Morgunblaðið - 01.07.1984, Qupperneq 2
2
MORGUNBLADID, SUNNUDAGUR 1. JÚLÍ 1984
Fjórðungsmótið á Fomustekkum:
Stóðhestarnir
óhemju góðir
— segir Þorkell Bjarnason, ráðunautur
KornuHtekkum, frá blaðamanni MorgunblaÓHÍns Valdemar Krutinssyni 30. júní.
,,STÚI)11ENTARNIR, sem bér eru sýndir eru óhemjugóðir og hafa þeir
aldrei verið jafngóóir á Austurlandi, svo ég viti til,“ voru orð Þorkels
Bjarnasonar, hrossaræktarráðunauts, er blaðamaður Mbl. innti hann eftir
því hvernig kynbótahrossin hefðu komið honum fyrir sjónir á fimmtudag og
fostudag. Hrossin verða sýnd og kynnt síðdegis í dag og ríkir nokkur
eftirvænting meðal mótsgesta hvernig útkoman á þeim verður.
„Meðal kynbótahrossanna eru Völlum á mótsstað á vörubifreið,
úrvals toppar, en eðlilega ekki að fólksbíl! ók í veg fyrir hana með
hægt að búast við mörgum góðum
hrossum hér, einfaldlega af þeirri
ástæðu, að hross eru frekar fá hér í
fjórðungnum. Nokkur hross fara í
fyrstu verðlaun, ég gæti trúað að
það væri svona hátt í tug. Einnig er
útlit fyrir að eitthvað af afkvæma-
hrossunum hljóti fyrstu verðlaun,“
sagði Þorkell ennfremur.
Það óhapp átti sér stað skömmu
fyrir mótið þegar verið var að
flytja hross frá Ketilsstöðum á
Vegabréfs-
áritun til
Indlands
MORGUNBLAÐINl! hefur borizt eft-
irfarandi frá utanrfkisráðuneytinu:
„Indversk stjórnvöld hafa tilkynnt
að frá og með 24. júní sl. og þar til
annað verður ákveðið, verði íslenskir
ríkisborgarar að afla sér vegabréfs-
áritunar til Indlands og ákvæöi
samningsins milli Indlands og ís-
lands frá 1974 um gagnkvæmt af-
nám vegabréfsáritana hafi verið
fellt úr gildi um óákveðin tíma í
samræmi við ákvæði samningsins."
þeim afleiðingum að vörubifreiðin
lenti út í vegkanti og valt. 11 hross
voru á bílnum og sluppu þau öll
ómeidd, en billinn er hins vegar
ónýtur að því er talið er. Hrossin,
sem á bílnum voru, eru keppnis-
hross í eigu fjölskyldunnar á Ket-
ilsstöðum og eru þau hér í keppni
bæði meðal kynbótahrossa og eins i
gæðingakeppninni.
Mótsstörf hafa gengið vel fram
til þessa, veður verið mjög gott og
hefur farið vel um mótsgesti, sem
eru reyndar allt of fáir.
Dansleikur var haldinn á móts-
stað í gærkvöldi og var töluverð
ölvun að sögn lögreglunnar, en allt
fór þó friðsamlega fram.
Á morgun, sunnudag, hefst
dagskrá klukkan 10 með hópreið
austfirskra hestamanna, þá verður
helgistund og ávörp flutt. Um
klukkan 11 verða úrslit í ungl-
ingakeppni kynnt og verðlaun af-
hent.
Sitthvoru megin við hádegið
verða kynbótahross sýnd og dóm-
um lýst, stóðhestar fyrir hádegið
og hryssur eftir hádegið. 15.30
hefst svo sýning ræktunarbúa og
úrslit í gæðingakeppni hefjast um
fjögurleytið. Kappreiðar verða svo
síðasta atriðið á þessu fjórðungs-
móti.
Nanna Hermannsson
til starfa í Svíþjóð
NANNA Hermannsson, sem gegnt hef-
ur stöðu safnvarðar Árbæjarsafns und-
anfarin 10 ár, hefur nú verið ráðin
safnvörður við Byggðarsafn Söder-
manslands í Svíþjóð að sögn sænska
blaðsins Södermanlands Nyheter.
Þar segir einnig að Södermanland
sé byggðarlag um 100 kílómetra suð-
ur af Stokkhólmi og tilheyra því 7
bæjarfélög með samtals um 250.000
íbúa.
Safnið sjálft er í svokölluðu Ny-
köping-húsi í Nyköping, en því til-
heyrir einnig höll frá 14. öld, þar
sem geymt er mikið safn af alls kyns
hlutum.
14 manns sóttu um stöðuna, en al-
ger eining ríkti um ráðningu Nönnu.
Ljósm. Mbl. Sigurgeir.
Gullvœgur samtakamáttur
Hér er ekkert sem gildir nema „gullvægur samtakamáttur" ef eitthvað á að komast áfram. Þessi mynd
var tekin á skátamóti sem haldið er í Vestmannaeyjum en þar voru samankomnir um 600 skátar
víðsvegar að af landinu við leik og störf.
Sambandið býður útflutning sláturhrossa:
30 % hærra verð en
í heilum skrokkum
Nanna Hermannsson
BÚVÖRUDEILD Sambandsins get-
ur nú boðið upp á sölu sláturhrossa
til Danmerkur. Mun með þeim hætti
fást um 30% hærra verð yfirreiknað
á kíló kjöts, en þegar flutt er út
hrossakjöt í heilum skrokkum. Er
þetta í fyrsta sinn í áratugi, sem
skipulagður sláturhrossaútflutning-
ur er fyrirhugaður. Þessi verðmunur
skilar sér ekki til bænda, en dregur
verulega úr útflutningsbótum, sem
við venjulegan útflutning hafa num-
ið allt að 50% af söluverði.
Jóhann Steinsson, deildarstjóri
í búvörudeild Sambandsins, sagði
í samtali við Morgunblaðið, að
deildin hefði að beiðni nokkurra
sláturleyfishafa kannað mögu-
leika á útflutningi á lifandi hross-
um til slátrunar erlendis með
fyrrgreindum árangri. Orsök þess-
arar beiðni hefði verið sú, að illa
hefði gengið að finna viðunandi
markað fyrir hrossakjöt síðan
Norðmenn smáminnkuðu kaup sín
á frystu hrossakjöti, en þeir hefðu
ekkert keypt á þessu ári. Lítið eitt
hefði verið flutt út af kældu
hrossakjöti á vegum búvörudeild-
arinnar til Danmerkur og Frakk-
lands, en engan veginn nægjanlegt
magn til að mæta útflutningsþörf-
inni.
Framkvæmd þessa útflutnings
væri hugsuð þannig, að kaupandi
sækti hrossin á tvær islenzkar
hafnir á viðurkenndu gripaflutn-
ingaskipi, sem tæki 200 til 300
hross í hverri ferð. Boðið væri upp
á að með skipinu fari íslenzkur
dýralæknir ásamt fulltrúa frá eig-
endum hrossanna og fylgist með
flutningi og slátrun. Þá væri einn-
ig boðið upp á það, að eigendur
brennimerktu hófa sláturhross-
anna og gætu síðan fengið þá aft-
ur sem sannindamerki um slátrun,
en margir hefðu vantreyst því að
hrossunum yrði slátrað. Sömuleið-
is væru tollareglur og eftirlit þess-
ara mála mjög strangt í Dan-
mörku og því væri engin hætta á
að slátrun gengi ekki eftir.
Þá sagði Jóhann Steinsson, að
rétt væri að benda á, að þessi árs-
tími hentaði mjög vel að mati
kaupenda, þar sem hossin hafi
ekki safr.að fitu en séu í bata eftir
veturinn. Að hausti og í byrjun
vetrar séu hrossin geysilega feit
og hafi kaupendur kvartað mjög
eindregið yfir þessari miklu fitu.
Þessi hugmynd um útflutning á
lifandi hrossum til slátrunar er-
lendis væri því fær leið til að af-
setja hross, sem reynzt hefði erfitt
í formi kjötútflutnings. Hún hefði
komið upp síðasta haust, en ekki
hlotið hljómgrunn, en er sölu-
vandamálin hefðu komið frekar í
ljós hefði henni vaxið fylgi.
Hollendingur og Rúmeni efstir
á Ólympíuleikunum í eðlisfræði
.Siztuoa 30. júní. Frá VMtari Ágúatasyni, fréttaritara Morznnblaúsina.
íslensku keppendurnir, Finnur Lirusson og Vilhjálmur Þorsteinsson,
náðu góðum árangri er þeir lentu í kringum 60. sæti af 84. Líta þarf til
þess að íslendingar eru nú að keppa í fyrsta skipti og að austantjaldslönd-
in leggja mikla áherslu á þjálfun sinna keppnisliða fyrir þátttöku í
Ólympíuleikunum. Þar sem verðlaunin voru veitt einstaklingum var eng-
in þjóið tilnefnd sem sigurvegari leikanna í heild.
Fimmtándu Ólympíuleikunum
í eðlisfræði var slitið í dag i
menntaskólanum í Sigtuna í Svi-
þjóð við hátfðlega athöfn. Bengt
Svensson, formaður sænska eðl-
isfræðifélagsins, sem haft hefur
veg og vanda af framkvæmd
leikanna, hélt opnunarræðuna.
Næstur talaði sérlegur gestur
athafnarinnar, Sviinn Kai Sieg-
bahn, Nóbelsverðlaunahafi í eðl-
isfræði frá 1981. Hann hlaut
verðlaunin þá fyrir vinnu sína að
ESCA (litrófi rafeinda til efna-
greiningar).
Verðlaunaafhendingin var há-
punktur athafnarinnar. Sérstök
heiðursverðlaun fengu Hollend-
ingur og Rúmeni. Þeir þátttak-
endur sem höfðu yfir 90% af
bestu lausn fengu fyrstu verð-
laun. Þeir voru meðal annars frá
Hollandi, Rúmeníu, Tékkóslóv-
akiu og þrír frá Rússlandi.
Fimm þátttakendur fengu silf-
urverðlaun, þar sem þeir höfðu
meira en 78% af bestu lausn.
Þriðju verðlaun fengu 16 þátt-
takendur fyrir að hafa yfir 60%
af bestu lausn.
Sérstök viðurkenningarskjöl
fyrir góðan árangur fengu þeir
keppendur sem höfðu meir en
50% af bestu lausn. Aðrir fengu
viðurkenningarskjöl fyrir þátt-
töku í ólympiuleikunum í eðlis-
fræði og voru þeir Finnur og
Vilhjálmur meðal þeirra efstu í
þeim hópi, en Vilhjálm vantaði
aðeins hálft stig af 50 til að kom-
ast í hóp þeirra sem hlutu viður-
kenningarskjöl fyrir góðan
árangur.
Að lokum töluðu þeir Lars
Silverberg, framkvæmdastjóri
ólympiuleikanna i Sigtuna, og
Bojan Golli, framkvæmdastjóri
Ólympíuleikanna sem verða i
Porto Ros í Júgóslavíu á næsta
ári. íslendingum hefur þegar
verið boðið formlega að taka
þátt í þeim leikum með fullt lið,
fimm keppendur.
Leikarnir hafa farið vel fram
og er framkvæmdin Svíunum til
sóma. Þrátt fyrir fjölgun þátt-
tökuþjóða hafa þeir getað haldið
kostnaðinum í skefjum frá síð-
asta ári, svo hann er um 2,5
milljónir íslenskra króna.
Hér í Sigtuna eru staddir þeir
unglingar sem bestir eru í eðlis-
fræði í hverju þátttökulandanna.
Hafa sumir þeirra notið þjálfun-
ar svo vikum skiptir fyrir leik-
ana og uppskera nú að heima-
land þeirra hefur áralanga
reynslu í keppnum af þessu tagi.
Árangur íslensku drengjanna
sem koma heim á morgun,
sunnudag, verður því að teljast
góður, og hafa þeir aukið hróður
Islands í eðlisfræði í heiminum.
ísbirnir út
af Kögri
SKIPVERJAR á BÚR-togar-
anum Snorra Sturlusyni, sem
leigður var til rækjuveiða frá
Bfldudal, sáu í gær tvo ís-
birni á ísjaðrinum norður af
Kögri. Horfðu skipverjar á
birnina úr 20 til 30 metra
fjarlægð. Finnbogi Jakobs-
son, stýrimaður á Snorra,
sagði í samtali við Morgun-
blaðið að dýrin hefðu verið
misstór og voru menn að
geta sér til að þar væri birna
með hún sinn.
Allir smærri bátar voru þá
horfnir af rækjuslóðinni við ís-
röndina enda hættulegt eins og
fréttir undanfarna tvo daga
bera með sér að fara of nálægt
ísnum. Finnbogi kvað talsvert
þreytandi að toga svo nærri
ísnum, en dálítið væri af rækju
þarna og fengju menn rúmt
tonn í hali. ísinn hefur verið að
þokast vestur með vestanátt,
sem verið hefur á þessum slóð-
um undanfarna daga. í gær var
þarna logn og gott veður.
•* i uiMti