Morgunblaðið - 02.06.1984, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 1984
45
rTTTi
fe j í 11 \
t\k\ 5 t.
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
^ TIL FÖSTUDAGS
Það er varla
það sjáist
í bert hné
E.S. hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja.
Ég vil koma á framfæri athuga-
semd við greinina „Þurfum sífellt
að hlusta á bítla og popp“ sem
birtist í Velvakanda á miðvikudag.
Þessar tíu mínútur sem eru á milli
fréttaflutnings á táknmáli og
frétta er ekki sá vettvangur sem
ákjósanlegastur er til að miðla ís-
lenskri tungu. Og að tala um garg
og væl eru bara fordómar gagn-
vart þeirri tónlist sem vinsæl er í
dag og unga fólkið hlustar á.
Varðandi þá skoðun að sjón-
varpið sýni klámmyndir er það að
segja að það er varla að það sjáist
bert hné nema þá helst í íþrótta-
þættinum hjá Bjarna Felixsyni og
verður hann seint sakaður um að
sýna klámmyndir.
Klappi þeir er
klappa vilja
Ö.F. hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja:
Mig langar að segja nokkur orð
þeim mönnum til huggunar sem
telja að lófaklapp skemmi fyrir
þeim ánægjuiegar tónleikastund-
ir. Að klappa mönnum lof í lófa er
bæði andleg og líkamleg tjáning
sm fylgt hefur manneskjunni.
Ég vil nota tækifærið og þakka
Mótettukór Hallgrímskirkju fyrir
stórgóðan flutning á „Jesu meine
Freude" eftir Bach. Þetta er stór-
kostleg mótetta sem samin er guði
til dýrðar og mönnum til upplyft-
ingar. '
Það er ekki hægt að lýsa með
orðum hvað þetta verk hefur mikil
áhrif á hið guðdómlega eðli sem
býr innra með oss og fær loks út-
rás í dynjandi lófaklappi sem sýn-
ir þakklæti og ánægju hlutenda.
Ég get ekki skilið annað en að
slíkt lófaklapp sé mikill stuðning-
ur fyrir kóra og aðra sem eyða
mikilli vinnu í að undirbúa tón-
leika. Þess má geta til gamans að
sjálfur Franz Liszt klappaði
manna mest á þeim tónleikum
sem honum líkaði.
er komiö á blaösölustaöi
• Meöal efnis: Gylfi pústmann í öllu sínu veldi —
■ • Þýski herinn — Hrakfallabálkar úti á sjó —
■
■
Keppnisalmanak 1984 o.fl.
Áskriftar- og auglýsingasími 687120.
Nú er ástæða til að endurnýja
baðblöndunartækið og fá
hitastillt^Tkz/g/m/ í staðinn
= HEÐINN =
SELJAVEGl 2, SlMI 24260
úrvals gólfteppi á hagkvœmari hátt
fyrir heimili.fyriríæki og stofnanir
Slysablettir eða staðbundið slit, svo sem við
innganginn, skrifborðið eða sjónvarpssófann, eru
ekki lengur vandamál.
Heuga teppaflísarnar flyturðu bara til innbyrðis,
dreifir þannig álaginu og margfaldar endinguna.
Og þú getur tekið upp einstaka flís, þvegið, skolað
og þurrkað, nú eða þá endurnýjað, sé þess þörf.
Heuga teppaflísarnar eru nefnilega lagðar lausar,
án undirlags, án nagla, án líms, án gólfskemmda.
Hefurðu reynt að ná af álímdum teppum?
Samt skríða þær hvorki né gúlpa, og níðsterkur
botninn er eld-, hita- og hljóðeinangrandi, þykkur og
mjúkur undir fót.
Leikur að leggja.eina flís í einuog húsgögnin færð
eftir hendinni.
Álagðar geta Heuga teppaflísarnar litið út sem heil
teppi, en einnig má leika sér með mynstur og liti.
Gerðir við allra hæfi, allt frá úrvali heimilisteppa í
tískulitum til teppa sem uppfylla sérkröfur atvinnu-
lifsins um afrafmögnun, slitþol og auðveld þrif.
Firmamerki fást jafnvel áþrykkt.
kyrmtu þérkosti
heuga teppaflísanna
ivevslun okkar
/FOnix
FONIX SF.- HÁTÚNI 6A - SÍMI (91)24420 - REYKJAViK
i
i
x
Verd kr. 3.855
Rafmagns'Steikarpannan
frá KENWOOD
naudsynleg í hverju eldhúsi k
RArTÆKJADEILD