Morgunblaðið - 19.04.1984, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 19.04.1984, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 1984 61 Foraldir íslandssögu eftir EINAR BENEDIKTSSON Þegar jeg var sjálfur orðinn sannfærður um það, að land vort geymir óhrekjanlega vitnisburði um mannvistir og þekking á Is- landi, fjölda alda fyrir svonefnda sögu lands vors, reyndi jeg fyrst að athuga nokkur meginatriði sem að þessu lúta. Jeg gerði þetta að umræðuefni í breskum vísinda- legum fjelögum og ritaði ýmsar greinir, er að því lutu, hingað og þangað. Nokkrum árum síðar veittist mjer kostur á því að kynna mjer hin stórvægilegu mannvirki í Rangárvallasýslu og síðan hafa smátt og smátt bætst við sönnun- argögnin um eldforna forsögu hins norðvestlæga eylands, ýmis mannvirki, víðsvegar um alt ís- Foraldir Islandssögu. t RÚNARISTUR í ÁSHELLI Efst til hægri á mvndinni eru tvær myndir af fiskum. FisktákniA er algengt í frumkristni og síðar, og kemur til af því, að orðið „fiskur“ á grísku hefir inni að halda skammstöfun á nafni Krists. Orðið er „ichþys“. I(esus) Ch(ristos) Þ(eou) ‘Y(ios) S(óter) Jesús Kristur Guðs Son, Frelsari Til hægri neðst eru tvö tákn, sem virðast vera XP og IHS. XP eru tveir grískir stafir, sem svara til ChR, og var notað sem fangamark Krists. Hitt táknið, IHS, gerir hvorttveggja að þýða á grísku = IES, upphafsstafirnir í nafni Jesú, og á latínu 4 I(esus) H(ominum) S(alvator) Jesús frelsari mannanna Fleiri ristur sjást greinilega á veggnum, en þessi frumkristnu tákn eru einna greinilegust. ÞANN 1. janúar síðastliðinn flutti Ofnasmiðja Norðurlands starfsemi sína til Reykjavíkur að Funahöfða 17, og er starfsemin komin í fullan B»n8- ONA er þekkt fyrir áralanga, faglega vinnu á RUNTAL-ofnum til húsahitunar. Ofnarnir eru sér- Inngangur til Áshellis, sem er á eystri bakka Þjórsár, og er einhver hinn stærsti og merkilegasti hellir, sem fundist hefir á Suðurlandi. G. Sæthersmoen verkfræðingur hefir mælt og teiknað helli þennan (sbr. „Thules Beboere", útg. 1918 í Oslo). land, sem öllum vitanlega stafa frá ævagömlum öldum, löngu fyr en Rómverjar, Grikkir og Pún- verjar vissu deili á Sólarlandinu Tíli. Tala þau nú því hærra um aldur sannsögu vorrar, sem tímar líða lengur. Jeg hefi látið þess getið áður, í þeim örstuttu og fáu greinum, sem jeg hefi nú fyrir skömmu ritað um forsögu vora, að jeg vildi vekja at- hygli alþjóðar á Islandi um hina óheyrilegu vanrækslu, er þetta mál hefir orðið fyrir, einmitt nú þegar efni vor og fjöldi vænlegra fróðleiksmanna meðal vor, gera oss fært að leggja mikinn skerf tií vísindalegrar meðferðar á eld- fornum fræðum vorum. Örsmá sýnishorn hinna for- sögulegu minja eru látin fylgja hjer með, til þess að reyna að vekja nokkurn áhuga um þetta stórvægilega málefni söguþjóðar- innar. Væntanlega munu verða birt, innan skams, hin helstu meginat- riði er lúta að mikilvægi þessa efnis fyrir landfræðissögu íslands. Óteljandi sannindamerki heim- sókna og vista í Suðurlandshellum þeim, er jeg leit yfir meðan jeg bjó á Rangárvöllum, taka allan efa af KROSS í Helli að Ægissíðu högginn áður en ísland bygðist frá Noregi. um það, að hjer eru stórfeng og frægileg verkefni fyrir rannsóknir útlendra og ísl. vísindamanna. — Feiknafjöldi munkateiknanna IHS (Jesús frelsari mannanna) koma alstaðar fyrir, auk fisk- mynda víðsvegar úti um loft og veggi: „Ichþys" (Jesús Kristur guðs son, frelsari). Þar hafa komið fræðimenn er bæði kunnu grísku og latínu. Ennfremur þóttist jeg sjá Ogham letur hjer og þar sem eðlilegt er, jafnt hjer sem á Bret- landseyjum, þar sem ýmsir há- lærðustu menn síns tíma höfðu komið hjer út og haft langdvalir á órasvæðum Suðurlands. Rjettlátt virðist að geta þess hjer, að óvild og rangfærslur um frumþekking á íslandi, og þá að líkindum jafnsnemma um Græn- land, halda áfram að þróaát enn á vorum dögum. Mjer hefir jafnan virtst, frá því er jeg fór að kynna mjer nokkuð þessi efni, að einhver kali ráði hjer gegn óhlutdrægri íhugun og ætti slíks þó ekki að vænta í Sögulandinu. En staðleys- ur þær og uppspuni, sem vefjast t.d. um fyrstu landnámssagnir vorar benda til framhaldandi hlutdrægni. Læt jeg mjer nægja hjer einungis að nefna óreiðuna um frásagnir Landnámu. Frithjof Hansen hefir skarplega tekið fram að nafn Vestmanneyja er dregið af dvöl kristinna flótta- manna frá Bretlöndum. Röstin, sem ritsagan falsar í mannsnafnið Faxa, er enn til og rjett nefnd við Eyjarnar. Er hjer ekki rúm til frekari skýringa um þessi efni. Einungis mætti nefna að enginn efi mun vera á því að „terra glaci- alis“ er Grænland, sem Skáld- Helgi hinn lærði rjettnefndi „Jöklajörð". Hjer opnast víð og merkileg sjóndeild og mun jeg leitast við að skýra þetta betur á öðrum stað. En engan ætti að undra þótt kom- ist verði að miklum merkum nið- urstöðum, er óhlutdrægar og sannar áreiðir verða gerðar um Suðurland — fyrst og fremst. I jólablaði Lesbókar 1929 birtust þessar hugleiðingar Einars Bene- diktssonar um foraldir íslands- sögu. / jólahladi Lesbókar 1929 birtust þessar hugleióingar h'inars Bene- diktssonar um foraldir íslands- sögu. Ofnasmiðja Norðurlands flutt til Reykjavíkur smíðaðir úr 1,5 til 2,0 mm stáli og auk þess rafsoðnir, sem eykur endingu og varmanýtni. Ofnana er hægt að fá lægsta 7 sm og hæðir eftir þörfum og í lengdum frá 50 sm til 6 m með 10 sm lengdarmun. RUNTAL-ofnar henta öllum vatnshitakerfum en sérstaklega hafa þeir reynzt vel hitaveitukerfi. OFNASMIÐJA NORÐURLANDS, ONA HEFUR NÚ FLUTT STARFSEMISÍNA AÐ FUNAHÖFDA 17, REYKJAVÍK. ONA SÉRSMÍÐAR RUNTAL OFNA ÚR1,5-2,0 MM STÁLI RUNTAL OFNARNIR FRÁ ONA ERU ÞYKKUSTU STÁLOFNARNIR Á ÍSLENSKA MARKAÐNUM. KOMK) OG LEITIÐ TILBODA Á SKRIFSTOFU OKKAR FUNAHÖFÐA 17, REYKJAVÍK, SÍMAR 82422 og 82980. OFNASMÐJA NORÐURLANDS FUNAHÖFÐA 17 - v/ÁRTÚNSHÖFÐA SÍMI82477 - 82980 -110 REYKJAVÍK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.