Morgunblaðið - 02.06.1984, Síða 39
MORGUNBLAfMB, LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 1984
39
fclk f
fréttum
George Best fær reisu-
passann enn einu sinni
+ George Best er í heldur döpru skapi um þessar mundir
og er ástæöan sú, aö sambýliskona hans síðustu tvö árin,
leikkonan Mary Stavin, sem er sænsk aö þjóöerni, hefur
gefið honum reisupassann.
Best, sem á sínum tíma lét áfengiö binda enda á glæsi-
legan feril sinn i knattspyrnunni, hefur oft farið í afvötnun
og þaö var í slíkri meöferö sem hann hitti fyrirsætuna
Angie. Þau giftust og áttu saman soninn Calum, sem nú er
þriggja ára gamall. Þegar fariö var að halla undan færi fyrir
Best á heimavígstöövunum fluttist Best með fjölskylduna
til Bandaríkjanna þar sem hann geröi þaö nokkuö gott um
stundarsakir en áfengiö náöi þó í skottið á honum aftur og
þar meö var Bandaríkjadvölin búin og hjónabandiö líka.
Þegar heim var komiö kynntist Best Mary Stavin og fór
að búa meö henni. Mary er mikil áhugamanneskja um
heilsusamlegt líf og hún var ákveöin í að gera betri mann
úr George Best. Þau geröu sínar eigin, sérstöku líkamsæf-
ingar og hönnuöu meira aö segja leikfimifötin sjálf, sem
þau hafa síöan framleitt og selt meö góöum árangri. Mary,
sem hafði fariö með nokkur smáhlutverk í ýmsum mynd-
um, t.d. James Bond-myndinni „Octopussy", vildi hins
vegar halda því fram en Best vildi, að hún væri bara heima
með honum í leikfiminni.
Fyrir skömmu fór Mary til Bandaríkjanna þar sem hún
hefur hlutverk í tveimur myndum og í síöustu viku fór Best
á eftir henni vestur. Hann mátti þó snúa heim með það
sama því að Mary kvaöst vera búin að fá nóg.
George Best meö Mary Stavin meðan allt lók
í lyndi.
Andrés Ond og
röddin“ hans
99
+ Eins og greint hefur veriö frá á
Andrés Önd fimmtíu ára afmæli
um þessar mundir en hann kom
fyrst fram á sjónarsviöiö í mynd-
inni „Litla, kæna hænan“. Þaö
var þó ekki aöeins, aö Andrés
Önd slægi strax í gegn, því aö
þaö geröi líka röddin hans, þetta
hása hvæs, sem fylgt hefur hon-
um alla tíö. Maðurinn á bak viö
röddina í þessa hálfu öld heitir
Clarence Nash.
Clarence Nash var einu sinni
ungi, skemmtilegi maöurinn í
fjölskyldunni sinni og var óþreyt-
andi viö að skemmta fólki meö
alls kyns uppátækjum og undar-
legum hljóöum, sem hann gat
látið frá sér fara. Nash haföi sjálf-
ur hugsaö sér aö gerast lögfræö-
ingur en skemmtanalífiö hreif
hann til sín og fyrr en varöi sat
hann uppi meö Andrés Önd.
Nash segist þó ekki sjá eftir þvi
og aldrei segist hann hafa orðið
þreyttur á aö „kvaka“ sig gegn-
um mynd meö Andrósi Önd.
Andrés Önd og „röddin" hans,
Clarence Nash, hafa staöiö
saman í blíöu og stríöu í hálfa
öld.
COSPER
Mamma, ég er búinn að kenna Hvutta að opna ísskápinn.
Diana sjúk í
tyggígúmmí
+ Karólína prinsessa af Mónakó
er ekki eina prinsessan, sem er
ófrisk, þannig er þaö líka meö
Diönu, prinsessu af Wales, eins
og kunnugt er. Diana viröist hins
vegar ekki eiga í sömu erfiðleik-
um og Karólína en eitt er þaö þó,
sem valdið hefur nokkurri
óánægju, einkum tengdamóöur
hennar, Elísabetar, og það er, aö
Diana tyggur tyggigúmmí daginn
út og daginn inn.
Diana tekur ekki einu sinni út
úr sér tyggigúmmíið þegar hún
talar viö drottninguna svo aö þaö
er ekki aö furöa þótt Elísabet sé
óánægö. Eöa hvaö er hægt aö
hugsa sér óviröulegra en enska
prinsessu með munninn fullan af
tyggigúmmíi?
ST0R4R
SUÐR€NAR
POTTk
PLONTUR
EINNIG FALLEGIR KERAMIKPOTTAR
ORGARBLOMiÐ
SKiPMOLTl 35
SÍMh 32213