Morgunblaðið - 15.06.1984, Blaðsíða 6
38
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ1984
FERÐALOG
í Henry Ford-safninu er stærsta og merki-
legasta bílasafn veraldar. Hór mó sjó hluta af
Því.
liggja vegir
til allra átta
Hin stórglæsilega bygg-
ing Renaissance Center í
Detroit. Hæsti hluti henn-
ar er 74 hæóir.
Flugleiðir hófu fyrir skömmu að fljúga
til nýs viökomustaðar í Bandaríkjun-
um, Detroit í Michigan. Nú er áætlun-
arflug til fjögurra staða í Bandaríkjun-
um, New York, Chicago, Baltimore
og Detroit, 18 ferðir alls á viku. Til að
byrja með er aðeins ein ferð vikulega
til Detroit og hefur bókast vel í ferð-
___irnar. Flugleiðir hyggjast bæta við
fleiri stöðum á næstunni og sótt hef-
jjr verið um lendingarleyfi f Orlando í
Flórída frá og með næsta hausti.
Allmörgum gestum var boöiö
í fyrstu feröina til Detroit og
var Matthías Bjarnason sam-
gönguráöherra heiöursgestur.
Fjölmargir blaöamenn frá ýmsum
Evrópulöndum voru í förinni og frá
Morgunblaðinu var undirritaöur.
Feröin var vel skipulögö af hálfu
Flugleiða og feröamálayfirvalda í
Michigan, sem greinilega leggja
mikið kapp á aö kynna Michigan
sem ríki þess viröi, aö þaö sé
heimsótt af ferðamönnum.
Paradís bíla-
áhugamanna
Fyrir áhugamenn um bíla hlýtur
Detroit að teljast paradís. Þar er
aö finna miöstöö bílaiðnaðarins i
Bandaríkjunum. General Motors,
Ford Motors, American Motors,
Chrysler og bandarísku Volkswag-
en-verksmiöjurnar hafa höfuö-
stöövar sínar í Detroit og efna-
hagslif Michigan stendur og fellur
meö gengi bílaiönaöarins, enda
langstærsti atvinnuveitandinn.
Þegar kreppan var sem mest í
bílaiðnaöinum var efnahags-
ástandið herfilegt i ríkinu en nú um
stundir a.m.k. stendur bílaiönaöur-
inn vel að vígi enda blómstrar
Michigan. Það var sama hvern
maöur hitti i feröinni, allir voru af-
skaplega stoltir af Michigan og
bjartsýnir á framtíö ríkisins. „Þaö
er hvergi betra aö búa í öllum
Bandarikjunum,“ var viökvæöiö
hjá mörgum Michigan-búum, og
minntu þeir aö þessu leytinu á Ak-
ureyringa. Þegar fylgst er meö um-
feröinni í Detroit leynir þaö sér
ekki aö bílar eru þar framleiddir,
maöur sér varla annaö en stóra
ameríska „kagga“ eins og þaö
heitir á íslensku töffaramáli.
í Dearborn, útborg Detroit, er
stærsta og merkasta bílasafn ver-
aldar, enda bílakóngurinn Henry
Ford stofnandi þess. Þar er aö
finna 200 sögufræga bíla frá öllum
tímum. Ekki eru tök á aö telja upp
alla dýröina en nefna má að í safn-
inu eru einkabílar Henry Fords,
Pierpont Morgans, Elisabetar
drottningar, Roosevelts forseta og
Lincoln-bifreiöin, sem Kennedy
forseti var í 22. nóvember 1963 í
Dallas, Texas, þegar hann var
skotinn til bana.
í Dearborn fæddist Henry Ford
og þar bjó hann til sína fyrstu bíla.
En Henry Ford safnaði fleiru en bíl-
um, segja má aö hann hafi safnaö
öllu milli himins og jaröar. i Dear-
born hefur veriö komiö fyrir grip-
um þeim er hann safnaöi, verkfær-
um alls konar, gufuvélum, flugvél-
um o.fl. o.ffl. En merkast er lítiö
þorp, sem sett hefur veriö upp í
Dearborn og heitir Greenfield Vill-
age. Þar hafa verið sett upp fræg
hús svo sem fyrsta bílaverksmiðja
Fords, rannsóknarstofur Edisons,
fæöingarstaöir frægra manna og
margt fleira. Þaö er vægast sagt
mjög sérkennileg reynsla aö vera
Ýmsar fígúrur eru í skemmtigaröinum Auto World, sem opnaður verö
ur ó næstunni í borginni Flint.
Samgönguráðherra, forstjóri Flugleióa, framkvæmdastjórar ósamt frúm og óhöfn fyrstu Flugleiöaþotunnar
ó Detroit-flugvelli í mói sl.
staddur í húsinu, þar sem fyrsti bill
Fords varö til eöa í rannsóknar-
stofunni, þar sem Edison fann upp
Ijósaperuna.
Ford og Edison voru báöir
fæddir í Michigan og þeir voru
miklir vinir. Enda skýröi Ford safn
sitt í höfuðiö á Edison og nefndi
þaö Edison-stofnunin, en þaö
gengur líka undir nafninu Safn
Henry Fords. Safniö er svo merki-
legt og þar er svo margt að sjá aö
ekki veitir af 2—3 dögum til aö
skoöa þaö.
Detroit irel í
sveit sett
Detroit er stærsta borg Michig-
an og sjötta stærsta borg Banda-
ríkjanna með rúmlega fjórar millj-
ónir íbúa séu allar útborgir taldar
meö. Þaðan er tiltölulega stutt til
margra helstu borga Bandaríkj-
anna. 60% byggöar í Bandaríkjun-
um er innan viö einnar stundar flug
frá Detroit. Borgin er þvi tilvalin
fyrir þá, sem ætla aö fara til borg-
ar, sem Flugleiöir fljúga ekki beint
til. Aöeins Detroit-áin skilur að
Detroit og borgina Windsor í
Kanada, svo þaö er mjög hentugt
fyrir þá islendinga, sem ætla til ís-
lendingabyggðanna í Kanada aö
fara til Detroit. Þaö er hægt að
fljúga eöa aka til Kanada.
Detroit er vinaleg borg og þrátt
fyrir aö hún sé sjötta stærsta borg
Bandaríkjanna hefur maöur ekki á
tilfinningunni aö hún sé yfirþyrm-
andi stór. í borginni sjálfri er afar
margt fyrir feröamenn aö sjá, t.d.
einhverja stórbrotnustu byggingu,
sem undirritaöur hefur augum litiö
og nefnist Renaissance Center.
Hún stendur í miöborginni og er
hæsti hluti hennar 74 hæöir. j
byggingunni er allt sem nöfnum
tjáir aö nefna, 1.400 herbergja
hótel, veitingasalir, verslanir, ráö-
stefnusalir o.s.frv. Segja má aö
byggingin sé heill heimur út af fyrir
sig. Ymislegt er gert til aö laöa aö
feröamenn, má þar nefna glæsi-