Morgunblaðið - 01.07.1984, Síða 44

Morgunblaðið - 01.07.1984, Síða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. JÚLÍ1984 Minning: Katrín Bergrós Sigurgeirsdóttir Quömundur Stunwon kl. 20.00. Fram Fædd 31. ágúst 1911 Dáin 24. júní 1984 Það er margs að minnast, þegar gömul æskuvinkona deyr, ekki síst þegar einnig er um frændsemi að ræða. Þegar mágkona Beggu hringdi á Jónsmessudag og til- kynnti, að hún hefði dáið þann morgun kl. 10, þá dimmdi sannar- lega yfir þessum degi, jafnvel þótt búist hafi verið við þessari fregn síðustu vikurnar. Katrín Bergrós Sigurgeirsdótt- ir, eins og hún hét fullu nafni, faeddist 31. ágúst 1911. Foreldrar hennar voru hjónin Sigurgeir Jó- hannsson frá Hafnarfirði og Bóel Bergsdóttir frá Varmahlíð undir Eyjafjöllum. Begga ólst upp í stór- KARIBAHAFIÐ JAMAICA — CURACAO — VENEZUELA — BARBADOS — MARTINQUE — ST.MARTEEN — PUERTO RICO — VIRGIN ISLAND Fyrst fljúgum við til Florida og hvílum okkur á huggulegu hóteli í 2 nætur áöur en siglt er af staö í 16 daga ævintýraferð um Karibahafið. Skemmtiferðaskipið Sun Viking er ævintýraland á floti. Þar er aö finna næturklúbba, spilasali, verslanir, veitingasali, snyrtistofur, sundlaug, íþróttasal og margt, margt fleira. Ferðinni lýkur síðan með 6 daga dvöl í Florida. Gerum drauminn að veruleika FERÐASKRIFSTOFA, Iðnaðarhúsinu Hallveigarslígl.Símar 28388 og28580 a um systkinahópi og þurfti snemma að fara að vinna fyrir sér, bæði í sveit og einnig við ýmis búðarstörf. M.a. vann hún við af- greiðslu í hannyrðaverslun systur sinnar Þórunnar, sem nú er látin fyrir nokkrum árum. Ung giftist hún eftirlifandi eig- inmanni sínum, Sveini Sigurðs- syni, málarameistara, og hafa þau búið saman i farsælu hjónabandi í rúm 49 ár. Þeim varð 3 barna auð- ið, en þau eru Sveindís, sem gift var Atla Atlasyni, húsasmiði en hann lést árið 1973, Sigurður Ingi, kvæntur Halldóru Guðnadóttur, og Sigrún, gift Vigni Jónssyni. Jarðvist Beggu er nú lokið, en minningin um hana deyr ekki. Við f saumaklúbbnum sögðum alltaf, að Begga væri perla, hvað svo sem um okkur hinar mætti segja. Myndarskapur hennar á öllum sviðum, glaðværð hennar og elsku- legt viðmót var slíkt, að öllum þótti vænt um hana. Það eru margar góðar minningar um saumaklúbbskvöldin i gegnum hér um bil hálfa öld, en við komum fyrst saman árið 1935. Svo eru minningar um ferðalög, afmælis- veislur með miklum glæsibrag, síðast þegar Svenni varð sjötugur og elsta dóttirin hélt upp á daginn og lúðrasveitin Svanur kom og heiðraði afmælisbarnið með dynj- andi hljómlist fyrir utan húsiö. Var þeim auðvitað öllum boðið inn að fá hressingu, annað hefði ekki komið til mála hjá þessari fjöl- skyldu. Begga var alltaf boðin og búin til að hjálpa og hlúa að þeim sem þess þurftu með, enda fékk systir hennar heitin að njóta þess vel og lengi. Eg og mín fjölskylda vottum Svenna, börnum og barnabörnum okkar dýpstu samúð. Guð blessi minningu Beggu. GS Að leiðarlokum verður sú ást og hlýja sem amma mín hafði öllum að gefa efst í huga mér. Og langar mig að þakka fyrir þær stundir sem við áttum hjá henni og afa í Hólmgarði með sálmi úr Passíusálmum Hallgríms Péturssonar, sem hún færði mér þegar ég var fimm ára. „Dauðans stríð af þín heilög hðnd ' hjálpi mér vel að þreyja. Meðtak þá, faðir, mína önd, mun ég svo glaður deyja.“ RagnheiðurKatrín Wterkurog hagkvæmur auglýsingamióill! j

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.