Morgunblaðið - 29.07.1984, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 29.07.1984, Blaðsíða 18
74 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ 1984 • • Orlygsstaða- fundur Kolbeinn Sighvatsson og menn hans komnir á flótta upp úr gerðinu. En Eyfirð- ingar voru þá komnir í gerðið, og lagði Guðmundur Gíslsson til Halls úr Glaumbæ Þorsteinssonar svo að hann féll. Sighvatur gekk þá suður eftir gerðinu á mót Skagfirðingum. Hann var í bláum kyrtli og hafði stálhúfu á höfði, en öxi forna og rekna í hendi, er Stjarna hét. Hann hélt um skaftið fyrir neðan augað og sneri frá sér egginni, en veifði skaftinu. Maður mælti til hans, sá er gekk úr kvínni: „Gakktu eigi þar fram Sighvatur, þar eru óvinir fyrir.“ Hann svaraði engu og gekk sem áður. Þorvarður úr Saurbæ gekk með honum og Sighvatur Runólfsson og Sámur, hús- karl hans Þorvarðs. Árni Auðunarson gekk fram með Sighvati og hjó til beggja handa. Kolbeins menn spurðu, hví hann léti svo, lítill maður og gamall. „Ég ætla mér ekki á braut,“ sagði hann. Þeir Sighvatur fjórir féllu suður af gerð- inu. Þá kom að Björn Leifsson úr Ási og skaut skildi yfir Sighvat, en studdi hönd- um að höfði honum, því að hann var þrot- inn af mæði, en lítt sár eða ekki. Þá kom Kolbeinn ungi að og spurði: „Hver húkir þar undir garðinum?" „Sighvatur,“ sögðu þeir. „Hví drepið þér hann eigi?“ sagði Kol- beinn. „Því, að Björn hlífir honurn," sögðu þeir. „Drepið þér hann þá fyrst," sagði Kol- beinn. Björn hrökk þá í brott þaðan. Kolbeinn lagði til Sighvats með spjóti, þar er mætt- ust hálsinn og herðarnar, og varð það lítið sár, því að oddurinn var af spjótinu. Sig- hvatur mælti: „Höfumst orð við, — þér munuð nú ráða skiptum vorurn." Þá hljóp að Einar dragi og hjó í höfuð Sighvati, og var það ærið banasár, en þó unnu þá fleiri menn á honum. En er Sig- hvatur djákni sá þetta, þá lagðist hann ofan á nafna sinn og var þar veginn. Sig- hvatur Sturluson hafði sautján sár. Þá var hann á hinu átta ári hins sjöunda tugar. Árni Auðunarson lést þar við mikinn orðstír. Þorvarður úr Saurbæ var í brynju þeirri er Fulltrúi hét, og gengu ekki spjótalög á hana. Það gaf honum líf, en Kolbeinn, þá er hann kom til. Sámur lést þar. Árni var á átta tugi. Þeir flettu Sighvat öllum klæðum nema stuttbrókum. Jafnframt er að segja frá Sturlu. Hann hafði mikla aðsókn og varðist alldrengi- lega. Markús Þorgilsson hét ungur maður. Hann hljóp úr flokki Sturlu ofan á garðinn snemma fundarins. Hann var lagður með spjóti í gegnum og varðist síðan sem best. Þá fékk hann annað lag í gegnum sig, svo að út féllu iðrin og þá féll hann. Sturla hörfaði úr kvínni fyrir neðan húsið og svo vestur um. Lauga-Snorri gekk fyrir Sturlu og hlífði honum með buklara og hafði sverðið undir buklaranum, sem þá er menn skylmast. Sturla hafði sinn bukl- ara yfir höfði honum. Þá var mikil aðsókn að Sturlu, en Snorri hlífði honum en ekki sér sjálfum, og fékk hann af því mörg sár og stór, áður en hann féll. Sturla varðist með spjóti því er Grásíða hét, fornt og ekki vel stinnt málaspjót. Hann lagði svo hart með því jafnan að menn féllu fyrir, en spjótið lagðist, og brá hann því undir fót sér nokkrum sinnum. Húnröður, sonur Magnúss Húnröðar- sonar, lagði spjóti til Sturlu, en hann lagði á mót svo að Húnröður féll. Hann var lítill maður og hafði góða brynju og varð ekki sár. Þá sótti Koðrán Svarthöfðason að Sturlu og lagði til hans með spjóti. Sturla mælti til hans: „Ertu þar enn, fjandinn?" Koðrán svarar: „Hvar væri hans meiri von?“ Það segja fleiri menn að Sturla skeind- ist eigi af því lagi. Þá stóð Húnröður upp og lagði spjóti í hægri kinn Sturlu og nam í beini stað. Þá mælti Sturla: „Og nú vinna smádjöflar á mér,“ sagði hann. Þá lögðu tveir menn senn til Sturlu. Hjalti biskupsson lagði í vinstri kinn hon- um, og skar spjótið út úr tungu, og var sárið beinfast. Böðvar kampi, sonur Ein- ars nautbælings, lagði spjóti í kverkar Sturlu og renndi upp í munninn. Sturla lagði til Hjálms á Víðivöllum og féll hann við. Þá er Sturla var sár þremur sárum mælti hann til Hjalta: „Grið, frændi," sagði hann. „Grið skaltu af mér hafa,“ sagði Hjalti. Sturla var þá þrotinn af mæði og blóð- rás. Hann studdi þá höndunum á herðar Hjalta, og gengu þeir svo út af gerðinu. Hjalti tók þá annarri hendi aftur á bak Sturlu og studdi hann svo. Sturla kastaði sér þá niður, er hann kom skammt frá gerðinu. Mál hans var þá óskýrt, og þótti Hjalta sem hann beiddist prestsfundar. Hjalti gekk þá á braut, en yfir honum stóð Ólafur tottur, mágur Flosa prests. Hann skaut skildi yfir Sturlu, en Járgeir Teits- son, mágur Gissurar, kastaði buklara yfir hann. Þá kom Gissur til og kastaöi af honum hlifunum og svo stálhúfunni. Hann mælti: „Hér skal ég að vinna." Hann tók breiðöxi úr hendi Þórði Valdasyni og hjó í höfuð Sturlu vinstra megin fyrir aftan eyrað mikið sár og hljóp lítt í sundur. Það segja menn þeir, er hjá voru, að Gissur hljóp báðum fótum upp við, er hann hjó Sturlu, svo að loft sá milli fótanna og jarðarinnar. Þá lagði Klængur Bjarnason í kverkar Sturlu í það sár, er þar var áður, og upp í munninn. Var allt sárið svo mikið að stinga mátti í þremur fingrum. Þá kom Einar Þorvaldsson þar og sagði lát Sighvats. „Ekki tel ég að því,“ segir Gissur. Önundur biskupsfrændi skar púss af Sturlu og fékk Gissuri. Annar maður dró gull af fingri honum, það er átt hafði Sæmundur í Odda, dökkur steinn í og graf- ið á innsigli. Gissur tók gullið og vopn Sturlu. Markús Marðarson lagði spjóti í kvið Sturlu hægra megin upp frá nafla. Þrjú sár hafði hann á bringunni vinstra megin. Naddur hét maður er hjó á barka Sturlu. Engi sár blæddu, þau er hann fékk, síðan er Gissur vann á honum. Þórarinn Sveinsson var jafnan nær Sturlu og bar sig vel, en Gissur gaf honum grið, þá er hann kenndi hann, fyrir sakir frændsemi við Gróu, konu Gissurar. Þór- arinn þó líki Sturlu og saumaði um, en þeir höfðu áður flett líkið svo að bert var. Marteinn Þorkelsson féll skammt frá Sturlu. Kolbeinn Sighvatsson og meginflóttinn nam staðar undir hlíðinni á grjóthörg nokkrum. Þar kom til Gísli af Sandi með sína sveit, og voru þeir á hestum, og eggj- uðu menn hann ofan að hjálpa þeim í tröð- inni, og hann bað Vestfirðinga að eggja sína menn. Og þá kom Máni úr Gnúpufelli neðan að og sagði, að þeir væru báðir fallnir, Sighvatur og Sturla, og bað hann Kolbein að forða sér sem honum þætti lík- ast. Kolbeinn hljóp þá til kirkju á Miklabæ og allur flokkurinn, sumir í kirkju, en sumir í húsin. Hér er að mestu lokið frásögn Sturlu Þórðarsonar af örlygsstaðafundi. Grið voru gefin þeim, sem leitað höfðu í Mikla- bæjarkirkju, að sex undanteknum. Fyrir þeim sex var Kolbeinn Sighvatsson. Þegar griðum hafði verið lýst spurði Sturla Þórð- arson Kolbein, hvort hann vildi að þeir sem í griðum voru gengju út. Segir svo: Kolbeinn bað þá út að ganga og sagði það helst til hjálpar, ef nokkuð rýmdist í kirkj- unni, því að fólkinu hélt við spreng. Eng- um boðum Kolbeins var tekið og gengu þeir út bræðurnir Kolbeinn og Þórður, en Markús sonur Sighvats var áður fallinn. Tumi Sighvatsson var flúinn á fjall ásamt nokkrum liðssafnaði áleiðis til Eyjafjarð- ar. Segir Sturla Þórðarson svo frá, að Kolbeinn hafi mælst til þess við Gissur að hann léti sig höggva á undan Þórði bróður sínum og varð Gissur við þeirri beiðni. Þegar Þórður var leiddur undir öxina var Kolbeinn ungi spurður hvort hann vildi ekki veita sveininum grið, en Kolbeinn svaraði: „Fór sá nú, er skaði meir var að.“ Þórir jökull var með þeim síðari er vegnir voru. Hann kvað þessa kunnu vísu áður en hann lagðist undir höggið: Upp skalt á kjöl klífa, köld er sjávardrífa, kostaðu hug þinn herða, hér muntu lífið verða. Skafl beygðu ekki, skalli, þótt skúr á þig falli, ást hafðir þú meyja, eitt sinn skal hver deyja. Hermundur Hermundarson var til höggs leiddur. „Hann var manna best hærður og mælti, að hann vildi hneppa hári sínu, svo að það yrði eigi blóðugt. Óg svo gerði hann. Hann horfði í loft upp, er Geirmundur þjófur vó hann.“ Allir voru þessir menn vegnir með Stjörnu, öxi Sig- hvats Sturlusonar. Það þykir ef til vill undarlegt að Sturla Þórðarson skyldi grið hafa eftir örlygs- staðafund. í dag þykir okkur ósvinna ef blaðamenn og skráendur atburða eru vegnir við starf sitt. Má vera að nokkur skyldleiki sé þarna á milli, þótt nærri sjö hundruð og fimmtíu ár séu liðin. Ekki er ástæða til annars en ætla, að vitað hafi verið um skriftir Sturlu Þórðarsonar á þessum tíma, og þær ásamt vitundinni um vilja skrásetjara til að afla upplýsinga hjá öllum jafnt hafi borgið honum að loknum Örlygsstaðafundi. Frásögn Sturlu Þórðarsonar hér að framan er einstæð í röð fornsagna af því við vitum að hún er rituð af sjónarvotti sem í sannleika sagt átti um sárt að binda, enda féllu frændur og vinir á báðar hendur honum. Þótt finna megi undiröldu nötur- leika í frásögninni, er hún engu að síður góður vitnisburður um jafnvægi, þar sem höfundurinn hemur skap sitt og hefur þeirri frumskyldu blaðamannsins að gegna, að halda máli sínu upp úr dagshríð- inni. Nær sjö hundruð og fimmtíu árum eftir að Sturla Þórðarson stóð á Örlygs- stöðum við lok þjóðveldis á íslandi, eigum við samanburð í mönnum, sem vinna með líkum hætti og hann. Atburðir verða þeim tilefni bókmenntalegrar frásagnar þótt þeir lýsi þeim undir yfirskini blaða- mennsku. Af þeim sökum eiga þeir margt sameiginlegt með rithætti Sturlu Þórðar- sonar, sem skilar okkur enn öldum síðar ljóslifandi atburðum og orðræðum, en leita verður fyrir sér í myrkrinu eftir sanngildi helftar þess sem ritað var á lík- um tima. Stórkostleg -$-70%, Hefst á morgun -$-30% skór á alla Skóverslun fjölskylduna *20% Þórdar Péturssonar Laugavegi 95, sími 13570 — Kirkjustræti 8, sími 14181.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.