Morgunblaðið - 02.06.1984, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 1984
13
Verk Karel^Appel í
Listasafni íslands
SÝNING á verkum hins heimskunna
hollcnska málara Karel Appel verður
opnuð í Listasafni íslands kl. 14 í dag.
Á sýningunni eru alls 48 verk, máluð
á hinum ýmsu þróunarskeiðum málar-
ans. Flest eru olíumyndir en einnig er
að linna akrýlmyndir, auk þess sem
hann sýnir grafík.
Appell er fæddur í Amsterdam
árið 1921 og stundaði nám við lista-
akademíuna þar í borg á árunum
1940—’43. Hélt sína fyrstu einka-
sýningu árið 1946 í Groningen.
Tveimur árum síðar stofnaði hann
Reflex-framúrstefnuhópinn í
Amsterdam og gekk það sama ár til
liðs við Cobra-samtökin. Appel hef-
ur hlotið margar viðurkenningar
fyrir verk sín. Hæst ber þó senni-
lega UNESCO-verðlaunin frá 1954
og Guggenheim-verðlaunin 1960.
Hálft annað er liðið frá því fyrst
var farið að kanna möguleika á því
að sýna verk Appel á Listahátið í
ár. Selma Jónsdóttir, forstöðu-
maður Listasafns Islands, hitti
hann m.a. að máli í nóvember 1982
vegna þess og kvað það sérstaka
upplifun að kynnast honum. „Hann
er svo mikill persónuleiki að það
var eins og 200 manns væru saman
komin í herberginu en ekki bara
hann og ég,“ sagði Selma m.a.
Ekki verður farið út í frekari
kynningu á Karel Appel í þessum
pistli enda birti Lesbók Morgun-
blaðsins um hann grein sl. laugar-
dag.
Karel Appcl í vinnustofu sinni. Hann
komst ekki til landsins sökum anna.
Jón Gunnar Árnason krýpur við eitt Magnús Pálsson á meðal nokkurra
verka sinna í Nýlistasafninu. verka sinna. Moruunblaðið/EBB.
Tvöföld sýning
í Nýlistasafninu
SÝNING á verkum Jóns Gunnars
Árnasonar og Magnúsar Pálssonar
verður opnuð í Nýlistasafninu á Vatns-
stíg 3b kl. 14 í dag. Kins og aðrar
myndlistarsýningar, sem opnaðar eru í
Reykjavík í dag og á morgun, er sýn-
ingin í Nýlistasafninu í tengslum við
Listahátíð.
Magnús Pálsson lærði upphaflega
leikmyndagerð og starfaði við hana
allt fram til ársins 1975 auk þess
sem hann sinnti list sinni. Frá árinu
1975 hefur hann einkum verið við
kennslu og frá 1980 við ýmsa lista-
skóla í Hollandi. Sýning Magnúsar
byggist á kennslu hans svo og hóp-
verkefnuin, sem hann hefur unnið
með nemendum sínum.
Jón Gunnar Árnason hélt sína
fyrstu einkasýningu árið 1960. Síðan
hefur hann haldið 13 einkasýningar,
m.a. á Feneyjabíennalnum 1982.
Flest verka Jóns Gunnars eru
höggmyndir, ýmist „monumental"
eðlis eða umhverfisverk. Jón Gunnar
hefur einnig fengist við ýmislegt
annað, en verkin á sýningunni í Ný-
listasafninu eru þau sömu og hann
sýndi 1 Feneyjum fyrir tveimur ár-
um.
Danskynning í
Norræna húsinu
ATHYGLI er vakin á því, að á 12.15. Þetta atriði hefur nú verið
morgun var fyrirhugað að íslenski fært yfir í Norræna húsið og hefst
dansflokkurinn kynnti börnum kl. 13.00.
listdans á Kjarvalsstöðum kl.
sem sterkir, öruggir, gangvissir, ódýrir í innkaupi, meö lítið viðhald og ódýra varahluti
og ekki síst fyrir hátt endursöluverð.
Nú hefur útliti og innréttingum verið breytt svo um munar: mælaborð, stýri, stólar, aftursæti, grill, húdd,
stillanlegir speglar innanfrá, stuðarar o.fl. o.fl., en sífellt er unnið að endurbótum er lúta að öryggi og
endingu bílsins. 6 ára ryðvarnarábyrgð.
Verð við birtingu auglýsingar kr.
215.000
Lán 115.000
Þér greiöiö 100.000
Bifreiðar &
Sifelld þjónusta Landbúnaðarvélar hf.
SUÐURLANDSBRAUT 14, SÍMI 38600
Söludeild sími 312 36
Verðlisti yfir Lada-bifreiöar
fyrir handhafa örorkuleyfa.
Lada 1300 kr. 106.600
Lada 1200station kr. 113.600
Lada 1500 station kr. 124.300
Lada 1500 Safir kr. 118.100
Lada 1600 Canda kr. 128.000
Lada Lux kr. 135.400
Lada Sport kr. 216.600
Bílasýning
í dag frá kl. 1—4
Nýir og notaðir bílar til
sýnis og sölu
Tökum vel með farna Lada upp í nýja