Morgunblaðið - 19.04.1984, Page 6

Morgunblaðið - 19.04.1984, Page 6
54 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. APRlL 1984 persónuleika hennar." Enn frem- ur: „Vitrum mönnum og menntuð- um, en allra síst stjettarbræðrum mínum hér á landi, er trúandi til að fjalla um hvers virði sje list mín eða ritskaparhæfileiki.“ Þessi grein H.K.L. vakti mikið umtal meðal lesandi manna hér í bæ. Skarpir ritskýrendur skýrðu hana eitthvað á þessa leið: „Jeg, Halldór Kiljan Laxness, skrifa mál, sem ekki skilur nema ein lítil „lesþjóð" norður í höfum. Af því að hún á lítinn kost á því, að lesa góðar skáldsögur, þá hefi ég skrif- að þessa bók mína. En menn mega ekki misskilja hvers vegna jeg gerði það — það var einungis til þess að „láta fólk njóta af því, sem mjer er til lista lagt, kynna mönnum mína eigin list og per- sónuleika hennar". Og þó að jeg hafi skrifað þessa bók á íslenzku, þá mega fslendingar ekki þar fyrir ofmetnast og halda að þeir geti dæmt mann eins og mig. Ytra eru til vitrir menn og mentaðir sem geta það — en íslenzkum rithöf- undum (Einari Benediktssyni, Einari H. Kvaran o.s.frv.) er allra síst til þess trúandi." Jeg vil ekki trúa því, að þessir ritskýrendur hafi skilið vininn H.K.L. rjett. Auðvitað kennir mik- illar sjálfstilfinningar í grein hans, en jeg hygg að flaustur og óaðgætni valdi mestu um, að orð hans falla svo að maður skyldi halda að þau væru skrifuð af tak- markalausum hroka. Nú hefi ég gefið lastmælendum skáldsins orðið í þessari grein minni, til þess að honum sjálfum veitist færi á að skýra þessa und- arlegu grein sína — og helst að taka eitthvað aftur af orðum hennar. — Kr. Alb. Próvinsmanncskjur í bókmenntum Og það stóð ekki á svari. Svar til hr. Kristjáns Albertssonar og rit- skýrenda hans birtist 14. nóvem- ber, þar sem Halldór útskýrir hvað hann hafi átt við, skilur ekk- ert hvernig í dauðans ósköpunum nokkur manneskja hefir getað fundið upp á því að álíta þetta mælt í ofmetnaði? Og lýkur grein sinni: „Fjarri fer því að jeg telji mig hafinn yfir nokkurn íslenzkan rit- höfund og vona jeg að mig hendi aldrei sú firra að líta svo á, jeg vildi óska að hamingjan gæfi að þeir væru allir þúsundfalt snjall- ari en jeg eða meira. Hitt get jeg hreinskilnislega látið í ljósi hvað mjer persónulega finst um þá alla og sjálfan mig ekki síst: Við erum allir próvinsmanneskjur í bók- menntunum, og eigum hvarvetna í erlendum ritheimi jafnoka og hliðstæður í tugatali og hundraða, og þó ekki meðal annarra höfunda en þeirra, sem fæstir vita deili á, nema þeirra eigin klíkur, — allir að undanteknum Einari Bene- diktssyni." Og Kristján bætir við neðan- máls sinni athugasemd: „Þetta svar H.K.L. er á þá leið, sem jeg hafði búist við. Sá grunur minn reyndist rjettur, að montblærinn á grein hans í „Bókavininum" væri klaufaskap að kenna en ekki hroka. Skáldið unga dvelur nú á ættar- óðali sínu, Laxnesi í Mosfellssveit. Hann leyfir mjer að hafa það eftir sjer í Verði, úr bréfi sem fylgdi þessari svargrein hans, að hann sje nú að vinna af kappi að stóru skáldverki, sem hann ætlar að nefna „Heiman ek fór“. Megi and- inn koma yfir hann meðan hann skrifar þessa bók, eins og svo oftlega áður! — K.A. Svona löngu seinna koma þessi skrif svolítið broslega fyrir, en það fer ekki á milli mála, að Kristján hefur trú á sínu unga skáldi, þó að nokkur yfirlætisbragur sé á orð- um þess. Þegar þessi hroki er aftur á dagskrá ári síðar, í þetta sinn vegna ritdeilna um hárgreiðslu ís- lenzkra kvenna, þá bregður Krist- ján skjótt við til varnar og skrifar grein undir fyrirsögninni „Hall- dóri Kiljan Laxness sýndur hroki", og kemur þar greinilega fram álit hans á þessum unga höf- undi: — Ungu skáldi sýndur hroki „Þó að maður skyldi hafa svarið fyrir að slíkt geti hent, þá hefir þó sú ósvinna komið fyrir, að rithöf- undinum Halldóri Kiljan Laxness, sem sjálfur er manna lítillátastur í rithætti, hefir verið sýndur hroki í einu af blöðum vorum, og það af konu, sem ekki hefir sjeð nándar nærri eins mikið af heiminum og hið víðförla skáld. H.K.L. reit í sumar grein í Morgunblaðið, um „Drengjakoll- inn og íslenzku konuna". Frú Guð- rún Lárusdóttir svaraði þessari grein allhvasst. Meðal annars vildi frúin gera lítið úr reynslu og þroska H.K.L. og alls ekki viður- kenna að hann stæði jafnfætis tveim lútherskum prestum og rit- höfundum, sem hann hafði hnýtt !, þeim Olfert Richard, forvíg- ismanni KFUM hreyfingarinnar í Kaupmannahöfn, og C. Wagner, höfundi „Einfalds lífs“ og „Manndáðar“. Það mátti búast við því, að hinn ungi tízkuhöfundur tæki frúnni þessar fjarstæður óstint upp, enda er það nú komið á daginn. Það er hart fyrir mann, sem kominn er þó nokkuð á þrítugs aldur, sem ekki hefur annað gert en að þrosk- ast og reyna síðan hann fæddist og sem nú er suður á Sikiley, að verða fyrir ámæli um þroskaleysi 1927. frá húsmóður hjer í Reykjavík. Það mátti búast við því, að H.K.L. ræki í rogastans frammi fyrir slíkum hroka og leyfði sér að benda á alla þá mörgu bókaskápa í landinu þar sem hans „Samlede Verker" standa við hliðina á Heimskringlu Snorra Sturlusonar. Og þeir sem þekkja H.K.L. vita, að rithöfundarheiður hans er honum svo viðkvæm og heilög tilfinning, að það hlaut að særa hann djúpt að vera borinn saman við lúth- erska prjedikara eins og Richard og Wagner — og léttvægur fund- inn. Svar H.K.L. til frúarinnar birt- ist í Morgunblaðinu á laugardag- inn. Fyrst svarar hann þeim ámælum frúarinnar, að hann hafi misþyrmt tungu vorri, á þá leið, að Snorri Sturluson „sletti tiltölulega miklu meira" en hann. Þá snýr hann sjer að öðrum ákúrum henn- ? /: „Þar sem frúin gerist svo djörf /) frýja mér þroska og lífsreynslu, /*t ég mjer nægja að skírskota til /•itverka minna, sem allur almenn- /ingur á íslandi mætti vera að nokkru kunnur, þau votta skýrar en nokkuð annað, þótt lítilfjörleg sjeu, hvers virði sje þroski minn. Annars varð mjer á að hvá, þegar jeg las þessi frýjuyrði konunnar, svo furðanlega lætur það í eyrum manns, sem hefir ekki haft annað fyrir stafni frá barnæsku, en afla sér lífsreynslu og þroska, í sem margháttuðustum umhverfum menningarheimsins, að heyra heimaalinn kvenmann, enda þótt hún kunni að vera sæmileg hús- móðir, velja sjer hæðiyrði sakir þroskaleysis. Það er eins og maður viti naumast hvaðan á sig stendur veðrið frammi fyrir slíkum hroka.“ Og enn segir H.K.L.: „Höfundarmetnaður minn er altof heilög tilfinning til þess að jeg hafi löngun til að fara í sam- jöfnuð við andlega dúllara á borð við C. Wagner og Olfert Richard, hversu lokkandi sem frægð þeirra kann að vera í augum frú Guðrún- ar Lárusdóttur." Þessar ívitnanir nægja til þess að sýna, að H.K.L. hefir svarað nokkuð svipað því sem við mátti búast af honum. Þó að maður geti ekki gert að því að brosa dálítið út í annað munnvikið að hinu hátíð- lega og innilega monti í grein hans, þá hlýtur hitt þó að gleðja mann, með hve miklum hressandi röskleik hann veitist að þeim æfa- gamla misskilningi, að hægt sje fyrir hvern þann, sem nokkuð er kominn til ára sinna, að knjesetja fluggáfaðan rithöfund með því að sletta því framan í hann að hann sje — ungur. Þegar frú G.L. kallar H.K.L. óþroskaðan, þá á hún auð- vitað við það, að hann sje ungur. Því síst hefði H.K.L. til að bera minni þroska til ritstarfa, en þorri hinna rosknari manna, sem í blöð skrifa, og engum lifandi manni myndi detta í hug að bregða um óþroska. Yfirlætið í greinum hans, munu menn segja, er það ekki unggæðingslegt? Mig grunar að yfirlæti hans eigi sjer djúpar ræt- ur í skapgerð hans og að það muni fremur fara vaxandi en minkandi, eftir því sem hann verður frægari, víðförulli og umsvifameiri. Þá er ekki síður gaman að H.K.L. þegar hann lætur brúnirn- ar síga og mælir frá hvirfli til ilja þá oddborgaralegu bábilju, að ungur rithöfundur megi ekki tala óvirðulega um sjer eldri og fræg- ari höfunda, sem hann hefir ógeð á. Heyr á endemi! segir Kiljan, ef það á að halda fyrir munninn á mjer með „frægð“ þeirra Richard og Wagners, þá ríf jeg mig lausan og hrópa „andlegir dúllarar" á eft- if þeim. (Þetta orðatiltæki er það besta sem H.K. L. hefur dottið í hug, og mun verða langlíft í tung- unni.) Halldór Kiljan Laxness hefir upp á síðkastið skrifað margt, sem hneykslað hefir (og mun ef til vill verða vikið að því síðar hjer í blað- inu) — en um hitt blandast engum hugur, að máttur máls og stíls hefir honum mjög aukist á síðasta ári. (Þó slettir hann enn óþarflega mikið. „Evrópeiskur" er ill danska, en íslenzka orðið hlýtur að vera evrópiskur eða evrópskur.) Tungu vorri játar H.K.L. ást sína með þessum orðum í svari til frú G.L.: „íslenskt nútíðarmál leikur á breiðum tónstiga, alt milli hróp- andi ruddaskapar og Ijóðrænnar fegurðar, og er auðugra af gný ósnortinnar nátturu, jötunættaðri kyngi, töfrandi litbrigðum og egg- hvössum biturleik, en nokkurt mál annað í víðri veröld, jeg ann hin- um dælska og ámáttuga krafti ís- lenzks nútíðarmáls." Sjálfstæður og magnadur persónulciki Víkjum nú aftur að ritdóminum fræga um Vefarann, sem vakti miklar deilur. „Flestum kom sam- an um að þetta væri ein sú ómerkilegasta bók sem sést hefði á íslandi. Margir ritdómarar töldu það vera höfuðskömm að slík bók væri gefin út á vora tungu. Sjald- an hefur nokkurt skáldmenni ver- ið skammað jafn rækilega fyrir bók,“ skrifar Halldór sjálfur í Skáldatíma. Og hann bætir við: „En góðkunningi minn Kristján Albertsson sem feingið hafði alt húshæft og kirkjugræft í Austur- stræti á víxilinn til að kosta bók- ina, hann var nú samt á öðru máli, og skrifaði um hana ritdóm sem enn er frægur með íslendíngum af upphafsorðum sínum: „Loksins — loksins“.“ Ritdómur Kristjáns er langur og verður ekki rakinn hér nánar. Hann gerir grein fyrir efni sög- unnar, sálarlýsingum persóna og stíl. Og segir: „I heild ber verk hans (Halldórs Laxness) vott um sjálfstæðan og magnaðan per- sónuleik, fjölskrúðugan eigin hugsanagróður, mikla sjálfsrækt gáfaðs fullhuga." Hann getur þess í grein í Verði að H.K.L. hafi farið í maímánuði til Ameríku eftir ársdvöl hér heima. Dvelji hann í Winnipeg og muni bráðlega ferðast um lslend- ingabyggðir. Þetta er orðið langt mál. Grein- arnar sjálfar eru skemmtilegar þegar litið er til baka, og segja sína sögu, og þar litlu við að bæta. í bjálka- kofanum eftir SIGURÐ ÞÓRARINSSON Einhverntíma í vetur birti jeg í Morgunblaðinu fyrri hluta ferðasögu er fjallaði um ferðalag fjögurra ís- lenskra stúdenta upp í ssnsku há- fjöllin í jólaleyfinu. En aldrei varð af því að jeg sendi blaðinu seinni hluta sögunnar, þar eð jeg hefi heyrt út- undan mjer að einhverja hafi langað til að vita hvernig þessu ferðalagi lauk, ætla jeg að reyna að botna söguna og er betra seint en aldrei. Jeg fylgi sem áður dagbók minni um orðfæri. Þeim til skýringar sem skyldi hafa láðst að lesa fyrri hluta þessarar ágætu sögu skal þess getið að þessir fjórir landar voru: Halldóra Briem (Dódó), Ólafur Sigurðsson (Óli) og Kiríkur Briem (Eidi eða „prímus" kallaður) og svo sá er þetta ritar. t |HarðnnHai$in« Sigurður Þórarinsson: í bj álkakofanum 28. des. nær miðnætti Ekki var þessi dagurinn lakari hinum síðasta. Veðrið var indælt, hitinn kringum 0°C og færið ekki upp á að klaga. Máltíðin í morgun var hin sama og venjulega, hafra- grautur með saftblöndu útá („pat- ent“ Dódó) og brauð með osti. Stóð Óli nú fyrir grautargerðinni og hafði Eidi þau orð um grautinn að hann væri jafn þunnur og skapari hans. Lýsir þetta því tvennu 1) að grauturinn var í þynnra lagi og 2) að „prímusi" var bötnuð tann- pínan, þar eð hann gat framleitt brandara. Um hádegi var haldið upp í fjall til skíðaæfinga. Allar skíðakúnstir voru nú á hærra plani en daginn áður, meðal annars sló kvenbriem- inn met í tölu falla á mínútu (fyrra metið átti sú hin sama). Sjálfur reif jeg buxur mínar frá haldi til hnjes við byltu eina geysi- lega, sem nær hafði opnað mjer dyr varmari vistarvera. Þegar við komum heim voru gestir komnir. Var það fjölskyldan Hani frá Váládalen, sem hafði klifið hingað til þess að kynnast merkisfólki því er býr í Sten- dalsstugan. Þetta var hin við- kunnanlegasta „familía" og bauð upp á kaffi og hveitiköku. A með- an Hana-fólkið sá til, snæddum við flesk og hveitipípur í rauð- aldinasósu. En er hún hafði skrið- ið til bæla sinna í hinu herberginu laumaðist Óli út og sótti sveskju- grautarpott sem við áttum frammi. Var sá tæmdur. Alt þetta hafði mjög örfað andagift manna og fekk hún nú sína útrás í yrking- um, var ortur kvæðabálkur um ferðina og þetta stefið í: Óli plóginn æfir hógværlega Halldóru nógur heiður og prís hún er að lóga sykurgrís. Tel jeg ekki ólíklegt að „kvart- ettinn" komi til greina við næstu Nóbelsverðlaunaútdeilingu. Um kvöldið ríkti annars almenn ró og spekt, lítið var sungið, því við vildum ekki trufla hrotur hús- bóndans Hana í hinu herberginu. Annars fátt að nótera. Dódó hefir lokið við þverhandarþriðjung af sokk þeim sem hún er að prjóna, vellíðan mannskapsins eykst með hverjum degi og þegar er farið að bollaleggja næstu jólareisu. 29. desember „Hjer er næstum því eins fallegt og heima,“ sagði einhver í dag og þessi látlausu orð gefa betur en fjálg stóryrði hugmynd um nátt- úrufegurðina hjer. Það er líka erf- itt að hugsa sjer nokkuð fallegra en hádegisstund í hlíðunum hjer fyrir ofan þegar fönnum þaktir fjallahryggirnir baða í sól. Slikju- Síðari hluti ferðasögu fjögurra íslendinga í Jamtalandsfjöllum í jólafríi blámi liggur yfir barrskóginum niðri í dalnum, en hvítir skýja- hnoðrar fljóta á bláelfu háloftsins. Veðrið í dag var það besta sem við höfum hingað til haft, 6°C, frost og blæjalogn, færið var aftur á móti ekki upp á það besta, harð- askari og nær ómögulegt að festa skíði. Heim komum við um þrjú-leytið úr skíðaferð dagsins og var þá „familían" Hani að leggja af stað. Hafði það dánufólk skilið eftir ýmislegt góðgæti í kofanum, þ.á m. lostætan franskan ost sem Eidi át upp, með þeim forsendum að þessi ostur myndi áreiðanlega ekki falla nokkrum öðrum í geð. Ekki tel jeg ólíklegt að Eiríkur hafi mælt mót betri vitund en hirði ekki um að lasta hann, þar eð mjer var mútað með vænum bita af tjeðum osti. — — nú sit jeg hjer í rúmlega 30° hita, ilmur af bauta og lauki berst mjer að vitum. Dódó bograr við brasann, Óli „skrælar" kartöfl- ur og úr hinu herberginu heyrist Eidi syngja: „Oft er mínum unga strák ..." Hann situr við pönnu- kökubakstur og segir hitann þar inni vera rúm 40°C. Nú er maturinn tilbúinn, að dæma af þeim forða sem á borðum er, munu margir tímar líða þar til næst gefst tóm til dagbókarskrifa. Miðnætti Kraftaverk skeði. Allar þær krásir, er fyrir nokkrum stundum þöktu kofaborðið, eru horfnar, bæði hin hrikalegu bautastykki er Dódó hafði steikt og pönnuköku- hlaði Eiríks, virtist þó við fyrstu sýn sem þetta væri vikufæða. — Og það sem merkilegra er, sumir eru farnir að kvarta um sult og heimta brauð og ost. Kannske er það hitasvækjan í kofanum sem svo eykur lystina, kannske er það hlustandið á hörmungar Arm- eníumanna á fjallinu Musa Dagh. Örlög þessa fólks eru nefnilega það eina frá umheiminum sem okkur í augnablikinu varðar um. Eiríkur situr einmitt núna og les upphátt um apótekara Krikor, Gabriel Bagradían og hvað þær nú heita, allar persónurnar í hinni stórfenglegu bók Werfels: „Fjöru- tíu dagarnir á Musa Dagh“ er lýsir hörmungum Armena í heimsstyrj- öldinni. Við keyptum skrudduna í Stokkhólmi og hugðumst bæði auka okkur andlega, þroska og æfa okkur í sænskum upplestri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.