Morgunblaðið - 15.06.1984, Page 26
62
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 1984
;;þíi hepur brot'ib besta. blómapottiw mnr\\"
Ást er ...
... að vera páskaung-
inn hans
TM Rea. U.S. Pat. Off.—all rlghts reserved
•1984 Los Angeles Times Syndlcate
biðja um örina
Afsakið. Má ég
mína aftur?
HÖGNI HREKKVÍSI
£&s!K
„ J-ejA, k (Zakkap- ... rRi/vu'NÚTot?
iJHSli
" pei/M EK AP FARA FRAM ."
Þessir hringdu . . .
Hverjir eru
grátkór
„Suðurnesja“?
Örn Erlingsson, útgerðarmaður
á Suðurnesjum, hringdi og hafði
eftirfarandi að segja:
Ég vildi gjarnan spyrja Ingva
Hrafn Jónsson, fréttamann, að
því hvað hann á við með „Grát-
kór Suðurnesja".
í umræðuþættinum sem var í
sjónvarpinu á þriðjudagskvöldið
og hann stýrði komst hann svo
að orði að grátkór Suðurnesja
væri fluttur austur og nú vil ég
fá skýlaus svör við því við hverja
hann á og hvar á Suðurnesjum
þessi grátkór hefur haldið sig.
Tvær spurn-
ingar til
dómsmála-
ráðherra
Áhugamaður um dómsmál hringdi
og hafði eftirfarandi að segja:
Mig langar að beina nokkrum
spurningum til dómsmálaráð-
herra. Fyrsta spurningin er
hvers vegna hann ræddi ekkert
um dómsmálin í eldhúsdagsum-
ræðunum sem fram fóru fyrir
nokkrum vikum? Seinni spurn-
ingin er sú hvort ekki sé hægt að
fá hann í umræðuþátt í útvarpið
til að ræða um dómsmálin, en á
þeim vettvangi finnst mér allt
vera í niðurníðslu.
Velvakandi leitaði svara við
þessum spurningum hjá Jóni
Helgasyni, dósmálaráðherra.
Sagði hann að landbúnaðarmál-
in hefðu verið mjög í brennidepli
um það leyti sem eldhúsdags-
umræðurnar fóru fram og hefði
Ingvi Hrafn Jónsson
hann því kosið að fjalla um þau
mál en ekki dómsmálin og þar
sem hverjum ræðumanni hefði
ekki gefist langur tími til ráð-
stafana hefði ekki verið hægt að
taka báða málaflokkana fyrir.
Varðandi seinni spurninguna
svaraði dómsmálaráðherra því
til að hann væri ávallt reiðubú-
inn að ræða dómsmálin en hvort
færi gæfist á að koma fram í
útvarpsþætti um þau mál ætti
eftir að koma í ljós.
Sýnið „Lengst-
ur dagur“
Anton Erlendsson hringdi og
hafði eftirfarandi að segja:
Mig langar að beina einni
spurningu til sjónvarpsins. Er
ekki hægt að sýna myndina
„Lengstur dagur" (Longest Day)
sem gerð var eftir bók Cornelius
Ryans fyrir u.þ.b. tuttugu árum.
Þetta er mjög merkileg mynd
sem fjallar um innrásina á
Normandí og léku í henni margir
frægir leikarar. Það væri nú
fengur að því að fá þessa mynd
sýnda. Ég hef reynt að fá hana
leigða á myndbandaleigum borg-
arinnar en hún hefur hvergi
fengist.
Velvakandi spurði Ellert Sig-
urbjörnsson, dagskrárstjóra
sjónvarpsins, hvort mögulegt
væri að þessi mynd yrði sýnd
bráðlega í sjónvarpinu. Ellert
sagði að ekki væri á dagskrá á
næstunni að sýna þessa mynd
Jón Helgason, dómsmálaráðherra.
þar sem sjónvarpið hefði ekki
gert neinar ráðstafanir til þess
að verða sér úti um hana. Sagði
hann að sjálfsagt væri að taka
ósk þessa til greina. Sjónvarpinu
bærust oft óskir um að fá ákveðn-
myndir til sýningar og þá væri
oft falast eftir þeim myndum
fremur en öðrum.
Heilög Sesselja
lítur ekki út
eins og Gilitrutt
Aðdáandi Heilagrar Sesselju
hringdi og hafði eftirfarandi að
segja:
Eg hefi undanfarið verið að
reka augun í plaköt af Heilagri
Sesselju og auðvitað hef ég ekki
heldur komist hjá því að sjá
stóra mynd af dýrlingnum
hanga utan á Útvegsbankanum
við Lækjartorg. Ég vildi gjarnan
koma því á framfæri að þetta er
dýrlingur í rómversk-kaþólsku
kirkjunni og verndardýrlingur
tónlistarinnar og sérílagi kirkju-
tónlistarinnar.
Ég er fæddur á Sesseljumessu
og er Heilög Sesselja því í miklu
uppáhaldi hjá mér og þykir mér
vænt um þennan dýrling. Því
fellur mér það illa að þurfa að
horfa á dýrlinginn teiknaðan
eins og Gilitrutt á hlaupum um
Austurstræti. Nú langar mig að
spyrja hvort ekki sé til betri
mynd af dýrlingnum en þetta og
ef svo er, hvort ekki væri hægt
að fá að sjá þá mynd.
Myodin sem hangir utan á (Jtvegsbankanum Mynd >f líkneski sem gert liefur verið af
við Lækjartorg. Heilagri Sesselju.