Morgunblaðið - 02.06.1984, Page 12

Morgunblaðið - 02.06.1984, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚNl 1984 Listahátíð í Reykjavík „Að selja myndir er eins og að selja börnin sínu — segir Kristín Eyfells, sem sýnir andlitsmyndir á Kjarvalsstödum Morgunblaðið/KOE Hjónin Kristín og Jóhann Eyfells vinna að uppsetningu einnar myndar Kristínar á Kjarvalsstöðum. „SEGÐU það bara ef þér finnst myndirnar mínar Ijótar. Það gerir ekkert til," sagði listakonan Kristín Halldórsdóttir Eyfells er blm. hitti hana að máli í vikunni á Kjarvals- stöðum. Hún var þá ásamt manni sínum að vinna við að koma mynd- um sínum fyrir á veggjum sýningar- salarins. Úr því Kristín sagði þetta í upp- hafi samtals okkar gat ég ekki á mér setið að spyrja hana hvort það væri algengt að fólk segði myndir hennar vera ljótar. „Já, það gerist stundum, en mér er alveg sama. Eitthvert það mesta hrós sem ég hefi fengið, ég lít í það minnsta þannig á málið,“ sagði Kristín, „var þegar banka- stjóri viðskiptabanka míns í Orlando í Flórída, sem hafði nokkrar mynda minna til sýnis á veggjum bankans, sagðist hafa orðið fyrir því, að vellauðug kona hefði komið inn á skrifstofu til hans og heimtað að hann tæki myndirnar niður hið snarasta. Ella tæki hún allar innistæður úr bankanum. Myndirnar fengu reyndar að hanga uppi áfram og konan hætti ekki við viðskiptin. En hvernig bankastjórinn fór að því að miðla málum veit ég ekki.“ Myndirnar sem Kristín vísar til hér að framan eru geysistórar andlitsmyndir. Sumar þeirra eru af kunnuglegum andlitum, aðrar ekki. „Ég vil ekki kalla þessar myndir portrett. Þetta eru andlit. Fyrir mér eru þetta bara málverk. Annars vil ég helst ekki mála nema fólk, sem ég þekki að ein- hverju leyti. Maður verður að þekkja persónuna til þess að geta málað með tilfinningu." Kristín segist hafa reynt svo gott sem allt í myndlistinni. „Ég er þó fyrst og fremst skúlptúristi," segir hún. „Vatnslitir hafa þó allt- af verið nokkuð, sem ég hef ekki lagt mig niður við. Mér finnst ég ekki hafa neitt vald yfir þeim.“ Andlit Andlit eru uppáhaldsviðfangs- efni Kristínar í málverkinu, en myndirnar verða ekki til alveg átakalaust. „Ég get ekki tekið mig til og málað hvenær sem er. Ég verð að vera fullkomlega í réttu jafnvægi. Fyrir mér verður þetta að vera alveg „spontant". En ég er lengi að vinna og vinn stórt.“ Kristín hefur búið í Flórída ásamt manni sínum, Jóhanni Ey- fells, í meira en 20 ár. Ekkert á heimleið? „Við erum ekki alveg búin að loka fyrir þann möguleika en það verður þó varla fyrr en eft- ir 5—10 ár,“ segir hún. „Þó það sé gott að búa þarna niðurfrá getur maður ekki annað en dáðst að þeim mikla myndlistaráhuga, sem er hér á landi. Almenningur í Flórída sýnir þessu ekki nándar nærri eins mikinn áhuga. Við búum skammt frá Disneyworld og Epcot-miðstöðinni og þangað fer allt fólkið. Fyrir mér skiptir ekki nokkru máli hvort fólk, sem sækir „Vió hjónin vorum búin aó leggja drög aö sýningu hér heima fyrir ein- um 5 eóa 6 árum en einhverra hluta vegna varó ekkert úr því. Ég held aö einhver styrr hafi staöið um stjórn Kjarvalsstaóa á þeim árum og þetta fórst allt saman fyrir," sagði Jóhann Eyfells þegar blm. ræddi viö hann í vikunni og spurói hann hvers vegna verk hans hefðu sést svo sjaldan hér heima. Sextán ár eru nú liðin frá síðustu einkasýningu Jóhanns á ís- landi. Jóhann er fæddur Reykvíkingur árið 1923. Hann stundaði nám í arkitektúr, byggingar- og mynd- list við Kaliforníuháskóla á árun- um 1946 til 1950. Þá stundaði hann nám í keramik við Lista- og hand- íðaskóla Kaliforníu í Oakland 1949. Fimm árum síðar útskrifað- ist hann B. Arch. frá Flórídahá- skóla og tók MFA-gráðu í skúlptúr frá sama skóla 1964. Hann varð prófessor í myndlist við Flórída- háskóla í Orlando, þar sem hann býr nú ásamt Kristínu, konu sinni, sýningar, hafi eitthvað vit á myndlist. Það er þessi áhugi sem heillar mig svo mikið." Ég spurði Kristínu að því í lokin hvernig henni fyndist að sýna á Listahátíð nú í ár. „Ég hef ákaf- lega gaman af því og finnst mikið til um þetta framtak. Það er líka svo gaman að sjá hvað hinir eru að gera. Sumir hafa tekið stórstígum framförum, aðrir ekki. Fyrir 20 árum fannst mér ég sjá geysileg efni í mörgum listamanna okkar. Sumir þessara hafa alveg staðnað með árunum. Hvað mig varðar kom ég ekki hingað til þess að selja þessar myndir. Ég sel sjald- an myndir. Fyrir mér er að selja myndir eins og að selja börnin og hefur kennt við skólann æ síð- an samfara listsköpun sinni. Á sýningunni á Kjarvalsstöðum, sem opnar í dag, er Jóhann með 18 verk, sem hann hefur öll unnið á undanförnum árum. Sagðist hann m.a. hafa vaiið þau með tilliti til þess hvernig þau hentuðu best fyrir flutningana og svo sjálfan sýningarsalinn. Þótt Jóhann hafi ekki sýnt hér heima í langan tíma hefur hann verið á ferð um Evrópu af og til. „Ég sýndi t.d. í Munchen 1972, not- aði þá bíla- og traktorsslöngur og bjó til skúlptúr á staðnum. Eg hef haldið mikið við slöngurnar síðan og m.a. sýnt í Malmö og í Middle- heim í Antwerpen á undanförnum árum. Mér finnst gaman að vinna með slöngurnar og held að það, sem ég er að vinna með þær, sé í samræmi við það sem nú er að gerast í skúlptúrheiminum," sagði Jóhann. Hann sagðist vinna öll sín skúlptúrverk utanhúss við heimili þeirra hjóna í Orlando. „Hitastig- ið skiptir miklu máli við vinnu mína. Ég vinn mikið með málma, sem storkna á skammri stundu. 1 rauninni er þetta allt saman náið samspil á milli hitastigs, veðurs og verksins, sem verið er að vinna. Ég er hræddur um að ég gæti ekki gert siíkt hérna heima," sagði hann er ég spurði hvort kæmi til greina að koma heim á næstu ár- um. Kannski ekki að undra þótt þau hjón vilji ekki flýta sér heim til fslands því þau eru rétt að ljúka við byggingu 600 m2 húss í Orlando, þar sem bæði munu hafa stórar vinnustofur. Skúlptúr en ekki höggmynd Jóhann kýs að kalla verk sín skúlptúr að erlendri fyrirmynd. „Á íslensku heitir þessi mynd höggmyndalist. Orðið höggmynd er hins vegar ákaflega mótandi orð og varla er hægt að nota það nema um þetta ákveðna afbrigði skúlptúrlistar. Skúlptúr er aftur á móti miklu víðfeðmara orð. Ef ég ekki kenndi árið um kring með þessu væri þetta ekki mögu- legt,“ sagði Jóhann er ég spurði hann hvernig gengi að lifa af list- inni vestanhafs. „En ég þekki heldur engan, sem er betri lista- maður fyrir það eitt að geta selt verk sín,“ bætti hann við. „Annars er áhugi á myndlist miklu al- mennari hér heima en t.d. þar sem við búum. Þar hefur hins vegar nýlega orðið sú breyting á, að 1% hyggingarkostnaðar nýrra húsa skal renna til kaupa á listaverki eða verkum, sem síðan eru sett upp í viðkomandi húsi í samráði við arkitekt hússins." Ég lagði þá spurningu fyrir Jó- hann hvaða eiginleikum góður skúlptúristi þyrfti að búa yfir. „Ég tel listamann fyrst og fremst þurfa að búa yfir miklu innsæi. Menn geta verið hámenntaðir í list sinni og verið fróðir um allar hugsanlegar aðferðir en það er innsæið sem gildir." — SSv. sín.“— SSv. „Það er innsæ- ið sem gildir“ — segir Jóhann Eyfells, sem sýnir 18 skúlptúrverk á Kjarvalsstöðum Sýning Linnovaara í Norræna húsinu SÝNING á verkum finnska listmál- arans Juhani Linnovaara, hefst í dag í Norræna húsinu kl. 15. Sendiherra Finnlands á fslandi, Martin ísaks- son, flytur ávarp við opnun sýningar- innar, sem verður opin á meðan Listahátíð stendur. Linnovaara er í fremstu röð finnskra málara og hlaut m.a. við- urkenningar á alþjóðlegu bíennöl- unum í París og Feneyjum á árun- um 1969 og 1970. Linnovaara á að baki langan iistamannaferil. Stendur nú á fimmtugu, en hefur verið i listinni í þrjá áratugi. Ekki verður farið nánar út í kynningu á Linnovaara hér en vís- að til greinar um hann í Lesbók Morgunblaðsins í dag. Þess má þó geta í lokin, að á síðari árum hefur Linnovaara snúið sér að gullsmíði auk málverksins. Verða skartgrip- ir, sem hann hefur hannað fyrir Lapponia, sýndir í skartgripa- verslun Kjartans Ásmundssonar. Dagskrá Lista- hátíðar f dag 14.00 LISTASAFN ÍSLANDS: Opnun á sýningu Karel Appel. Opnun á sýningu Langbróka í Bogasal. 15.00 NORRÆNA HÚSIÐ: Opnun á syningum Juhani Linno- vaara í sýningarsal og Margrétar Reykdal í anddyri. 16.00 KJARVALSSTAÐIR: Opnun á sýningu 10 íslenskra myndlistarmanna búsettra er- lendis. Morselátbragðshópurinn skemmtir. 16.30 LÆKJARTORG: Whoopee-hljómsveit Bob Kerrs lætur i sér heyra. 17.00 NORRÆNA HÚSIÐ: Franski jass-píanósnillingurinn Martial Solal leikur. 17.00 NÝLISTASAFNIÐ: Opnun á sýningu Jóns Gunnars Árnasonar og Magnúsar Pálsson- ar. 20.00 GAMLA BfÓ: „Nár man har kánslor" eftir Mariu Jotuni. Gestaleikur frá Borgarleikhúsinu ( Stokkhólmi. Leikendur: Birgitta tllfsson og Stina Ekbland. Sýning Steinunnar Bjarnadóttur: Stærsta verfeið aðeins í STEINUNN Bjarnadóttir er einn þeirra 10 listamanna, sem sýna á Kjarvalsstöðum næstu vikur. Eins og skýrt hefur verið frá hefst sýn- ingin í dag. Athygli skal vakin á því, að umfangsmesta verk Steinunnar, sem sérhæfir sig í myndbandalist, verður aðeins sýnt í dag, á morgun og á mánudag. 3 daga Um er að ræða verk, sem hún nefnir „The West“ og er það gert fyrir 10 sjónvarpsskerma. Þetta verk Steinunnar hefur þegar ver- ið sýnt á fjórum stöðum innan Bandaríkjanna en auk þess í Pompidou-safninu í París. Önnur verk Steinunnar verða svo sýnd alla daga Listahátíðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.