Morgunblaðið - 04.07.1984, Page 21

Morgunblaðið - 04.07.1984, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 4. JtJLÍ 1984 53 í reiði eftir dr. Benjamín H.J. Eiríksson Ég er hamslaus af reiði. Ég er reiður, fyrst og fremst vegna ósvífins og blygðunarlauss mál- flutnings manna, sem ég hafði haldið að vænta mætti af betra. Málið sem ég ætla að fjalla um er hundamálið, þótt fleira blandist i það mál áður en lýkur. Það, sem gerir mér einkum gramt í geði, er siðleysið í málflutningnum og allri málsmeðferð, hinn andlegi ræfil- dómur, sem er að baki, spillingin. Eins og svo oft sést þegar grannt er skoðað, þá byrjar málið hjá dómurunum. Þegar lögreglan vildi framfylgja hundahaldsbann- inu, og ganga að lögbrjótunum, þá sagði dómarinn nei: Eg leyfi íög- reglunni ekki að fara inn á heimili manna til þess að sækja hundana. Þar með var hundahaldsbannið ónýtt. Lögbrjótarnir voru óhultir með sitt. Með þessu gerði dómar- inn bannið óframkvæmanlegt. Rotnun hugarfars dómaranna kemur víða fram. Samúðin og verndin sem þeir skulda borgur- unum, fyrst og fremst fórnardýr- unum, eru í reynd orðnar að sam- úð og vernd fyrir glæpamennina. Lögin og borgararnir eiga það sem úti frýs. Það næsta, sem mér er minnis- stætt í þróun þessa máls, er atkvæðagreiðsla í borgarstjórn fyrir nokkrum árum. Bannið, sem verið hafði í gildi í nokkra áratugi, kom að nýju til atkvæða. Atkvæði féllu þannig: 14:11. Fjórtán voru með banni, einn á móti. Þessi eini var Albert Guðmundsson. Hann var þá tiltölulegur nýliði í borgar- stjórn. Borgarkosningar fóru þá i hönd, að mig minnir. Af því tilefni kom mynd af Albert í Mbl., fjölskyldu- mynd. Og hver heldur þú, kæri lesandi, að hafi verið á myndinni, sem einn af fjölskyldunni? Já, það er rétt hjá þér: hundurinn. Lög- gjafinn sjálfur var að sýna upp- vaxandi æsku, unga fólkinu, já, okkur öllum, hvernig umgangast eigi lögin: traðka á þeim, brjóta þau, þegar þau eru okkur ekki að skapi. Þegar ég gekk í skóla sagði kennarinn: Þú átt að hlýða lögun- um, einnig þeim, sem þú ert óánægður með. Á því byggist siðað mannfélag. En þú getur unnið að því að fá þeim breytt, ef þú vilt hafa þau öðruvísi. Þetta var hinn mikli boðskapur Sókratesar. Honum var boðið að ganga út úr fangelsinu. Þessu hafnaði hann á þeim grundvelli, að þetta væri að brjóta lög borgar- innar. Hann trúði því, að Aþena myndi standa og faíla með lögun- um. Hann vildi heldur deyja en brjóta þau. Viðhorf hundaeigend- anna er annað. Þeir eru farnir í hundana. Albert er enginn Sókra- tes. Hann vill heldur verða sér til skammar en halda lögin. Þetta stafar af því að hann veit ekki hvað skömm er né blygðun. Seinna mun ég koma að þessu atriði. Ég varð ákaflega hissa yfir því, að ritstjórar Mbl. skyldu birtu myndina. í minum augum hafði Albert snúið bakinu við borgurun- um og sýnt okkur öllum hvað hjá honum er innst inni: djúp fyrir- litning á okkur samborgurum hans. Þegar Stalín gerði þetta sama, þá sneri ég mér undan, til þess að þurfa ekki að horfa á viðbrögð þeirra samferðamanna minna, sem sleiktu út um. Næst finnst mér koma spurn- ingin um það, hvernig 14:1 geti orðið að meirihluta fyrir þennan 1. Nú er okkur boðað þessa dag- ana, að þessi eini sé orðinn að meirihluta í borgarstjórninni. Tjaldið verði sem snöggvast dreg- ið frá, og hann birtast næstu daga. Um viðhorf borgaranna er vel vit- að. Yfirgnæfandi meirihluti vill halda uppi banninu og láta fram- fylgja því. Þessi mikli meirihluti (einfaldur meirihluti á auðvitað að nægja) vill ekki láta traðka á sér. Við sem munum hundaþvög- urnar sem þustu um bæinn, og rykskýið sem fylgdi þeim, og höf- um reynslu hér og erlendis af mörgu óskemmtilegu sem fylgir hundahaldinu, svo sem óþrifnaður á götum og heimilum, dreifing sýkla, hrædd börn, hundsbit og hundgá, ill meðferð á hundum, við viljum alls ekki hundahald i Reykjavík. Það er sjálfsagt að leyfa mönnum að hafa hunda (annars segir nú Guð, að maður- inn eigi að elska náungann, vanti hann einhvern til að elska, já, og eigi að hafa þá vöntun) en þessir menn eiga þá að búa annars stað- ar, ekki i Reykjavík. Hér eru hundarnir í einu orði sagt: plága. Ég hefi lýst þeirri skoðun minni á öðrum vettvangi, að Reykjavík eigi að vera hrein borg. Hundur- inn er óhreint dýr, segir Biblían. Hann er rituelt óhreint dýr, og því bannaður Gyðingum. En það er SUrfsfólk Veggfóðrarans-Málningar & járnvara f nýja verslunarhúsnæðinu í Síðumúla 4. Tvær byggingavöru- verslanir sameinaðar TVÆR rótgrónar byggingavöru- verslanir í miðborginni, Veggfóðr- arinn hf. og Málning og járnvörur, hafa verið sameinaðar og fluttar í nýtt húsnæði að Siðumúla 4. Eig- endur hinna nýju sameinuðu verslana, sem nú heitir Veggfóðr- arinn-Málning & járnvörur, eru Einar Þorvarðarson og fjölskylda hans, en þau ráku áður um árabil verslunina Veggfóðrarann. Veggfóðrarinn-Málning & járn- vörur hefur á boðstólnum mikið úrval af byggingavörum og má nefna sem dæmi gólfefni sem unn- ið er úr hinu náttúrulega efni lin- oleum sem er frá þýska fyrirtæk- inu LDW. tlr rrélUtilkyuingn. Benjamín H J. Eiríksson „Undanfarið hafa hundaeigendur haft hægt um sig, haldið hundunum sem mest inni. Það tel ég með ráð- um gert, þeir geri þetta til þess að slæva ár- vekni samborgaranna.“ auðvitað annað mál i þessu sam- bandi. Sú óskemmtilega þróun mála, sem við höfum horft upp á, hefir áreiðanlega ekki gerzt sjálfkrafa. Ég ætla ekki að leyna þeirri skoð- un minni, að þar hafi einhver póli- tískur aflraunamaður komið við sögu, og að hann heiti einmitt Al- bert, sá Albert sem við höfum kynnzt nokkuð hér á undan. En í þessu máli er hann aðeins eins og ísjakinn, við sjáum aðeins topp- inn. Ég tel öruggt, að hann hafi gert ýmsum borgarfulltrúum til- boð, sem þeir hafi ekki getað hafn- að, og hann fengið þá til að gleyma þvi um stund, að þeir eru kjörnir fulltrúar okkar borgaranna, og þar með til að gera 1 að meiri- hluta. Það er því full ástæða til að líta á þróun fleiri mála frá því Albert kom í borgarstjórnina. Það er enn meiri ástæða til þess að gera þetta, þar sem Albet hefir enn einu sinni gengið á bak orða sinna. Þegar hann fór í ríkisstjórnina, þá sagðist hann fara úr borgar- stjórninni. En hvað skeður? Fyrir skömmu lýsti hann því yfir að hann tæki að nýju sæti sitt í borg- arstjórn. Það er eitthvað ekki laust sem rekur á eftir í borgar- stjórninni hjá uppteknum fjár- málaráðherra með ærinn vanda á höndum — jafnvel þótt hann sé búinn að bjarga vínprísum og gjaldeyrisyfirfærslum —, hjá þingmanni og eiganda ýmissa fyrirtækja, fésýslu og kaupsýslu, þvi að eins og allir geta séð, sem augu hafa, þá er Albert fyrst og fremst einn peningur. Undanfarið hafa hundaeigendur haft hægt um sig, haldið hundun- um sem mest inni. Það tel ég með ráðum gert, þeir geri þetta til þess að slæva árvekni samborgaranna. Þetta myndi breytast til muna, þegar leyfið („bannið" hans Dav- íðs) væri komið til framkvæmda. Þá fengju menn, sem finnst annaö betra, að vaða i hundaskít, og óvit- arnir nýtt sælgæti að stinga upp í sig. Sú óhæfa, sem verið er að brugga í borgarstjórn handa okkur Reykvíkingum, er því aðeins hugsanleg, já möguleg, að Davið sé farinn að taka upp háttalag Birgis ísleifs: að éta úr lófa Al- berts. Þá væri nú fyrst fyrir al- vöru farið að lækka risið á emb- ætti þeirra Knúts Ziemsens, Jóns Þorlákssonar og Péturs Halldórs- sonar. Davíð er sem sé farinn að kalla leyfi til hundahalds bann. Flest er nú hægt. En ætla sjálf- stæðismenn að láta svikara leiða Sjálfstæðisflokkinn á blóðvöllinn? Mælirinn er fullur. Burt með hundana! Dr. Beajamín HJ. Eiríksaon, hag- træðingur, var um langt irabil rídunautur ríkisstjórna um etna- bagsmál og bankastjóri Fram- kvæmdabanka íslands. Greinasafn ettir bann kom út síðastliðið hausl. JÚLÍ ÚTBOÐ RÍKISVÍXLA Skilafresturtilboða ertil kl. 14:00 miðvikudaginn 11. júlí 1984. Tilboðum sé skilað til lánadeildar Seðlabanka íslands, Hafnarstræti 10, Reykjavík, fyrir þann tíma. Útboðsskilmálar, sem eru hliðstæðir þeim sem giltu í júníútboðinu, liggja frammi ásamttilboðseyðublaði í afgreiðslu Seðlabankans, en þeir eru helstir: IGert sé tilboö í lágmark 5 víxla hvem að ■ fjárhæð kr. 50.000.- þ.e. nafnverð kr. 250.000.-, eða heilt margfeldi af því. 2. 3. Tilboðstrygging er kr. 10.000.- Útgáfudagur víxlanna er 13. þ.m. og gjalddagi 12. október n.k. A Ríkisvíxlarnir eru stimpilfrjálsir og án þóknunar. Um skattalega meðferð þeirra gilda sömu reglur og hverju sinni um innstæður í bönkum og sparisjóðum. i- Reykjavik, 3. jú/i 1984 RÍ KISSJ ÓÐUlR ÍSLANDS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.