Morgunblaðið - 02.06.1984, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 1984
17
Albert Guömundsson:
Vill geta
valið milli
fangelsis-
vistar og
sektar
„ÞAÐ GETUR alveg komið til
greina að ég fari fram á að sitja inni
í átta daga og þá fer ég kannski
fram á að hafa Lucy hjá mér. Það er
víst ágætur garður fyrir hana þarna
á Skólavörðustígnum," sagði Albert
Guðmundsson fjármálaráðherra í
gær, eftir að hann kom af fundi full-
trúa í Sakadómi þar sem honum var
boðin dómssátt og greiðsla sektar að
upphæð 6.500 kr. vegna hundahalds.
Albert bað um frest til að svara fram
á mánudag og sagðist ætla að nota
þann tíma til að ganga úr skugga
um, hvort honum væri ekki heimilt
að velja á milli greiðslu sektar eða
fangelsisvistar í átta daga.
Albert lýsti fundi sínum með
fulltrúa í Sakadómi þannig: „Ég
spurði hvað annað kæmi til
greina. Fulltrúinn sagði varðhald,
nema lögreglustjóri óski eftir
fjárnámi. Ég óskaði þá eftir þess-
um fresti til að athuga, hvort lög-
reglustjóri hefur heimild til að
breyta varðhaldsdómi, ef sekt er
ekki greidd, í fjárnám. Ég geri
kröfu til þess að lögin verði fram-
kvæmd gagnvart mér eins og öðr-
um. Ég vil fá að velja, hvort ég
borga 6.500 kr. eða sit inni f átta
daga.“
Albert var spurður, hvort hann
hygðist þá sitja inni. Hann svar-
aði: „Ég vil fá að velja og það get-
ur vel svo farið. Mér skilst að þeir
sem hafa neitað að borga hafi ver-
ið settir inn. Ég vil hafa sama
valfrelsi og aðrir, að lögreglustjóri
hafi ekki heimild til að ráðast á
mínar eignir, ef ég vil ekki greiða
dómssekt. Ég tel að lögreglustjóri
hafi einvörðungu framkvæmda-
vald en ekki dómsvald. Fyrir utan
það að ég veit ekki annað en að
það sé búið að breyta reglum um
hundahald í Reykjavík og þá er
ekki verið að dæma eftir neinum
lögum. Það eru engin lög sem
banna hundahald í Reykjavík. Það
eru lög sem heimila borgarstjórn
að setja reglur og nú eru ekki í
gildi neinar reglur sem banna
hundahald."
A
Wterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamióill!
AF SKATTSKYLDUM TEKJUM
AF ATVINNUREKSTRI
-TTL1.JIJIJ
Fyrirtækjum og einstaklingum sem hafa tekjur
af atvinnurekstri er nú heimilt að draga 40Vo frá skatt-
skyldum tekjum til að leggja í fjárfestingarsjóð.
Frádrátturinn er bundinn því skilyrði að helm-
ingur fjárfestingarsjóðstillagsins sé lagður inn á bund-
inn 6 mánaða reikning fyrir 1. júlí n.k. vegna tekna árs-
ins 1983. Ef reikningsárið er annað en almanaksárið
skal lagt inn á reikninginn innan 5 mánaða frá lokum
reikningsárs.
Innstæður á reikningunum eru verðtryggðar
samkvæmt lánskjaravísitölu. Auk þess býður Lands-
bankinn 1,549/0 stigum hærri vexti en gilda um aðra 6
mánaða reikninga. Það er besta ávöxtun, sem boðin er.
Reikningsinnstæðum má ráðstafa að loknum 6
mánaða binditíma, en innan 6 ára.
Enn er hægt að njóta þeirra skattfríðinda sem að
framan er lýst, við álagningu tekjuskatts og eignaskatts
á árinu 1984 vegna tekna ársins 1983. Fresturinn að
þessu sinni er til 1. júlí n.k.
Upplýsingar um stofnun fjárfestingarsjóðsreikninga
eru veittar í sparisjóðsdeildum Landsbankans.
LANDSBANKENN
Græddur er geymdur eyrir
Opk)ídagkl.9-l6
TT h O TT A TTÐ Skeifunni 15
JlAuIVAU 1 Reykjavík