Morgunblaðið - 04.07.1984, Page 1

Morgunblaðið - 04.07.1984, Page 1
Ferðamál á fslandi 36 Bölvaldurinn 36 Fenrisúlfur 38 Skák 38 Rúmenia 39 Borgin okkar 40 Leikhús/bókmenntir 42/43 Málefni aldraðra 44 Einn skóli fyrir alla 44 Grænhöfðaeyjar 48 Miðvikudagur 4. júli Laxaslátrun 49 Steinasöfnun 50/51 Sjónarhorn 52 í reiði 53 Álver við Eyjafjörð 54 Við gluggann 54 Lif eftir jarðlífið 55 Fólk í fréttum 57 Bió/leikhús/dans 58/59 Garðaúðun 62/63 Forna borgin Jaffa, sem Jafet sonur Nóa stofnaði fyrir 3.500 árum, er skemmtileg borg fyrir ferðafólk að reika um. Land hinna miklu andstæðna Shalom, segja ísraelsmenn hlýlega þegar gestur kemur í land þeirra. Fyrsta orð sem maður lærir. Brúkist bæði við komu og brottför. — Við vitum hvort sem er aldrei hvort við erum að koma eða fara, sagði spaugsamur heimamaður. Nokkuð til f þvf, þegar litið er til hinna miklu andstæðna á öllum sviðum. og hinna stuttu vegalengda milli þeirra. Israel er að stærð um fimmti hluti Islands. 500 km alit norðan frá Galileu og suður f Negeveyði- mörkina. Það er því sérlega vel til þess ferðamáta fallið, sem við vorum þar að kynnast tveir íslendingar, Sigurður Ingvarsson frá Flugleiðum og undirritaður blaðamaður Mbl. í 4. „Fljúgið og akið rallýinu" þeirra. Þar buðu þeir til þátttöku 70 manns frá Norður-Ameríku. Suður-Afríku og mörg- um Evrópulöndum — þó ekki öðrum Norðurlandabúum en okkur fslending- um. Komum með flugvélum og ókum 3—4 saman í bflaleigubfl um mestan hluta landsins milli fyrirfram ákveðinna staða, til að kynnast þessu ótrúlega fjölbreytta landi. Þar blandast vel dvöl og baðstrandalíf við eitthvert af höfunum þeirra, Kauðahafið, Dauðahafið, Miðjarðarhafið og Galileuvatnið, saman við heimsóknir þaðan á sögulega staði úr Biblíunni og mannkynssög- unni. Ekki er að spyrja að veðri. Sól (>g hiti. Ben Gurion-flugvöllur liggur miðj vegu milli Jerúsalem og Tel Aviv. 45 mínútna akstur á hrað- brautinni. Vegurinn sá var frá 1948 fram til sex daga stríðsins 1967 eina leiðin frá Jerúsalem. Yf- irráðin yfir vegum í aðrar áttir í höndum Jórdana. Þarna áttar maður sig strax á því, að ýmislegt fleira hangir á spýtunni en fram kemur í einfölduðum fréttum. Um þennan sama veg, eftir lífæðinni milli hæðanna, sóttu með vopna- valdi um aldir arabar, krossfarar, Tyrkir og loks Bretar og þarna var miklu blóði úthellt í frelsisstríði ísraela. Sú saga öll skýtur upp kollinum á ferð um þetta land. Þetta er land hinna miklu and- stæðna, og breytist í sífellu. Löftslag rakt og heitt í Tel Aviv, brennandi þurr hiti við Dauðahaf- ið og svalt og sólríkt í Jerúsalem. Landslag breytist frá Hermes- fjalli við norðurlandamærin, þar sem jafnvel er hægt að vera á skíðum, suður í frjósama Galileu og meðfram Jordanánni til eyði- Og þarna stendur maður andspænis dyrunum, þar sem Pétur postuli heim- sótti Símon sútara. merkurlandslags við Dauðahafið, og frá 392 metrum neðan sjávar- máls þar og upp í 800 metra hæð í Jerúsalem. Nýjar glæsibyggingar með fallegum arkitektúr blandast 2.000 ára gömlum mannvirkjum og hvarvetna blasa við söguminjar i 4.000 ár, allt frá því er Abraham og Sara héldu inn í þetta land, svo sem segir í Biblíunni. Víða standa þessir gömlu steinar í byggingum og nýir á milli og allt fellt saman af mikilli gætni. I Jerúsalem er til dæmis bannað með lögum að byggja úr öðru efni en sama steini sem byggt hefur verið úr frá upp- hafi. Landið sjálft er í sífelldri umbreytingu, frá 1967 til 1982 til- heyrði því Sinaieyðimörkin, nú er í staðinn verið að rækta upp ný eyðimerkursvæði hinum megin í landinu, í Negev við Dauðahaf, og í Júdeu og Samaríu á vesturbakka Jordanár, sem þeir tóku 1967. Þjóðin að byggja og rækta i þessu rakalausa landi, þar sem alls stað- ar vantar vatn nema í Galileu. Á hverjum klukkutíma sem lagður er að baki, er komið eitthvað nýtt. Maður hefur ekki við að átta sig. Jaffa hljómar kunnuglega í eyr- um fslendinga. Jaffa-appelsínurn- ar koma frá ísrael. Nú er forna borgin Jaffa orðin að útborg stórborgarinnar Tel Aviv við Mið- jarðarhafið. Þessi forna borg úr Biblíunni, sem Jafet sonur Nóa stofnaði fyrir 3.500 árum. Maður stendur í einni af þröngu götunum í þessari skemmtilegu borg við dyrnar á húsinu þar sem Pétur postuli heimsótti Símon sútara. Dyrnar bláar, eins og svo margar aðrar á þessum slóðum, til að fæla burtu illa anda. Ferðamaður nútímans reikar þar um mjógötur og listamanna- búðir og verslar eða sest niður í Alls staðar eru skólakrakkar að læra f söfnum um forn- og nútímasögu þjóðar sinnar. Hér eru nokkur fyrir utan safnið í Tel Aviv. litlu veitingahúsi með austur- landamat, sem þessi borg sérhæfir sig í. Þar má fá Pétursbrauð með salatinu. Jaffa-appelsinurnar get- ur maður svo fengið að tína sjálf- ur af trjánum, þegar gist er í ki- bbutz síðar. Kosherfæða og sabbat- dagur í þessu gósenlandi ávaxta og grænmetis er matur fjölbreyttur. Maður tekur ekki eftir því fyrr en á er bent, að víðast hvar er „kosh- er borð“. Fæðan útbúin sam- kvæmt því sem fyrir er sagt í Bibl- iunni. Kosher byggist aðallega á tvennu, kjötinu verður að slátra eftir ákveðnum reglum svo að megi leggja sér það til munns og í öðru lagi má ekki blanda saman mjólkurafurðum og kjöti, t.d. ekki steikja kjöt í smjóri og ekki bera mjólk eða ost með því. Venjulega hefur rabbíi skrifað upp á matseð- ilinn og vottar að hann sé i lagi. Kaffi með mjólk er þvi ekki boðið eftir kjötmáltíð. En það þá bara leyst með því að maður drekkur kaffið annars staðar en við sama borð. Ekki eru allir veitingastaðir þó kosher, en flestir. Og alltaf á sabbatdaginn. En svo rikulegur er maturinn að maður sér þetta varla. Hversu almennt ísraelar fylgja trúarsiðum sínum sér maður á helgidag þeirra, sabbat, sem byrj- ar um sólsetur á föstudag og lýkur 25 klukkustundum síðar. Þá loka allar opinberar stofnanir, kvik- myndahús og leikhús og opinber samgöngutæki leggja niður ferðir. Það er vinna að aka bíl, en samt aka menn sínum eigin bilum á sabbatdaginn. Heittrúaðir snerta ekki á neinu, aðrir fara í samkunduhúsið og koma á eftir saman til fjölskyldumáltfðar. Fjölskyldubönd eru sterk hér og stórfjölskyldan hittist gjarnan á sabbat-daginn. Enn aðrir fara bara í samkunduhúsið og bregða sér svo á eftir á stiöndina. En

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.