Morgunblaðið - 02.06.1984, Síða 22

Morgunblaðið - 02.06.1984, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 1984 „Við höfum rek- ist á borgarís — komið straxu Utanríkisráðherrar ríkja Atlantshafsbandalagsins á blaðamannafundi með Ronald Reagan Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu á fimmtudag. F.v. Hans Dietrich Genscher, Claude Cheysson, Svenn Stray, Leo Tindemans, George Shultz, Jaime Gama, Caspar Weinberger, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, loannis Haralambopoulos, Sir Geoffrey Howe, Allan MacEachen, Geir Hallgímsson og Joseph Luns, fráfarandi framkvæmdastjóri bandalagsins. Utanríkisráðherrar NATO: Vopn bandalagsins ekki notuð að fyrra bragði Maðurinn sem tók við þessu skeyti frá Titanic er látinn Noflingham, 1. júní. AP. HAROLD Cottam, loftskeytamaður- inn, sem fyrstur fékk fréttirnar af því, að Titanic væri að sökkva, 14. aprfl árið 1912, er látinn, 93 ára að aldri. Cottam var loftskeytamaður á breska farþegaskipinu Carpathia sem var í um 93 km fjarlægð frá Titanic þegar það sökk á Norður- Atiantshafi eftir að hafa rekist á borgarísjaka í jómfrúrferðinni. Með skipinu voru 2.224 manns og fórust 1.513. Að því er Cottam sagði sjálfur aetlaði hann að fara að leggja sig örlaganóttina fyrir 72 árum og skilja við tækin eftirlitslaus eins og venjan var á þessum tíma, þeg- ar hann heyrði kall frá Þorsk- höfða (Cape Cod) í Bandaríkjun- um þar sem Titanic var varað við borgarís á siglingaleiðinni. Napoleon Duarte sór embættiseið Jose Napoleon Duarte forseti El Salvador. San Salvador, 1. júní, AF. JOSE Napoleon Duarte sór í dag embættiseið sem forseti El Salvador við hátíðlega athöfn í höfuðborg landsins. Fulltrúar 42 erlendra ríkja voru viðstaddir, þ.á m. George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna. í kosningunum 6. maí si. hlaut Duarte 53,6% atkvæða og er fyrsti borgaralegi kjörni forseti í E1 Salvador frá 1931. Hann var áður kjörinn forseti árið 1972, en her- stjórnin í landinu ógilti kosn- ingarnar og rak Duarte í útlegð. Cottam var kunningi loftskeyta- mannsins á Titanic og kallaði hann upp og spurði hvort hann hefði heyrt upplýsingarnar frá Þorskhöfða. Svarið sem hann fékk, var þetta: „Við höfum rekist á borgarís — komið strax.“ Cottam hljóp þá upp í brú en yfirmennirnir, sem þar voru staddir, vildu ekki taka mark á honum. Loftskeytin voru enn á barnsskónum á þessum árum og margir sæfarendur höfðu litla trú á þeim. Cottam fór þá niður til skipstjórans, sem Rostron hét, og vakti hann og var skipstjórinn ekki seinn á sér að láta þreyta stefnu skipsins og sigla á fullri ferð í átt til Titanic. Carpathia var fyrsta skipið á vettvang en þá var Titanic sokkið. Áhöfninni tókst þó að bjarga mörgu fólki af björgunarbátum og úr sjónum og sigldi síðan til New York. Narconi, Ítalínn, sem fann upp loftskeytin, var í New York þegar Titanic sökk, og hann hafði sam- band við Cottam á Carpathiu áður en skipið kom í höfn og bauð hon- um svo til sín þegar í !and var komið. Cottam hélt áfram starfi sínu sem loftskeytamaður og hann var á einu fyrstu skipanna, sem fóru um Panamaskurð. Hann lætur eft- ir sig son og tvær dætur. ÞRIGGJA daga fundi utanríkis- ráðherra ríkja Atlantshafsbanda- lagsins lauk í Washington í gær með samþykkt yfirlýsingar þar sem varn- arstefna bandalagsins var áréttuð og lýst yfir vilja til viðræðna við Sov- étmenn um vígbúnaðarmál. 1 yfirlýsingunni sagði að Atl- antshafsbandalaginu væri fyrst og fremst ætlað varnarhlutverk og þau vopn sem bandalagið hefði yf- ir að ráða yrðu ekki notuð nema til að svara árás. Utanríkisráðherrarnir bentu á hina miklu hervæðingu Sovétríkj- anna og sögðu að hún ógnaði öryggi Vesturlanda. Samt væru þeir sannfærðir um að á nokkrum sviðum hefðu ríki austurs og vest- urs sameiginlegra hagsmuna að gæta, þá m. að tryggja frið, efla trúnað og finna leiðir til að bregð- ast við óvæntum pólitískum við- burðum. Sir Geoffrey Howe, utanríkis- ráðherra Bretlands, sagði á fundi sem ráðherrarnir héldu með blaðamönnum, að mjög líklegt væri að Sovétmenn héldu að sér höndum og tækju ekki þátt f nein- um afvopnunarviðræðum við Vesturveldin fyrr en að afstöðnum forsetakosningum í Bandaríkjun- um, sem verða í nóvember. 6 síkhar féllu í Punjab Amriksar, I. júní. AF. SEX síkhar létu lífið og 14 aðrir særðust í skotbardaga í og við must- eri síkha í Punjab-fylki á Indlandi í dag. Herskáir síkhar höfðu búið um sig í byggingunni og gert sér víghreiður með sandpokum. Þeir neituðu . að hlýða fyrirmælum lögreglu og hófu þess í stað ákafa skothríð. Musterið, sem er um 400 km fyrir norðaustan höfuðstað Punjab-fylkis, er helsta trúarhús síkha og jafnframt höfuðstöðvar í baráttu þeirra fyrir auknum trú- arlegum og pólitískum réttindum. Átök við kolanámumenn Til átaka kom í dag milli lögreglu og kolanámumanna við verksmiðju sem framleiðir koks í Orgreave á Englandi. Um 3.500 námamenn reyndu að hindra flutninga á koksi frá verksmiðjunni og þegar lögregla reyndi að halda aftur af þeim kom til átaka. Margir slösuðust og nokkrir námamenn voru handteknir. Andstaða vex í Wall Street við stefnu Reagans forseta ÓVISSAN innan bandaríska banka- kcrfisins hefur haft sín áhrif ekki bara á Wall Street heldur einnig á vonir Reagans forseta um að ná cndurkjöri. Það eru fyrst og fremst háir vextir og stórfelldur halli á fjár- lögum Bandarfkjanna, sem valda þessari óvissu en einnig orðrómur um yfirvofandi gjaldþrot stórra bandarískra banka, sem komizt hef- ur á kreik hvað eftir annað að und- anförnu. Þá hafa átökin á Persaflóa ekki orðið til þess að draga úr óviss- unni. Ekki eru nema fáeinir mánuðir síðan allar horfur virtust vera á því, að sigurvagn Reagans rynni óstöðvandi í mark í forsetakosn- ingunum í nóvember nk. Allra sízt datt nokkrum manni í hug, að efnahagslífið, er sýnt hefur veru- leg batamerki að undanförnu, ætti eftir að spilla fyrir endurkjöri for- setans. Nú hafa aðstæður hins vegar breytzt verulega. Það var frídagur (Bank holiday) fyrra mánudag í Bandaríkjunum og Bretlandi og það ríkti því kyrrð og þögn í bankahverfinu í Manhattan í New blaðsins Washington Post eru það York, þar sem annars ríkir ys og þys. En undir yfirborðinu sauð og gerjaði. Unnið var að því „á fullu" að bjarga Continental Ulinois í Chicago, einum af stærstu bönk- um Bandaríkjanna, frá hruni. Það tókst að útvega 7,5 millj- arða dollara lán til bráðabirgða, sem bjargaði bankanum út úr kröggunum að sinni. En þegar til lengdar lætur er talið víst, að að- eins samruni bankans við annan enn þá öflugri geti orðið honum til bjargar. Samkvæmt frásögn aðeins tveir bankar, sem sýnt hafa verulegan áhuga á slíkum sam- runa. Það eru Citicorp í New York Frá stórbankanum Continental III- inois í Chicago. Veruleg Óvissa ríkir um framtíð bankans. og First National Bank í Chicago. En andstaðan við Reagan for- seta vex nú hröðum skrefum í Wall Street. Ástæðurnar eru margar. Þar má nefna hækkun forvaxta í 12,5 %, tregðu fjárfest- ingaraðila við að kaupa bandarísk ríkisskuldabréf og óvissuna innan bankakerfisins að undanförnu. Allt hefur þetta leitt til mikillar gagnrýni á fjármálastefnu ríkis- stjórnarinnar. Richard Wirthlin, einn þeirra, sem starfa að kosningaundirbún- ingi Reagans og haft hefur skoð- anakannanirnar að sérsviði, sagði eftir síðustu vaxtahækkun: „Bandaríkjamenn viðurkenna enn vilja Reagans forseta til þess að efla efnahagslífið. En ef vextir halda enn áfram að hækka, þá kann það einmitt að varpa miklum skugga á efnahagslífið." Tilraunir Donald Regans, fjár- málaráðherra, og annarra til þess að skella skuldinni af vaxtahækk- ununum á seðlabanka Bandaríkj- anna eru skoðaðar sem merki um verulegar áhyggjur á meðal nán- ustu samstarfsmanna Reagans

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.