Morgunblaðið - 18.07.1984, Blaðsíða 28
60
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 1984
Gebut&o- sta)SiJ> á, c'&rum feeti f"
Ast er ...
... aðfallafyrir rómant-
íkinni.
TM Reg U S Pal Oft — all rights reserved
«1984 Los Angeles Times Syndicate
Með
morgunkaffinu
Þakkaðu þínum sæla fyrir að hætt
er að rassskella óþæga krakka.
Farðu með hjólið þitt og seldu það
á fornsölunni!
Þessir hringdu .. .
Margar ástæður
fyrir mismunandi
vörurverði á laxi
Pétur Pétursson í kjötbúrinu
hringdi og hafði eftirfarandi að
segja:
Mig langar hér með til að
svara spurningum Axels Clau-
sen, sem birtust í pistli hans um
hátt vöruverð á laxi, hér í Vel-
vakanda laugardaginn 14. júlí,
sl.
Ég vil byrja á því að benda á,
að laxinn sem Axel keypti hlýtur
að hafa verið reyktur, af verðinu
að dæma. Axel gerir verðmism-
un á laxi að umtalsefni en ef á
allar hliðar málsins er litið, þá
er sá mismunur mjög skiljanleg-
ur.
Kaupmenn kaupa laxinn af
óskyldum aðilum og er inn-
kaupsverð á honum því mjög
mismunandi. Taka verður mið af
því hvort laxinn er eldislax eða
göngulax, því sá síðarnefndi er
dýrari. Ekki skiptir minna máli,
hvort kaupmenn hafa tök á því
að verka og reykja laxinn sjálfir
eða hvort þeir þurfa að láta gera
það fyrir sig. Ekki er heldur
sama hvernig laxinn er verkað-
ur.
Sumir selja hann með beinum
en aðrir kaupmenn beinhreinsa
hann og pakka honum í loftþétt-
ar umbúðir, sem gerir vöruna
dýrari í sölu.
Loks er það til í dæminu, án
þess að ég fullyrði nokkuð um
það, að þar sem laxinn var hvað
ódýrastur, gæti hafa verið um
gamlan lax að ræða, en hann er
að sjálfsögðu mun ódýrari en
nýr.
Vona ég nú að ég hafi að ein-
hverju leyti getað svarað spurn-
ingum Axels Clausen.
Bensíntankarnir
í Hvalfirðinum
Asta Þorsteinsdóltir hringdi, og
sagði:
Fyrir skömmu lá leið mín
vestur á Snæfellsnes og vita-
skuld ók ég fyrir Hvalfjörðinn.
Þar er mikil náttúrufegurð og
jarðmyndanir sáust eins og þeim
er lýst í skólabókum, eða svo
sýndist mér þar til augun stað-
næmdust við stóru bensintank-
ana sem standa t grasigrónum
lautunum. Þar gat að líta ýmsis
vörumerki þessa dýrmæta vökva
og ekki voru það nein kotungs-
nöfn. Einnig var vel gætt að ekki
færi fram hjá neinum hver átti
hvað, því stærri auglýsingaskilti
og stafir fyrirfinnast ekki á ís-
landi. Þau voru og eru líkiega
enn í öllum regnbogans litum.
Ég veit að þessir flennumerki-
miðar hafa lengi „prýtt" tank-
ana en nú fer ég á stúfana því að
svo virðist sem ekki standi til að
fjarlægja þá eða mála.
Mig langar til að beina eftir-
farandi fyrirspurnum til for-
ráðamanna tankanna um þetta
mál.
1. Af hverju eru tankarnir ekki
hafðir nær höfuðborginni,
þ.e.a.s. ef bensínið á að nota
til almenningsnota?
2. Stendur til að fjarlægja þá?
3. Ef ekki hver er tilgangurinn
með að mála þá svona glennu-
lega, þeir eru eins og skratt-
inn úr sauðarleggnum. Væri
ekki ráð að láta þá falla betur
inn í umhverfið?
Ég mælist eindregið til að íbú-
ar höfuðborgarinnar og aðrir
sem þurfa að hafa þessa hörm-
ung fyrir augunum taki höndum
saman og kaupi málningu og gefi
eigendum þessara tanka, til að
fegra þá. Þeir gera það ekki af
sjálfsdáðum, eins og reynslan
hefur sýnt.
Séra Hallgrímur
var fluttur
af landi brott
Skagfirdingur hringdi og sagði
að ekki væri rétt frá skýrt í
grein í Morgunblaðinu 8. júlí þar
sem segir að séra Hailgrímur
Thorlacius í Glaumbæ hefði vik-
ið sér undan að syngja yfir bein-
um Sólveigar frá Miklabæ árið
1937. Sagði hann að séra Hall-
grímur hafi þá verið farinn frá
Glaumbæ, hefði flust til Noregs
1935.
Skagfirðingurinn sagðist vera
síðasta fermingarbarn séra
Hallgríms (1935) og ekki síst
þess vegna teldi hann sér skylt
að koma á framfæri leiðréttingu.
Sagði hann að séra Lárus Arn-
þórsson hefði þjónað Glaumbæj-
arprestakalli ásamt með sínu
brauði þar til nýr prestur var
kosinn þar.
Bíðum enn
eftir erlendri
hljómsveit
Strætisvagnarnir
ómetanleg þjónusta
Selfyssingur skrifar:
Kæri Velvakandi.
Mig langar til þess að beina til-
mælum mínum til listahátíðar-
nefndar í sambandi við þá
hljómsveit sem koma átti á Lista-
hátíð ’84, en er ekki komin enn. Ég
las um daginn að til hefði staðið
að einhver hljómsveit myndi koma
seinna í sumar, því að allar þær
hljómsveitir sem talað hafði verið
við, voru bókaöar þann tíma sem
Listahátíð stóð yfir.
Stendur til að fá hingað ein-
hverja hljómsveit seinna í sumar
eða á að svíkja okkur unglingana
um þennan lið Listahátíðar?
Ég veit að hljómsveitin Duran-
Duran er á hljómleikaferðalagi
um Bandaríkin í sumar. Væri ekki
möguleiki að fá þá til þess að spila
hér á íslandi þegar því ferðalagi
er lokið?
Að lokum langar mig til að bera
fram spurningu í sambandi við
hljómleikahald. Það hefur komið
fyrir að hljómlistarmenn eins og
t.d. David Bowie hafi hætt við að
hínssð íii lands. veírna hesa
að það er ekki til neitt nógu stórt
hljómleikahúsnæði fyrir þá. Væri
ekki bara hægt að halda hljóm-
leikana úti undir beru lofti? Nóg
er plássið.
Gestur skrifar:
Það gerir ekkert til þó að ég
minnist enn á strætisvagnana svo
merk og góð er sú starfsemi. Það
er oft rætt hér um ýmislegt, sem
olrlrí pr prntt hví oj ví!!
veita ölíum tækifæri til að tjá sig.
Mig langar að geta þess, að mér
finnst fólk ekki nota vagnana eins
mikið og gott væri fyrir það. Það
myndi spara mörgum mikið fé, ef
þeir gerðu það og jafnframt efla
fyrirtækið, en kannski er það úr
tisku nú að tala um að spara. Mér
hefur heyrst á mönnum að það
væri og jafnvel undirokun. Ég
Unl/J 1» 4 n X kí "»**• » * »*linrrn
• «H» -•• .......... H.I I Hin...Ta.
P** **'' t-j-*** --------------o“
þetta mál nánar.
Hvað sem þessu líður, þá er það
víst, að strætisvagnarnir eru ein-
hver sú besta og nauðsynlegasta
þjónusta sem borgarbúar fá notið.