Morgunblaðið - 29.07.1984, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ 1984
79
Stella undirbýr gestamóttöku,
hitar vöfflujárniö og hrærir í
deiginu.
Búskapur Stellu
Unga daman á meðfylgjandi myndum heitir Stella Stef-
ánsdóttir og hún býr á Rein í Reykjahreppi í S-Þingeyja-
sýslu. Stella dundar sér viö þaö þegar þannig viörar aö
„búa“ og þá bakar hún ýmist pönnukökur eða vöfflur
fyrir svanga vegfarendur og gesti. „Húsiö“ hennar smíö-
aöi bóðir hennar Sigmar sem er 12 ára og eldhúsáhöld-
in eru fengin hér og þar úr sveitinni. Myndirnar tók Silli
á Húsavík.
Þegar von er á gestum er þaö góöra manna siöur aö taka ofurlítiö til hjá sér og aö sjálfsögöu raöar
Stella litla öllu í hillunum hjá sér.
Og þá er þaö pönnukökubaksturinn. Þaö er aldrei aö vita nema
gestunum líki ekki vöfflurnar ...
Málningarstúss
Félag einstæöra foreldra hefur um árabil haft skrifstofu sína í Traö-
arkotssundi 6, eins og margir vita. Stjórnarfólki í FEF þótti oröin
ærin ástæöa til aö mála þar og snurfusa og var í snarheitum komiö
á laggirnar „viögeröarvinnuhópi“ FEF. Fljótlega eftir aö vinna hófst
kom í Ijós aö mjög fallegur og alheill en skítugur panell er á
veggjum, á gólfi og í lofti. Er nú verið aö fletta brott nokkrum lögum
af veggfóöri og gólfdúk og vinnur hópurinn af kappi viö aö þvo,
pússa og lakka panelinn, svo og aö mála þá veggi sem síöari tíma
viðgeröarmenn hafa sett upp. Skrifstofan veröur opnuö eftir sumar-
leyfi í byrjun ágúst, svo fremi sem „viðgerðarvinnuhópurinn“ hefur
lokiö störfum. Á myndinni eru f.v. Ragnhildur Vilhjálmsdóttir, Guöný
Kristjánsdóttir, Edda Ragnarsdóttir og Borghildur Hauksdóttir. Auk
þeirra eru í hópnum Haukur Geirsson, Ásmundur Einarsson, Jón
Börkur Ákason, Ingi Árnason, Bjarni Bjarnason og Jóhanna Krist-
jónsdóttir og sagöi hún í samtali viö Mbl. aö enn væri unnt aö bæta
örfáum sjálfboðaliöum í hópinn.
Ljósm. Mbl. Árni Sæberg.
Lífleg
sumargleði
SANNKÖLLUÐ sumargleði hef-
ur ríkt á samkomum þeirra
Sumargleðimanna, sem nú gera
víöreist um landiö eina feröina
enn. Auk hljómsveitar og þeirra
gömlu kappa Ragga Bjarna,
Bessa og Omars Ragnarssonar
skreytir Hermann Gunnarsson
nú þennan fjölhaafa hóp og
Magnús Ólafsson er meó í
slagnum annaö áriö.
Á dögunum fylltu þeir félagar
Sjálfstæöishúsiö á Akureyri tvö
kvöld í röö eins og sjá má á ann-
arri myndanna skemmtu Akur-
eyringar og nærsveitamenn sér
hiö besta og tóku óspart þátt i
uppátækjum sviösmanna ef þess
var óskaö. Á hinni myndinni
bregöa þeir Bessi og Magnús
Ólafsson á ieik, brugglegir á svip
í afdal vestur á fjöröum, en Her-
mann Gunnarsson í gervi sýslu-
manns er ekki langt undan.