Morgunblaðið - 02.06.1984, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 1984
Verzlunarskóli
120 stúdenta
VERZLIJNARSKÓLI íslands brautskráði síðastliðinn fimmtudag 120 stúd-
enta, 45 úr máladeild og 75 úr hagfræðideild. I»etta er fjölmennasti stúdenta-
hópur sem brautskráður hefur verið frá skólanum, en heildartala stúdenta
frá Verslunarskólanum er nú orðin 1764. Tveir stúdentar hlutu ágætisein-
kunn, dúx skólans, María Thejll, í máladeild, með meðaleinkunnina 9,12 og
semidúx skólans, bekkjarsystir hennar, Regína H. Ragnarsdóttir, með með-
aleinkunnina 9,07. Hæstu einkunn í hagfræðideild hlaut Valgerður F. Bald-
ursdóttir, 8,90, sem jafnframt er þriD
inu í ár.
Skólaslitin og brautskráning
stúdenta fór fram í hátíðarsal
Verzlunarskólans. Þorvarður Elí-
asson skólastjóri flutti skólaslita-
ræðu og gerði meðal annars grein
fyrir störfum skólanefndar á síð-
astliðnum vetri, en viðfangsefni
hennar tengdust að miklu leyti
nýju skólabyggingunni við Ofan-
leiti, þar sem stefnt er að því að
hefja kennslu haustið 1986. Þá kom
fram í ræðu Þorvarðar að nú
brautskráir skólinn í fyrsta sinn
stúdenta, sem hlotið hafa menntun
hæsta meðaleinkunn a studentsprof-
í tölvufræðum í fjóra vetur. Enn-
fremur gerði Þorvarður að umtals-
efni þær breytingar sem orðið hafa
á stúdentsmenntun á undanförnum
árum og nauðsyn þess að stúdentar
væru opnir fyrir nýjum menntun-
armöguleikum, sem væru í takt við
atvinnu- og tækniþróun þjóðfélags-
ins. Það væri liðin tíð að stúd-
entspróf væri forréttindi fárra út-
valinna, sem gætu gengið að örugg-
um embættum að loknu háskóla-
námi.
Eftir að nemendur höfðu tekið
íslands brautskráir
Hvítu kollarnir settir upp.
við stúdentsprófsskírteinum sín-
um, ávarpaði Eggert Hauksson
stjórnarmaður í Verzlunarráði ís-
lands nýstúdenta og afhenti verð-
laun fyrir bestan árangur í við-
skiptagreinum. Síðan afhenti
skólastjóri viðurkenningar fyrir
góðan árangur í einstökum náms-
greinum, meðal annars verðlaun úr
minningarsjóði dr. Jóns Gíslason-
ar, sem veitt eru fyrir bestan
árangur í erlendum tungumálum.
Ennfremur færði skólastjóri sex
efstu nemendum á stúdentsprófi
sérstök bókaverðlaun frá skólan-
um.
Að lokinni verðlaunaafhendingu
tók Jón D. Jónsson nýkjörinn for-
seti nemendafélags skólans til máls
og veitti fráfarandi stjórn nem-
endafélagsins og nokkrum nemend-
um öðrum, viðurkenningar fyrir fé-
lagsstörf. Þá flutti Ragnar Tóm-
asson ávarp fyrir hönd útskrifaðra
Gaman í munnlcga frönskuprófinu
— segir María Thell dúx Verzlunarskólans á stúdentsprófi
María Thejll var dúx Verzlunar-
skóla íslands á stúdentsprófi 1984,
en hún hlaut 9,12 í meðaleinkunn.
María fékk fjöldann allan af viður-
kenningum og verðlaunum fyrir
framúrskarandi árangur í námi og er
blaðamaður Morgunbiaðsins hitti
hana að máli, að lokinni útskrift,
hafði hún fangið svo fullt af bókum,
sem hún hafði fengið í verðlaun, að
varla sást í andlit hennar. Hún var
reiðubúin að leggja bækurnar til
hliðar í nokkrar mínútur, setjast
niður og svara nokkrum spurningum
blaðamanns.
Fyrsta spurningin hlýtur að vera:
Hvernig nær maður svo góðum
námsárangri?
„Ég læri alltaf að nóttu til. Ég
verð að viðurkenna að ég lærði ekk-
ert sérstaklega vel heima fyrir tím-
ana. Ég á mjög auðvelt með að læra
og það virtist nægja mér að lesa
undir próf og fylgjast með í tímum.
Ég las alltaf undir skyndipróf og
fylgdist þokkalega með því sem
kennararnir sögðu í tímunum.
Þrátt fyrir að ég hafi ekki lesið
heima, skilaði ég öllum verkefnum
sem ætlast var til að ég skilaði. Það
er svo undarlegt að mér finnst lang-
best að lesa að nóttu til og ég get
helst ekki farið í próf eftir að hafa
sofið alla nóttina, mér finnst ég
verða að vera nýbúin að lesa náms-
efnið áður en ég tek próf í því.
Hverjar voru uppáhaldsnáms-
greinarnar í Verzlunarskólanum?
„Franska, stærðfræði og leikfimi,
en mér fannst þýskan mjög leiðin-
leg-“
Var eitthvert sérstakt próf sem
þú tókst, sem þér fannst skemmti-
legra en önnur?
„Já. Mér fannst virkilega gaman
að taka munnlega prófið í frönsku.
Kennarinn minn var ákaflega þægi-
legur í prófinu og mér fannst ég
kunna vel það sem ég átti að kunna.
Ætli manni finnist ekki alltaf
skemmtilegast að gera það sem
gengur vel hjá manni ..."
Ætlarðu í framhaldsnám næsta
vetur?
„Nei. Ég er orðin svo þreytt á
námi , að ég get ekki hugsað mér
það. Mér finnst ég hreinlega ekki
tilbúin til að setjast strax aftur á
skólabekk. Ég ætla að taka mér fri í
eitt ár og vinna, því ég er líka orðin
mjög leið á því að eiga aldrei pen-
ing. Ég á von á því að námsleiðinn
verði að mestu leyti horfinn úr mér
eftir þetta árshlé frá skólabókunum
María Thejll að lokinni brautskrán-
ingu síðastliðinn fimmtudag.
Ljósin. Mbl. JúIíun.
Afmælíshappdrætti
Sjálfstæðisflokksins
26 glæsilegir ferðavinningar
að verðmæti um 1.000.000 kr.
Dregið 9. júní
Vinsamlega gerið skil á heimsendum miðum
í Reykjavík er afgreiðsla happdrættisins í Valhöll Háaleitisbraut 1
Sími 82900 opið 8.00 - 22.00
Sækjum — Sendum Sjálfstæðisflokkurinn
TOYOTA
Akstur
bifreiðar
krefst
athygli