Morgunblaðið - 23.05.1984, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. MAl 1984
55
Vorfundur EFTA:
Aukin samvinna við
EBE efst á dagskrá
Visby, Svíþjóð, 21. maí. Frá blaðamanni Morgunblaðains, Magnúsi Sigurðssyni.
í morgun hófst hér í Visby fundur EFTA, Fríverslunarbandalags Evrópu.
Fundur þessi, sem standa mun í þrjá daga, er mun mikilvægari en ella
sökum þess, að forsætisráðherrar allra aðildarlanda EFTA koma á fund-
inn, en það gerðist síðast 1977. „Við viljum sýna fram á, að EFTA er enn
á lífi og við góða heilsu,“ sagði Olof Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar,
áður en fundurinn hófst.
Skagafjörður:
Helsingjar í þús-
undatali á túnum
ÞANN 11. MAÍ 1983 skrifaði undirritaður í dagbók sína: „Áfram herjar
norðanáttin með um 0°C. Snjókoma er víða á annesjum norðanlands og
austan. Græni liturinn er þó aðeins farinn að sjást ef grannt er skoðað.“
Af íslands hálfu sækja fund-
inn þeir Steingrímur Hermanns-
son forsætisráðherra og Matthí-
as Á. Mathiesen viðskiptaráð-
herra og fulltrúar úr íslensku at-
vinnu- og viðskiptalífi. Alls
sækja fundinn um 200 fulltrúar
frá öllum EFTA-löndunum, sem
ræða munu um viðskiptamál og
framtíð EFTA.
Eitt helsta verkefni fundarins
verður aukin samvinna við Efna-
hagsbandalag Evrópu, EBE, á
sviði viðskipta og verslunar, en
einnig með hvaða hætti EFTA-
löndin geti eflt samvinnu sína
innbyrðis og fríverslun og frjáls-
ari viðskiptahætti í heiminum
yfirleitt. Það eru Svíar, sem átt
hafa frumkvæðið að fundinum
hér í Visby. Á fundi forsætis-
ráðherranna á miðvikudag verð-
ur Olof Palme í forsæti, en fund-
inum í dag og á morgun stjórnar
Mats Hellström, utanríkisversl-
unarráðherra Svíþjóðar. Á
dagskrá svonefndrar ráðgjafar-
nefndar í dag var m.a. rætt um,
hvernig brugðist skuli við vernd-
arráðstöfunum þeim, sem mörg
iðnaðarríki hafa gripið til á und-
anförnum árum til verndar eigin
framleiðslu.
Þá var einnig rætt um efna-
hagsástand þróunarlandanna og
verslunarviðskipti þeirra við
EFTA-löndin.
Á fundi viðskiptaráðherranna,
sem fer fram á morgun, þriðju-
dag, verður þróunin að undan-
förnu á sviði verslunar og við-
skipta efst á dagskrá og viðhorf-
in nú eftir fundinn í Luxemborg
í apríl, sem haldinn var sameig-
inlega af EFTA og EBE.
Gert er ráð fyrir, að fundinum
hér í Visby ljúki með yfirlýsingu
varðandi framtíðarstefnumörk
EFTA.
Ofsóknaræði í
Regnboganum
Regnboginn frumsýndi í gær
bresku kvikmyndina Ofsóknar-
æði, sem gerð er af Tyburn
Films. Handritið gerði Robert B.
Hutton og leikstjóri er Kevin
Francis.
Myndin fjallar í stórum
dráttum um Carrie Masters,
hálffimmtuga bandaríska konu
og samband hennar við son
sinn, David, sem hún eignaðist
með elskhuga sínum utan
hjónabands. Carrie hatar son
sinn, kvelur hann viðstöðulaust
og reynir að gera honum allt til
miska. Þegar hann kvænist, 24
ára að aldri, er hann enn mjög
á valdi móður sinnar og hefur
það mikil og slæm áhrif á
hjónaband hans.
Þann 11. maí 1984 skrifaði und-
irritaður: „Hlýtt, léttskýjað. Tals-
verður gróður er nú kominn og tún
orðin algræn yfir að líta.“
Það er ólíku saman að jafna
vorinu nú og í fyrra. Léttara er
yfir bændum og öll verk verða
leikur einn í slíkri blíðu. Þann 4.
apríl sl. skrifaði undirritaður í
umrædda dagbók: „Mjög gott veð-
ur var í dag og er nú greinilegt að
græn nál er farin að teygja sig upp
úr sverðinum."
Um miðjan apríl kom reyndar
norðan kast með vægu frosti en
miklum snjó. Gróðri varð ekki
meint af því, og um páskana
(22/4) var komið skínandi veður,
sem haldist hefur að mestu, þó
nokkrar frostnætur hafi verið
fyrstu dagana í maí.
Nú horfir mjög vel, eins og til-
vitnun úr dagbókinni 11. maí sl.
lýsir. Margir bændur eru farnir að
sióðadraga og einstaka bóndi hef-
ur hafið áburðardreifingu. Sauð-
burður er nú að komast í hámark
og gengur víðast hvar vel.
Gæsir og þó sérstaklega hels-
ingjar eru hér í þúsundatali, en
eru ekki aufúsugestir á sléttum
bænda, þó því sé ekki að neita að
þessir fuglar eru vorboðar og hafa
visst gildi sem slíkir.
Mikill áhugi er meðal bænda í
Skagafirði á fiskirækt. Gerð hefur
verið arðskrá yfir vatnasvæði
Héraðsvatna og fundir hafa vcrið
haldnir með fiskifræðingum um
áframhaldandi ræktunarstarf og
skynsamlega nýtingu. Reyndar er
árangur ekki nógu góður þar sem
ræktunarstarfið á að hafa skilað
sér, t.d. í Miklavatni, Staðará og
Hofsá. Engu að síður gætir al-
mennrar bjartsýni hjá mönnum,
enda góðar aðstæður með fiskeld-
isstöðina Hólalax hf. í héraði.
Breyttar aðstæður í hefðbundn-
um framleiðslugreinum hafa vík’;-
að sjóndeildarhringinn hjá bænd-
um og nú eru hinir ýmsu mögu-
leikar til aukinnar atvinnu í at-
hugun hjá einstaklingum og sveit-
arfélögum. Ekki mun af veita, ef
nauðsynlegur samdráttur í hefð-
bundnum framleiðslugreinum á
ekki að raska stórlega byggðinni í
dreifbýlinu.
Þórsteinn
Goöar gasvorur
-á einum stað
Það tilkynnist öllum þeim sem hlut eiga að máli, að starfsemi
gasvörufyrirtækisins GASOLfereftirleiðisfram í OLÍS búðinni
við Grensásveg.
Þar bjóðum við vandaðar vörur og veitum viðurkennda
þjónustu þar að lútandi.
og OVAKO
rafsuöuvír og logsuöu-
tæki.
ENO gaseldavélar og gasofnar.
Remolron gasmiðstöðvar.
En Mekmor produkt
08S®1
N gaskæliskápar, gaskælikistur,
_ gaseldavélar, gasluktir og gas-
ferðavörur.
gasvatnshitarar fyrir sumarhús
og ofnkranar.
EUROVELD og 3E rafsuðuvélar.
Gjörið svo vel. Skoðið úrvalið, reynið þjónustuna.
Grensásvegi 5, Sími: 84016/84319