Morgunblaðið - 29.07.1984, Blaðsíða 19
MORGUNBLADID, SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ 1984
75
Regnboginn:
Löggan og geimbúarnir
REGNBOGINN hefur nú tekið til
sýninga frönsku kvikmyndina
„Löggan og geimbúarnir" eftir
Gérard Beytout í leikstjórn Jean
Girault. Með aðalhlutverk fara
Louis De Funes, Michel Gialabru
og Maurice Risch, auk annarra.
Söguþráðurinn er á þá leið að lög-
reglumaður i Saint-Tropez rekst á
fljúgandi disk í rjóðri skammt
utan borgarinnar. Enginn trúir
sögu hans um diskinn, fyrr en
diskurinn verður á vegi fleiri
manna og lögreglumaðurinn er
fenginn til að kanna málið.
Úr fréttatilkynningu.
Hellissandun
„Frystihúsiö vonandi tilbúið um áramótin“
Á DÖGUNUM var rætt við Ólaf
Rögnvaldsson, fréttaritara Morgun-
blaðsins á Hellissandi, og hann spurð-
ur frétta þaðan. Hann sagði að engar
gatnagerðarframkvæmdir væru á veg-
um bæjarins í sumar. Hins vegar væri
verið að snyrta og ganga frá ýmsu sem
unnið hafi verið á undanförnum árum.
„Uppbygging frystihússins er nú í full-
um gangi,“ sagði Ólafur „og stefnt er
að því að það verði tílbúið um áramót-
in. Veríð er að Ijúka við innveggi og
frystiklefa og einnig er verið að vinna
í kæligeymslum. Fljótlega verður hægt
að setja upp frystitæki o.fl.
Flestir bátar voru búnir með
kvótann í vor og hafa nú snúið sér
að öðrum veiðum, t.d. kolaveiðum.
Þrír bátar verða á kolaveiðum og
eru þeir um það bil að hefja þær nú.
Einn bátur er á rækjuveiðum. Smá-
bátar hafa fiskað mjög vel að und-
anförnu. Atvinna hefur verið nóg og
er séð fram á að svo verði áfram.
Veðrið var ágætt framan af
sumri, en að undanförnu hefur verið
leiðindaveður, suðvestan úði og
rigning. Heyskapur gengur erfið-
lega og hefur ekkert náðst inn af
heyi enn sem komið er. En menn eru
bjartsýnir og vona að bráðlega fari
að snúast til norðanáttar.
Aðspurður um ferðamanna-
straum á Hellissandi sagði ólafur
að þarna færu í gegn fleiri rútur á
dag og væri áberandi hvað mikið
væri um erlenda hópa. Umferð
ferðamanna um bæinn væri með
mesta móti í sumar.
vel um. Það er nefnilega ekki heiglum
hent að velja rétt Nissa
súkkulaöi.
Ef farið er nákvæmlega eftir
neðangreindum upplýsingum
ættu þó allir að komast hjá því
að gera vitleysu.
Veldu íslenskt. . . ef það er betra!
Nafn sitt dregur súkkulaðið
af ítölsku þorpi á Sikiley.
Þrátt fyrir að zetan
hafi verið gerð útlæg úr íslensku
máli hefur hún haldið
velli á Nizzanu.
Nafn og merki framleiðandans
utan á umbúðunum ættu að
auðvelda mönnum að
forðast eftirlíkingar.
Örþunnur og velvandaður
svissneskur pappír úr áli.
/1? <r ¥ * # w n
Hver einasti biti er sérstaklega
gæðastimplaður. Ef stimpilinn
vantar tekur Nói Sírius enga ábyrgð
á gæðum súkkulaðisins, enda gæti
verið um vöru frá öðrum
framleiðendum að ræða.
Rauðgulur grunnlitur umbúðanna
táknar, að innihaldið sé allslaust
rjómasúkkulaði.
Öfundargrænt Nizza býr yfir
umtalsverðu magni af
landbúnaðarafurðum Jimmy Garters,
— he6ilhnetum.
Nizza með rúsínum ber
upprunalegan lit rúsínanna,
vinberjabláan.
Mönnum ber ekki saman um hvort
stykkið er fjólublátt, vinrautt, bleikt
eða einhvern veginn öðru visi á
litinn. Þess vegna er öruggara að
biðja bara um Nizza með hnetum
og rúsinum.
Súkkulaðibrúnt Nizza sækir
bragðkeim sinn alla leið suður til
Suður-Ameríku. Samt er þetta ekki
suöusúkkulaöi, heldur ekta Mokka
úr Arabica kaffibaunum.