Morgunblaðið - 02.06.1984, Side 37

Morgunblaðið - 02.06.1984, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 1984 37 Eggert Waage - Minningarorð Fæddur 19. aprfl 1950 Dáinn 23. maí 1984 Nú ríkir sorg í Skálholtsvík. Það er ekki í fyrsta skipti. Áður hefur fólkið þar mátt sjá af ungu efni- legu fólki, eins og kunnugir þekkja til. Eggert Waage, yngsti bóndinn í Skálholtsvík, er látinn. Þetta hef- ur verið harmsaga síðan hann veiktist af hinum banvæna sjúk- dómi. Eggert fæddist á Litla Kroppi í Borgarfirði, sonur hjónanna Sveinbjargar og Guðmundar Waage, sem látinn er fyrir nokkr- um árum. Einn bróður átti Egg- ert, Viðar, lögregluþjón í Búðar- dal. Þann 10. nóvember 1973 kvænt- ist Eggert Þorgerði Sigurjónsdótt- ur (Daddý) og eignuðust þau þrjú born: Sigfríði, 11 ára, Guðmund, 8 ára, og Sigrúnu, 4 ára. Þau hófu búskap á bernsku- heimili Daddýjar í Skálholtsvík og hafa búið þar síðan. Fyrst bjuggu þau í húsi með foreldrum Daddýj- ar, þeim Sigfríði Jónsdóttur og Sigurjóni Ingólfssyni. Síðar reistu þau sér glæsilegt hús, sem þau hafa verið að fullklára. Það hefur reynt mikið á hina ungu eiginkonu þennan tíma. Allir hafa dáðst að dugnaði hennar. Að- stæður hennar hafa ekki alltaf verið auðveldar síðustu mánuðina. Að eiga börn og bú norður í Hrútafirði og helsjúkan mann á sjúkrahúsi í Reykjavík og síðar á Hvammstanga. Daddý hefur ekki staðið ein í þessum erfiðleikum. Fjölskyldur og vinir hafa sýnt slíkan stuðning að ómetanlegt er. Vegna skyldleika og vináttu höfum við átt því láni að fagna að vera í nánum tengslum við fólkið í Skálholtsvík. Sumarið hefur ekki mátt líða án þess að farin væri ein ferð eða fleiri norður. Margs er að minnast síðan Eggert settist að í Skálholtsvík og hefur hann átt sinn þátt í því að allar þessar ferð- ir hafa verið okkur ánægjulegar. Við höfum mætt slíkri vináttu og gestrisni að ómetanlegt er. Við höfum fylgst með þessum ungu hjónum byggja upp búskap sinn, þau hafa verið einstaklega dugleg og samhent. Fyrir utan að vinna að bústörfum vann Eggert hjá Vegagerðinni, sem hefur ábyggi- lega oft verið erfið vinna og mikið álag. Við minnumst Eggerts sem glaðværs manns. Hann var alltaf brosmildur og einlæglega blíður. Við dáðumst oft að því hversu rólegur hann var í veikindum sín- um. Vonin hjá honum var svo sterk. Hann óskaði þess heitt að komast heim um jólin og síðar um páskana. Honum tókst það. Daddý og öll fjölskyldan hjálpuðust að til að svo mætti vera. Ég man hversu innilega hann þráði að komast heim til konunnar og barnanna. Skálholtsvík hefur verið heimili dóttur okkar sl. átta sumur. Hún hefur því unnið mikið með Egg- erti. Vafalaust hefur hann kennt henni margt sem hún mun búa að alla ævi. Fyrir það viljum við nú þakka. Henni þótti verulega vænt um hann. í svo litlu sveitarfélagi sem Bæjarhreppur er, fer ekki hjá því að svona áfall komi verulega við íbúana þar. Enda fylgdust allir með veikindum hans, og þegar fólkið þaðan átti leið til Reykja- víkur til að sinna erindum sínum gaf það sér tíma til þess að heim- sækja hann. Fyrir það og allar aðrar heim- sóknir var hann innilega þakklát- ur. Þessu helstríði er lokið. Eggert hefur fengið hvíldina. Við skiljum ekki tilganginn. Sem betur fer höfum við það mikla aðlögunar- hæfileika að sumt sem okkur finnst óyfirstíganlegt komumst við yfir. Farinn er góður drengur. Samúð mína votta ég Sveinborgu móður hans sem hefur mátt sjá af syni sínum svo ungum, Viðari bróður hans og fjölskyldu, Önnu, Guðjóni og börnum að Smáragili. Tengda- foreldrum hans, Siggu og Sigur- jóni, sem hafa verið honum svo náin. Elsku Daddý. Mína dýpstu sam- úð til þín og barnanna. Megi góður guð vera með ykkur og styrkja. I’álína Sigurbergsdóttir Eigendur verzlunarinnar Hænko, frá hægri Valgeir VíAisson, Víðir Valgeirs- son, Kristín Birna Guðlaugsdóttir og Eðvarð Marx. Moreunblaðið/ KÖE. Ný verzlun með öryggisfatnað fyrir vélhjóiamenn HÆNCO hf. heitir ný verzlun í Suð- urgötu 3a og eru eigendur fjórir; Víð- ir Valgeirsson, Valgeir Víðisson, Eð- varð Marx og Kristín Birna Guð- laugsdóttir. Verzlunin sérhæfir sig í verzlun með öryggisfatnað fyrir vélhjólafólk og snjósleða og hefur á boðstólum leðurfatnað, taufatnað, skó, hjálma og margt ileira. Fyrirtækið býður gæðavörur frá Hein Gericke — einu þekktasta fyrirtæki heims á þessu sviði. „Hein Gericke er leiðandi fyrir- tæki í framleiðslu öryggisfatnaðar fyrir vélhjólamenn. Raunar er það svo víða erlendis, að vélhjólamenn eru skyldaðir til þess að klæðast sérstökum öryggisfatnaði. Þá höf- um við í huga að flytja inn og verzla með vélhjól og varahluti," sagði Víðir Valgeirsson, einn eig- enda fyrirtækisins í samtali við Mbl. Tómas Ásgeirs- son — Minning Fimmtudaginn 24. maí sl. var borinn til hinstu hvíldar mágur minn og vinur, Tómas Ásgeirsson. Tómas fæddist á ísafirði 26. október 1929, foreldrar hans voru Theódóra Einhildur Tómasdóttir og Ásgeir Árnason, vélstjóri, sem lengst starfaði á skipum Sam- bandsins og var því oft á tíðum fjarri heimili sínu. Þrátt fyrir það naut Tómas handleiðslu þeirra beggja. Er foreldrar hans fluttu til Ak- ureyrar 1942 var Tómas 13 ára gamall. Fór hann þar í mennta- skóla en hætti námi 17 ára og fór á sjó með föður sínum. Síðar fór Tómas í Loftskeytaskólann og lauk prófi þaðan en nýtti sér ekki það nám. Fór hann síðan í mat- reiðslunám og lauk prófi 1960. Hann starfaði víða hér heima á hótelum og skipum, þar til hann fór utan og starfaði í Danmörku, á Cristans Perla og skipum sem sigldu til Þýskalands. Kom hann heim um tíma, þar til hann 1967 fluttist til Bandaríkjanna og starfaði um 10 ára skeið í San Fransisco og fjögur á Hawaiieyj- um. Hafði hann komið heim til ís- lands af og til en stoppaði jafnan stutt í einu. Þar til að hann kom heim fyrir rúmu ári, þá farinn að heilsu. Hann bjó hjá okkur hjón- um um átta mánaða skeið en flutti svo til Guðrúnar Vigfúsdóttur að Bjargarstíg 2, Reykjavík. Reyndist hún honum sem besta móðir. Á hún guðs blessun og innilegar þakkir okkar ættingja og vina. Annar maður reyndist Tómasi sem sannur frændi og vinur, er það Theódór Árnason verkfræð- ingur og á hann okkar bestu þakk- ir. Tómas var elstur- fimm systk- ina, systur hans eru Erna Ás- geirsdóttir, sem býr í Reykjavík, Kolbrún Ásgeirsdóttir, sem lést 1971, Svanhildur Ásgeirsdóttir, sem býr í Kópavogi, og Ásgerður Ásgeirsdóttir, sem býr í Reykja- vík. Tómas var mikill tungumála- maður og las sígildar bækur og hlustaði á sígilda tónlist. Leiklist var hans uppáhald; um tíma lagði hann stund á leiklist og kynntist þar mörgum sínum bestu vinum þó svo að hann ílengdist ekki á þeirri braut. Barngóður var hann og sannur vinur vina sinna og ævinlega samkvæmur sjálfum sér ef rætt var um menn eða málefni. Nú að leiðarlokum, er Tómas hverfur til hins eilífa austurs, sem bíður okkar allra, bið ég algóðan guð að blessa minningu um góðan dreng og þakka honum samfylgd- ina hér í heimi. Sendi ég ættingj- um mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Sæmundur Pálsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.