Morgunblaðið - 29.04.1984, Page 46
ip.ul '(sí«tí *h- sittí;':mtwvii.* nm>, rca*rvr'.t?rm
94 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. APRÍL 1984
„Ég á bara eftir að fara í eina spennandi ferð. Og það verður mín síðasta
ferð. Dauðinn er eina spennandi fyrirbærið sem ég er ekki búinn að
upplifa." Þetta sagði Simon Spies árið 1972. Nú er danski ferðaskrifstofu-
kóngurinn eða sólkóngurinn eins og hann var stundum nefndur allur og
það er engu líkara en þjóðhetja sé fallin í valinn. Spies hafði löngum
aðdráttarafl fyrir dönsku blöðin og þau brugðu ekki vana sínum við
andlát hans. Simon Spies lézt úr lifrarveiki, 62ja ára að aldri. Hann hafði
lifað hátt og þegar hann dó var hann milljarðamæringur. Hann stráði
peningum í kringum sig en í viðskiptum var hann forsjáll og þrátt fyrir
það að skin og skúrir hafi skipzt á í ferðabransanum hefur ferðaskrif-
stofa hans alltaf blómstrað. Odýrar og góðar ferðir voru kjörorð hans og
það hafði hann að leiðarljósi í gegnum þykkt og þunnt.
Danski sólkóngurinn var millj-
arðamæringur þegar hann dó
SIMON
SPIES
Simon Spies lifði hátt og naut
þess að ganga fram af „fína
fólkinu" í Danmörku en almenn-
ingur í landinu dáði hann. Hann
er sagður hafa verið danskari en
Dannebrog og víst er að Danir liðu
honum það sem öðrum leiðst ekki.
Hann hélt því fram að tilgangur-
inn með jarðvist hans væri að
stjórna þjóðflutningum. Þegar
hann fékk stjörnuspeki á heilann
lét hann smíða eftirlíkingu af
Karlsvagninum úr skíra gulli.
Hann gerði tilraunir með ræktun
hass-jarðarberja. Hann lét ekki
sjá sig á almannafæri án þess að
vera umkringdur hópi fegurðar-
dísa. Hann berháttaði á veit-
ingastað í Kaupmannahöfn og
lagðist á gólfið með tveimur fylgd-
armeyjum sínum, að blaðaljós-
myndurum viðstöddum að sjálf-
sögðu. Hann keypti tíu rándýr
stúkusæti í Konunglega leikhús-
inu til að geta virkilega breitt úr
sér ásamt fjórum fegurðardísum,
auk þess sem margfrægur göngu-
stafur hans fékk sérstakt sæti.
Skömmu síðar setti hann lúxusbíl
með einkabílstjóra undir göngu-
stafinn og lét aka honum til
Suður-Evrópu en fór sjálfur fljúg-
andi.
Hann sló um sig með peningum
og eyddi gífurlegum fjármunum í
óhóf og ævintýri af þessu tagi. En
þeir peningar skiluðu sér aftur í
vasa hans. Það hefur verið um
hann sagt að hann hafi verið aug-
lýsingasnillingur. Á meðan keppi-
nautar hans eyddu milljónum og
aftur milljónum í auglýsinga-
kostnað var sá liður í lágmarki hjá
Simon Spies. Hann var árum sam-
an vinsælasta blaðaefnið í Dan-
mörku. Simon Spies og uppátæki
hans voru bezta auglýsingin fyrir
fyrirtækið. Blaðamenn fylgdu
honum hvert fótmál og Simon
Spies olli þeim aldrei vonbrigðum.
Uppátæki hans voru hvert öðru
skrautlegra, en eitt er víst: Simon
Spies var einn snjallasti — ef ekki
sá snjallasti — kaupsýslumaður
Danmerkur á þessari öld. Um það
ber arfurinn að honum látnum
vitni. Hann var milljarðamæring-
ur þegar hann lézt.
Hann byrjaði sem aðgöngu-
miðasali í kompu í Nerre-
gade og sú kompa var ríki hans
þegar hann leigði sér kompuna við
hliðina á og setti þar upp ferða-
skrifstofu. Þetta var í upphafi
hins almenna velmegunarskeiðs á
sjötta áratugnum og Simon Spies
sá að fólk var farið að hafa meira
handa á milli og einnig meiri frí-
tíma. Og þegar það Ijós rann upp
fyrir Dönum að þeir voru ekki
dæmdir til að hrekjast í róki og
rigningu átta mánuði á ári var
réttur maður á réttum stað á rétt-
um tíma. Þá þegar var Simon
Spies reiðubúinn að flytja þúsund-
ir landa sinna í suðræna sól gegn
Nýleg mynd. Heilsunni hrakaði
mjög síðustu mánuðina. Auk lifrar-
veikinnar, sem dró hann til dauða,
þjáðist hann af sykursýki.
gjaldi sem hver maður réð við.
Grundvöllurinn var lagður að
ferðaskrifstofuveldinu. Fyrsta ár-
ið var veltan upp á þrjátíu millj-
ónir. Allt varð að peningum í
höndunum á Simon Spies. Hann
vissi hvað hann var að gera. Hann
kunni fagið því að sjálfur gerði
hann það sem gera þurfti í upp-
hafi — seldi farseðla og var farar-
stjóri í ferðunum.
Að honum látnum hafa margir
orðið til að segja skoðun sína á
honum í dönsku blöðunum, þar á
meðal keppinautar hans og sam-
starfsmenn í ferðamálum og ekki
sízt viðskiptavinir hans. Allir
ljúka upp einum munni um ágæti
hans, en ummæli Poul Schlúters
forsætisráðherra fela í sér kjarn-
ann í þessum eftirmælum: „Simon
var einstæður og við eigum eftir
að sakna hans. Hann hegðaði sér
ekki í samræmi við viðteknar
venjur og hann var óvenjulega
hugmyndaríkur og frjór. Hans
verður minnzt að verðleikum fyrir
framlag hans í þágu nýrrar grein-
ar i dönsku athafnalífi, þ.e.a.s.
ferða með leiguflugi, sem hafa
í hópi aðdáenda á fdrnum vegi á sextugsafmælinu.
orðið liður í daglegu lífi okkar
allra. Simons verður líka lengi
minnzt fyrir að hafa veitt þúsund-
um Dana atvinnu. Það var virki-
lega vel af sér vikið."
Síðasta árið sem Simon Spies
lifði bar þess merki að hann vissi
vel að dagar hans voru senn taldir.
Hann gekk að eiga hina tvítugu
Janni Brodersen fyrir tæpu ári og
hún er aðalerfingi auðæfa hans.
En Simon Spies gleymdi ekki þeim
sem höfðu verið trúir og dyggir
starfsmenn hans. Öllum sem
höfðu verið í þjónustu hans í tíu ár
eftirlét hann 100 þúsund danskar
krónur. Móðir hans, Emma Spies,
fær verulega upphæð og sama er
að segja um nánustu samstarfs-
menn hans. En Janni er aðalerf-
inginn.
egar Simon Spies tilkynnti
trúlofun sína og Jannis voru
fáir sem tóku það alvarlega. „Æð-
islega pía — nýjasta skrautfjöður
Simons Spies," sagði eitt blaðið.
„Sko þá stuttu — þetta er eldklár
„golddigger" sem gerir þetta bara
peninganna vegna. Hún heldur svo
sannarlega að hún sé eitthvað,"
sögðu aðrir. En nú eru þeir ekki
svo vissir um að það hafi verið
rétt.
Ekki Ieikur vafi á að Simon
þótti innilega vænt um Janni og
það var áreiðanlega gagnkvæmt.
Hún er alin upp í Herlev. Faðir
hennar er verkstjóri hjá símanum
og móðir hennar rekur kjólaverzl-
un. Janni fór snemma að hjálpa
móður sinni i búðinni og þegar
hún var fimmtán ára hætti hún í
skóla til að taka þátt í atvinnulíf-
inu. Síðar settist hún aftur á
skólabekk og lauk stúdentsprófi
og nú hefur hún í hyggju að læra
viðskiptafræði við háskólann.
Hún réði sig sem sendil hjá
Simon Spies-ferðaskrifstofunni
fyrir fimm árum. Vegur hennar
innan fyrirtækisins fór vaxandi og
smám saman fóru þau Simon
Spies að umgangast. Janni Spies
þykir hafa staðið sig með eindæm-
um vel og hún á sæti í stjórn fyrir-
tækisins. Það hefur verið fylgzt
náið með henni en öllum ber sam-
an um að hún hafi ekki ofmetnazt.
Hún er erfingi milljóna sem gefa
af sér um tíu milljónir danskra
króna í vexti á hverjum mánuði.
Hún hefur ótakmarkaðan um-
ráðarétt yfir auðæfum sínum og
gæti selt fyrirtækið og öll verð-
bréfin ef henni biði svo við að
horfa. En kunnugir segja útilokað
að hún geri það. Hún leggur hart
að sér í námi og stefnir að því að
taka við stjórn fyrirtækisins þeg-
ar hún lýkur prófi. Janni var stoð
og stytta manns síns síðustu mán-
uðina sem hann lifði og hún hélt í
höndina á honum þegar hann
skildi við. Hún hefur verið mikið í
sviðsljósinu síðan brúðkaupið
mikla í Holmens-kirkju stóð hinn
11. maí í fyrra og það á eftir að
koma henni að gagni í framtíð-
inni. Hún er sögð hörkugreind og
ákveðin og sumir telja að við-
skiptajöfurinn Simon Spies hafi
gert meiriháttar „kúpp“ þegar
Sportbfll í Dallas-stfl var afmælisgjöfín til Janni þegar hún varð 21 árs.
I