Morgunblaðið - 05.07.1984, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JÚLl 1984
Athugasemd frá rann-
sóknarlögreglustjóra
vegna fíkniefnamála
MorgunblaAinu barst í gær
athugasemd frá Rannsóknarlög-
reglustjóra ríkisins, Hallvarói Ein-
varðssyni, vegna fíkniefnamála.
Athugasemdin er svohljóóandi:
„Vegna þess sem fram hefir
komið á vettvangi fjölmiðla að
undanförnu um rannsókn og
meðferð ávana- og fíkniefna-
mála vil ég taka eftirfarandi
fram:
Við stofnun Rannsóknarlög-
reglu ríkisins (RLR) var talið
sjálfsagt og eðlilegt, að hún
hefði með höndum rannsóknir í
ávana- og fíkniefnamálum, og
var lögð sérstök áherzla á það í
greinargerð réttarfarsnefndar
fyrir frv. að lögum um RLR. 1
reynd hefir hins vegar ekki enn
orðið af þessari skipan mála,
sem væri eðlileg að mínum
dómi. Hef ég þó ítrekað lýst því
viðhorfi mínu við dómsmálayf-
irvöld. Það er alveg ljóst, að
ávana- og fíkniefnabrot tengjast
í æ ríkari mæli ýmsum alvarleg-
um hegningarlagabrotum, sem
sæta rannsókn af hálfu RLR.
Það fyrirkomulag, sem að þessu
leyti var fyrirhugað, hefði því
tvímælalaust verið til þess fallið
að efla og styrkja rannsóknir í
afbrotamálum, en við núverandi
aðstæður eru rannsóknarstörf
viðkomandi aðila svo sundruð að
þessu leyti að til skaða er fyrir
rannsókn afbrotamála."
Hjalti Dan Kristmannsson
Lést í bflveltu
í Eyvindardal
HJALTI Dan Kristmannsson,
sautján ára, til heimilis á Fáskrúðs-
firði, lét lífið er bifreið, sem hann
ók, valt í Eyvindardal skammt frá
Egilsstöðum aðfaranótt sunnudags.
Bifreiðin valt á móts við Hnútu i
Eyvindardal, við háan vegarkant,
og var pilturinn látinn er komið var
á slysstað. Einn farþegi var i bíln-
um, og var hann fluttur meðvitund-
arlaus á gjörgæslu. Var líðan hans
óbreytt er Morgunblaðið leitaði
14 bflar í happdrætti ólympíunefndar
ÓLYMPÍUNEFND íslands hefur efnt til bflahappdrættis til þess að styrkja
íslensku keppendurna á Ólympíuleikunura í Los Angeles. Keppendurnir eru
30 að þessu sinni, fleiri en nokkru sinni fyrr.
Að sögn framkvæmdastjóra ólympiunefndar Islands munar mest um
handknattleiksmennina 15. Þessari ferð fylgir mikill kostnaður og vona
nefndarmenn að ágóðinn af sölu happdrættisins komi íslensku keppend-
unum til góða.
Vinningarnir í happdrættinu eru 14 bilar, 11 Ford Eseort og 3 Ford
Sierra og er verðmæti þeirra samtals 4,7 milljónir. Dregið verður 14.
ágúst, tveimur dögum eftir heimkomu keppendanna.
Bflarnir 14 sem dregið verður um í happdrætti ólympíunefndar Islands.
Haröur árekst-
ur í Skagafirði
MikUbe, SkagarirAi, 4. júlf.
MJÖG harður árekstur varð í Skaga-
flrði um kvöldmatarleytið hinn 3. júli
er þar rákust á tvær fólksbifreiðir
neðan við bæinn Þorleifsstaði í Akra-
hreppi. Lada-bifreið úr Hafnarflrði,
sem var á leið til Akureyrar, og
BMW-bifreið úr Skagaflrði, sem var á
leið til Varmahlíðar, rákust saman á
ómerktri varhugaverðri hæð, rétt
sunnan við malbikaða kaflann milli
Varmahlíðar og Miðhúsa f Akra-
hreppi.
Okumaður BMW-bílsins var einn
á ferð og slasaðist hann illa á fótum
og baki. Fernt var i Lada-bilnum,
hjón með tvær dætur sfnar. öku-
maður Lada-bflsins slasaðist mikið
og var fluttur til Reykjavíkur til að
unnt yrði að gera að meiðslum
hans. Kona ökumanns sat frammi
og slasaðist hún einnig, svo og önn-
ur dóttir þeirra, sem sat aftur i
bílnum. Báðir bílarnir eru gjör-
ónýtir eftir þennan harða árekstur.
Brýnt er að bæta úr akstursskilyrð-
um á þessum stað. Síðastliðið
sumar var þar hörkuárekstur og oft
munar þar minnstu að illa fari.
Þórsteinn
Bfll frá Skógræktarfélagi Reykjavikur við malartekju í Rauðhólunum f gær.
Efnisnám f Rauðhól-
um stranglega bannaö
Skógræktarfélag Reykjavíkur með undanþágu
„ÞAÐ ER fyllilega ástæða til að benda á, að öll efnisvinnsla í Rauðhólum er
stranglega bönnuð. Undantekning frá þessu er, að með samningi við Skóg-
ræktarfélag Reykjavíkur mega þeir taka þarna efni, sem raunar á Iftið skylt
við Rauðhólana, og í þessu tilfelli er um að ræða menn frá þeim,“ sagði
Sverrir Seheving Thorsteinsson, jarðfræðingur og varaformaður Umhverf-
ismálaráðs, vegna ábendinga sem Morgunblaðinu hafði borist um grjótnám
í Rauðhóhim, en Rauðhólar eru sem kunnugt er friðlýst svæði.
„Skógræktin hefur leyfi til að
taka þarna moldarblendna möl og
gjall, sem er gamalt fráýtt efni úr
hólnum og má fara og þeir fá
þetta, samkvæmt samningum,
sem jafnframt felur í sér, að þeir
hafa með umhirðu og hreinsun á
Rauðhólum að gera. I þeim efnum
vinna þeir þar mikið og gott verk,
þvi það má segja að það sé aldrei
friður með Rauðhólana og á
hverju ári eru svo og svo mörg
bílhræ þarna, sem verður að fjar-
lægja," sagði Sverrir Scheving
ennfremur. „Það er því fyllilega
ástæða til að benda fólki á, að
þetta er friðlýst útivistarsvæði og
ekki leyfilegt að taka þarna efni.
En eins og ég sagði hefur verið
gerð undantekning með samningi
við Skógræktina og við gerum
okkur vissulega grein fyrir, að
æskilegt er að taka alveg fyrir
efnisvinnslu þarna og reyndar er
stefnt að því að útiloka alla vinnu
þarna, m.a. tii að koma í veg fyrir
að fólk laumist í hólana þegar það
sér aðra við efnistöku þar.“
Samkvæmt upplýsingum frá
Jóni Gauta Jónssyni, fram-
kvæmdastjóra Náttúruverndar-
ráðs, hefur á fundum ráðsins verið
fjallað um Rauðhóla og nýlega var
samþykkt að senda Umhverfis-
málaráði bréf, þar sem leitað er
álits á þeirri skoðun Náttúru-
verndarráðs, að banna með öllu
efnisnám i Rauðhólum.