Morgunblaðið - 06.05.1984, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MAÍ 1984
47
Sigurvegarar á Andrésar andar-leikunum
SIGURVEGARAR í einstökum
greinum á Andrésar andar-leikun-
um í Hlíðarfjalli viö Akureyri um
síöustu helgi urðu þessir:
Svig, 12 ára drengir:
Jóhannes Baldursson, Akureyri.
Svig, 12 ára stúlkur:
Margrét Rúnarsdóttir, ísafirði.
Svig, 11 ára drengir:
Kristinn Björnsson, Ólafsfirði.
Svig, 11 ára stúlkur:
Hanna Mjöll Ólafsdóttir, ísafirði.
Stórsvig, 9 ára drengir:
ólafur Ægisson, Ólafsfirði.
Stórsvig, 9 ára stúlkur:
Sísí Malmquist, Akureyri.
Stórsvig, 8 ára drengir:
Róbert Hafsteinsson, Isafirði.
Stórsvig, 8 ára stúlkur:
Sæunn Björnsdóttir, Húsavík.
Stórsvig, 7 ára drengir:
Magnús Sigurðsson, Akureyri.
Stórsvig, 7 ára stúlkur:
Hjálmdís Tómasdóttir, Neskaupstað.
Skídastökk, 12 ára drengir:
Grétar Björnsson, Ólafsfirði.
Skíðastökk, 11 ára drengir:
Kristinn Björnsson, Ólafsfirði.
Skíöastökk, 10 ára drengir:
Gunnlaugur Magnússon, Akureyri.
Skíðastökk, 9 ára og yngri drengir:
Bjartmar Guðmundsson, Ólafsfirði.
Stórsvig, 12 ára drengir:
Jóhannes Baldursson, Akureyri.
Stórsvig, 12 ára stúlkur:
Margrét Rúnarsdóttir, ísafirði.
Stórsvig, 11 ára drengir:
Arnar Bragason, Húsavík.
Stórsvig, 11 ára stúlkur:
María Magnúsdóttir, Akureyri.
Svig, 10 ára drengir:
Hrannar Pétursson, Húsavík.
Svig, 10 ára stúlkur:
Harpa Hauksdóttir, Akureyri.
Svig, 9 ára drengir:
Birgir K. Ólafsson, Seyðisfirði.
Svig, 9 ára stúlkur:
Sísí Mamlquist, Akureyri.
Svig, 8 ára drengir:
Þorleifur Karlsson, Akureyri.
Svig, 8 ára stúlkur:
Sæunn Björnsdóttir, Húsavík.
Svig, 7 ára drengir:
Arnar Pálsson, ísafirði.
Svig, 7 ára stúlkur:
Hjálmdís Tómasdóttir, Neskaupstað.
Stórsvig, 10 ára stúlkur:
Harpa Hauksdóttir, Akureyri.
Stórsvig, 10 ára drengir:
Ólafur Þórir Hall, Siglufirði.
Ganga, 12 ára drengir, 2,5 km:
Sölvi Sölvason, Siglufirði.
Ganga, 12 ára stúlkur, 2 km:
Ingibjörg Hreiðarsdóttir, Fljótum.
Ganga, 11 ára drengir, 2 km:
Kristján Sturlaugsson, Siglufirði.
Ganga, 11 ára stúlkur, 1,5 km:
Ester Ingólfsdóttir, Siglufirði.
Ganga, 10 ára drengir, 1,5 km:
Unnar Hermannsson, Isafirði.
Ganga, 10 ára stúlkur, 1 km:
Adda Birna Hjálmsdóttir, Egilsstöðum.
Ganga drengja, 9 ára og yngri, 1 km:
Kristján Hauksson, Ólafsfirði.
Ganga stúlkna, 9 ára og yngri, 1 km:
Hulda Magnúsdóttir, Siglufirði.
Þaö er alltaf glatt á hjalla í Hlíðarfjalli þegar Andrésarandar-leikarnir fara fram. Keppendur skipta hundruð-
um og fjölmargir fullordnir fylgjast vel med gangi mála. Hér má sjá „startið“ hjá yngstu flokkunum.
Sigurvegarinn
í svigi 8 ára:
„Ætla að verða
bestur“
„Nei, ég bjóst nú ekkert frekar
við að vinna, og þó, kannski átti ég
hálfpartinn von á því,“ sagði Þor-
leifur Karlsson, sigurvegari í svigi 8
ára. Þorleifur er frá Akureyri.
Þorleifur sagði þetta þriðja vet-
urinn sem hann æfði á skíðum og
fannst honum Andrésar andar-
leikarnir hafa verið mjög skemmti-
legir. „Það er mjög góður andi hjá
krökkunum. Ég ætla að sjálfsögðu
að halda áfram æfingum í skíða-
íþróttinni og ætla að reyna að verða
bestur.“
snjór hefur ekki verið mikill og ég
hef því ekki getað æft eins mikið og
ég hefði viljað. Þegar svo kom snjór
einbeitti ég mér að sviginu, gat ekki
æft stökkið mikið."
Kristinn sagðist hafa æft í fimm
ár. „Við höfum verið heldur óhress
með það i vetur að hafa engan
þjálfará," sagði Kristinn, en hann á
ekki langt að sækja hæfileikana, er
sonur Björns Þórs Ólafssonar, þess
kunna skíðafrömuðar frá Ólafs-
firði. „Hæfileikarnir eru meðfæddir
en pabbi hefur ekki mikið sagt mér
til.“
Kristinn sagðist hafa átt von á
því að vinna stökkið en ekki svigið.
„Ég vann stökkið einnig í fyrra og
hef oft sigrað á Andrésarleikunum
áður í svigi og stórsvigi." Hann
sagðist ætla að halda æfingum
áfram á fullu og frekar snúa sér að
sviginu í framtíðinni en stökkinu.
„Þetta mót hefur verið alveg
frábært — jahá, ég ætla sko að
halda áfram að æfa og keppa!“,
svaraði hann hálfhneykslaður
spurningu blm. um framtíðina.
Hrannar sagði stöðuna á Húsavík
ágæta og krakkarnir í bænum
hefðu mjög góðan norskan þjálfara.
Þessi ungi og ákveðni skíðamaður
sagði að lokum: „Ég ætla mér að
verða bestur á Islandi í framtíð-
inni.“ Gott fólk, leggið nafnið á
minnið.
Harpa Hauksdóttir
tvöfaldur sigurvegari
í 10 ára flokki:
„Ætla að verða
íslands-
meistari eins
og pabbi“
„Ég var alls ekki örugg um að
vinna, en það tókst og ég er mjög
ánægð með það,“ sagði tvöfaldur
sigurvegari I tíu ára flokki stúlkna,
Harpa Hauksdóttir frá Akureyri.
Harpa hefur verið mjög sigursæl
undanfarin ár, bæði á Andrésar
andar-leikunum sem og öðrum mót-
um. Þess má geta að hún er dóttir
Hauks Jóhannssonar, skíöakappans
góðkunna frá Akureyri.
„Ég hef verið á skíðum síðan ég
var sex ára — og ég ætla að sjálf-
sögðu að halda áfram og stefni að
sigri á næstu Andrésar-leikum."
Harpa sagðist ætla að verða Is-
landsmeistari eins og pabbi.
María Magnúsdóttir,
Akureyri:
Mjög ánægð
með sigurinn
„Ég varð númer tvö i sviginu og
ég er mjög ánægð með að hafa sigr-
að í stórsviginu," sagði María
Magnúsdóttir frá Akureyri, eftir að
hafa sigrað í stórsvigi 11 ára.
„Þetta mót hefur verið mjög
skemmtilegt. Ég hef kynnst mörg-
um skemmtilegum krökkum og ég
verð sko örugglega meðal keppenda
á næstu Andrésar andar-leikum. Þá
ætla ég að reyna að vinna ferð til
Noregs á Andrésar andar-leikana
þar með því að sigra, en ég keppi í
12 ára flokki næsta ár,“ sagði
María. Hún sagðist alveg eins hafa
átt von á því að sigra í stórsviginu,
„þó ég hafi ekki getaö æft eins mik-
ið og ég hefði viljað í vetur".
Sísí Malmquist:
„Stórskemmti-
legt mót“
„Ég bjóst nú ekki frekar við að
vinna, en það tókst og mótið hefur
verið stórskemmtilegt," sagði Sísí
Malmquist, níu ára frá Akureyri,
sem varð tvöfaldur sigurvegari í
sínum flokki, sigraði í svigi og stór-
svigi.
„Þetta er fjórði veturinn sem ég
æfi á skíðum, og í vetur hef ég æft
tvisvar í viku. Auk þess hef ég auð-
vitað farið á skíði allar helgar. Ég
ætla örugglega að vera með á And-
résar-leikunum næsta ár vegna
þess að þetta er svo skemmtiiegt,
maður hittir marga krakka," sagði
Sísí.
Kristján Hauksson:
„Ognaði mér
enginn að
þessu sinni“
„Ég hef keppt á mörgum mótum
og oft unnið,“ sagði Kristján
Hauksson, skíðagöngukappi frá
Ólafsfirði, en hann sigraði í göngu 9
ára. Kristján er sonur hins þekkta
göngumanns Hauks Sigurðssonar.
„Þetta var frekar erfitt. Ég segi
nú ekki að ég hafi átt frekar von á
því að vinna en þó alveg eins. Það
var enginn sem ógnaði mér að þessu
sinni þannig að ég var ekkert
spenntur í göngunni. Pabbi hjálpaði
mér mikið, bar neðan á fyrir mig og
sagði mér til.“
Kristján sagðist ætla að halda
áfram á göngunni á fullu og ekki
snúa sér að neinum öðrum íþrótt-
um. „Þetta er í fjórða sinn sem ég
keppi á Andrésar andar-leikunum
og ég vann líka í mínum flokki í
fyrra. Þetta er alltaf jafn gaman,"
sagði Kristján.
Birgir Karl Ólafsson:
„Mjög ánægð-
ur með minn
árangur“
„Ég er mjög ánægður með minn
árangur, ég varð 7. í stórsvigi og
vann svo svigið,“ sagði Birgir Karl
Ólafsson, níu ára, frá Seyðisfirði.
„Mótið hefur verið mjög
skemmtilegt. Maður kynnist mörg-
um krökkum hér og mikið er gert
fyrir okkur.
Ég fer alltaf á skíði þegar ég
kemst og aðstaðan er ágæt heima á
Seyðisfirði. Ég býst við að koma á
Andrésar-leika og reyni þá auðvit-
að að sigra aftur."
Kristinn Björnsson
frá Ólafsfirði:
„Hæfileikarnir
eru
meðfæddir“
„Þetta hefur verið ágætt mót og
mjög gaman hér,“ sagði Kristinn
Björnsson, 11 ára frá Olafsfirði, en
hann vann stökk og svig í sínum
flokki og varð númer þrjú í stór-
svigi. Fjölhæfur skiðamaður, Krist-
inn.
„Mér finnst svigið skemmtilegast
og æfi það mest en það hefur háð
okkur Ölafsfirðingum í vetur að
Systkini frá ísafirði
á leikunum:
„Grátlegt aö
detta í stór-
sviginu“
Systkinin Arnar, Fanney og Þór-
unn Pálsbörn frá Isafirði kepptu öll
á Andrésar andar-leikunum. Arnar
er 7 ára, Fanney 9 ára og Þórunn 12
ára.
„Það var alveg grátlegt að detta í
stórsviginu í gær,“ sagði Arnar er
Mbl. spjallaði við hann en hann
sigraði í sviginu. „Annars hefur
þetta verið mjög skemmtilegt mót.
Þetta er í fyrsta skipti sem ég keppi
á Andrésar andar-leikunum, en ég
hef samt komið áður til Akureyrar,
með mömmu. Ég á nefnilega afa og
ömmu hér í bænum,“ sagði Arnar.
Fanney varð númer þrjú í svigi.
„Þetta hefur verið ágætt. I gær varð
ég númer tvö í stórsvigi," sagði hún.
„Ég var mjög spennt áður en ég
lagði af stað en það lagaðist eftir að
ég var komin af stað.“ Fanney sagð-
ist hafa keppt fyrst á Aa-leikunum
er hún var sjö ára. Hún vann stór-
svigið í fyrra og varð þá fimmta í
svigi. „En þá datt ég líka í sviginu."
Þórunn varð númer þrjú í stór-
svigi „og í gær varð ég í fimmta
sæti í sviginu þó ég hafi dottið á
leiðinni niður“. Henni fannst hafa
verið „æðislega skemmtilegt". „Ég
hugsa að ég haldi áfram að æfa á
skíðum," sagði hún.