Morgunblaðið - 19.04.1984, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 1984
75
staðreynd — realisminn, bitur og
sár. Hún fleygir bókstaflega fram-
an í mig staðreyndunum og lýsir
það upp fyrir mér í einni svipan —
betur en ótal ópersónulegar, fjar-
ritaðar fréttir undanfarinna mán-
aða — hvernig komið er fyrir hinu
unga Kongólýðveldi, þessu þjóðar-
barni, sem sjálfskapaðir forsjár-
menn hafa vanrækt að ala upp og
mennta og búa undir óblíð átök
lífsbaráttunnar að öðru leyti. Svo
skal sveinninn skyndilega standa
á eigin fótum, mitt í hringiðu alls
kyns magnaðra ytri áhrifa — þar
sem harðsnúinn og ísmeygilegur
áróður úr austri og vestri bylur á
vanþroska hans, eins og óveður á
ótraustum vegg. Margvísleg öfl
berjast um yfirráðin yfir hugsun-
um, tilfinningum og kenndum, en
reynsluleysi og vanþekking leggja
hinu versta lið, — og sveinninn
hnígur lémagna í helmyrkt skaut
ógæfunnar.
V
Þannig kemur myndin af hinni
syrgjandi Pauline Lumumba með
veruleikann til mín, veruleika,
sem ég hafði áður í rauninni að-
eins séð djarfa fyrir gegnum móðu
fjarskans. Hún ber mig á vit hinn-
ar stuttu, en átaklegu sögu Kongó-
ríkis, flettir blöðunum hægt og
bendir mér á aðalatriðin. — Og
þessi saga er jafnframt í megin-
dráttum persónuleg saga manns
hennar, Patrice Lumumba.
Hann var unglingurinn, sem
skyndilega losnaði undan oki van-
rækts og vanhugsaðs uppeldis,
fagnaði frelsinu ákaflega — og
raunar af lítilli hófsemi — stefndi
hátt, en var svo naumt að heiman
búinn, að hin langa ganga frá kot-
inu til kóngsríkisins reyndist hon-
um ofraun — og hann féll í trölla-
hendur. Ekki hafði hann heldur til
að bera gæfu yngsta karlssonar í
ævintýrinu, sem vann svo hylli
Trítils, Lítils og fuglanna, að þeir
hjálpuðu honum síðar, er í harð-
bakka sló, að sigrast á þrautum
þeim, sem skessan stóra lagði
fyrir hann, svo að hann eignaðist
kóngsdótturina — og loks allt
kóngsríkið.
Patrice Lumumba náði aldrei að
vinna kóngsríki hugsjóna sinna.
Hann varð tröllunum að bráð —
eins og hinir eldri karlssynir, sem
vísuðu fyrrnefndum hollvættum á
bug og töldu, í einþykkni sinni og
sjálfsþótta, að sér væru allir vegir
færir.
Já, þannig er þetta „svið“ í huga
mínum nú — er ég lít til baka. En
svona skrifar maður ekki hinar
daglegu fréttir. — Fréttir eru frá-
sagnir af staðreyndum — ekki
hugleiðingar ...
Sorg í svörtu hjarta — það er
nafnið sem ég hefi gefið myndinni
af Pauline Lumumba í huganum.
En hennar „svarta“ hjarta er ekki
hið eina í suður Kongó, sem sorgin
hefir kramið undanfarna mánuði.
Bræður hafa borizt á banaspjót,
hungursneyð hefir geisað. Sak-
laus, svört börn hafa tærzt upp,
soltið til bana við horaðan barm
mæðra sinna. Ógnir, skortur og
hvers kyns eymd hefir orðið
hlutskipti þessarar sundruðu
þjóðar, sem fagnaði fengnu frelsi
á miðju liðnu sumri og skyggndist
vonglöð fram á veginn. — Veru-
leikinn er harður og miskunnar-
laus, þegar hann bregður fæti
fyrir björtustu vonir okkar, hvort
sem við erum hvít eða svört —
hvort sem okkur er skákað niður
við heimskautsbaug eða miðbaug
jarðarinnar, þessa sandkorns, sem
skal vera heimili okkar allra, en
við getum aldrei komið okkur
saman um að deila í friði.
VI
Fjarlægin er komin til mín,
vegna sterkra áhrifa „Gauguin-
málverksins" af Pauline Lum-
umba. Og ég minnist nú annarrar
myndar af henni, sem áður hafði
birzt víða. Sú mynd var líka
þrungin sorg og kvíða. Hún sat
flötum beinum utan við heimili
sitt í Leopoldville og fórnaði hönd-
um til himins í nístandi angist —
en með eðlislægan þokka náttúru-
barnsins í hreyfingunni. Eins og í
sorgardansi. Hjá henni stóð snot-
ur, svartur drenghnokki — Roland
litli, tveggja ára sonur þeirra
hjónanna. — Konunni hafði borizt
fréttin um, að maður hennar hefði
verið fluttur í fangelsi í Katanga,
þar sem erkióvinurinn réð ríkjum,
Moise Tsjombe. — Skyldi henni
ekki þá þegar hafa boðið í grun, að
hverju fór? Og ef litli drengurinn
hefir nú spurt: — Mamma, hvar er
hann pabbi? Hverju skyldi hún þá
hafa svarað? — Þótt hún hefði
reynt að útskýra það fyrir honum,
hefði barnssálin varla skilið annað
en það að pabbi var ekki heima.
Að hann væri langt í burtu, og
kannski væri langt þangað til
hann kæmi heim.
En ef Roland litli hefir nú hald-
ið áfram að spyrja, eftir 13. febrú-
ar, — hvað hefir konan þá sagt?
Hafi hún getið stunið einhverju
upp, hefir það sennilega verið: —
Roland minn, hann pabbi þinn er
kominn til guðs — og honum líður
nú ósköp vel. Er það ekki þetta,
sem flestar kristnar mæður segja
litlu barni, er missir föður sinn?
Og ef barninu hefur á annað borð
verið sagt frá guði, þá skynjar það
furðufljótt, með vissum hætti, í
sinni ungu sál, hvað það þýðir, að
pabbi sé hjá guði. — En kannski
er Pauline Lumumba alls ekki viss
um, hvar maðurinn hennar er nú.
Ef til vill veit hún það eitt, að
líkami hans liggur grafinn á
leyndum stað — einhvers staðar í
frumskóginum í ríki Tsjombes.
VII
Norður í Kaíró dveljast þrjú
svört börn frá Kongó og njóta
gistivináttu Nassers hins egypzka.
Þau heita Francois, Patrice og
Juliane — og bera öll eftirnafnið
Lumumba. — Þau eru orðin það
stálpuð, að það þarf ekki að segja
þeim, að pabbi sé kominn til guðs.
Þeim er full-ljós, já allt of ljós, sá
ógnar-sannleikur, að pabbi er dá-
inn — að hann pabbi er ekki leng-
ur hér, og þau fá aldrei framar að
sjá hann. Hvort sem hann er hjá
guði, eða bara einhvers staðar —
eða hvergi.
Hér vakir líka helmyrk sorg í
svörtum hjörtum.
H.E.
Creinin er írá 61. — Haukur Ei-
ríksson rar hladamaður á Morgun-
hlaðinu en er nú iátinn.
Skírdag ’
laugardaginn 21. apríl
Annan páskadag
Lokað föstudaginn langa og páskadag.
Muniö heimsendingarþjónustuna
Þú hringir
og viö sendum matinn
Allir á Ask Allir á Ask
ASKUR
Suðurldndsbmut 14.
Sími 81344.
Gæðin eru landsþekkt
mA|bn
IIIVIIWI
Þaö er auöséð aö þeir klæöast mclkc
Hönnun og litir eftir nýjustu tísku.
Gæöin veita öryggi — öryggi sem helst þótt flíkin sé margþvegin.
Snorrabraut Simi 13505
Glæsibæ Simi 34350
ÍJ 1.1
.» liU Jv.*i 1