Morgunblaðið - 04.07.1984, Side 13

Morgunblaðið - 04.07.1984, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLl 1984 45 hindra samskipan. Þess vegna er mikilvægt að menn reyni í sam- einingu að koma sér saman um þau skilyrði sem þurfa að vera fyrir hendi til þess að samskipan verði að veruleika. í þessu sambandi er skipulagn- ingin aðalatriðið. Við verðum að vera viss um, að ekki verði gengið út frá því að fötlunin sé meiri en hún raunverulega er. Einnig er nauðsynlegt að fatlaður nemandi fái tækifæri til að aðlagast á fé- lagslegum grundvelli, sem ekki er stjórnað af þeim takmörkunum sem skilningur hans og sjálfsvit- und ákvarða. Það er jafnan samhengi milli gæða kennslu og menntunar kenn- ara. Þess er því vart að vænta, að grunnskólakennarar með almenna kennaramenntun og grunnmennt- un í sérkennslu geti að svo búnu valdið því stóra verkefni að kenna hóp af börnum þar sem innan um eru börn sem eiga við sérstök vandamál að stríða í námi sínu. Nauðsynlegt er að i framtíðinni verði tekið mið af þeim manngerð- um sem við sérkennslu eiga að fást, eins og gert hefur verið i Kennaraháskólanum i Þránd- heimi. Sérkennurum er ætlað að geta skoðað sérþarfir barnsins i kennslu og líta á skólasystkini og félagslif bekkjarins sem ákaflega mikilvægan þátt. Það er mikil- vægt að við íhugum vandlega hvers konar kennarar það eru sem okkur vantar þegar þessar breyt- ingar á skólakerfinu taka gildi. Samræming og samvinna Orðin samræming og samvinna verða að vera lykilorðin í þvi sem við komum tii með að vinna að i framtíðinni. Mér er enn minnis- stæð móðirin, sem i örvæntingu sinni tilkynnti mér að ég væri sex- tándi sérfræðingurinn sem hún hefði rætt við. Það er eitthvað athugavert þeg- ar kerfið megnar ekki að sam- ræma þá aðstoð sem í boði er og þegar ekki er um svo mikið faglegt traust að ræða milli manna, að þeir megni að sjá út fyrir þann ramma sem þeirra eigin fræði- grein markar! Þetta á jafnt við um lækninn, þann sem sér um félags- leg málefni i kerfinu, skólasál- fræðinga, kennara og uppeldis- fræðinga sem starfa á dagstofn- unum. í samvinnunni með fatlað barn verðum við að sýna hvort öðru traust, þannig að við getum, án þess að missa okkar eigin faglega grundvöll, komið til móts við hugmyndir hvors annars. Sam- vinnan er því algjört lykilatriði í því starfi, sem við erum að reyna að vinna. Framtíðarhorfur Það sérkennslufræðilega og sálfræðilega starf sem unnið hef- ur verið í sveitarfélögunum Had- sten, Hinnerup og Rosenholm hef- ur sýnt, að skorturinn á sér- kennslu er um þessar mundir stærsta vandamálið. Þá er átt við skort á sérkennurum, sem ekki einungis einblína á hið sérstæða við fötlunina, heldur hafa einnig tilfinningu fyrir samspilinu við nánasta umhverfið í vinnu sinni og skipulagningu hennar. Hér lítum við á menntunarein- veldi ríkisins sem einhvers konar hindrun í viðleitni sveitarfélag- anna að fara eftir samþykkt þingsins frá árinu 1969. Sveitar- félögin hafa sjálf skipulagt sér- kennslunámskeið sem heyra undir svokallaða Ráðgjafaþjónustu skólasálfræðinga. Þetta er samt sem áður ekki nóg, m.a. vegna þess að námskeiðin eru ekki fullnægj- andi. Það er kannski of sterkt til orða tekið að okkur finnist við hafa verið svikin, en þegar við hófum starf okkar í þessum þremur sveitarfélögum, við að aðlaga fötl- uð börn skólakerfinu, vorum við þess fullviss, að í kjölfarið fylgdi frekari kennsla fyrir sérkennara. Það gerðist ekki. Þess vegna langar mig að benda á hér, að í þeim sveitarfélögum sem ég hef yfirumsjón með, væri hægt að koma á fót „menntunar- stofnun", þar sem fram færi nokk- urs konar tilraunastarf og sveit- arfélögin sjálf hefðu tækifæri til að fá fram þá kosti sem sérhverj- um kennara er nauðsynlegt hafa. Þetta gæti einnig gerst i samvinnu við fleiri sveitarfélög. Þessi framkvæmd gæti verið í samræmi við 9-punkta ákvörðun þingsins frá árinu 1969 og vænt- ingar þær sem fólust í breytingum á starfsemi sveitarfélaganna. Þetta myndi bæta sérkennslu fyrir börn í skólum og það myndi einnig auka möguleika á því, að flýta því verkefni sem lögin frá 1969 kveða á um, að það skuli vera einn og sami skóli fyrir alla. (Úr ritinu Psykisk utveckl- ingshámning, nr. 1, 1984. Þýtt-EJ) Hrefnuveiðar ganga þokkalega Talsvert um hrefnu fyrir Norðurlandi HREFNUVEIÐAR hér við land hafa gengið þokkalega að sögn Þórðar Eyþórssonar, deildarstjóra í sjávarútvegs- ráðuneytinu. Ekki liggja enn fyrir tölur um veidd dýr, en veiðar máttu hefjast 20. maí síðastliðinn. Leyfilegur heild- arkvóti á þessu ári er 177 dýr, sem skiptist milli 9 báta. Hafa menn orðið varir við talsvert af hrefnu fyrir Norð- urlandi. Þórður sagði, að heildarkvót- inn skiptist misjafnt milli báta eftir reynslu samkvæmt sam- komulagi við eigendur þeirra, þannig að þeir fengju úthlutað frá 9 upp í 35 dýr hver. Miðaðist sú úthlutun við 173 dýr alls. Fyrirkomulag veiðanna væri síðan með þeim hætti, að kvótar giltu til 15. ágúst. Þeir, sem náð hefðu sínum hlut fyrir þann tíma, yrðu að bíða þess dags, en eftir hann væru veiðar á því, sem eftir væri, gefnar frjálsar þar til heildarfjölda væri náð. Sagði hann, að heildarkvótinn hefði ætíð náðst síðustu ár enda færi hann sífellt minnkandi. Nú mætti veiða 177 dýr, en á næsta ári yrðu þau líklega 155. Tveir bátar frá Brjánslæk hafa leyfi til hrefnuveiða, einn frá Súðavík, fjórir frá Blöndu- ósi, einn frá Árskógssandi og einn frá Þórshöfn. I þessu til- felli er miðað við vinnslustöðv- ar, ekki heimahafnir bátanna. Hrefnan er bæði verkuð á inn- anlands- og utanlandsmarkað. V^terkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiðill! jVVov0imM*xfoifo Nýtt Ferðamálaráð skipað: Kjartan Lárusson forstjóri Ferða- skrifstofu ríkisins formaður Samgönguraðherra hefur skipaö nýtt Ferðamálaráð. Kjartan Lárus- son forstjéri Ferðaskrifstofu ríkisins var skipaður formaður í stað Heimis Hannessonar. Ferðamálaráð er skipað til fjög- urra ára frá og með 1. júlí. Sam- gönguráðherra skipar þrjá menn án tilnefningar en ellefu aðra eftir tilnefningum ýmissa aðila. Auk formannsins skipaði ráðherra Ólaf Steinar Valdimarsson ráðu- neytisstjóra í samgönguráðuneyt- inu sem varaformann í ráðið og Konráð Guðmundsson hótelstjóra Hótel Sögu en þeir áttu báðir sæti í ráðinu fyrir. Aðrir í Ferðamálaráði eru: Skarphéðinn Eyþórsson fram- kvæmdastjóri Hópferðamiðstöðv- arinnar fyrir Félag hópferðaleyf- ishafa, Böðvar Valgeirsson for- Kjartan Lárusson nýskipaður for- maður Ferðamálaráðs. stjóri Ferðaskrifstofunnar Atl- antic fyrir Félag íslenskra ferða- skrifstofa, Birna Bjarnleifsdóttir leiðsögumaður fyrir Félag leið- sögumanna, Agúst Hafberg for- stjóri Landleiða fyrir Félag sérleyfishafa, Lárus Ottesen fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrir Ferðafélag íslands, Sigfús Erlingsson framkvæmdastjóri fyrir Flugleiðir, Jón Gauti Jóns- son framkvæmdastjóri fyrir Nátt- úruverndarráð, Logi Kristjánsson bæjarstjóri í Neskaupstað fyrir Samband íslenskra sveitarfélaga, Bjarni I. Arnason forstjóri Brauð- bæjar fyrir Samband veitinga- og gistihúsaeigenda, Magnús Odds- son markaðsstjóri Arnarflugs fyrir önnur flugfélög en Flugleiðir og Hákon Sigurgrímsson fram- kvæmdastjóri fyrir Stéttarsam- band bænda. í þök og veggi Sparið peninga með minni byggingar- og viðhaldskostnaði og lægri kyndingarkostnaði. Þak- og veggeiningar: Stálplötur beggja megin með pólýúreþaneinangrun á milli. Hentar sérlega vel fyrir verksmiðjuhús, vélageymslur, gripahús o.m.fl.________ Sparið tíma með styttri byggingartíma og varanlegum frágangi. Framfaraspor - framtíðarlausn • Færri ásar • Léttari burðargrindur • Styttri byggingartfmi • Minni viðhaldskostnaður • Lægri kyndingarkostnaður — Hringiö eöa skrifiö efflr íslenskum bæklingi '^BORKUR hf ( 9 HJALLAHRAUNI 2 • SlMI 53755 • PÓSTHÖLF 239 • 220 HAFNARFIRDI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.