Morgunblaðið - 04.07.1984, Síða 22

Morgunblaðið - 04.07.1984, Síða 22
54 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 1984 Álver, atvinnuleysi eða íslenskt hugvit? — eftir Rósu Eggertsdóttur Umræður manna síðustu daga og vikur hafa verið á ýmsa lund þegar talið berst að álverskosti í Arnarneshreppi. Frá sjónarhóli iundirritaðrar er það eitt sér stór- áfangi að fólk skuli nú vera farið að skiptast á skoðunum um jafn- alvarlegan hlut og atvinnuupp- byggingu héraðsins. Ef vel ætti að vera þyrfti þessi umræða að vera stöðug allt árið um kring. Nú er svo komið að hræðsla fólks við atvinnuleysisgrýluna er orðin það mikil að sumir vilja við öllu taka, jafnvel álveri við Eyja- fjörð, til að vinna bug á atvinnu- leysinu. Það er alveg rétt að at- vinna hefur ekki verið traust und- ir það síðasta í Eyjafirði og allar spár hníga t þá átt að fjölga verði störfum um 100 í iðnaði sam- kvæmt áliti samstarfsnefndar um iðnþróun á Eyjafjarðarsvæðinu ár _hvert fram til 1990. Ráðamönnum hefur löngum tekist vel upp þegar telja á fólki trú um eitt og annað. Fólki hefur verið sagt að álverk- smiðja við Eyjafjörð muni mæta aukningu fólks á vinnumarkaðinn næstu árin. Hið sanna er að fyrsti möguleiki til að hefja byggingu ál- versins mun verða 1987 og senni- lega ekki fyrr en 1988 og fyrsta byggingarárið munu aðeins 110 manns fá störf. Menn verða því að huga að árunum 1985,1986 og lík- lega einnig árinu 1987. Eða á bara að sitja með hendur í skauti í þrjú ár, greiða atvinnuleysisbætur og berjast svo um þessi 110 störf árið 1988? Stjórnvöld hafa lýst því yfir að ekkert sé á döfinni til að efla ativnnulifið í héraðinu fyrir utan álvershugmyndina. Að vonum þykja þetta ekki góðir kostir. Ýmsir eru orðnir svo svartsýnir að þeir sjá bara tvo kosti: álver og atvinnuleysi. Að mínu mati er álver fráleitur atvinnukostur fyrir Eyfirðinga. Eru ástæðurnar fyrst og fremst þrjár: mengun verður mikil, orku- verð mun ekki verða viðunandi og sem vinnustaður er álver skaðlegt heilsu manna. Mun ég lítillega skýra þessa skoðun mína betur. Mengun Þegar rætt er um álver í Arn- arneshreppi er venjulega gengið „Að mínu mati er álver fráleitur atvinnukostur fyrir Eyfirðinga. Eru ástæðurnar fyrst og fremst þrjár: mengun verður mikil, orkuverð mun ekki verða viðun- andi og sem vinnustað- ur er álver skaðlegt heilsu manna.“ út frá 130.000 tonna álveri. Er það með stærri álverum í heiminum. Álverið í Straumsvík er um 85.000 tonn. Á síðustu áratugum hafa stórstígar framfarir orðið tækni- lega séð varðandi allan hreinsi- búnað i álverksmiðjum. Menn hafa getað minnkað mengun í andrúmslofti stórlega frá því sem áður var. Er nú svo komið að hægt er að hreinsa um 97% flúors, þannig að einungis 3% fara út í andrúmsloftið. Það er við þessi 3% sem ég er mjög hrædd. Talan 3% er ekki há en sé talað um 0,7 kíló fyrir hvert framleitt tonn í verksmiðjunni kemur út talan 90 tonn á hverju einasta ári. Þetta er mikið magn. Með hreinsibúnaði tekst einnig að hefta mikið magn af brennisteini. Samt sem áður fara 360 tonn af brennisteini út á hverju ári. f greinargerð frá Fulltrúafundi Búnaðarsambands Eyjafjarðar 1. feb. 1977 segir að í Eyjafirði sé logn skráð 13% af árinu eða í sem svarar 47 daga (vísað í gögn frá Veðurstofu íslands). Hvað heldur fólk að verði um þessi efni eftir að þau eru komin í andrúmsloftið? Álver sem vinnustaður í umræðu um álver/ekki álver hefur fólk lítið rætt um hvers kon- ar vinnustað sé að ræða. Ef til vill vilja menn að „hinir" vinni í álver- inu en ekki þeir sjálfir. f Straums- vík vinna menn í menguðu and- rúmslofti. Áður en starfsmenn hefja vinnu í verksmiðunni fara þeir í læknisskoðun. Á þeim 15 ár- um sem liðin eru hafa astma til- felli orðið þar vel þekkt, einmitt hjá mönnum sem ekki höfðu astma áður en þeir hófu störf. Sl. haust var gerð úttekt á rykmæl- ingum í álverinu I Straumsvík á vegum vinnueftirlitsins. Þessa skýrslu hef ég ekki enn séð en skv. heimildarmanni mínum í álverinu í Straumsvík segir þar að vinnu- staðurinn sé í heild slæmur en ýmsir verkþættir séu verri en aðr- ir. Svo vikið sé aftur að umræddu álveri við Eyjafjörð er rætt um 470 eða 570 störf í verksmiðjunni við framleiðsluna beint. Veltur fjöldinn á því hvort rafskautin verða fengin erlendis frá eða ekki. Fari þessi rafskautavinna fram innanlands skapast fleiri störf en skv. heimildamanni minum i ál- verinu í Straumsvík þs er aðal„- skíturinn" bundinn þeim störfum. Hefur fólki þótti nóg um skitinn í kerskálunum hingað til. Orkusalan Menn eru sér þess meðvitandi að verði byggt nýtt álver þarf að byggja ný orkuver til að framleiða rafmagn fyrir stóriðjuna. Um helmingur erlendra skulda þjóðar- búsins er vegna fjárfestinga í orkuverum. Virkjanir sem þarf til að reisa 130.000 tonn álver munu kosta 12.000 milljónir. Það þarf þvi að slá eitt lánið enn á erlend- um lánamörkuðum. Álverið í Straumsvík greiðir nú fyrir hverja kilówattstund 9,5 mills. Kostnað- arverð er um 20 mills. Þú og ég, lesandi góður, greiðum mismun- inn. Ekki mun verða malað gull með slíkri orkusölu Hvaða manni dytti i hug að stofna fyrirtæki, vitandi það fyrirfram að viðskiptamaður A, sem varð reyndar til þess að hann stofnaði fyrirtækið, gæti aldrei greitt lágmarksverð fyrir vöruna, þannig að til að jafna fjármála- hliðina, seldi hann viðskiptamanni B (landsmönnum) vöruna á okur- verði til að fyrirtækið skrimti? Fram undir þetta hefur umræð- an um atvinnumál héraðsins staðnað í hugmyndinni álver/ekki álver. í Eyjafirði er fullt af hug- vits- og menntamönnum. Hins vegar virðist ekki vera eins mikið um peningamenn. Einhver sagði að landsbyggðin útvegaði 75% af sjálfsaflafé þjóðarinnar en fengi Séð inn Eyjafjörð — til Akureyrar. úr að moða einungis 25%. Hitt drægi Reykjavíkursvæðið til sín. Á að sætta sig við slíkt? Það væri fróðlegt að fá svar við því hvers vegna ekki sé einmitt fjárfest í ís- lensku hugviti. Hvar er svo frum- kvæði þeirra sem lifa og hrærast í athafnalífinu sjálfu áratugum saman? íslendingar hafa lifað af myrk- ar aldir. Það er af og frá að eitt- hvert svartnætti ríki þó svo skapa verði í héraðinu um 100 ný störf á ári. Það eru alls staðar möguleik- ar. Það þarf ekki annað en að líta á innflutningsflóðið, gjafavörur, varahlutir, plastvörur í fjallháum hlössum, kex og kökur. Hvers IJm helgina var staðfest samkomu- lag samninganefnda Vestmannaeyja- bsjar og verkalýðsfélagsins þar. Vinna hófst því að nýju í gær eftir að starfs- menn bejarins höfðu verið í verkfalli síðan á þriðjudag í síðustu viku. Samkomulagð felst i stórum dráttum í breyttri flokkaröðun, en viðmiðun eru samningar ASÍ og VSl og að sögn Ólafs Elíssonar, bæjar- stjóra í Vestmannaeyjum, er eina frávikið frá þeim samningum til- færsla starfsmanna milli launa- flokka auk þess að álagsgreiðslur á launataxta eru auknar úr 5% í 10% og í 15% eftir 6 ára starf hjá bæn- um. Síðan kemur inn tveggja launa hækkun eftir 15 ára starf viðkom- andi hjá Vestmannaeyjabæ. Ólafur sagði, að megingrundvöllur þessa samkomulags, sem náðist á föstu- daginn, hefði verið byggður á tilboði vegna ekki fjölbreyttan vefjariðn- að? Iðnað sem skapar sér sérstöðu eins og t.d. finnsku Marimekkó- vörurnar, heimsþekktar vörur. Hvers vegna að stunda gróður- húsarækt eingöngu fyrir innan- landsmarkað? Ýmis ríki I Evrópu hafa sérflugvélar til að flytja blóm milli heimsálfa. Því ekki að leita eftir erlendum viðskiptasam- böndum, nægur er hitinn í jörðu. Það eru allir vegir færir. Per- sónulega hafna ég álveri við Eyja- fjörð en bið frekar um íslenskt hugvit. Rósa Eggertadóttir býr að Sólgarði í Eyjafirði. samninganefndar bæjarins frá 23. júní. Meginkrafa verkalýðsfélagsins hefði verið sú, lágmarkslaunin, 12.660 krónur, frá 21. febrúar yrðu lægstu grunnlaun og hækkanir yrðu út frá því, þannig að allir yrðu með óskerta eftir- og næturvinnu. Um það hefði verið samið þannig að enn fengju þeir, sem væru með taxta- kaup lægra en lágmarkslaunin, greidda eftir- og næturvinnu af þeim. Aðspurður sagði Ólafur, að enn lægi ekki fyllilega ljós fyrir sá kostnaðarauki, sem bærinn yrði að bera vegna þessa samkomulags, sem næði til um 50 sumarvinnuunglinga auk um 16 fastra starfsmanna. Bæjarráð Vestmannaeyjakaup- staðar staðfesti þetta samkomuag á laugardag og á sunnudag var það samþykkt samhljóða í verkalýðsfé- laginu. Vestmannaeyjar: Verkfalli bæjar- starfsmanna lokið „Dýrlegt kemur sumar“ Loksins ljómar sól um „Sund og Voga“. Allt brosir og skín og blómin farin að anga við brautir hversdagsins. í þessum fögnuði hinna fyrstu sólskinsdaga sumarsins, langar mig til að þakka bréf, sem mér barst í hendur hérna við „glugg- ann“ á sjöundu hæðinni minni við Hálogaland. Satt að segja hef ég vitað um efni bréfsins, en aldrei gert mér grein fyrir því, fyrr en mér fannst það vera líka til mín per- sónulega. Og í landi og borg þar sem lítið er þakkað, en mikið heimt- að, vildi ég ekki vera eins hljóður um velgjörðir samfélags og for- ystufólks og flestir virðast temja sér um fagnaðarboðskap og til- hlökkunarefni til aldinna bræðra og systra, og flestir virð- ast telja sér sæmilegt. Ef við, sem nú erum í hópi hinna öldnu lítum til baka, þá er ekki langt síðan hægt var að segja, að ekkert væri gert fyrir gamalt fólk af hálfu samfélags- ins, annað en að láta það „fara á sveitina", sem svo var nefnt. Halda nokkurs konar uppboð á því, sem ekki gat hjálpað sér sjálft eða notið forsjá sinnar nánustu. Þetta var gjört einu sinni á ári, oftast að vori. Þá var vesalingum ráðstafað til þeirra, sem tóku það til árs- dvalar fyrir lægsta meðgjöf. Lítt var spurt um aðbúð og aðstöðu húsbænda og heimila, sem við því tóku, það skipti minnstu. Sjálfsagt er, að þarna var mis- jöfn aðbúð eftir manngildi og efnum húsfeðra og þá ekki síður húsfreyja. Samt er óhætt að fullyrða, að fæstir mundu trúa nú hvílíkt böl og þrautir, einsemd og niðurlæg- ing beið flestra hinna svonefndu „hornkerlinga" og „sveitarlima", sem svo voru nefndir með lítils- virðingu að ekki sé sagt fyrir- litningu. í þessum hópi voru fatlaðir, munaðarlausir, aldnir og um- komulausir. Samanburður við nútímann er svo stór, að um það finnast vart orð. Vel mætti syngja lofsöngva og þakkarljóð daglega yfir því sem unnizt hefur. Og óhætt mun að fullyrða, að þessi samanburð- ur mundi sanna, að aldrei hafa íslendingar verið eins vel kristnir og nú, ofan allra játninga og trú- arhroka talað. Kærleikurinn er Guð. Hugsið ykkur borgina, hugsið ykkur þjóðina án sjúkrahúsa, elli- og hjúkrunarheimila, án Hátúnsstofnananna og Vogs, að ekki sé fleira nefnt af þeim skrautblómstrum kristins dóms í verki, sem mæta augum hvern dag og eru hinn sanni vorgróður á guðsríkisbrautum þjóðlífsins. En það er ekki aðeins þessi hús og heimili, hæli og hjálpar- stöðvar. Það er ekki nein sérstök bygging, sem vakti mig til hugs- unar og þakka, aðdáunar og undra yfir vormerkjum hér í borginni, það er orðið svo sjálf- sagt. Það var tilkynning frá Félags- málastofnun Reykjavíkurborgar um starfið sumarið 1984. Þar er boðið til skemmtiferða innanlands og utan, fjallaferða og sólarlandaferða og dagsferða. Þar er boðið til orlofsdvala að Löngumýri í Skagafirði í sam- starfi við kirkjuna í sex hópum frá maílokum fram í miðjan september. Félagsleg aðstoð allt frá fót- snyrtingum til fjölbreyttra skemmtisamkvæma og kaffiveit- inga er til boða í fjölbýlishúsum aldraðra á Norðurbrún 1, Löngu- hlíð 3 og Furugerði 1, bæði vetur og sumar. Að ógleymdu öllu, sem unnið er í dagvistun á Dalbrautinni, Menningarmiðstöðinni við Gerðuberg, mötuneyti Droplaug- arstaða og fleiri stöðum. Auk alls þessa og miklu fleira, sem of langt yrði upp að telja er hjálp veitt í heimahúsum og heimahjúkrun frá fimm heilsu- gæzlustöðvum á svæði borgar- innar, að ógleymdu „Opnu húsi“ i miðbænum og félagslegum upplýsingum viðvíkjandi öllum málefnum aldraðra í Tjarnagötu 11 á fyrstu hæð. Samt líða margir dagar svo, að ekkert heyrist annað en kvein- stafir og barlómur um „algjöra forsmán" gagnvart vanmegna f fólki og öreigum, einkum frá - fólki, sem er í vissum stjórn- málaflokkum og vill að sér sé hossað. Sjálfsagt er enn hægt að gera betur. En gæti líka farið á annan veg. Hafin ganga aftur á bak til örbirgðar, atvinnuleysis og eymdar liðinna daga sem við þessi sjötugu munum öll. Þannig fer, ef kröfur og frekja, van- þakklæti og andleg örbirgð kemst að. Verum því samtaka I nægju- semi, virðingu og þökk, svo að komandi kynslóðir geti enn eign- ast vor í vetrarskuggum ellinn- ar. Við eigum yndislega borg, sem um aldir gæti orðið paradís sólar og sumars hins sístarfandi kær- leika á guðsríkisbraut. Reykjavík, 17. maí 1984. Árelfus Níelsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.