Morgunblaðið - 01.07.1984, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. JÚLl 1984
37
Leikmunadeildin að störfum.
Umsjónarmenn i tökustað, Agúst Baldursson (Lv.) og Philip Kohler að
störfum.
Matartími í vinnubúðunum.
Fjórir fjallgöngugarpar frá
Alpaklúbbnum starfa einnig við
myndina, þeir Ari Trausti Guð-
mundsson, Árni Árnason, Olgeir
Sigmarsson og Hreinn Magnús-
son. Þeirra starf felst í því að
skíða á jöklinum, en skíðasenan
verður fullgerð í Sviss og þá með
svissneskum skíðamönnum. Þá
starfa við lónið nokkrir Hornfirð-
ingar við ýmsa aðstoð, flutninga á
bátum og þar fram eftir götunum.
Öllum íslendingunum bar sam-
an um að samstarfið væri eins og
best gerðist og þeir Ágúst og Jón
Þór sögðu í samtali við blm. að til
þessa hefði ekkert óleysanlegt
vandamál komið upp, hvorki við
undirbúningin né eftir að tökur
hófust. Hornfirðingar hefðu
reynst fúsir til samstarfs við hóp-
inn, sem býr á Höfn og sérstakar
þakkir vildu þeir færa Björgun-
arsveitinni á staðnum.
Upphafsatriðið kemur til með
að taka um fjórar mínútur í fullri
lengd, að sögn Peter Bennetts.
Ekki verður það allt tekið á Jök-
ulsárlóni, skíðasenan verður
kvikmynduð í Sviss og stúdíósenur
í Bretlandi, en þær eiga að gerast
inni í „ísjaka" sem Bond fer í og
kemst þannig undan á flótta frá
Rússum. ísjaki úr einangrunar-
plasti hefur verið notaður við tök-
urnar á lóninu og má ekki á milli
sjá hvor er raunverulegri þegar
hann ber við ísjaka á lóninu, en
jakinn er eitt af framlögum Ken
Court, listræns ráðunautar mynd-
arinnar.
Þegar allar ofangreindar tökur
eru frá, verður þeim skeytt saman
þannig að úr verður eitt upphafs-
atriði sem í augum kvikmynda-
húsagesta gerist allt á sama stað.
Þá má ekki gleyma þyrlunni sem
notuð er við tökurnar, en henni
var sérstaklega flogið til íslands
vegna þeirra. Flugmaður þyrlunn-
ar er Mark Wolff, sem hefur sér-
hæft sig í áhættuflugi á þyrlu
fyrir kvikmyndir. M.a. flaug hann
inn á milli verksmiðjubygginga í
myndinni „For Your Eyes Only“.
Um þá senu sagði Terry Madden,
sem einnig vann við myndina:
„Hann er með þeim bestu sem eru
í áhættuflugi og leggur ekki út i
neitt nema að vera viss um að það
takist. Þrátt fyrir það skal ég við-
urkenna að ég horfði nú meira á
allt annað en þyrluna þegar atrið-
ið var tekiðl. Áuk þyrlunnar eru
fjarstýrð líkön af henni notuð við
tökurnar.
Að vanda má búast við að
„tækninýjungar" fylgi þessarri
Bond-mynd sem öðrum. „Ætli það
verði ekki svona eitt og annað
„fundið upp“ í myndinni," sagði
Bennett brosandi þegar hann var
inntur eftir því og vildi sem
minnst ræða slíkt hernaðarleynd-
armál.
Kostnaður við gerð myndarinn-
ar er óráðinn enn, að sögn Tony
Way aðstoðarleikstjóra hennar.
Sagði hann ekki unnt að reikna
heildarkostnaðinn nákvæmlega út
fyrr en kvikmyndatökuhópur 2
hefði lokið störfum, en kostnaður-
inn yrði að vanda töluverður, því
að ekkert væri til sparað við þessa
mynd, frekar en aðrar James
Bond-myndir, til þess að gera
hana sem best úr garði.
Kvikmyndatökuhópur 2 lýkur
væntanlega vinnu sinni hér eftir
viku, en sem fyrr segir lýkur tök-
um ekki fyrr en eftir u.þ.b. sex
mánuði. Og þá er bara að bíða og
sjá hvernig „James Bond“ lítur út
í íslensku umhverfi.
Áhættuleikarinn
Martin Grace
— Sjá næstu síðu —
I verslun Heimilistækja í Sætúni 8 er mesta úrval kæliskápa
sem til er á íslandi. Þeir eru allt frá 90 til 600 lítra,
48 til 108 cm á breidd, 52 til 180 cm á hæð, með 1, 2, 3 eða 4 dyrum,
með eða án frystihólfs, með hálf- eða alsjálfvirkri afþýðingu, í ýmsum litum,
evrópskir og amerískir af gerðunum Philips og Philco.
Þú tekur mál af gatinu hjá þér og hefur svo samband við okkur í Sætúni 8.
í Hafnarstræti 3 eru einnig fjolmörg sýnishorn af kæliskápaúrvalinu
og þar fást líka allar upplýsingar.
$
Heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI3 - 20455-SÆTÚN! 8 -15655
s
L
tHJ
1 “ ■■ 1 ■ 1 ■■
■1 ■ ■■
■ ■■ H ■ ■ ■1 ■■ ~
■■■■ mm ■■■