Morgunblaðið - 01.07.1984, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 01.07.1984, Qupperneq 26
rs 26 mi tnu.rnirnAaTWMTW omA.wvnir)íroM MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. JÚLÍ 1984 Kross á þjóðsögu Skömmu fyrir síðustu aldamót gerðist svipaður atburður og var það talið sönnun þess að Solveig hefði dregið prest í dysina til sín. Árið 1914 átti að grafa gamla konu í Miklabæjargarði. Einn grafarmanna var Sigurður Ein- arsson í Stokkhólma og hefur hann sagt frá atburðinum. Graf- armenn komu niður á kistu, sem snéri öfugt við það, sem venja er til. Þeir brutu kistuna og í henni reyndust vera kvenmannsbein, fremur smávaxin. Séra Björn Jónsson var þá á Miklabæ og voru hann og aðrir þess fullvissir að um bein Solveigar væri að ræða. Var beinunum komið fyrir, sem venja er með gröft, í gröfinni, sem þarna var tekin, og lík gömlu konunnar var svo jarðsett í gröfinni. Framdi séra Oddur sjálfsmorð? Eins og fram hefur komið, hefur aldrei spurst til séra Odds Gísla- sonar eftir að hann hélt heim að Miklabæ frá Víðivöllum en uppi hafa verið ýmsar getgátur um af- drif hans. Spurningunni um hvað henti hann verður sennilega aldrei svarað. Á miðilsfundum í Reykja- vík 1937, þar sem Solveig bað um að bein sín yrðu flutt í Glaumbæj- arkirkjugarð og getið verður um síðar, kom fram að Solveig hefði ekki orðið séra Oddi að bana held- ur hafi hann verið veginn af jarðneskum mönnum. Jón Jóhann- esson frá Siglufirði segir í grein um séra Odd á Miklabæ i Grímu frá 1948 og hér er m.a. stuðst við, að því sem gerist á miðilsfundum beri að taka með varúð, en ef séra Oddur var myrtur, segir Jón, ligg- ur næst að ímynda sér að einhver sem hefna vildi Solveigar hafi framið ódæðið. En það er fátt sem rennir stoðum undir þá kenningu. Jón heldur hins vegar að dauði Solveigar hafi fengið svo á séra Odd að hann hafi fargað sér. Það er ekki erfitt, segir Jón, að ímynda sér að ástarsamband hafi mynd- ast á milli Solveigar og séra Odds, en stöðumunur, ættgöfgi og aðrar ytri aðstæður hafi komið í veg fyrir að þau gætu kvænst. Þegar svo Guðrún giftist séra Oddi verð- ur það Solveigu ofraun, hún sturl- ast og fyrirfer sér. Séra Oddi verð- ur svo mikið um dauða hennar að hann fellur í ómegin. Honum fell- ur einnig þungt að geta ekki veitt Solveigu hinstu bæn hennar, að grafa hana í vígðri mold. Samvisk- an ásakar hann um það, að hann hafi farið illa með stúlkuna og eigi sök á dauða hennar. Hann gerist þunglyndur og taugaveiklaður. Jón Espólín segir í Árbókum sín- um að séra Oddur hafi alla stund þótt mjög undarlegur í skapi. Myrkfælnin kvelur hann og hjá- trúin hefur smitað heimafólk og nágranna. Öll sveitin trúir því, að Solveig hafi dáið í heiftarhug til hans og að hún ásæki hann og vilji granda honum. Og það kemur að því að hann verður ómegnugur að bera það og „hið myrka haust- kvöld 1786 sigrar hugstríðið karl- mennsku hans, og hann fargar sér, en hvar og með hverjum hætti, verður sennilega aldrei vitað". Benedikt Gíslason frá Hofteigi skrifar um séra Odd í bók sinni, Fólk og saga, sem út kom árið 1958. Þar segir hann að Vigfús Scheving sýslumaður og allir viti bornir menn hafi vitað hvað gerst hefði. Séra Oddur hefði fyrirfarið sér — en það var voði í sambandi við málið. Það yrði að grafa hann utangarðs ef hann fyndist. Allra- handa draugasögum var komið í gang, Solveig átti að hafa drepið hann og dregið hann kvikan í sitt eigið utangarðsleg. „Það gæti ekki Samantekt: Arnaldur Indriðason komið verra fyrir," segir Benedikt „en séra Oddur fyndist." Benedikt segir að vorið 1789 hafi séra Oddur fundist í læknum Gegni og að gruna mætti að Vig- fús sýslumaður, Pétur prófastur Pétursson og fleiri menn hafi vit- að um líkið, en ekki viljað hreyfa það af ótta við að þurfa að grafa það utangarðs. Heimild að fundi séra Odds segir Benedikt vera samtímabréf, sem frú Ragnheiður Thorarensen skrifaði frá Viðey 6. sept. þetta sama sumar en í því sé sagt berum orðum, að séra Oddur á Miklabæ „í vor fundinn í læk þeim er Gegnir heitir." Og Benedikt segir: „[En] það er auðséð hvað til ráðs er tekið. Oddur er grafinn í kyrrþey og alls ekki á Miklabæ. Það vitnast ekki að hann er fundinn og grafinn og Pétur prófastur, sem veit það, að kirkjuskipanin er brotin, talar aldrei eitt einasta orð um þetta, hvorki við Esphólín né aðra, enda er Esphólín úti í Kaupmannahöfn þegar þetta fer fram ..." Kvæði Einars Að síðustu skal getið kvæðis Einars Benediktssonar, „Hvarf síra Odds frá Miklabæ (þjóð- saga)“, sem hefur haft ómæld áhrif á þjóðsöguna um Solveigu og séra Odd. Það er í 18 erindum en erindi 10 og 11 eru á þessa leið: Reidd, sem til höggs, er höndin kreppt hátt á lopti, önnur er hept á bitrum, blikandi hnífi. Þýtur í golu af þungum móð þulin heiting. Svo mælti fljóð, svikin, er svipti sig lífi: „Svo illar hvfldir eg af þér fékk og óhreinan hef eg setið bekk, því ertu nú dauðadeigur.— Þótt svikir þú mig skal orð mitt efnt, mín er eptir þessa nóttu hefnt, séra Oddur, nú ertu feigur". f þjóðtrúnni var Solveig orðin að draug, ægilegum draug. f seinni hluta þessarar greinar verður vikið að því þegar bein Sol- veigar voru flutt úr Miklabæjar- kirkjugarði í Glaumbæjarkirkju- garð. Boreal er nýstárleg veggklæðning, frumleg, falleg og notadrjúg, fram- leidd úr finnsku úrvals- birki af heimsþekktum framleiðanda. GÆÐIFARA ALDREIÚR TÍSKU áf/\ KRISTJflfl f/<#SIGG£IRSSOn HF. y ^ W LAUGAVEG113, r SMIÐJUSTÍG 6, SÍMI 25870 a#Wa A»WA AltyA ^ Verð tilboð Þetta stórglæsilega tæki frá AIWA meö LW — MW — SW og FM stereo, 2x14 w. magnara og lausum hátölurum, 5 banda tónjafnara, segulband meö Dolby og fyrir CrO2 og Metal-spólur og marga aöra mjög skemmtilega möguleika, kostar nú aöeins kr. Attt til hljómfíutnings fyrir: HEIMILID - BÍLINN OG DISKÓTEKIÐ D i .i Kacfiö ARMULA 38 iSelmúla megin) 105 REYKJAVIK SIMAR: 31133 83177 POSTHÖLF 1366

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.