Morgunblaðið - 06.05.1984, Page 43

Morgunblaðið - 06.05.1984, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MAÍ 1984 43 staði í reisutn erlendis. En óhætt er að dást að því, hversu vel þessi stöð virðist vera rekin um þær sömu mundir og þessi iðnaður berst víða í bökkum. Meðal starfsmanna í Wártshila í Turku er ekkert kynjamisrétti. Þar vinna konur við logsuðu og á lyfturum til jafns við karlmenn. Og það er alltaf dálítið ævintýralegt að horfa neðan frá upp á þessa gríð- arlegu skipsskrokka þar sem tugir eða hundruð manna eru að störf- um og virðast eins og örlitlar flug- ur á sveimi. Ég held þó að ekkert okkar fjögurra hafi harmað það að neinu ráði, þegar þessari fróð- legu heimsókn var lokið, sem okkur var reyndar sagt að við þyrftum ekkert að skrifa um frek- ar en við vildum. Og við héldum til hádegisverðar á notalegum veit- ingastað. Og þegar litið var þar út um gluggann gat á að líta styttu af sjálfum Lenin, sem Tyrku fékk einhvern tíma í vináttugjöf. Fót- stallurinn var þakinn blómum frá sovézkum ferðamönnum, sem gera sér tíðförult til Turku. Ég hugsaði rétt si svona með mér að ekki vær- um við svona artarleg við okkar menn, það eru varla nokkrir aðrir en forseti lýðveldisins og forseti borgarstjórnar sem færa Jóni Sig- urðssyni blóm og það er sennilega af meiri skyldurækni en innblás- inni löngun. Okkur datt í hug að þarna gæt- um við kannski ieyst vandamál blaðamanns Tímans. Hann var að reyna að komast til Leningrad og þaðan áfram til Litháen til að fylgjast með síðustu umferðum í skákeinvígi þeirra Kasparovs og Smyslovs. Ef hann skundaði nú að fótstalli Lenins og legði þar lotn- ingarfullur stóran blómvönd gæti þá ekki verið, að einhverjir sæju að hér væri á ferð einlægur og vitameinlaus áhugamaður um skák? Hugmyndin var ailrar virð- ingar verð, en allt kom fyrir ekki. Tímamaðurinn fékk ekki að fara til Sovét. Það er út af fyrir sig gáta handa fræðingum. „Allt fólkiö stóö hjá og horföi á hvernig þau fóru að heilsast... “ Það var indælt að koma til Álandseyja. Þangað var ekki farið fyrr en í forsetaförinni. í höfuð- borginni Mariehamn býr tæpur helmingur af tuttugu og tveimur þúsund íbúum og Mariehamn er hreinlegur og ljúfur bær. Þann dag sem við komum blakti álanski fáninn við hún nánast við hvert hús, það var sýnilegt að höfðingj- ar voru að koma í bæinn. Þrátt fyrir stuttan stans á Álandseyj- um, eða rétt um þrjá klukkutíma, var þó af öllu séð, að mönnum þótti til um að forseti íslands og fylgdarlið gæfu sér tíma til að koma þangað. Það var haft fyrir satt, að ráðamenn hefðu verið dá- lítið taugaóstyrkir fyrir heim- sóknina og verið mjög áfram um, að allt gengi nú vel og snyrtilega fyrir sig. Enda er það ekki á hverj- mér nefið. Texti: Jóhanna Kristjónsdóttir um degi sem þjóðhöfðingjar sækja Álandseyjar heim, réttara sagt mun það aðeins hafa gerzt einu sinni áður, árið 1976, þegar Elísa- bet Bretadrottning kom. Þá höfðu Álendingar enn ekki fengið sjálf- stjórn. Til Álandseyja koma gríðarlega margir ferðamenn, um milljón á ári. Enda las ég það í einhverjum bæklingi að um 21 prósent íbú- anna ynni við verzlanir, skrif- stofu- og þjónustustörf við ferða- menn beinlínis og 24 prósent við samgöngur, þar með taldar ferj- urnar svo og aðrar samgöngur. Sextán prósent vinna við skógar- högg og fiskvinnslu og sextán pró- sent við byggingarvinnu og annan iðnað. En auðvitað gekk allt snurðu- laust fyrir sig og raunar verulega elskulega. Fólk hafði þyrpzt út á göturnar og við Þjóðminjasafnið, sem fékk raunar sérstök verðlaun Evrópuráðsins á síðasta ári, lék lúðrasveit „Mér. um hug og hjarta nú“ af stakri kúnst. Gamlar konur stóðu og struku tár úr augnkrók- unum og lítil börn veifuðu heima- tilbúnum flöggum, íslenzkum eða álenzkum. Og kölluðu fagnaðarorð til gestanna. Einnig var farið í Sjóminjasafn Álandseyja og var þar staldrað við lengi. Það er í gömlu húsi og varð að hleypa okkur inn í hópum og var þó þröng á þingi. Þar gnæfðu stafnmyndir — eða gallónsmyndir — á veggj- um, safnið er útbúið sem skip með myndarlegt stýri í brúnni og gerði forseti tilraun til að stjórna skút- unni við mikla ánægju viðstaddra. Fyrir utan safnið liggur Pomm- ern, elzta barkskip sem enn er varðveitt í sinni upprunalegu mynd. Pommern var byggt í Gren- ock í Skotlandi fyrir meira en áttatíu árum og eftir heimsstyrj- öldina fyrri keypti hana Gústaf nokkur Eriksen og bætti Pomm- ern í flota sinn. Árið 1952 gáfu erfingjar hans bænum skipið fyrir safn. Þetta hefur verið tignarlegur farkostur, þegar það hefur siglt seglum þöndum. Möstur eru 48 metra há, skrokkurinn 95 metra langur og þrettán metra breiður. Þarna var tafið alllengi og síðan var boðið upp á kampavín og stutta menningarkynningu fyrir forsetann og fylgdarliðið, við blaðamennirnir sátum í brúnni og sötruðum kaffi og koníak og borð- uðum snittur. Og hafa líklega allir verið ánægðir með sitt hlutskipti. Þegar við héldum brott frá þess- um vinalega stað og áleiðis til flugvallarins og alls staðar var fólk að veifa og hrópa, rifjaðist upp fyrir mér saga Jónasar af því þegar drottningin á Englandi fói að heimsækja konunginn af Frakklandi: „Og allt fólkið gekk með og horfði á hvernig þau fóru að leiðast og ganga.“ GROHE-skákmótið Borgamesi: Guðjón Gunnarsson sigraði Borgarncsi, 2. maí. GIIÐJÓN (íunnarsson, Mýrartungu, Reykhólasveit, sigraði á hinu árlega GROHE-skákmóti skákdeildar llmf. Skallagríms sem haldið var i Borgarnesi um helgina. Þátttakendur voru 22 að þessu sinni af öllu Vesturlandi og úr Reykhóla- sveiL Guðjón vann til varðveislu í eitt ár bikar, sem teflt er um og Þýsk- íslenska verslunarfélagið hf. gaf til mótsins. Þýsk-íslenska gaf einnig önnur verðlaun. f fimm efstu sætun- um urðu: 1. Guðjón Gunnarsson, Mýrar- tungu, Reykhólasveit, 10 vinninninga. 2. Guðbjörg Jóhannesdóttir, Jörva, Kolbeinsstaðahreppi, 9,5 vinninga. 3. Gísli Gunnarsson, Búðardal, 8,5 vinninga. 4.-5. Bjarni Sæmundsson, Borgar- nesi, og Hugo Rasmus 7 vinn- inga. Veitt voru sérstök unglingaverð- laun. Efstur unglinga varð Guð- mundur Jóhannesson, Jörva, með 6 vinninga, annar varð Gísli Þórðar- son, Mýrdal, og þriðji Ellert Ólafs- son, Reykhólum. Einnig voru veitt sérstök kvennaverðlaun og hlaut Guðbjörg Jóhannesdóttir, Jörva, þau. — HBj. Til sölu er bifreiða- þjónusta í Reykjavík 350 fm .langur leigusamningur. Góö velta. Uppl. á skrifstofunni. Þingholt fasteignasala, Þingholtsstræti 1, sími 29455. ÁVÖXTUNSf^y VERÐBRÉFAMARKAÐUR Látið Ávöxtun sf. ávaxta sparifé yðar Verðtryggð spariskírteini ríkissjóðs Gengi 30.04/84 Ár Fl. Sg./IOO kr. Ár Fl. Sg I./100 kr. 1971 1 15.778 1978 1 1.411 1972 1972 1 2 14.102 11.682 1978 1979 2 1 1.129 951 Óverðtryggð 1973 1 8.841 1979 2 733 veðskuldabréf 1973 2 8.321 1980 1 641 21% 1974 1 5.525 1980 2 486 Ar 20% 1975 1 4.159 1981 1 415 1 82,5 83,2 1975 2 3.102 1981 2 306 2 75,5 76,4 1976 1 2.866 1982 1 289 3 69,5 70,6 1976 2 2.321 1982 2 214 4 64,4 65,6 1977 1 2.081 1983 1 164 5 60,0 61,3 1977 2 1.767 1983 2 105 6 56,3 57,7 Verðtryggð veðskuldabréf Ár Söhig. 2 afb/ári. 1 95,2 6 81,6 2 91,9 7 78,8 3 89,4 8 76,1 4 86,4 9 73,4 5 84,5 10 70,8 Óskum eftir spariskírteinum ríkissjóðs til sölu. Verðtryggð veðskuldabréf óskast í sölu. Óverðtryggð veðskuldabréf óskast í sölu. Avöxtun ávaxtar fé þitt betur ÁVÖXTUN Sf 49) LAUGAVEGUR 97 - 101 REYKJAVÍK OPIÐ FRÁ10 — 17 -SÍMI 28815 Frá Mariehamn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.