Morgunblaðið - 04.07.1984, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 04.07.1984, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 1984 35 Frá krossfaraborginni Accra. Þar stendur nafnið Sigurður Jórsalafari á vegg, skrifað upp á íslenzku. Svo þar hefur hann farið um á leið sinni til Jerúsalem fyrir 1.000 árum. Dauðahafinu, sem er lægsta stöðuvatn á jörðu, 400 m neðan sjávarmáls, og upp í 800 m hæð yfir sjávarmáli í Jerúsalem. Ekið fram hjá hellunum við Dauðahaf- ið, þar sem handritin fornu fund- ust árið 1947 upprúlluð innan i strámottu í leirkrukkum. Þannig höfðu þau geymst í 2.000 ár, þar til geitahirðir fann fyrstu krukkurn- ar. Þeir sem þarna bjuggu höfðu lifað á því að skrifa söguna á leð- urhandrit og falið þau vegna yfir- vofandi innrásar Rómverja. Þessi handrit eru mesti fjársjóður Gyð- inga og hefur verið byggt yfir þau sérstaklega í ákaflega sérkenni- legri og gullfallegri byggingu í safninu f Jerúsalem, þar sem þau eru til sýnis eða hluti af þeim. Þegar ég skoðaði þau var þar eitt til sýnis sem hefur að geyma siða- reglur Gyðinga. Stórfenglegt að sjá hvernig ísraelsmenn rækta rætur sínar. Þarna og alls staðar annars staðar í söfnum þar sem sögu þeirra, gamla og nýja, er að finna, eru hópar af skólabörnum með kennurum sínum að kynna sér, skrifa hjá sér og komast i snertingu við sögu sína. Mætti vera til eftirbreytni. Muna fortíð og lifa í nútíð Sögu fólksins i landinu nú má engu síður víða finna. í háskólan- um i Tel Aviv er m.a. sérstakt safn Diaspora, sem sýnir hvaðan Israelsmenn komu sem nú byggja þetta land. En Diaspora nefnast þeir Gyðingar, sem eru innfluttir víðs vegar að úr heiminum, komu til ísrael frá 70 þjóðlöndum. Sabra eru aftur á móti þeir Gyðingar nefndir, sem fæddir eru í landinu helga, og er nafnið dregið af kakt- usávexti nokkrum, sem er harður að útan og mjúkur að innan. í þessu safni má sjá hvernig Gyð- ingar dreifðust um allar jarðir en héldu samt áfram að vera ein fjöl- skylda, tíðkuðu alltaf og alls stað- ar umskurð og reistu sér sam- kunduhús opinberlega eða i felum þegar þeir voru ofsóttir. Enginn Gyðingur er annað á helgidögum en Gyðingur, hvar og hvenær sem er. Eru þarna líkön af samkundu- húsum í hinum ýmsu löndum, það nýjasta frá Kína. Og þarna er sagt frá fyrsta gettóinu frá 17. öld, þeg- ar í fyrsta skipti var ákveðið að loka Gyðinga af í sérstökum hverfum. Alls staðar eru hópar af börnum að skoða og skrifa. Þetta safn hefur fengið mörg verðlaun. Þar eru upplýsingaklefar með tölvum og upptökutækjum, þar sem hægt er að bera fram spurn- ingar og fá svör, m.a. fá nöfn Gyð- inga um allan heim á prenti, myndbönd o.s.frv. En orðtæki Gyðinga i ísrael er: Að muna fortíðina Að lifa í nútiðinni Að treysta á framtíðina. Ekki hafa þeir heldur gleymt útrýmingunni, sem nefnd er Holo- caust, þegar nasistar útrýmdu 6 milljónum Gyðinga, þar af hálfri milljón barna, þriðjungi af Gyð- ingum í Evrópu. Og er óhugnan- legt að koma i safnið um það i Jerúsalem með minjum og minn- ingum sem sifellt eru endurnýjað- ar með myndum og gögnum sem finnast um hörmungar Gyðinga. Nöfn allra þeirra, sem vitað var um, eru skráð þar. Þurfa kannski ekki safn, það eru svo margir sem eiga enn um sárt að binda. Ein úr okkar hópi, bandarísk kona, fór afsíðis þar til að gefa upp nöfn ættingja manns síns, sem hurfu í Auswitz-fangabúðunum. Vissi ekki hvort þeir hefðu frétt af þeim. Annar Bandarlkjamaður, kominn af pólskum ættum, hafði tiltölulega nýlega frétt frá ætt- ingja í Marseilles að öll fjölskylda föður hans, sem slapp til Ameríku, hefði horfið. Faðir hans talaði aldrei um þetta við börn sín, sem ekki vissu einu sinni að hann var af auðugri fjölskyldu landeigenda i Póllandi og hafði flúið. I Haifa komumst við enn í snertingu við þessa miklu hrakn- ingasögu nútíma Gyðinga í sjón- minjasafni, sem fjallar sérstak- lega um innflytjendurna, er streymdu inn í landið i hafnar- borginni Haifa, og á ströndinni þar í kring á árunum 1934—1948, meðan Gyðingum var meinað af Bretum að komast inn i landið. Frá því tók að fréttast hvað væri að gerast i Þýskalandi og þar til Israelsríki var stofnað komust 122 þúsund Gyðingar ólöglega inn í landið, þar af 107 þúsund með skipum af sjó. Á safninu er eitt af þessum skipum „Af A1 Pi Chen“, sem kom með 434 manns. Alveg ótrúlegt hvernig fólkið lifði af í hillum í lestinni — manni varð sjálfum ómótt við að fara þar niður í hitanum. Mörg skipanna voru tekin af Bretum og fólkið flutt í fangabúðir til Kýpur, jafn- vel til baka til Þýskalands. Ein frægasta sagan af Exodus, sem þeir tóku og sendu flóttafólkið til Þýskalands. Það vakti loks svo mikla mótmælaöldu i heiminum, að málið um eigið ríki fyrir þetta fólk í ísrael var tekið fyrir og samþykkt hjá Sameinuðu þjóðun- um í maí 1948. Sagan ekki þar með búin, sem alkunnugt er. Þess má geta til gamans, að mér var sagt frá því að nýlega hefði verið sýnd í sjónvarpinu í ísrael fræðslumynd um stofnun frjáls ríkis í ísrael fyrir 36 árum. Þar sést atkvæðagreiðslan hjá Sam- einuðu þjóðunum, þar sem Island (Thor Thors) var eitt af löndunum sem fyrst greiddi atkvæði með því. Þessu gleyma Israelsmenn ekki. — E-Pá. sykurlaust appelsín fl' íé M M t I II Med nvju sætuefni Nutra-Sweet f n ^ sem skilar sama gamia góda i . appeLsínubragðinu I án eítirkeims. \ f f . ’ rlt i Sgils SSírlaustI f OSiHEUDURl tnna * w sykurlausa

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.