Morgunblaðið - 06.07.1984, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 06.07.1984, Qupperneq 14
46 Kw(»f 4> *,T r «ViA? MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1984 HVAÐ ER AD GERAST UM HELGINA? SAFNAHÚSID, SELFOSSI: Verk Hans Christiansen HANS CHRISTIANSEN, mynd- vatnslita- og pastelmyndlr. Hún listarmaður, heldur nú sýnlngu í er opin virka daga kl. 16—22 og Safnahúsi Árnessýslu á Selfossi. um helgar kl. 14—22, en henni Á sýningunni, sem er 7. einka- lýkur á sunnudag. sýning listamannsins, eru um 40 LEIKLIST Stúdentaleikhúsiö: „Láttu ekki deigan síga, Guömundur“ Stúdentaleikhúsiö sýnir leikrit þeirra Eddu Björgvinsdóttur og Hlínar Agnarsdóttur, „Láttu ekki deigan siga, Guömundur", í kvöld og annaö kvöld kl. 20.30. TÓNLIST íslenska óperan: Söngur og vikivaki islenska óperan byrjar sumar- dagskrá sína í kvöld kl. 21 i Gamla Bíói. Á efnisskrá veröa íslensk kór- og einsöngslög, auk þekktra atriöa úr óperum og óperettum. I hlél veröur kenndur vikivaki í forstof- unni. Meöal einsöngvara í kvöld eru Ólöf Kolbrún Haröardóttir og Garöar Cortes, sem jafnframt er stjórnandi. Undirleikari er Þóra Fríöa Sæmundsdóttir. MYNDLIST Eden, Hverageröi: Verk Sveinbjörns Þórs Sveínbjörn Þór, myndlistarmaö- ur, heldur nú sýningu í Eden í Hverageröi. Á sýningunni eru 80 smámyndir, unnar í olíu, akrýl og vatnslit. Sýningunni lýkur á sunnu- dag. Akureyri: Listkynning Listkynning á verkum málarans Kristíns G. Jóhannssonar stendur nú yfir í Alþýöubankanum á Akur- eyri. Þar eru sýnd oliumálverk, sem Kristinn hefur unniö meö gömlum munstrum. Listkynningin er haldin á vegum Menningarsam- bands Norölendinga og Alþýðu- bankans. Gallerí Portiö: Myndir Stefáns frá Möðrudal Stefán Jónsson, myndlistar- maöur frá Möörudal, heldur um þessar mundir sýningu á verkum sínum í Gallerí Portinu, á Lauga- vegi 1. Á sýningunni eru um 500 verk, olíumálverk og vatnslita- myndir, sem Stefán hefur málaö á undanförnum þremur árum. Sýn- ingin er opin alla daga vikunnar frá kl. 15—20. JL-húsið: Verk Ellenar Birgis Ellen Birgis, myndlistarmaður, hefur nú opnaö sýningu í kaffiteríu JL-hússins viö Hringbraut. Sýning- in er önnur einkasýning Ellenar, en hún hefur áöur sýnt verk sín í Eden í Hverageröi. Ásgrímssafn: Sumarsýning Árleg sumarsýning Ásgríms- safns viö Bergstaöastræti stendur nú yfir. Á sýningunni eru olíu- og vatnslitamyndir, m.a. nokkur stór málverk frá Húsafelli og olíumál- verk frá Vestmannaeyjum frá árinu 1903, en þaö er eitt af elstu verk- um safnsins. Sýningin er opin alia daga, nema laugardaga, frá kl. 13.30—16, fram í lok ágústmán- aðar. Listasafn Einars Jónssonar: Sýning í safnahúsi og höggmyndagaröi Listasafn Einars Jónssonar hef- ur nú veriö opnaö eftir endurbæt- ur. Safnahúsiö er opið daglega, nema á mánudögum frá kl. 13.30—16 og höggmyndagaröur- inn, sem í eru 24 eirafsteypur af verkum listamannsins, er opinn frá kl. 10—18. Kjarvalsstaóir: Verk íslendinga erlendis frá Á Kjarvalsstööum stendur nú yf- ir sýning á verkum tíu íslenskra listamanna, sem búsettir eru er- lendis. Þeir sem eiga verk þar eru Erró, sem sendi 5 stór olíumálverk frá París, Louisa Matthíasdóttir, sem kom frá New York með um 50 olíumálverk, Kristín og Jóhann Eyfells, sem komu frá Flórída meö skúlptúra og málverk, Tryggvi Ólafsson, sem kom meö málverk frá Kaupmannahöfn, Steinunn Bjarnadóttir, sem kom meö myndbönd frá Mexíkó, og fjór- menningarnir Hreinn Friöfinnsson, Amsterdam, Þóröur Ben Sveins- son, Dússeidorf, Siguröur Guö- mundsson, Amsterdam, og Krist- ján Guömundsson, Amsterdam, en verk þeirra fylla vestursal húss- ins. Sýningin er opin daglega frá kl. 14—22. Hún stendur út júlímánuö. Gallerí Borg: Grafík, keramik, gler í Gallerí Borg viö Austurvöll stendur nú yfir sýning á grafíkverk- um og verkum unnum í keramik og gler. Einnig eru verk unnin meö rauðkrít og olíu, ásamt ofnum listaverkum. Sýningin er opin virka daga kl. 10—18 og um helgar kl. 14—18. Henni lýkur á sunnudag. Norræna húsið: Myndlist og íslenskt prjón Sænski búningahönnuöurinn Ulla-Britt Söderlund heldur nú sýningu í anddyri Norræna húss- ins. A sýningunni eru búninga- teikningar úr tveimur kvikmyndum, sem teknar hafa veriö hérlendis, „Rauöa skikkjan" frá árinu 1966 og „Paradísarheimt". Sýningin er opin á venjulegum opnunartima hússins. f bókasafni Norræna hússins er nú sýning á heföbundnu íslensku prjóni, aö mestu leyti byggö upp af munum úr þjóöminjasafni fslands. Sýningin er opln kl. 9—19 virka daga og 14—17 á sunnudögum. Sumarsýning Norræna hússins í ár nefnist „Landiö mitt, fsland". A sýningunni, sem er haldin ( sam- vinnu viö Félag íslenskra myndlist- armanna, eru 140 verk, unnin af 4—14 ára börnum úr dreifbýli og þéttbýli. Verkin fjalla um fsland, land og þjóö. Sýningin er opln daglega frá kl. 14—19 og stendur hún til 22. júlí. Laugarvatn: Verk Erlu Sigurbergs Erla Sigurbergs, myndlistar- maöur, sýnir nú 21 olíumálverk ( Menntaskólanum á Laugarvatni. Erla hefur áöur haldiö tvær einka- sýningar í Keflavík. Sýning hennar er opin alla daga vikunnar. Gallerí Djúpið: „Snúningur“ Ólafs Sveinssonar Myndlistarmaöurinn Ólafur Sveinsson heldur nú sýningu, sem ber heitiö „Snúningur", ( Gallerí Djúpinu í Hafnarstræti. Þar sýnir Ólafur 15 vatnslita- og pastel- myndir og er þetta þriöja einka- sýning Ólafs á árinu, en hann held- ur á næstunni til Flórens á ftalíu til listanáms. Sýnlngln í Djúpinu verö- ur opin til 5. ágúst. SAMKOMUR Árbæjarsafn Árbæjarsafn er nú opiö alls virka daga, nema mánudaga frá kl. 13.30—18 og frá kl. 10 sunnudaga og laugardaga. A sunnudag kl. 15.30 leikur hljómsveitin Keltar írsk þjóölög í Eimreiöarskemmunni, þar sem veitt er kaffi. Háholt: Saga skipanna „Saga skipanna, svipmyndir úr siglingum og sjávarútvegi" nefnist sýning sem nú er í Háholti í Hafn- arfiröi. Þar er sýnd þróun útgeröar á fslandi, meö ýmsum munum, s.s. skipslíkönum og myndum. Elnnig eru sýndir gripir í eigu Landhelg- isgæslunnar, t.d. klippumar frægu ur þorskastríöinu. Sýningunni lýk- ur á sunnudag. Nýlistasafnið: Phantom Portraits“ 99 NÝLISTASAFNIÐ viö Vatnsstíg sýnir nú verk hollensku listakon- unnar Henriette van Egten. Nafn sýningarinnar er „Phantom Portraits", einskonar samsettar andlitsmyndir og geta sýningar- gestir sjálfir raöaö saman siíkum myndum. Henriette býr og starfar í Amsterdam og Berlín, en hefur áöur sýnt verk s(n hér á landi, t.d. í Gallerí Suöurgötu 7 og Rauða húsinu á Akureyri. Sýning hennar í Nýlistasafninu veröur opln virka daga kl. 16—20 og um helgar kl. 16—22. Henni lýkur 15.júl(. GALLERÍ LANGBRÓK: Verk Zdenku Rusovu TÉKKNESKA listakonan Zdenka Rusova sýnir nú grafíkmyndir og teikningar í Gallerí Langbrók. Rusova stundaði nám í listaskólum í Prag, Stuttgart og Osló, þar sem hún er nú búsett. Verk hennar í Gallerí Langbrók eru 17 talsins, 6 tússteikningar og 11 grafíkverk unnin með þurrnálartækni. Sýningin er opin virka daga kl. 12—18 og um helgar kl. 14—18. Henni lýkur 15. júlí.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.