Morgunblaðið - 01.07.1984, Side 45
».m ) rr*T. r mnt rrn i «r>«/
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. JÚLÍ 1984
45
Útvarp kl. 14.15:
Ástir samlyndra hjóna
Klukkan 14:45 hefst blönduð
dagskrá er nefnist „Ástir sam-
lyndra hjóna“. Er hún { umsjá
Þórdísar Bachmann.
Eins og nafnið bendir til er
víða komið við í efnisöflun og
flytjendur fjölmargir. M.a. túlka
Arnar Jónsson og Bríet Héðins-
dóttir Macbeth lávarð og lafði
hans í verki Shakespeares. Tekin
verða fyrir nokkur vel þekkt
hjónabönd allt frá tímum ódys-
seifs Penelópu til sambands nú-
tíma-hjóna og þau reifuð í bók-
menntalegum skilningi.
íslenskt efni verður einnig á
dagskrá og eru þar helst ís-
landsklukka Kiljans, Fjallkirkja
Gunnars Gunnarssonar og sagan
„Hjartað býr enn í helli sínum"
eftir Guðberg Bergsson. Lesari
er Arthúr Björgvin Bollason. Inn
á milli atriða verður kryddað
með viðeigandi tónlist.
Þórdís Bachmann, umsjónarmaður
dagskrárinnar „Ástir samlyndra
hjóna'*.
Þátturinn er klukkustundar-
langur.
Snaust h.í
Siðumúla 7-9, simi 82722.
Bllanaust h.f. hefur nú á boöstólum hljóðkúta,
púströr og festingar I flestar gerðir bfla. Stuðla-
berg h.f., framleiða nlðsterk pústkerfi og hljóð-
kúta sem standast fyllilega samkeppni við sams
konar framleiðslu erlendra fyrirtækja. Þessa isl-
ensku gæðaframleiöslu erum vió stoltir af að
bjóða viðskiptavinum vorum jafnhliða vörum frá
HUÖÐKÚTAR
PUSTKERFI
Útvarp kl. 20.00:
Nýstárleg getraun í
sumarútvarpi unga fólksins
I þsttinum „Sumarútvarp unga
fólksins“ í kvöld kl. 20.00 hefst
hlustendagetraun með ansi nýstár-
legu sniði. Þraut þessi er í 8 hlut-
um og verður meðal efnis þáttanna
nestu 8 sunnudagskvöld. Til þess
að geta tekið þátt í getraunaleikn-
um verða hlustendur að heyra alla
hluta hans.
I hverjum þætti verður á ein-
hvern hátt gefinn til kynna
ákveðinn bókstafur. Saman
mynda þessir bókstafir átta
stafa orð sem verður vitaskuld
ekki lýðum ljóst fyrr en allir
stafirnir hafa verið gefnir til
kynna. Þátttakendur útbúa sér
blað og bæta hverjum bókstaf
inn í raðleikinn um leið og þeir
hafa uppgötvað staf hvers þátt-
ar. Síðan senda þeir lausnina til
þáttarins þegar getrauninni er
lokið. Vegleg bóka- og hljóm-
plötuverðlaun verða veitt fyrir
rétt svar að þrautinni lokinni og
allir þáttakendur fá auk þess
viðurkenningarskjal frá Ríkis-
útvarpinu.
Fyrsti bókstarf þessa dular-
fulla orðs verður sem fyrr segir
gefinn til kynna næstkomandi
sunnudagskvöld og síðan koll af
kolli næstu sjö sunnudaga á eft-
ir. Stafirnir verða gefnir í skyn
með ýmsum hætti en þó þannig
að fæstum ætti að veitast þraut-
in erfið.
ítrekað skal að mikilvægt er
að fylgjast með frá byrjun,
Helgi Már Barðason, stjórnandi
sumarútvarps unga fólksins.
geyma svarseðilinn vel og senda
hann síðan þættinum í ágústlok
þegar loks upplýsist hvaða orð
um er að ræða.
Unglingar eru að sjálfsögðu
hvattir til að vera með í leiknum
og einnig til þess að senda þætt-
inum bréf um hvað sem vera vill
og snertir málefni unglinga, eða
allt sem mönnum dettur í hug að
kunni að eiga erindi til annarra.
Umsjónarmaður sumarút-
varpsins er Helgi Már Barðason.
Sjónvarp sunnudag kl. 21.50 og
mánudag kl. 21.30:
GEORGE
ORWELL
Á dagskrá sjónvarpsins á sunnu-
dag og mánudag er athyglisverð
heimildarmynd í tveim hlutum um
ævi breska rithöfundarins George
Orwells. Hann er einn af merk-
ustu höfundum þessarar aldar og
snörp ádeila hans á ýmsar veikar
hliðar f heimi nútímamannsins
hafa hvarvetna hlotið mikið lof,
jafnt gagnrýnenda sem almenn-
ings.
Þessir bresku þættir, eru skýr-
asti vitnisburðurinn sem hingað
til hefur sést um líf Orwell. Haft
var náið samráð við rithöfund-
inn og prófessorinn Bernard
Crick sem fékk sérstakt leyfi frá
afkomendum Orwell, til að rann-
saka líf hans. Hann tók það sér-
staklega fram í erfðaskrá sinni
að hann vildi ekki láta rita ævi-
sína.
dagskránni er grennslast
fyrir um bakgrunn verka Eric
Blair, en það var rétta nafn
Orwells, og hver voru markmið
hans með svo áhrifamiklum
verkum sem „1984“ og „Animal
Farm“, að enn í dag eiga þau
erindi til okkar.
Framleiðandi er Nigel Williams.
FERÐAFÉLAGINN FRÁ
ROADSTAR PS-2060
1 bílinn
M E T A L
AUTO-STOP
I A C
Gæða-bflhjólatæki meö útvarpi og segulbandi. Þetta tæki er
■ sérstaklega hannað fyrir mikla notkun. LW, MW og FM-stereó
2x7 wött. Tíðnisvörun: 30—14.000 rið. Stærð: Breidd 178, hæð
42 og dýpt 120 millimetrar. Mono- og stereórofi. Læst hraðspól-
un, styrk-, jafnvægis- og tónstillar. Sjálfvirk stöðvun á enda með
Ijósmerki. FM stereó-ljós. í stuttu máli: Tækið sem er tilbúið í
slaginn.
Kr. 4.980,-
SENDUM
UM
ALLT
LAND
ISETNING
SAMDÆGURS
HÁTALARAR OG
LOFTNETSEFNI í
MIKLU ÚRVALI