Morgunblaðið - 02.06.1984, Síða 18
or
18
*onr h/r'n o enrr\ */T<T * r»IT A 1 Hl/l A ror/Tinom#
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JUNÍ 1984
Spurningavagn Hagvangs hf.:
Niðurstöður könnun-
ar um fylgi flokkanna
og ríkisstjórnarinnar
— sem fram fór 6.—18. apríl sl.
Hrafnkell Á. Jónsson, einn af
hajarfulltrúum Sjilfstæðisflokks-
ins á Eskifirði gerir athugasemd við
það í viðtali við Þjóðviljann sl.
fimmtudag, að Morgunblaðið hafi
ekki birt niðurstöður í skoðana-
könnun Hagvangs hf. um fylgi
stjórnmálaflokka og ríkisstjórnar. í
viðtali þessu segir bæjarfulltrúinn:
„Eitt af því, sem spurt var um var
afstaða til stjórnmálaflokkanna, en
það hefur vakið athygli nokkurra
þátttakenda í könnuninni, að Morg-
unblaðið hefur til þessa hliðrað sér
hjá því að birta þennan þátt niður-
staðnanna.“
Að þessu gefna tilefni er rétt
að taka fram eftirfarandi: Hag-
vangur hf. efnir til skoðana-
kannana með svonefndum spurn-
ingavagni. Fyrirtækið gefur fjöl-
mörgum aðilum kost á að taka
þátt í þessum spúrningavagni
með því að inna af hendi greiðslu
fyrir hverja spurningu. Morgun-
blaðið keypti birtingarétt á
niðurstöðum úr svörum við þrem-
ur spurningum í síðasta spurn-
ingavagni Hagvangs, en sú skoð-
anakönnun fór fram á tímabilinu
6.— 18. apríl. Þær niðurstöður
hafa þegar verið birtar í Morgun-
blaðinu. Spurningar um fylgi við
stjórnmálaflokka og ríkisstjórn
voru lagðar fram I þessari könn-
un á vegum Hagvangs en ekki
Morgunblaðsins. Hins vegar bauð
fyrirtækið Morgunblaðinu þessar
niðurstöður til birtingar. Hag-
vangur bar þessar spurningar
fram í rannsóknarskyni og til
þess að fá grundvöll til þess að
bera saman fylgi flokka í slíkum
könnunum yfir lengra tfmabil.
Úrvinnsla úr könnun Hagvangs
hf., að því er þessar spurningar
varðar, tafðist vegna vinnu fyrir-
tækisins að könnun um gildismat
íslendinga. Þess vegna var það
sameiginlegt mat forráðamanna
Hagvangs hf. og ritstjóra Morg-
unblaðsins, að of langt væri um
liðið frá því að könnunin var
framkvæmd og þar til niðurstöð-
ur hennar lágu fyrir, sem var
hinn 25. maí sl. og þótti því ekki
ástæða til að birta þær.
Þar sem nú hafa verið gerðar
athugasemdir við þetta og gefið í
skyn, að annarlegar ástæður liggi
að baki þessari ákvörðun hefur
það orðið að samkomulagi milli
Morgunblaðsins og Hagvangs, að
niðurstöður þessar könnunar
verði birtar. Það skal rækilega
tekið fram, að könnunin fór fram
á tímabilinu 6. — 18. apríl og er
því orðinn nær tveggja mánaða
gömul.
Greinargerð frá Hagvangi hf.
Nidurstöður úr
spurningavagninum
Hér á eftir verður gerð grein
fyrir niðurstöðum þriggja spurn-
inga úr spurningavagni fyrirtæk-
isins frá apríl sl.
Eins og komið hefur fram náði
könnunin til alls landsins, og
voru 1.000 þátttakendur á aldrin-
um 18 ára og eldri, valdir af
handahófi úr þjóðskrá af Reikn-
ingsstofnun Háskólans að undan-
gengnu leyfi Hagstofu íslands og
Tölvunefndar.
Spurt var um eftirfarandi:
1. „Ef efnt yrði til alþingiskosn-
inga á næstu dögum, hvaða
stjórnmálaflokki eða samtök-
um er líklegast að þú myndir
greiða atkvæði?"
2. „Styður þú eða styður þú ekki
núverandi ríkisstjórn?"
3. „Hvert telur þú vera helsta
vandamál íslendinga í dag?“
Ef efnt yrði til alþingiskosninga á næstu dögum, hvaða stjórn-
málaflokki eða samtökum er líklegast að þú myndir greiða at-
kvæði?
%
Alþýðubandalag 6,3
Alþýðuflokkur 4,6
Bandalag jafnaðarmanna 2,5
Framsóknarflokkur 11,5
Samtök um kvennalista 6,2
Sjálfstæðisflokkur 35,3
Annað 1,2
Neitar að svara 19,1
Veit ekki 13,3
Önnur
Keykjavík kjördæmi
Alþýðubandalag 6,0 6,6
Alþýðuflokkur 6,0 3,7
Bandaiag jafnaðarmanna 3,1 2,1
Framsóknarflokkur 5,0 15,9
Samtök um kvennalista 8,8 4,6
Sjálfstæðisflokkur 37,3 34,1
Annað 2,2 0,6
Neitar að svara 18,5 19,0
Veit ekki 13,1 13,4
Til samanburðar eru sýnd
raunveruleg kosningaúrslit á síð-
asta ári og svör við spurningunni
um helsta vandamál íslendinga
úr hliðstæðum skoðanakönnun-
um 1983.
Það skal tekið fram, að í niður-
stöðum spurningarinnar, um
fylgi stjórnmálaflokkanna, eru
eingöngu þeir einstaklingar sem
voru á aldrinum 20 ára og eldri
lagðir til grundvallar.
Að öðru leyti er vísað í einstak-
ar töflur, en í þeim eru sýndar
prósentutölur.
Spurningavagninn
aprfl 1984
Könnunartími :
(rtaksstæró
SvarprósenU brúttó
SvarprósenU nettó
Kramkvæmdamáti
BúseU :
6. aprfl—18. aprfl 1984
1000 manns
:86,0%
92^%
í gegnum síma
Allt ísland
Ef einungis eru teknir þeir sem afstöðu tóku, 67,6% þeirra sem
spurðir voru, er niðurstaðan eftirfarandi. Til samanburðar eru
úrslit síðustu þingkosninga.
Nióurst. Úrslit
Alþýðubandalag 9,3 17,3
Alþýðuflokkur 6,8 11,7
Bandalag jafnaðarmanna 3,7 7,3
Framsóknarflokkur 17,1 18,5
Samtök um kvennalista 9,2 5,5
Sjálfstæðisflokkur 52,1 38,7
Annað 1,8 1,0
Ef þingmönnum er skipt á flokka í hlutfalli við atkvæðamagn,
verður niðurstaðan eftirfarandi. Til samanburðar er núverandi
skipting þingmanna á flokka.
Alþýðubandalag NióursL könnunar 6 Núverandi skipting 10
Alþýðuflokkur 4 6
Bandalag jafnaðarmanna 2 4
Framsóknarflokkur 10 14
Samtök um kvennalista 6 3
Sjálfstæðisflokkur 31 23
Annað 1 0
Styður þú eða styður þú ekki
núverandi ríkisstjórn?
%
Styður 69,6
Styður ekki 20,5
Veit ekki 7,9
Neitar að svara 2,0
Karlar Konur
Styður 75,9 63,3
Styður ekki 16,9 24,0
Veit ekki 5,6 10,3 '
Neitar að svara 1,6 2,4
Höfuób.- svæóió l*éttbýli Dreifbýli
Styður 66,7 73,0 73,4
Styður ekki 23,6 17,4 14,7
Veit ekki 8,4 7,5 7,3
Neitar að svara 1,3 2,1 4,6
Hvert telur þú vera helsta vandamál
íslendinga í dag?
Til samanburðar eru helstu niðurstöður úr hliðstæðum
könnunum 1983.
Apr.'S4 Okt/nóv.'83 Apr.83
Efnahagsástandið 19,8 13,6 22,3
Eyða um efni fram 15,9 7,7 8,1
Verðbólga 12,4 29,5 37,2
Kjaraskerðing 7,3
Kröfugerð 6,4
Aflabrestur 6,3
Annað 27,2
Veit ekki 4,7
íslandsmótið l.deild.Islandsmótiö l.deild
ÍBK-
ÞROTTUR
Keflavíkurvelli
laugardaginn 2.júní kl. 14
Suóumesjafólk! maetum og hvetjum okkar liö!
og nuröaverksmiöja
NJARÐVlK, Simi 92-1Ö01 Skrifslofa i Reykjavik lönverk hf, Nóatúrx I7. Simar: 91-25930 og 91-25945
Ferming í
Leirárkirkju
Ferming í Leirírkirkju sunnudag-
inn 3. júní kl. 11. Prestur sr. Jón
Einarsson. Fermdir verða:
Ágúst Fjalar Jónasson,
Beitistöðum.
Einar Sigurdór Sigurðsson,
Neðra-Skarði.
Ólafur Hjörtur Magnússon,
Efra-Skarði.
Ólafur Magnús Helgason,
Eystra-Súlunesi.
Skipaður for-
stjóri Gutenberg
Iðnaðarráðherra hefur skipað
Guðmund Kristjánsson, settan for-
stjóra ríkisprentsmiðjunnar, for-
stjóra Gutenberg frá og með 25. maí
1984, að því er segir í frétU-
tilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu.