Morgunblaðið - 02.06.1984, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚNl 1984
23
Helsti sérfræðingur Bandaríkjanna í olíumálum:
Olían lækkar
fram til 1986
— en hækkar óð-
fluga eftir það
Washington, 1. júní. AP.
ÞRÁTT FYRIR Persaflóastyrjöldina
og hótanir íraka og írana um að
koma í veg fyrir siglingar olíuskipa
horfa olíukauparíkin fram á gott ár,
það besta síðan arabaríkin hrintu af
stað olíukreppunni fyrir áratug. Það
er helsti sérfræðingur Bandaríkja-
stjórnar í olíumálum, J. Erich Ev-
ered, sem er svona bjartsýnn.
J. Erich Evered er yfirmaður
stofnunar, sem aflar og miðlar
upplýsingum um orkumál, og birt-
ir árlega skýrslu um framboð, eft-
irspurn og líklegar verðbreytingar
á olíunni. Evered segir, að olíuverð
muni lækka á þessu ári hvað sem
Persaflóastríðinu líði og telur
hann, að það muni verða komið
niður i 26 dollara árið 1986 (þegar
ekki er tekið tillit til verðbólgu) og
hugsanlega niður í 22 dollara.
Eftir þann tíma telur Evered, að
olíuverð muni aftur fara að hækka
meira en verðbólgan og að um
1995 muni olíuverðið komið á 50
dollara fatið.
„Verðsprengingin á áttunda
áratugnum olli þvi, að markaðir
fyrir olíuna drógust saman og
olíuleit og ný framleiðsla jókst,“
segir í skýrslunni. „Þess vegna er
eftirspurnin eftir olíu nú allveru-
lega minni en framleiðslugetan."
Ný nafnskilti
í spönskum stíl
Einstök prýði fyrir einbýlishúsið,
raðhúsið, sumarbústaðinn.
Bandaríkin:
Hagvöxturinn
í aprfl minni
Wa.shington, l.júní.
HAGVÖXTUR jókst í Bandaríkjun-
um um 0,5% í aprflmánuði sl. og
hefur hann þá aukist stöðugt um all-
langt skeið nema í marsmánuði sl.
en þá minnkaði hann um 0,1 %, ekki
um 1,1 % eins og fyrr hafði verið tal-
ið.
Hagvöxtur hafði aukist um 19
mánaða skeið þegar hann minnk-
aði í mars sl. og töldu þá sumir
hagspekingar, að aftur stefndi í
samdrátt í efnahagslífinu. í fyrstu
var talið, að hagvöxturinn hefði
minnkað um 1,1% en nú er ljóst að
hann minnkaði aðeins um 0,1%.
Hagvöxturinn í apríl bendir líka
til, að áfram muni miða í rétta átt.
Hagfræðingar segja nú augljóst
hvað olli samdrættinum í mars en
það var tíðarfarið, sem var ákaf-
lega erfitt víða í Bandaríkjunum.
Meginástæðan fyrir hagvexti í
apríl var hins vegar sú, að vinnu-
vika bandarískra verkamanna var
þá 41,2 stundir að jafnaði en var
40,6 stundir í mars. Aðrir þættir
eru aukinn fjöldi nýrra fyrir-
tækja, fleiri byggingarleyfi fyrir
íbúðarhúsnæði og aukið peninga-
framboð.
Nicaragua:
Skæruliðar saka stjórn-
ina um tilræðið við Pastora
San Jose, ('osta Rica, l.júní. AP.
SKÆRULIÐAR í Nicaragua halda
því fram að herstjórnin í landinu
beri ábyrgð á sprengingu í höfuð-
stöðvum þeirra f La Penca skammt
frá landamærum Costa Rica á mið-
vikudag, sem leiddi til þess að leið-
togi skæruliða, Eden Pastora, slas-
forseta út af fjármála- og efna-
hagsstefnu stjórnarinnar.
Bandarískir stjórnmálafrétta-
ritarar hafa til þessa verið býsna
sannfærðir um, að Reagan forseti
ætti eftir að verða endurkjörinn.
En efnahagsvandamál þau, sem
nú eru komin fram í dagsljósið,
hafa orðið til þess, að miklu fleiri
en áður eru farnir að efast um
auðveldan og fyrirhafnarlítinn
sigur Reagans. Þannig kemst
fréttaritarinn Vermont Royster
að orði nýverið, en hann hlaut
Pulitzer-verðlaunin í ár: „Það hef-
ur ekki hið sama mikla aðdráttar-
afl og áður að vera forseti. Það
nægði Johnson forseta ekki til
þess að bjóða sig fram aftur, það
nægði ekki til þess að bjarga Ger-
ald Ford og ekki heldur Jimmy
Carter."
(Heimildir: Tempus, Financial
Times o. fl.)
aðist alvarlega, fjórir létu lífió og 27
særðust.
Sprengjan sprakk þegar Past-
ora var að halda blaðamannafund.
Hann hlaut m.a. alvarleg bruna-
sár en er ekki í lífshættu. Pastora,
sem er 48 ára að aldri, var einn
helsti leiðtogi í byltingu Sandin-
ista í Nicaragua árið 1978 og
stjórnaði m.a. árásinni á þinghús-
ið í Managua 22. ágúst það ár.
Hann sleit síðan samstarfinu við
byltingarmenn og sakaði þá um að
hafa svikið byltinguna og komið á
ógnarstjórn í landinu. Jafnframt
fordæmdi hann náið samstarf
þeirra við Sovétmenn og Kúbu-
menn.
Talsmaður stjórnarinnar í
Managua hefur vísað ásökunum
skæruliða á bug og segir að
sprengjuárásin sé runnin undan
rifjum annars skæruliðahóps, sem
einnig reynir að steypa stjórn Nic-
aragua.
Luis Alberto Vargas, forseti
Costa Rica, sem nú er staddur í
heimsókn á Spáni, hefur fyrirskip-
að að Pastora skuli handtekinn, en
hann er nú á sjúkrahúsi í San
Jose, höfuðborg landsins, og þegar
gert hefur verið að sárum hans
skuli honum vísað úr landi. Hann
verður þó ekki framseldur til Nic-
aragua.
SKILTIÐ Sf,
sími 91—76713.
Útsölustaðir: Verzlunin Brynja, Laugavegi 29, s. 24320.
Húsið, byggingavöruverslun, Skeifunni 4, s. 86210.
SÝNING
d:
í DAG, kl. 10-17, AÐ ÁRMÚLA 38
TÖLVUR og HUGBÚNADUR fyrir FYRIR17EKI
Fyrirtækjapakki:
Launabókhald
Tollkerfi
Sölunótur
Birgðabókhald
Skuldabókhald
Viðskiptamannabókhald
Fjárhagsbókhald
Lotus T2-3
Visi On....
Proof Writer
Bonnie Blue
Multi Mate
Multi Plan
VolksWriter
•
Ófl., ofl.
MICROTOLVAN
SÍÐUMÚLA 8
ÖRTOLVU
TÆKNI hf.
Armúla 38