Morgunblaðið - 04.07.1984, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 1984
49
Ljósm.: RAX
Texti: HBJ
Gert að. Bændur og
búalið i Kelduhverfi
vinnur við slátrunina
þá daga sem hún er,
og fær með því kær-
komnar aukatekjur.
Guðmundur
Héðinsson verk-
stjóri og Margrét
Schram að
pakka laxi fyrir
Bandaríkjamark-
að.
Fiskurinn viktaður og sfðan flokkaður eftir stærð.
Laxinn háfaður úr búrunum. ^ 8ettur f fiskikör.
Laxaslátrun hjá Isno
í Lóni í Kelduhverfi
HJÁ ísno hf. í Lóni í Kelduhverfi hefur verið slátrað 70 til
80 tonnum af laxi, en áætlaö er að slátra 90 tonnum
samtals í ár. Þegar Morgunblaðsmenn komu við í Lóni
fyrir skömmu stóð slátrun yfir. 20 starfsmenn unnu við
slátrun og vinnslu laxins, allt fólk úr Kelduhverfí. Blaða-
menn skoðuðu aðstæður og ræddu við starfsfólkið, aðal-
lega Guðmund Héðinsson verkstjóra.
Laxinn er alinn í tvö ár frá
sjógöngustærð í flotkvíum í Lón-
inu. Vex hann frá um 30 gr stærð
og upp í 3,5 til 4 kg við slátrun að
meðaltali. Aðstæður eru þannig í
Lóninu að í það rennur mikið af
ferskvatni, bæði heitu og köldu,
auk þess sem sjór flæðir inn í
það. Vegna heitavatnsins sem í
það rennur eru einstakar að-
stæður í Lóninu sem skapa
möguleika til að ala laxinn þar
bæði sumar og vetur án hættu á
undirkælingu.
Slátrað er um þremur tonnum
á dag þá daga sem slátrað er.
Þrír menn sigla á pramma út að
búrunum, háfa lax í eitt fiskiker
í einu sem þeir sigla síðan með i
land. Laxarnir berjast um með
miklum látum þegar verið er að
háfa þá, en í körin er sett kol-
sýra þannig að lætin dofna fljót-
lega. Þegar í land er komið er
laxinum slátrað með því að skor-
ið er á milli tálknanna og hann
síðan látinn synda blóðið úr sér í
kerjum með ferskvatni. Síðan er
farið með hann inn í skemmu við
Lónið þar sem hann er slægður,
þveginn mjög rækilega, hver
fiskur vigtaður og stærðarflokk-
aður og síðan er laxinn ísaður.
Þá er honum pakkað í ca 25 kg
einangraða pappakassa og settur
ís með.
Laxinum er ekið til Reykjavík-
ur að kvöldi sama dags og slátr-
un fer fram og settur í áætlunar-
flugvél sem fer til New York
daginn eftir. Norska fyrirtækið
A/s Mowi, sem á tæplega helm-
ing i ísno hf., sér um söluna og
er laxinum dreift undir merki
þeirra. Páll Gústafsson, fram-
kvæmdastjóri ísno hf., sagði í
samtali við blm. að möguleikar
væru til framleiðslu á 500 tonn-
um af laxi í Lóninu en nú stæði
yfir fimm ára tilraunafram-
leiðsla og yrðu ákvarðanir um
framhaldið ekki teknar fyrr en
að loknu því tfmabili næsta
sumar. Sagði hann að norsku
samstarfsaðilarnir hefðu mikinn
áhuga fyrir hafbeitinni, og ef
þær tilraunir, sem verið hefðu í
gangi með hafbeit, gæfu góðan
árangur gæti svo farið að lögð
yrði meiri áhersla á hana en ekki
væri hægt að stunda bæði haf-
beit og kvíaeldi i stórum stíl i
Lóninu.
Undanfarin ár hefur ísno
sleppt 20 þúsund laxaseiðum úr
Lóninu. Heimturnar hafa ekki
verið góðar, 540 laxar skiluðu sér
í fyrra, en í ár lítur vel út með
hafbeitina því á þriðjudaginn er
Morgunblaðsmenn voru á ferð-
inni i Kelduhverfi voru komnir
um 30 laxar, en á sama tima i
fyrra voru laxarnir lítið sem
ekkert farnir að skila sér til
baka. Allt var þetta þriggja ára
lax, 12 til 19 punda. Páll Gúst-
afsson sagði að ekki væri hægt
að miða við síðustu ár því þá
hefði verið óvenju kaldur sjór og
fiskur almennt skilað sér illa f
norðlensku árnar.
Handagangur í öskjunni.
Laxinn blóðgaður.