Morgunblaðið - 04.07.1984, Page 31

Morgunblaðið - 04.07.1984, Page 31
63 MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 4. JÚLl 1984 ekki 1300 sinnum hættulegra en malathion, en það skiptir engu máli. Það parathion sem notað hefur verið hér á landi, og fjallað er um í bæklingnum, er ethyl- parathion, og er mikiu virkara en methyl-efnið þótt ekki muni nema einum staf í nafni. Ethyl-para- thion er um 1300 sinnum hættu- legra en malathion eins og sagt er í bæklingnum, og er þá miðað við þær blöndur sem seldar eru á Is- landi (við hvað annað ætti að miða? Sjá t.d. bók eftir G.W. Ware: The Pesticide Book. Free- man and Co., San Francisco, 1978). Eftir að grein Axels birtist var haft samband við Sölufélag garð- yrkjumanna, sem er einn fárra að- ila sem hefur leyfi til að selja parathion, Óla Val Hansson, garð- yrkjuráðunaut Búnaðarfélags ís- lands, og fulltrúa í Eiturefnanefnd heilbrigðisráðuneytisins, til að fá úr því skorið hvort hér gæti verið um einhvern misskilning að ræða. Niðurstaðan var einróma sú að það parathion sem hér er á boð- stólum er ethyl-efnið, enda gangi það undir nafninu parathion, en hitt kallað parathion-methyl. (Sjá t.d. ritið Oversigt over godkendte bekæmpelsesmidler, Miljöstyrels- en í Danmark, 1983 og 1984.) Það er einkennilegt að ráðu- nauturinn og kennarinn skuli ekki þekkja efnin sem hann er að mæla með betur en raun ber vitni. Hann mætti spyrja sjálfan sig að því, hvers vegna þetta góða og tiltölu- lega hættulitla efni (að hans mati) sé yfirleitt bannað erlendis. Hvað segja vinir hans, alvöru sérfræð- ingarnir í grannlöndunum, um þetta atriði? Mæla þeir með notk- un parathions i gróðurhúsum til að fækka kögurvængjum, mjöllús og ranabjöllu, eins og Axel hefur gert á eiturefnanámskeiðum (sbr. fjölrit gefið út af Búnaðarfélagi íslands). LímborÖinn og lúsin Límborðarnir sem rætt er um í bæklingnum eru svo sem ágætir, en þetta er ekki einhlít aðferð, og kemur ekki að neinu haldi gagn- vart lús, segir ráðunauturinn. Kann maðurinn ekki að lesa? Það er skýrt tekið fram í bæklingnum að límborða má nota til að verja stór ein- og tvístofna tré (teg- undalisti fylgir) fyrir fiðrildalirfu. Þessi aðferð er góð til að verja tré sem hýsa aðeins eina tegund af fiðrildalirfu, haustfeta, og listinn sem er birtur yfir trjátegundir sýnir dæmi um slík tré. Ef lím- borðinn er settur á tréð á réttum tíma þarf ekki að óttast skemmdir að vori af völdum fiðrildalirfu. Þau tré sem talin eru upp í listan- um eru öll lúslaus nema heggur og álmur, hvort tveggja tiltölulega fáséð tré, sérstaklega heggur. Álmlúsin er erfið viðureignar, meira að segja úðun með sterku eitri dugar illa vegna þess að lúsin verpir blöðin upp og myndar skjól fyrir sjálfa sig. Eins og kemur fram í bæklingnum er nú unnið að rannsóknum sem miða að því að finna leiðir til að fækka álmlús, og vonandi skila þær árangri. Reyniviðartegundir fara stund- um illa af völdum haustfeta, sér- staklega silfur- og gráreynir. Þetta eru ágæt dæmi um tré sem má verja með lítilli fyrirhöfn, og án þess að beita eitri. Þau eru lúsalaus. Af hverju er ráðunautur- inn ekki ánægður þegar trjárækt- arfólki er bent á þetta? Hvert er markmiðið með hans vinnu? Alaskaösp, fura og greni { bæklingnum eru talin upp tré sem garðeigendur þurfa yfirleitt ekki að hafa áhyggjur af, skordýr skemma þau mjög sjaldan eða aldrei hér á landi. Þar á meðal eru alaskaösp, furur og greni. Þetta er rangt að mati Axels: „Það er al- gengt að maðkur sæki á alaskaösp og valdi þar verulegu tjóni," og „furu- og grenilús eru einhverjir verstu meinvaldar og geta gert út- af við stærstu tré ef ekkert er að gert.“ „Maðkur" sækir oft á alaskaösp, en alrangt að hann valdi tjóni. Öspin hristir lirfurnar af sér mjög fljótt, og hrein undantekning að þær nái að skemma blöð. Þegar það gerist amar yfirleitt eitthvað annað að trénu, ekki óalgengt að það sé hálfdautt af völdum veðurs. Núna líta aspir yfirleitt mjög illa út á höfuðborgarsvæðinu, en skordýr eiga þar enga sök á eins og sumir virðast halda. Orsakanna er að leita i tíðarfari síðasta árs eingöngu. Furur eru nær alveg lausar við skaðleg skordýr enn sem komið er, og því ekki ástæða til að hafa miklar áhyggjur af þeim. Undan- tekningin er furulús, hún getur farið illa með skógarfuru, jafnvel drepið stærstu tré eins og Axel bendir réttilega á. Hún sækir líka á aðrar tveggjanála furur, t.d. bergfuru, stafafuru og fjallafuru, en gerir þeim yfirleitt ekki neitt, dregur ekki einu sinni úr vexti. Þá sjaldan að það gerist er einstakl- ingurinn sem um ræðir oftast lélegur af öðrum orsökum. í Nor- egi, þar sem ráðunauturinn fær sí- na vitneskju, er furulúsin notuð sem mælikvarði á vaxtarskilyrði skógarfuru. Ef lúsin herjar á fur- urnar er skipt um trjátegund. Hvers vegna ættu íbúar á höf- uðborgarsvæðinu að hafa áhyggj- ur af furunum sínum? Þar eru ekki nema örfáar skógarfurur, leifar frá þeim tíma að furulúsin var ekki til hér, og ekki eru þær í almennri sölu núna. Fiðrildalirfur láta fururnar vera hér á landi. Á samt að halda áfram að úða þær með parathion á hverju vori? (Eða vor, sumar og haust eins og garð- yrkjuráðunauturinn hefur kennt á eiturefnanámskeiðum?) Sitkalúsin getur farið illa með grenitré, þó ekki þin eins og ráðu- nauturinn kennir. Flest greni þol- ir þó þessa lús nema sitkagreni, og dæmi eru til þess að hún hafi skemmt blágreni. Sitkalúsin barst til landsins um 1959 og olli tjóni á sitkagreni I Reykjavík 1%1 og 1964. Síðan hvarf hún og gerði ekkert af sér fyrr en 1975—1977, að hún fór illa með sitkagreni víða um Suðurland og í Reykjavík. Á þessu svæði er mikið af rauðgreni, en það sá hvergi á því. Eftir þetta fara litlar sögur af sitkalús þar til í haust að undirritaður sá skemmdir af hennar völdum í Öskjuhlíð, Hljómskálagarði og nokkrum öðrum þéttum sitka- grenilundum. Sitkalúsin skemmir tré ein- göngu að hausti og fyrripart vetr- ar hér á landi þá sjaldan að hún nær sér á strik. Hér er meindýr sem þarf að hafa auga með, en ef þörf er á varnaraðgerðum á að grípa til þeirra síðsumars eða á haustin, ekki á vorin. Árleg vorúð- Tílmæli sauðfjárveikivarna til hestamanna: Flytjið ekki hey á milli varnarhólfa HESTAMENN eni mikiö á feröinni þessar vikurnar. Siguröur Siguröarson dýralæknir vildi í tilefni þess og vegna þesN aö smitsjúkdómar sem herja á sauðfé geta hæglega borist með heyi koma á framfæri þeim eindregnu til- mælum Sauðfjárveikivarna til hesta- manna að þeir flytji ekki hey á milli varnarhólfa. Sagði Sigurður að fyrir hefði komið að menn hefðu skilið hey eftir á áningastöðum sem sauðfé hefði síðan gengið i. Hestamönnum væri heimilt að kaupa hey frá bæjum þar sem riðuveiki hefði orðið vart og gæti smit því borist með heyinu. Sagði hann að hestamenn sem færu á milli varnarhólfa yrðu að útvega sér hey á þeim svæðum sem þeir hvíldu á en nota grasköggla að öðr- um kosti. un er þvi jafnvitlaus þegar um greni er að ræða og furur. Fiðr- ildalirfur láta grenið vera. Sitka- lúsin á þvi ekki heima i þessum bæklingi, sem er beint gegn vorúð- un á höfuðborgarsvæðinu. í Morgunblaðsgrein sinni ber Axel mér það á brýn að ég þekki ekki sitkalús, og neiti að hún sé til. Hvaða tilgangi þjónar svona málflutningur? Undanfarin ár hefur undirritaður unnið að rann- sókn á sitkalús með það fyrir aug- um að afla sem bestrar vitneskju um lifnaðarhætti, útbreiðslu og skaðsemi dýrsins. Tilgangurinn er að reyna að spá fyrir um plágur og finna ráð til að verjast þeim. Til fróðleiks má benda ráðunautnum á að nú þegar vitum við nógu mik- ið um þessa lús til að geta fullyrt að hún hagar sér öðruvísi hér á landi en hún gerir i Noregi, og ætti að vera honum vísbending um að betra sé að treysta rannsóknum sem fram fara hér á landi, en taka allt gott og gilt sem lesa má af erlendum bókum. Og til þess að svara svartletruð- um kafla úr gagnrýni Axels: Jón Loftsson mun ekki rjúka til með allt sitt lið og úða Hallormsstað- arskóg þótt hann finni þar sitka- lús. Fyrst leitar hann til „sér- fróðra" manna á Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins. Ætti hann að leita eitthvað annað? Til fróðleiks má einnig geta þess að Jón hefur ekki þurft að úða eitri á plöntur í þessu stærsta skóglendi landsins (gróðrarstöðin meðtalin) í mörg ár. Hann lætur sér nægja vetrarúö- un á viðiplöntur sem fara eiga í sölu og skilar góðum árangri þrátt fyrir að Axel telji aðferðina slæma. Eiturlyfjasjúklingar Ekki er Axel sáttur við nafnið eiturlyfjasjúklingur á brekkuvíði. Það er rétt hjá Axel að brekkuvíð- ir er harðger og þolin planta, en að sama skapi þurftafrek og við- kvæm fyrir skordýrum. Undirrit- aður hefur t.d. fundið um tvo tugi skordýrategunda á þessari plöntu. Ráðunauturinn segir að brekku- víðir eigi fyllsta rétt á sér, og eigi ekki „þessa ósmekklegu nafngift skilið, enda tæplega hlutverk þeirra sem um þetta efni fjalla að dæma einstakar tegundir til dauða". Og í sömu málsgrein segir hann að það sé auðvelt að rækta brekkuvíði „vegna þess að með nútíma varnaraðferðum er mjög auðvelt að halda h'onum í lagi og úöun auðvcld". Það er einmitt þetta sem átt er við þegar sagt er að brekkuvíðir sé eiturlyfjasjúkl- ingur. En það hefur enginn dæmt hana til dauða. I bæklingnum er bent á, að þeir sem vilja komast hjá að nota eitur i garðinum eigi að reyna að velja sér trjátegundir sem auðvelt er að rækta án þess að þurfa að hafa áhyggjur af skor- dýrum. Að forðast plöntur eins og brekkuvíði. Hvað er rangt við það? Ættu garðyrkjumenn (og ráðu- nautar) ekki að veita slík ráð? Þegar vara er seld á að gera kaup- anda grein fyrir göllum. Hvað er maðurinn að segja? Síðasti hluti greinarinnar sem garðyrkjuráðunauturinn skrifar heitir „Nýjar aðferðir í vændum". í þessum kafla felast svo furðu- legar aðdróttanir og brigslanir á hendur undirrituðum að undrun sætir. Þessir tilburðir til að gera lítið úr verkum annarra eru ekki svaraverðir, en fróðlegt væri að fá að vita hvað manninum gengur til með þessum skrifum sínum. Vilja Grétar Unnsteinsson og starfs- menn hans hjá Garðyrkjuskóla rikisins skrifa undir þetta með ráðunautinum? Átti þetta að fylgja með gagnrýninni á bækl- inginn? Vonandi taka þeir minna mark á garðyrkjuráðunautinum næst þegar hann hóar þeim saman til að styðja hugarsmíð sína. Annars er ekki ástæða til að orðlengja frekar um þessar ein- kennilegu aðfarir gegn bæklingn- um. Þó er ekki úr vegi að benda á þær athyglisverðu aðferðir sem Axel beitir við smíði á niðurlagi greinarinnar. Hann tekur greinar sem undirritaður hefur birt und- anfarin tvö ár, og gerir efni þeirra að sínu. (Ég þekki mitt eigið orð- færi.) Notar það síðan til að kenna höfundi greinanna. Fyrir hverjum er verið að hræsna? Lokaorð Tilgangurinn með þessum bækl- ingi var að reyna að bæta úr því ófremdarástandi sem hefur skap- ast. Reyna að fræða garðeigendur og benda þeim á aðrar leiðir en eiturúðun. Þetta er lítill bækling- ur og rúmar því takmarkað efni. Mörgu varð að sleppa vegna plássleysis en reynt að draga aðal- atriði saman og koma þeim til skila. Áður hafa birst ítarlegar greinar um sama efni, og er sumra þeirra getið neðanmáls í bækl- ingnum. Það er ekki verið að fordæma eiturúðun í þessum bæklingi, enda kafli um úðun — það er verið að reyna að fá garðeigendur til að úöa aöeins þau tré sem eru í hættu hverju sinni og nota þau efni sem valda minnstu tjóni og minnstum óþægindum fyrir nágranna. Einn- ig er bent á leiðir sem geta í mörg- um tilfellum komið í stað eiturúð- unar. Þetta er einfaldara hér á landi en víðast annars staðar, sama hvað „færustu sérfræðingar á Norðurlöndum" segja. Ástæðan er sú að hér á landi hýsa flestar trjátegundir innan við 5 tegundir skordýra, og flestar skaðlausar. Á Norðurlöndum hýsa tré margfalt fleiri tegundir. Hér er því hægt að beita tiltölulega einföldum ráðum þótt slíkt dugi ekki erlendis, og ætti af þeim sökum að taka meira mark á islenskum rannsóknum en erlendum. Þetta gildir e.t.v. ekki um gróðurhús, þar sem vandamál- in eru lík hvar sem er í heiminum, og væri ekki úr vegi að ylræktar- ráðunauturinn, Axel V. Magnús- son, íhugaði það áður en hann boð- ar til næsta fundar. Dr. Jón tíunnar Ottósson starfar sem skordýrafræðingur í Rann- sóknastöð Skógræktar ríkisins, MógilsL $ SAMBANDSINS ÁRMÚLA3 SÍMAR 38900 - 38903 fjnr; úmt miom iflOTlMft tí.9® w ■V IOWA nJií SSiS m ZEROWATT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.