uppáhaidsbækur mínar, eins og t.d. Smaladrengurinn eftir Freymóð Jóhannesson. Ég les Smaladrenginn alltaf tvisvar á ári, og hef hann auk þess til að prófa menn, hvort þeir hafi „húm- oristískan sans“. Ef menn hafa ekki ga.nan af Smaladrengnum, þá er ekkert gaman að þeim. Þar er t.d. þetta atriði í einum þættin- um: „Hundgá heyrist í fjarska. Ef hundur er ekki við höndina, getur (tiltekin persóna) farið af sviðinu og gelt á bak við tjöldin." Draumar — Getur þú ekki sagt mér eitthvað um þína skáldadrauma frá æskuárunum? — Nei. Mig hefir aldrei dreymt neitt um það, Ég var alveg ákveð- inn að verða skáld, frá því fyrsta ég man eftir mér. Þegar ég var lítill, gaf ég út dagblað fyrir sjálf- an mig. Enginn mátti sjá það. Það var alveg fyrir mig. Það byrjaði alltaf á kvæði. — Dreymdi þig þá ekkert? — Ja, draumar og draumar eiga ekki saman nema nafnið. Mig dreymir oft fyrir daglátum, en sjaldan nokkuð merkilegt. Það er að segja, mig dreymdi fyrir styrj- öldinni nokkrum mánuðum áður en hún brauzt út. En ég réð þann draum skakkt. Hélt að hann væri fyrir drepsótt. Hann var svona: Ég var staddur úti á björtu og heiðskíru vetrarkveldi. Alstirndur himinn. Þá sé ég, að úti við sjón- deildarhringinn er stóreflis risi, með tösku spennta yfir öxl, líkt og strætisvagnsstjóri. Og hvað held- ur þú, að mannfjandinn geri? Hann tínir stjörnurnar af himnin- um niður i tösku sina. Svo dreymir mig stundum á nóttum samtöl og setningar, sem ég heyri daginn eftir. Einu sinni dreymdi mig t.d., að Jakob Möller mætti mér á götu og segði við mig Valtýr Stefánsson ræðir við Tómas Guðmundsson skáld eina setningu. Morguninn eftir var ég á leið niður á skrifstofu með kunningja mínum, og segi honum drauminn, þetta sem Jak- ob sagði við mig. En þegar við vor- um komnir niður í Bankastræti, þá er Jakob þar, víkur að mér og segir sömu orðin og í draumnum. Skólaskáldin — Hvenær fórstu fyrst að sýna kvæðin þín? — Þegar ég var 10 ára orti ég kvæði til mömmu og skrautritaði, og fór út í móa og tíndi bióm, færði henni blómin og kvæðið í rúmið. — Hún var ljóðelsk kona. Eitt af því fyrsta, sem ég man eftir, var, að hún sat með mig á hand- leggnum og var að lesa Ásbyrgi eftir Einar Benediktsson. Ég'man vel eftir hófsporinu, sem Einar talar um í kvæðinu. Svo fór ég í Menntaskólann, sat í 1. bekk. En næsta haust ákváðum við Sigurður ólafsson, sem síðar varð verkfræðingur, að lesa 2. og 3. bekk á einum vetri. Sumpart af fjárhagsástæðum. Sumpart af því, að við vorum svo efnilegir. Svo auglýstum við eftir pilti til að vera með okkur í tímum. Ég man ekki, hve margir gáfu sig fram. En hitt man ég, að við vor- um sammála um að taka einn þeirra umsvifalaust. Okkur þótti hann svo skrítinn, og öðru vísi en allt hitt fólkið. Hann kvaðst heita Halldór Guðjónsson, rithöfundur frá Laxnesi. Hann bar það líka með sér, hver hann var, því að hann hafði svo skáldlegt hár. Við urðum miklir vinir. Á þeim árum var mikið hár og stór gleraugu einskonar einkenn- isbúningur skálda. — Það giiti einu, þó að menn þyrftu að taka gleraugun af sér til þess að sjá til að lesa og skrifa. Ég man t.d. hvað Guðmundur Gíslason Hagalín þótti efnilegur þá strax, hvað þetta snerti. Eitt af þessum einkennisbúnu Menntaskólaskáldum kallaði mig einu sinni á eintal og sagði við mig mjög alvörugefinn: Heyrðu, Tóm- as! Ekkert skil ég í þér, hvernig þér dettur í hug að ætla þér að verða skáld og láta snoöklippa þig svona. Halldór kom heiman frá Lax- nesi með fullt koffort af handrit- um. — Það voru skáldsögur í mörgum bindum. Hann orti líka um þetta leyti kvæði til Þýzka- landskeisara. En enginn mannleg- ur máttur skal fá mig til að segja frá því, hvar það birtist á prenti. í prófinu upp í 4. bekk vorum við látnir velja á milii verkefna í islenzkum stíl. Halldór skrifaði langa sögu um mann, sem réð sig í kaupavinnu austur í Flóa, og trú- lofaðist þar. Hann varsvikinn um kaupið. En hvað gerði það til, sagði skáldið að lokum. „Hann vissi sem var, að góð kona er meira virði en hattur fullur af peningum." Á þeim orðum endaði þessi skáld- saga, sem hét „Sumarstörf manna hér á landi“. Hún er til uppi í Þjóðskjalasafni og Halidór fékk hjá Sigurði Guðmundssyni hærri einkunn fyrir hana en venjulegt var að gefa í skriflegri íslenzku. Um vorið gáfum við Halldór út blað, til að græða peninga. Við

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.