Morgunblaðið - 01.07.1984, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 01.07.1984, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. JÚLl 1984 Góður áhættuleikari er jafiwígur á aflt Rætt við hinn írskættaða áhættuleikara Martin Grace ÁHÆTTULEIKARAR skipa einn af þeim hépum kvikmyndagerðar- manna, sem oft fara framhjá hinum almenna kvikmyndahúsagesti, sem horfir á glæfraleg atriði á breiðtjaldinu og tengir þau eðlilega við andlitin sem þar sjást, andlit sem oftast komu hvergi nærri töku eða leik í atriðinu. Einstaka tilfelli eru þó um að leikari annist sjálfur sinn áhættu- leik, til að mynda þegar aðalleikarar f „Apocolypse Now“, Robert De Niro og John Savage, stukku sjálfir úr þyrlu á ferð yfir fljót, en slíkt þykir ekki vinsælt hjá kvikmyndafyrirtækjum, enda þar með tekin sú hætta að leikarinn slasist Slíkt gerðist einmitt hjá bandaríska leikaranum Harris- on Ford, þegar hann vann við tökur ævintýramyndarinnar „Indiana Jones and the Temple of Doom“. í Bretlandi starfa nú á annað hundrað áhættuleikarar, þar af innan við 20 konur, en í Bandaríkjunum eru þeir nokkuð yfír 1000 talsins. Áhættuleikarinn Martin Grace, sem þessa dagana er starfandi við Jökulsárlón á Breiðamerkursandi þykir einn af þeim reyndari í sínu starfi. Hann á að baki 21 ár, bæði sem áhættuleikari annars vegar og hins vegar sem áhættuleikari og staðgengill í senn. Þannig er háttað um starf hans við nýju James Bond-kvikmyndina „A View to a Kill“ sem unnið er að við Jökulsárlón. Þar leikur Grace áhættuatriði sem staðgengill aðalleikarans, Roger Moore. Þegar vinn- unni við lónið sleppir heldur hann áfram með hópnum til Parísar og San Francisco, en áhættuatriðið þar mun m.a. fela í sér eltingarleik á Golden Gate-brúnni og eru líkur á að þaðan muni „Bond“ stinga sér til sunds. Blm. Mbl. ræddi við Graee við Jökulsárlón að loknum vinnudegi og eftir að hafa heyrt hann rabba um hin og þessi atriði af ferli sínum, stökk af húsaþökum, sund í ísköldu vatni, ofsakeyrslu, leik í alelda klæðum og ferð, þar sem hann békk neðan í kláf í 1500 feta hæð, vaknaði eðlilega sú spurning hvort áhættuleikarar væru ofurmenni. v> Morgunblaðið/Vilborg „Nei, áhættuleikarar eru eng- in ofurmenni, aðeins venjulegir menn sem halda sér í góðri lik- amlegri þjálfun, þekkja tæknina við starfið og leyfa hræðslu aldrei að ná tökum á sér,“ sagði Grace með svip sem gaf til kynna að þessi spurning blm. sýndi almennt viðhorf almenn- ings til áhættuleiks. „Annars hefur áhættuleikari sjaldnast ástæðu til að hræðast eitt eða neitt,“ hélt hann áfram, „allar aðstæður til áhættuleiks nú á dögum eru þannig að áhættu- leikarinn er nokkuð öruggur og ekki í meiri hættu en fólk sem leggur leið sína yfir götu. Ef leikstjóri vill fá atriði þar sem kvikmyndapersóna stekkur ofan af þaki á nokkurra hæða húsi og endar á steinsteyptri götunni, þá náttúrulega stekk ég úr þeirri hæð sem hann vill, en kem eðlilega ekki niður á steinsteyptan flöt, heldur lendi ég á þar til gerðum dýnum. { okkar starfi er allt gert til að láta það líta út sem glæfralegast án þess að vera hið minnsta hættulegt. Yfirleitt er áhættu- leikarinn 99% öruggur með að ekkert komi fyrir hann. Hann verður auðvitað að vera vel að sér og vita upp á hár hvernig á að fara að.“ Hvers vegna gerðist þú áhættu- leikari? „Áhættuleikur bauð upp á það líf sem ég vildi lifa. Starfið sem slíkt er eðlilega mjög fjölbreytt og spennandi. Eins hef ég frá barnæsku hrifist af kvikmynd- um og kvikmyndagerð, stundaði mikið íþróttir, eins og langhlaup, hástökk, sund og æfingar á trambolíni, síðan lærði ég að kafa, fór að dunda við mótor- hjólaakstur og svona eitt og ann- að og allt þetta kom mjög til góða í áhættuleik. Því var kjörið að sameina áhugamálin, auk þess sem starfið býður upp á mikil ferðalög sem ég hef mjög gaman af. Til að mynda er starf- ið búið að koma mér tvisvar sinnum til íslands á skömmum tíma, en hingað hafði ég aldrei komið og hefði líklega ekki gert annars." Þú komst hingað vegna Enemy Mine. „Já, ég fór til Vestmannaeyja og á Skógarsand og lék reyndar áhættuatriði fyrir báða aðalleik- arana, Louis Gossett jr. og Dennis Quaid. Drekinn, sem Gossett lék, átti að synda i lón- inu sem búið var til í fjöruborö- inu á tökustaðnum í Eyjum. Upphaflega stóð til að staðigeng- ill hans synti þetta, en vatnið var það kalt að ég var fenginn til sem áhættuleikari. Og það voru engin ósannindi að vatnið var virkilega kalt. Fyrir Ouaid lék ég nokkur stökk-atriði á Skógarsandi sem voru ekki ýkja mikið mál og hann hefði með góðu móti getað gert sjálfur, eins og hann reynd- ar vildi. En þar kom kvikmynda- fyrirtækið inn og í hans samn- ingi var allur áhættuleikur af- tekinn. En hann er ungur og áhugasamur leikari og hefur mikinn áhuga á að geta gert sinn áhættuleik sjálfur og því fengum við íþróttahúsið í Vestmanna- eyjum lánað og æfðum ýmis at- riði sem menn þurfa að hafa á hreinu við áhættuleik." Varst þú I gervi drekans í lón- inu? „Nei, gervi hans er þannig að það er eiginlega óvinnandi vegur að ætla að synda í því, það er allt of umfangsmikið til þess. Þegar sundatriðið var tekið var ég í kafarabúningi sem búninga- deildin á staðnum hafði málað þannig að hann líktist gervi drekans. Þarna komum við líka að atriði sem er algengt við áhættuleik, að þegar um senu er að ræða þar sem mikil hreyfing er á áhættuleikaranum og jafn- vel töluverð fjarlægð frá kvik- myndavélinni, þá er oft auðvelt að hafa hann í búningi sem er kannski í engu lfkur þeim bún- ingi sem leikarinn er í. Auga kvikmyndahúsagestsins greinir ekki muninn, eins og í þessu til- viki þar sem aðeins hluti líkam- ans var upp úr vatninu og synt á mikilli ferð, auk þess sem ég synti eftir vír þannig að sundið líktist hreyfingum háhyrninga og var ég með súrefnistæki framan á mér til að geta verið jöfnum höndum með höfuðið í kafi og upp úr vatninu." Hefur þú sérhæft þig í einhverju varðandi áhættuleik? „Sá sem ætlar að verða góður áhættuleikari sérhæfir sig ekki i neinu — hann er jafnvígur á allt sem telst til áhættuleiks. Annað þýðir ekki, samkeppnin í þessu starfi er töluverð og menn verða að vera í stöðugri þjálfun til að geta gert allt sem leikstjórinn biður þá um. Þetta er mjtíg ein- falt mál, sá sem ætlar að sér- hæfa sig í einhverju einu á mjög takmarkaða möguleika á að verða góður og eftirsóttur áhættuleikari." Hvenær vannst þú fyrst við „Bond“-mynd? „Fyrsta Bond-myndin sem ég starfaði við var „Moonraker" 1966, þegar hlutverk James Bond Martin Grace var í höndum Sean Connery. 1 þeim áhættuatriðum sem ég var í þar var ég ekki staðgengill Bonds, en hef verið það f hinum fjórum síðan, sem eru „The Spy Who Loved Me“, „For Your Eyes Only“, „Octopussy" og núna „A View to a Kill“.“ Hvert var erfiðasta atriðið í þessum myndum? „Ætli erfiðasta atriðið sem ég hef gert sem „Bond“ hafi ekki verið í myndinni „Octopussy". Það var lestaratriði þar sem ég stökk af bíl yfir á járnbrautar- lest þegar bæði farartækin voru á ferð, klifraði upp á lestarþakið, skreið eftir því og endaði í slagsmálum. Allan tfmann var lestin á fullri ferð og því þurfti ég að vera mjög varkár, því að þak á lest sem er á ferð er svo sem ekki stöðugasti staður i heimi. Eins stökk ég einu sinni úr 150 feta hæð f búningi sem var alelda og sérstaklega til þess gerður, en það stökk var nokkuð erfitt. Ef þú vilt síðan fá að vita hvað er það auðveldasta í áhættuleik þá er það akstur og f flestum kvikmyndum nú til dags sér maður áhættuakstur sem lftur út fyrir að vera stórhættulegur, en er f raun sáraeinfaldur. Og þegar maður er búinn að vera áhættuleikari í nokkur ár er maður að miklu leyti að gera sömu hlutina aftur og aftur og lærir að gera þá rétt. Það sem við erum að gera hér á lóninu er tiltölulega auðveldur áhættuleikur, en ég á von á að áhættuatriðin f San Francisco verði þau erfiðustu í þessari mynd. Annars er ekki enn búið að sjá nákvæmlega fyrir um hvernig þau verða. Yfirleitt veit áhættu'eikarinn í stórum drátt- um hvað verður gert, en það er aldrei hægt að skipuleggja áhættuatriði endanlega fyrr en kvikmyndatökuhópurinn er kominn á staðinn og menn búnir að kynna sér allar aðstæður." Eftir 21 ár í áhættuleik, hve lengi hyggst þú halda þessu áfram? „Sem lengst. Það er varla hægt að tala um neinn sérstakan „líftíma" áhættuleikara, kvik- myndir eru gerðar fyrir leikara fram á gamals aldur og þar með er starfsgrundvöllur áhættuleik- ara tryggður fram f ellina. Ég segi það ekki að auðvitað er ólíklegt að kvikmyndahandrit geri ráð fyrir því að sjötug kvikmyndapersóna fari að klífa fjöll eða stökkva fram af hús- þaki á flótta og þvfumlikt. En viðkomandi gæti þurft að detta niður stiga eða eitthvað álíka sem áhættuleikari á svipuðum aldri myndi þá gera. Fyrir mitt leyti þá hef ég áhuga á að fara með tfmanum út f leikstjórn áhættuatriða, enda eru margir af bestu áhættuleik- stjórum í dag fyrrverandi áhættuleikarar, menn sem þekkja starfið vel og vita hversu langt er hægt að ganga f áhættu- atriðum. Þar fyrir utan er kvikmyndagerð afskaplega heill- andi viðfangsefni, þó að það sé ekki alltaf beint auðvelt. Sem er kannski ástæðan fyrir því hversu heillandi starfið er. En þegar þar að kemur, sem ég á nú ekki von á að verði í náinni framtíð, að ég fer að snúa mér að öðru, er næsta vfst að það verður ekki mjög langt frá minu starfi þessa stundina, ég hef allavega ekki enn kynnst öðru starfi sem ég gæti hugsað mér,“ sagði Martin Grace að lokum. r ^ Kork-o-Plast (iólf-Gljái Fyrir PVC-filmur, linoleum, gúmmí, parket og steinflíjjar. CC-Floor Polish 20(KI (jefur emi- ingargóða gljáhúð. Notkun: Þvoið gólfið. Iterið CC-Floor Polish 2000 óþynnt á gólfið með svampi eða rakri tusku Notið efnið sparlega en jafnt. Lát- ið þorna i .'t0 min. A illa farin gólf þarf að bera 2—lisvar á gólfið Til að viðhalda gljáanum er nóg að setja 1 tappafylii af (Y’-Floor Pol• ish 2(KK) i venjulega vatnslotu al volgu vatni. Til að fjarlægja gljáann er best að nota R-1000 þvottaefni frá sama framleiðanda. Notið aldrei salmiak eða onnur sterk sápuefni á Kork-o-Plast. kinkaufnhoA á íslandi: 1». Porgrímsson & ('o., \rmula 16, Keykjavík, n. 3M640. L. A Hef opnaö skóvinnustofu aö Grettisgötu 3. Tek aö mér allar almennar skóviögeröir. Mikiö úrval af áburöum, reimum o.fl. Þráinn Jóhannsson, Grettisgötu 3, s. 21785.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.