Morgunblaðið - 02.06.1984, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JtJNÍ 1984
35
Akureyri:
Ný bflasala og
önnur flytur í
nýtt húsnæði
Akureyri, 2K. maí.
Akureyringar ættu ekki að vera í
vandræðum með að selja og kaupa
bíla á næstunni. Á laugardaginn sl.
opnaði ný bílasala, sem Bílasalan hf.
opnaði við Kaldbaksgötu, auk þess
sem Bílasalinn sf. flutti sama dag í
nýtt og glæsilegt húsnæði við Hvanna-
velli.
Bílasalan hf. hefur fram til þessa
ekki rekið sjálfstæða bílasölu, held-
ur aðeins verið með verkstæði og
selt þaðan nýja bíla, en fyrirtækið
hefur haft umboð fyrir Ford og
Suzuki. Seint á sl. ári tók fyrirtækið
síðan einnig við umboði fyrir
Mazda, Hino og Yamaha og um leið
keypti fyrirtækið húsnæði það, þar
sem nú hefur verið opnuð bílasala
fyrir nýja og notaða bíla. Mun þar
m.a. verða boðið upp á bíla, sem
verkstæði fyrirtækisins lætur
fylgja með sex mánaða ábyrgð og er
það nýnæmi á Akureyri að slíkt sé
boðið. Sölumaður hinnar nýju bíla-
sölu verður Kári Agnarsson og hús-
næði sölunnar er um 300 fermetrar.
Bilasalinn sf. flutti sama dag
starfsemi sína í nýtt húsnæði við
Glerárgötu, gengið inn frá Hvanna-
völlum. Þar fær salan til umráða
um 500 fermetra innisal, auk úti-
stæða. Bílasalinn sf. er um þessar
mundir 15 ára og af því tilefni var
við opnunina boðið upp á afmælis-
tertu, sem var um tveir fermetrar.
Eigendur Bílasalans sf. eru feðg-
arnir Gunnar Haraldsson og Har-
aldur Gunnarsson, en auk þeirra
munu starfa við fyrirtækið Ragnar
Haraldsson og Einar Stefánsson.
Byggingamaður-
inn — Nýtt rit um
málefni bygg-
ingaiðnaðarins
Fyrsta tölublað Byggingamannsins,
nýs tímarits um byggingaiðnaðinn á
íslandi, er komið út. Ritið er 104 blað-
síður að stærð, og flytur fjölbreytilegt
efni um málefni byggingaiðnaðarins,
svo sem um útboð verklegra fram-
kvæmda, byggingarannsóknir, trygg-
ingamál, félagsmál byggingamanna,
þróun fasteignamarkaðarins, lánamál
húsbyggjenda, framleiðslu eininga-
húsa, íslenska ofnaframleiðsu,
skrifstofuhúsgögn á markaði hérlend-
is, nýjungar í orkusparnaði og margt
fleira. Stuttar fréttir eru úr ýmsum
áttum, sagt er frá sumarleyfismögu-
leikum í sumar, fjallað um heppilega
bfla fyrir byggingamenn og þá sem
eru að byggja og fleira mætti nefna.
Útgefandi Byggingamannsins er
útgáfufélagið Fjölnir hf. sem meðal
annars gefur út tímaritið Bóndann.
Samkomulag hefur tekist um það
milli Fjölnis hf. annars vegar og
Sambands byggingamanna og
Meistarasambands byggingamanna
hins vegar, að ritinu verði dreift
endurgjaldslaust til félaga sam-
bandanna tveggja, sem eru um fjög-
ur þúsund talsins. Auk þess er
Byggingamaðurinn seldur í áskrift
til einstaklinga, félaga, fyrirtækja
og stofnana, og ritið er selt í blað-
sölum og byggingavöruverslunum
víða um land. Upplag fyrsta tölu-
blaðs er sex þúsund eintök, og er
Byggingamaðurinn þar með, þegar í
upphafi, eitt útbreiddasta íslenska
tímaritið, en þorri íslenskra sérrita
og tímarita er gefinn út í minna en
þrjú þúsund eintökum. Bygginga-
maðurinn er aðili að upplagseftir-
liti Sambands fslenskra auglýs-
ingastofa og Verslunarráðs íslands.
Áformað er að Byggingamaður-
inn komi út annan hvern mánuð í
framtíðinni. Ritið er sem fyrr segir
104 blaðsíður að stærð, unnið í
prentsmiðjunni Odda hf. Ritstjóri
Byggingamannsins er Anders Han-
sen og aulýsingastjóri er Jón Alex-
andersson.
Eigendur og framkvæmdastjóri Bflasölunnar hf. í hinnu nýja húsnæði. Svan-
laugur Ólafsson, Árni Björnsson, framkvæmdastjóri, og Ingi Þór Jóhanns-
Eigendur og sölumenn Bflasalans sf. Haraldur Gunnarsson, Gunnar Har
aldsson, Ragnar Gunnarsson og Einar Stefánsson.
son.
im ttN H.F.
SKÓGARHLÍÐ 10 • SÍMI 2 07 20
Opnum upp a gatt
í tilefni 30 ára afmælis ÍSARN HF,
SGANIA umboðsins á fslandi. verður SGANIAbílasýning
laugardaginn 2. og sunnudaginn 3. júní kl. 10“-1700
að Skógarhlíð 10 Reykjavík.
Viö sýnum fvrsta
A
A
bílinn sem ÍSARN HF flutti
inn fvrir 30 árum.
Það nýjasta sem er að
gerast í vörubílum, steypu-
bílum, flutningabílum,
olíubílum og gámabílum.
Nýjustu rútur, sem gera
ferðalagið mun þægilegra.
(FréttatilkynninR.)