Morgunblaðið - 05.07.1984, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 1984
Fundur ráðherranefndar Norðurlanda:
Tillaga að norrænni
samvinnu á sviði land-
búnaðar og skógræktar
FUNDUR ráðherranefndar Norðurlanda var haldinn í Helsingfors í Finn-
landi, 25. júní sl. Á fundinum, sem var fyrsti fundur landbúnaðarráðherr-
anna í ráðherranefnd Norðurlanda, var rætt um norræna samvinnu á sviði
landbúnaðar og skógræktar.
Jón Helgason, landbúnaðar-
ráðherra, stýrði fundinum sem
forseti ráðherranefndarinnar og
fjölluðu ráðherrarnir um tillögu
að samstarfsáætlun á sviði land-
búnaðar og skógræktar, sem emb-
ættismannanefnd á þessu sviði
hafði undirbúið. f tillögu þessari
er fjallað um skipan og fram-
kvæmd samvinnu á sviði landbún-
aðar- og skógræktar og fjármögn-
un samvinnuverkefna. Einnig er
þar fjallað um framkvæmd ein-
stakra viðfangsefna s.s. kynbætur
nytjajurta, eftirlit með heilbrigði
jurta og búfjár og prófun búvéla
og bygginga.
Landbúnaðarráðherrarnir sam-
þykktu að leggja tillöguna fyrir
33. þing Norðurlandaráðs, sem
haldið verður í Reykjatfik næsta
vetur, þar sem tillagan verður tek-
in til endanlegrar afgreiðslu.
Norrænt samstarf á sviði land-
búnaðar og skógræktar á sér
langa sögu, en það er fyrst nú, að
ríkisstjórnir Norðurlandanna
undirbúa sérstaka áætlun um
þetta samstarf. Með samstarfs-
áætluninni verður formlegri skip-
an komið á samvinnu landanna, að
því er segir í fréttatilkynningu
landbúnaðarráðuneytisins.
ÞáttUkendur í alþjóðlegu hjólakeppninni er fór fram í Búdapest f Ungverja-
landi síðustu daga maímánaðar. Talið frá vinstri: Guðmundur Þorsteinsson
og Bendt Pedersen sem önnuðust fararstjórn og þjálfun, Sævar Unnar
Olafsson og Sigmundur Kæmundsson sem kepptu á vélhjólum, báðir frá
Reykjavík, Sveinbjörn Jóhannesson og Haukur Hauksson reiðhjólakeppend-
ur frá Akureyri.
Alþjóðlegt mót f hjólreiðum:
íslenskir piltar
stóðu sig vel
FJÓRIR íslenskir pilUr tóku nýlega þátt í alþjóðlegri hjólreiðakeppni í
Búdapest í Ungverjalandi og stóðu þeir sig mjög vel. í keppninni tóku þátt 62
keppendur frá 18 þjóðum, en keppt var í flokki vélhjóla og reiðhjóla.
Haukur Hauksson og Sveinbjörn Jóhannesson, sem báðir eru frá Akur-
eyri, voru fulltrúar íslands í reiðhjólakeppninni og urðu þeir í 7. sæti.
VélhjólapilUrnir Sigmundur Sæmundsson og Sævar Ólafsson úr Reykjavík
höfnuðu í áttunda sæti í vélhjólaflokki. í keppni einstaklinga varð Haukur í
fimmU sæti hjólreiðakeppninnar, fremstur norðurlandabúa.
Keppnin var í þrennu lagi, góðakstur á sérstöku gatnakerfi innanhúss,
hjólaþrautir uUnhúss og skrifleg verkefni um umferð og umferðarreglur.
Undirbúning og þjálfun íslensku keppendanna önnuðust fararstjórarnir
Bendt Petersen lögregluþjónn og Guðmundur Þorsteinsson, námsstjóri í
umferðarfræðslu, en einnig veitti Vörður Traustason, lögregluþjónn á Akur-
eyri, aðstoð við þjálfun AkureyrarpilUnna. Alþjóðasamtök umferðarráða,
PRI, stóðu að keppninni.
1>HAH Aí
COOT
sr* roc ak* « f tcy
Togarínn CXXJT, fýrsti togarí {eigu íslendinga og jafnframt fyrsU gufuskipið með alíslenskri áhöfn. Togarinn var
keyptur í Skotlandi 1905 og var i eigu Fiskveiðihhitafélags íslands. Hann var ætlaður til veiða á innsævi og var
aðallega við veiðar á Faxaflóa.
Saga skipannæ
Gullfoss, gullskip og saltskip
SÝNINGUNNI „Saga skipanna“ í Háholti í Hafnarfirði fer nú senn að Ijúka. Á sýningunni eru 80
skipslíkön og fjöldi mynda, sem sýna þróun skipa og sögu þeirra. Þar er að fínna allt frá víkingaskipum
til varðskipa og árabátum til togara. Meðfylgjandi mvndir voru teknar á sýningunni.
Ljósm. Mbl./ Emilia.
Meðal sýningargrípa á sýningunni er þetU líkan af tein-
æríngi. Teinæringurinn er með svokölhiðu Engeyjarlagi,
en slfkt bátslag var mjög algengt Líkanið smfðaði Jens
Gestason.
Gullfoss Eimskipafélags íslands, annað skipið sem það
nafn bar. Gullfoss eldri kom til landsins 1914, en var
kyrrsettur f Kaupmannahöfn f heimsstyrjöldinni sfðari.
Sfðari Gullfossinn var smfðaður þar f borg árið 1950 og
var sektur úr landi 1973.
I
Marga óvenjulega sýningargripi má fínna á sýningunni f Háholti, þA m. Ifkan af „Gullskipinu“ fræga, Hetwapen Van
Amsterdam, sem strandaði í SkafUfellsfjörum 1667. Eigandi Ifkansins er Björgun hf., en þeir Björgunarmcnn hafa nú
lengi leitað að skipinu, í þeirri von að grafa mætti það upp. Til hægri á myndinni er saltskip, sem gert er á þann hátt,
að seglgarn er strengt á grind, sem komið er fyrir f saltlónum á Spáni. Saltið krisUllast uUn á garnið og þannig verður
til lögulegasU skip.
Berglind stóð sig með prýði
á opnunarhátfð Miss Universe
— Ungfrú Shri Lanka heltekin heimþrá og hætti við keppni
Mumi. Fión'da, 3. júlf.
Opnunarhátíð Miss Universe-
keppninnar fór fram í Miami,
Flórída sl. laugardagskvöld. Þar
létu til sín heyra ýmis stórmenni,
m.a. framkvæmdastjóri keppninn-
ar og borgarstjórinn í Miami, auk
þess sem fegurðardísirnar, 81 Uls-
ins, komu fram. Voru þær skrýdd-
ar þjóðbúningum landa sinna og
kom hver og ein fram á sviðið,
sagði nokkur orð og færði Miami-
borg gjöf frá heimalandi sínu.
Berglind Johansen, fulltrúi Is-
lands, stóð sig með prýði. Henni
mæltist vel og var skautbúning-
ur hennar glæsilegur i alla staði,
ljósblár með forkunnarfögru
stokkabelti. Verðlaun fyrir fal-
legasta þjóðbúninginn hlaut
ungfrú Indland, en hún klæddist
gullofnum sari.
Fréttaritari náði tali af Berg-
lind á sunnudag. Sagði hún aðra
viku keppninnar hafa verið mik-
inn annatíma, sífelldar æfingar
og auðvitað myndatökur. Nokkr-
ar af stúlkunum lögðust rúm-
fastar og var kennt um þreytu,
breyttu mataræði og umhverfi.
Ungfrú Shri Lanka var heltekin
heimþrá og mátti faðir hennar
fljúga til Miami og sækja hana.
Þá hafa blöðin hér birt frétt úr
þýsku dagblaði frá Köln, þess
efnis að ungfrú Þýskaland hafi
gengist undir aðgerð og látið
auka við brjóst sín fyrir keppn-
ina, en ungfrúin ber þessi um-
mæli til baka. Margt hefur drifið
á daga keppenda og m.a. gisti
Walter Mondale, forsetaefni
demókrata, á Pavillion-hótelinu
í fyrradag.
Það eina sem amar að hjá
Berglind er mýbit, sem hún varð
fyrir í sl. viku, en þá var farið
með fegurðardisirnar í bátsferð.
Léku mýflugurnar fulltrúa Is-
lands nokkuð grátt, en eftir
svefnlausa „kalda" nótt og góðan
aðbúnað er hún á góðri leið með
að ná sér.
Keppninni verður framhaldið
á þriðjudagskvöld og koma þá
stúlkurnar fram á sundfötum og
samkvæmiskjólum. Berglind
verður þá væntanlega búin að ná
sér, hún var að vanda hress og
kát og bað fyrir bestu kveðjur
heim. Þ.S.G.