Morgunblaðið - 04.07.1984, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 1984
37
2,4 lítrar af 100% vínanda miðað
við 4% styrkleika. Og miðað við
það að bjórinn auki aðra neyslu
áfengis eins og annarstaðar gerist
þá yrði stutt í það að neyslan hér á
landi miðað við 100% vínanda
muni tvöfaldast. Það hafa vinir
okkar Finnar orðið að reyna því
miður. Að halda einhverju gagn-
stæðu fram er aðeins beinn eða
óbeinn áróður þeirra, sem hag
hafa af sölu áfengis.
Boð og bönn
öll viljum við boð og bönn á
mörgum sviðum og tæpast mun
heimili vera til, sem ekki setur
upp boð og bönn innan sinna
veggja. Boð og bönn í áfengismál-
um eru m.a. takmörkun sölu
áfengis við áfengisverslun, verð-
lagning, skömmtun, hverjir mega
kaupa, takmörkun á fjölda vín-
sölustaða o.m.fl. í þessu eigum við
samleið. En menning í sambandi
við áfengisneyslu er hvergi til og
hefur aldrei verið til eftir mínum
skilningi á orðinu menning, því
orði geta ekki í mínum huga fylgt
böl, sjúkdómar og dauði eins og
fvlgir áfengisneyslu allra þjóða.
Afengisneyslan, sem almenn
neysla er engin nauðsyn, hörm-
ungarnar, sem af henni leiða þurf-
um við ekki að kalla yfir okkur.
Höfum kjark til að gefast ekki upp
í baráttunni gegn þeim bölvaldi.
jPhilips bíltæki. Sambyggt útvarps- og segul-
bandstækiFM-LW-MW. Verð frá kr. 7.547.-
ISambyggð
útvarps- og segulbandstæki mono^
Verð frá aðeins kr. 3.573,-
Philips kasséftur í öllum gerðum, langtum
ódýrari en þig grunar.
' Til dæmis C-60 aðeins á kr. 49.-
Ef þú kaupir fyrir meira en 4.999 krónur
gerumst við ótrúlega sveigjanlegir
í samningum.
Láttu reyna á það!
Heimilistæki hf
Félag dráttarbrauta og skipasmiðjæ
skipa-
Verkefnastaða
smíðastöðva afar tvísýn
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá Fé-
lagi dráttarbrauta og skipasmiðja:
Aðalfundur Félags dráttar-
brauta og skipasmiðja 1984 var
haldinn í Reykjavík í maí sl. Á
fundinum kom m.a. fram, að verk-
efnastaða skipasmíðastöðvanna
væri afar tvísýn um þessar mund-
ir. Sumar stöðvanna væru i þann
veginn að verða verkefnalausar,
en aðrar hefðu verkefni til örfárra
mánaða. Benti aðalfundurinn á
nokkrar leiðir til að leysa brýn-
asta vanda skipaiðnaðarins. Á að-
alfundinum flutti Kristján Ragn-
arsson, formaður Landssambands
íslenskra útvegsmanna, erindi.
Fjallaði hann þar um stöðu út-
gerðarinnar og möguleika á
endurnýjun fiskiskipaflotans.
Lagði Kristján áherslu á að nán-
ast enga nýsmíði fiskiskipa ætti
að heimila hér innanlands næstu
árin. Af hálfu fulltrúa skipa-
smíðastöðvanna var viðurkennt að
svigrúm til endurnýjunar fiski-
skipa sé fremur takmarkað um
þessar mundir, þótt endurnýjun-
arþörf fiskiskipastólsins sé orðin
afar aðkallandi. Það svigrúm, sem
þó sé fyrir hendi til nýsmíða og
viðhalds á flotanum, beri að nýta
að fullu, og tryggja að þau verk-
efni verði unnin af íslenskum
höndum. Það sé óumdeilanlega
hagfelldari kostur að sjá stöðvun-
um fyrir nokkrum verkefnum, til
að tryggja áframhaldandi starf-
rækslu þeirra, en að reyna að
byggja þessi fyrirtæki á nýjan
leik, þegar enn ein endurnýjun-
arbylgja fiskiskipa tekur að rísa. 1
ályktun aðalfundarins er lögð
áhersla á, að hagsmunir útgerðar
og skipaiðnaðar fari saman. Þar
segir m.a. orðrétt:
„Sjávarútvegurinn hefur gegnt
lykilhlutverki í gjaldeyrisöflun fs-
lendinga. Því er brýnt, að þessi
mikilvægi atvinnuvegur sé jafnan
svo búinn, að hann geti haldið
stöðu sinni á erlendum mörkuðum
og bætt hana. Eitt af lykilatriðum
til að tryggja það, er að fiskiskipa-
stóll íslendinga sé jafnan sem
hagkvæmastur í rekstri og svari
að öðru leyti öllum nútímakröfum
sem til fiskiskipa eru gerðar. Allir
vita, að langur vegur er frá því, að
þessu skilyrði sé nú fullnægt. Mik-
ill taprekstur útgerðarfyrirtækja
á undanförnum árum hefur komið
í veg fyrir eðlilega endurnýjun
fiskiskipaflotans, og þar með
hamlað gegn því, að aukinni hag-
ræðingu og hagkvæmni við veiðar
og meðferð afla um borð hafi verið
náð. Þá hefur þetta ástand flotans
orðið til að vekja upp umræður um
öryggis- og aðbúnaðarmál sjó-
manna og nauðsyn þess, að þeim
málum sé komið i viðunandi horf.
Það er forsenda afkomu og við-
gangs útgerðar, að efnahagsmál-
um sé hagað á þann veg, að eðli-
lega rekin útgerð geti endurnýjað
skipakost sinn og staðið við skuld-
bindingar, sem rekstri fylgja.“
Á aðalfundinum var Jón Sveins-
son endurkjörinn formaður Félags
dráttarbrauta og skipasmiðja.
Aðrir í stjórn eru Jósef Þorgeirs-
son, varaformaður, Þórarinn
Sveinsson, Gunnar Ragnars og
Gunnlaugur Axelsson. Aðalfund-
urinn heiðraði sérstaklega þá
Bjarna Einarsson, forstjóra
Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur
hf., og Þorgeir Jósefsson, fyrrver-
andi forstjóra Þorgeirs og Ellerts
hf., Akranesi, fyrir áralöng og
giftudrjúg störf í þágu íslensks
skipaiðnaðar.
V^terkur og
k-/ hagkvæmur
auglýsingamióill!
T/IRAR
Philips hljódmeistarihn
Imeð steríó-útvarpiog kassetw^&gji
LW - FM - MW Verð aðeins kr. 5.9
Tilvalinn í breakið. Ótrúlegt úrval.
H I T
Philips ferðatæki í fararbroddi LW - MW.
'Verð frá aðeins kr. 799.-
FM - LW - MW tæki frá kr. 1.440.-
'Philips vasa-diskó.
ótrúlegur kraftur. Verð kr. 3.490
Pill V. Daníelsson er forma&ur HAFNARSTRÆTI 3 - 20455- S/ETÚNI 8-15655
Landssambandsins gegn áfengis-
bölinu.